Morgunblaðið - 11.10.1973, Síða 3

Morgunblaðið - 11.10.1973, Síða 3
Stutt samtal við Sigurð Bjarnason, nýskipaðan sendi- herra Islands í Peking MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 1973. Nutum frábærrar risni 02 velvildar K.höfn, 10 okt. ' Frá fréttaritara Mbl. gest- 1 Kína Þegar íslenzku sendiherra- hjónin í Kaupmannahöfn, Sig- urður Bjarnason og Ólöf Páls- dóttir, lentu hér í Kastrup kl. um 21 s.l. laugardagskvöld höfðu þau verið rúmlega 22 klst. á .eiðinni, frá því að þau vöknuðu á Hótel Peking um morgunin sama dag. Flugu þau frá Peking um Karatzi í Pakist- an og París til Kaupmanna- hafnar. En 8 tíma munur er á fyrrgreindum borgum. — Sigurður Bjarnason hafði þann 25. september afhent sett- um formanni Alþýðulýðveldis- ins Kína embættisskilrfki sín sem fyrsti sendiherra Islands i Kína með búsetu í Kaupmanna- höfn. Þegar fréttaritari Mbl. leitaði frétta hjá sendiherranum um dvöl þeirra hjóna í Kína og við- ræður hans við ráðamenn þar, kvaðst hann ekki geta rætt ein- stök atriði þeirra. Hann myndi næstu daga senda íslenzka ut- anríkisráðuneytinu skýrsluum ferð sína. A þvf væri þó engin launung, að hann og kona hans hefðu notið frábærrar gestrisni og velvildar kínverskra r'áða- manna og annarra, er þau hefðu haft samband við. Kínverjar eru sérstaklega viðfelldið og greiðvikið fólk, sagði Sigurður Bjarnason. Atti það jafnt við, hvort sem við hittum æðstu ráðamehn þeirra eða bændur á samyrkjubúum, kennara og skólabörn suður í Shanghai eða fólkið við Hlið hins himneska friðar á þjóð- hátíðinni 1. októberí Peking. Hvað hátt setta leiðtoga Kín- verska alþýðulýðveldisins hitt- uðþið? Fyrst Chi Peng-Fei utanríkis- ráðherra landsins, þá settan formann Tung Pi-wu, er ég af- henti trúnaðarbréf mitt og síð- an Chou en-Lai forsætisráð- herra. Einnig hitti ég og átti fundi með ýmsum öðrum ráð- herrum og forstjórum í ráðu- neytunum, þeirra á meðal vara- ráðherra utanríkisviðskipta, sem ég taldi mjög þýðingar- mikið að ræða við um framtið- arefnahagsviðskipti íslands og Kína. Við aðra forystumenn var einnig rætt um menningarmál, alþjóðamál og almennt um sam- einginleg hagsmunamál. Mikill áhugi kom allsstaðar fram á stuðningi við baráttu Islendinga fyrir útfærslu fisk- veiðitakmarkanna. Kínverjar eru töluverð fiskveiðiþjóð, og hvar sem við komum, var ágætur fiskur á borðum. Við gerðum að sjálfsögðu allt, sem við gátum til þess að kynna land okkar og þjóð enda þótt til þess gæfist ekki langur tfmi I þessu mikla landi, þar sem talið er, að búi um 800 milljónir manna. En gleðilegt var að fylgjast með því með aðstoð góðra manna, að Islands var oft getið í kínverskum fjölmiðlum þessa daga. Fóruð þið víða um landið? Við reyndum að hitta eins marga að máli og tök voru á. Einnig ferðuðumst við nokkuð um nágrenni Peking, heimsótt- um samyrkjubú, tækniháskóla höfuðborgarinnar, sjúkrahús, listastofnanir o.s.frv. Einnig heimsóttum við „Múrinn mikla“ undir leiðsögn Wang Tung, forstjóra Vest- ur-Evrópudeildar utanríkis- ráðuneytisins, og konu hans. Var þaðan útsýn mikil og fríð til f jalla, og um frjósamar slétt- ur Norður-Kína. Þá fórum við í boði kínverska utanríkisráuneytisins til Shanghai og Hungchow. Yfirleitt má segja, að þessi fyrsta heimsókn okkar til Kína hafi verið mjög lærdómsrfk og vel heppnuð að öllu leyti. Það er von mín, að efnahagsleg og menningarleg viðskipti íslend- inga og Kfnverja muni í fram- tíðinni eflast á grundvelli gagn- kvæmrar virðingar þjóða okkar fyrir sjálfstæði hver annars og rétti til þess að njóta friðar og hamingju, sagði sendiherrann að lokum. Chou En-lai, forsætisráðherra Kfna með fslenzku sendiherra- hjónunum Sigurði Bjarnasyni og Ölöfu Pálsdóttur f „Hinni miklu höll fólksins“ 30. september s.l. Aðrir á myndinni eru: Til vinstri Wang Tung forstjóri Vestur-Evrópudeildar utanrfkisráðuneytis og aðstoðar utanrfkisráðherra Wang Hai-Jung. Til hægri: Tang Wen- sheng og Chu Chuan-Hsieng protokollsjeff. Alþingi Islendinga var sett í gær Alþingi islendinga var sett f gær við hátfðlega athöfn. Athöfnin hófst með messu f Dóm- kirkjunni, þar sem séra Ingimar Ingimarsson prédikaði. Að messu lokinni gengu forseti islands og biskup ásamt ráðherrum og þing- mönnum til Alþingishússins, þar sem Alþingi var sett formlega af dr. Kristjáni Eldjárn, forseta tslands. Að lokinni stuttri setningarræðu fól forsetinn aldursforseta þingsins, Ilannibal Valdimarssyni, stjóru þing- fundar. Hannibal minntist þriggja fyrrverandi alþingis- manna, sem látist hafa frá lokum sfðasta þings, þeir: i Jónasar Guðmundssonar, Björns Kristjánssonar og Kristins E. Andréssonar. Setningarathöfnin í Alþingis- húsinu hófst með þvf, að forseti íslands, dr. Kristján Eldjárn, las upp forsetabréf um samkomudag Alþingis og lýsti að svo búnu yfir því, að Alþingi væri sett. F'or- setinn gat þess, að hugur lands- manna beindist til Alþingis í hvert sinn, sem það væri sett, enda lægi einatt fyrir því að f jalla um hin mikilvægustu mál þjóðarinnar, bæði þau sem fyrir- fram væru undirbúin til þess að hljóta meðferð Alþingis og eins þau, sem fyrirvaralaust kæmu upp og greiða þyrfti úr, án þess að mikill tfmi gæfist til undir- búnings. Minntist forseti síðan þeirra feiknatíðinda, sem urðu, meðan sfðasta Alþingi sat, þegar eldgos varð í Vestmannaeyjum. Þar hefði sannarlega komið til kasta Alþingis og ríkisstjórnar. Ótrúlegur fjöldi erlendra aðila, bæði meðal nágranna okkar á Norðurlöndum og annars staðar, hefði sýnt Islendingum mikinn vináttuvott við það tækifæri. Þá minntist forseti íslands stuttlega á landhelgismálið og sagði, að næstsíðasta Alþingi hefði fjallað giftusamlega um málið, svo að algjör þjóðareining hefði náðst. Óskaði forseti tslands síðan alþingismönnum giftu í starfi sfnu og fól aldursforseta þingsins, Hannibal Valdimars- syni, stjórn þingfundar. Eftir að þingmenn höfðu hrópað ferfalt húrra fyrir forsetanum og fósturjörðinni eftir fyrirsögn Ólafs Jóhannes- sonar forsætisráðherra, tók Hannibal við stjórn fundarins og bauð þingmenn og starfslið þingsins velkomið til starfa. Þá minntist Hannibal Valdimarsson þriggja fyrrverandi alþingis- manna, sem látist hafa frá lokum síðasta þings. Þeir eru Jónas Guðmundsson fyrrverandi skrif- stofustjóri, sem andaðist 4. júlf, 75 ára að aldri, Björn Kristjáns- son fyrrverandi kaupfélagsstjóri, sem andaðist 10. júlf, 93 ára að aldri, og Kristinn E. Andrésson rithöfundur, sem andaðist 20. ágúst, 72 ára að aldri. Þessara manna verður minnst í Morgun- blaðinu síðar. Að þessu loknu var fundi frestað þar til í dag. Séð yfir þingsalinn þegar forseti Islands, dr. Kristján Eldjárn, flytur setningarræðu sfna á Alþingi f gær.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.