Morgunblaðið - 11.10.1973, Side 14

Morgunblaðið - 11.10.1973, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. OKTÖBER 1973. Glit hefur stórfram- leiðslu veggskjalda fyrir héruðin 1 dag hefst hjá keramikverksmiðjunni Glit f Reykjavfk framleiðsla á fyrstu þjóðhátfðarveggskjöldunum, sem verksmiðjan mun fram- leiða fyrir sýslur og byggðalög á tslandi. Að sögn Orra Vigfússonar framkvæmdastjóri Glits er gert ráð fyrir að alls verði fram- leiddir 30—40 þúsund slíkir skildir á þessu ári og næsta. Skildimir, sem byrjað verður á í dag eru fyrir Akureyri og Eyjafjarðarsýslu og hafa þegar verið pantaðir 5000 skildir af þessum aðilum. Teikninguna á skjöldinn gerði Kristinn G. Jóhannsson skólastjóri á Ölafs- firði, en hann gerði einnig teikninguna fyrir skjöld Ölafs- firðinga. Ymsir kunnir listamenn hafa teiknað myndir á þessa skildi og má þar nefna frú Barböru Ámason, sem teiknaði fyrir Kópavog og Halldór Pétursson fyrir Strandasýslu. Þá hefur Ómar Skúlason módelsmiður Glits útfært hugmyndir frá nokkrum þjóðhatíðarnefndum. Að sögn Orra Vigfússonar er hugmyndin að hanna vegg- skildi, einn fyrir hvert hérað á vegum þjóðhátíðarnefndar á hverjum stað, héraðs og bæjar- nefnda. Þegar hafa 10 héruð og bæjarfélög ákveðið teikn eða merki á sína skildi, en önnur eru með sfnar hugmyndir í Hér að ofan er mynd frú Bar- böru Árnason, sem verður á skildi Kópavogs og t.h. mynd Kristins G. Jóhannssonar, á skildi Akureyrar og Eyja- fjarðarsýslu. vinnslu og Reykjavíkurborg væntanlega einnig. Meðal mynda má nefna að Eiríksjökull verður á skildi Borgarfjarðarl og Mýrasýslu, Ásbyrgi á skildi N—Þingeyjar- sýslu, Borgarvirki á skildi Húnavatnssýslu og Dyrfjöll á skildi Múlasýslu. I 0 74 Sundrungin staðfest Sundrungin í Framsóknar- flokknum hefur nú verið staðfest opinberlega á sfðum Tfmans. I gær birtist í Tímanum dálkur, sem bar titilinn „Raddir ungra manna". Er dálkur þessi til orðinn eftir miklar sviptingar á ritstjórn Tímans og í blaðstjórn vegna hinnar svonefndu SUF- síðu. SUF-sfða hefur ekki birzt um nokkurra vikna skeið í Tfmanum. Hafa þó legið fyrir tvær síður. Var ætlunin að birta á annarri síðunni efni úr afmælisriti SUF, en á hinni bréfaskipti blað- stjórnar Tímans og stjórnar SUF. Áður en sfður þessar voru af hent- INNLENT ar til birtingar, hafði stjórn SUF að kröfu blaðstjórnar tilnefnt sér- staka ábyrgðarmenn að SUF- síðunni, þá Ólaf Ragnar Grímsson og Pétur Einarsson. Hins vegar brá svo við, að hvorug þessara síðna fékkst birt í Tímanum. Eftir mikið þóf var haldinn nýr fundur í blaðstjórninni. Þar lagði Ólafur Jóhannesson forsætisráðherra til, að búinn yrði til ný síða í Tíman- um, en héti „raddir ungra Fram- sóknarmanna". Þessi síða skyldi vera í umsjón ritstjóra Tímans og þar komið á framfæri sjónar- miðum, andstæðum þeim skoðun- um, sem birtast á SUF-síðunni, svo og yrði síða þessi notuð til þess að kynna unga menn, sem hugsað væri að yrðu í framboði fyrir Framsóknarflokkinn í næstu alþingiskosningum. Jafn- framt var ákveðið, að SUF- síðurnar mættu birtast. Með þessari ákvörðun blaðstjórnar Tímans hefur sundrungin í flokknum verið opinberlega stað- fest. Þá er rétt að hafa í huga, að þeir ungu menn, sem skrifa f dálkinn „raddir ungra manna" eru sérstakir skjólstæðingar Ólafs Jóhannessonar, hinir, sem um mál fjalla á SUF-síðunni, eru hon- um ekki þóknanlegir. Nýr gagnfræðaskóli á Höfn í Hornafirði Dræmari sala happ- drættisskuldabréfa MORGUNBLAÐIÐ leitaði upplýs- inga um það hjá Seðlabankanum, hvernig sala á verðtryggðum skuldabréfum ríkissjóðs og happ- drættisskuldabréfum vegna hringvegarins gengi um þessar mundir. Að sögn aðalféhirðis Seðlabankans, eru skuldabréf rfkissjóðs nú öll uppseld, en sam- tals voru um 220 milljónir f 1. flokki 1973. Hins vegar hefur salan f C-flokki happdrættis- skuldabréfanna verið hægari en f fyrri útboðunum tveímur, en þó hefur um 'A hluti þeirra þegar selzt. Alls nam útboðið í þessum C- flokki 100 milljónum króna. Seðlabankinn vonast þó til, að öll bréfin verði seld fyrir 20. desem- ber, þegar dregið verður í þessum flokki. Alls verður þá dregið um 273 vinninga, samtals að upphæð 7 milljónir króna — þar af eru Stolið úr bílum BROTIZT var inn í tvo bíla á stæðinu við Laugarásbíó, á meðan á níu-sýningu stóð á þriðjudags- kvöldið. Var stolið kassettusegul- bandstæki og segulbandsspólum úr öðrum bílnum, en spólum úr hinum. Þeir, sem kynnu að hafa orðið varir grunsamlegra manna- ferða á stæðínu á þessum tíma, eru beðnir að láta lögregluna vita. tveir milljón króna wnningar og einn á 500þúsund krónur. Þess má geta, að verðtryggingin á A-flokks bréfunum frá 1972 hefur hækkað þau um tæp 34%, þannig að 1000 króna bréfið hefur aukizt að verðgildi um 340 krónur það sem af er. B-flokks bréfin frá 1973 hafa þegar hækkað um 15%. Höfn 8. október. Nýi gagnfræðskólinn á Höfn í Hornafirði var settur í dag af Heimi Þ. Gíslasyni, nýráðnum skólastjóra en auk hans fluttu ræður við þetta tækifæri Árni Stefánsson skólastjóri barnaskól- ans, sem jafnframt hefur verið formaður bygginganefndar. oe Óskar Helgason oddviti. Árni Stefánsson lýsti skólanum, sem nú tekur til starfa, en þar er fyrsti áfangi af þremur, sem fyrir- hugað er að reisa. Næsti áfangi skólabyggingarinnar er íþrótta- hús með meiru. Kostnaðaráætlun byggingarinnar var 30 milljónir LEH)RETTING SJALDAN hefur prentvillupúk- inn farið á slíkum kostum sem í Mbl. í gær, þegar hann umskírði hin frægu Dyrfjöll og nefndi „Dýrafjöll“ í fréttabréfi frá sr. Sverri Haraldssyni 1 Borgarfirði eystra. Hvað myndi meistari Kjar- val sagt hafa við slíkum býsnum? Hins vegar má til sanns vegar færa, að í Borgarfirði finnst f jall, sem nefna mætti Dýrafjall, en það er fjallið inn af Lambadal, þar sem meistarinn sjálfur sýndi Borgfirðingum munstur, sem aðrir höfðu ekki fyrr séð, en greinilega er í leysingum á vor- degi sem hreindýrahjörð renni eftir endilangri fjallshlíðinni. Sök sér hefði verið að nefna Dyrfjöllin „Dýrðarfjöll“, sem raunar getur átt við öll f jöll Borg- arf jarðar. En það var ekki svo vel og biður Mbl. og vonar, að slíkt og þvílíkt endurtaki sig ekki. kr. en þar sem verðlag hefur stór- hækkað sfðan hún . var gerð, er ljóst, að um 10 milljónir kr. munu þurfa til viðbótar, til að ljúka því verki, sem enn er óunnið og á að verða lokið um næstu áramót. Arkitekt hússins er Hrafnkell Thorlacius, en smíði þess önnuð- ust félagarnir Sveinn Sighvats- son, Lars Imsland og Þorgeir Kristjánsson. í ræðu Arna kom fram, að 18 mánuðir eru nú liðnir frá því, að fyrsta skóflustungan var tekin að húsinu. í skólanum verða 85 nem- endur í 5 bekkjadeildum, en í barnaskóianum verða 170 nem- endur. 1 tónlistarskólanum verða um 50 nemendur, en þar er skólastjóri Sigurjón Bjarnason. Að loknum ræðuhöldum í gagn- fræðaskólahúsinu var gestum gef- inn kostur á að skoða hið veglega skólahús og aðstöðu alla. Gunnar. Fréttabréf frá Þórshöfn: Góðar gæftir, en rýr afli Þórhöfn, 9. okt. í dag duttu fyrstu snjókornin hér á þessu hausti, en tfð hefur verið með afbrigðum góð frá því um miðjan ágúst. Varla er hægt að segja, að komið hafi ógæfta dagur á þessu tímabili. Afli Þórshafnarbáta var 1. okt. sl. orðinn 2.460 lestir, eða um 110 lestum meiri en á sama tfma í fyrra. Þess ber þó að gæta að nokkru fleiri bátar eru gerðir héðan út nú en í fyrra. Núna eru fimm bátar að dragnótarveiðum og einn á línu og hefur hann aflað sæmilega, en heldur er afli tregur í dragnótina. En góðar gæftir hafa hjálpað þar mikið upp á sakirnar. Flestir eru hættir hand- færaveiðum og trillurnar hafa verið dregnar á land. Unnið hefur verið að hafnar- framkvæmdum i sumar, en þær eru lenging viðlegukants við haf- skipabryggjuna. Þessi viðlegu- kantur er úr tré og 70 rúmmetra langur. Einnig er verið að efla varnargarð úr grjóti, en hann á að verja bryggjuna fyrir brimróti. Þessar framkvæmdir kosta 10—11 milljónir króna og eru langt komnar. Fyrir nokkrum dögum hófust framkvæmdir við byggingu nýs frystihúss á vegum Hraðfryst- stöðvar Þórshafnar hf., og verður það staðsett við hafskipabryggj- una. Þetta verður mikil fram- kvæmd og samkvæmt kostnaðar- áætlun, sem gerð var á fyrra ári, mun húsið kosta um 50 milljónir kr. Húsið verður rúmir tvö þús- und fermetrar á einni hæð og verður búið tækjum og vélum af nýjustu og beztu gerð. Einnig verða skrifstofur fyrirtækisins í þessu húsi, en þetta er stálgrind- arhús, byggt 1 einingum, og er það væntanlegt hingað á næstunni. Talsvert er byggt hér um þessar mundir. Sjö ný hús verða fullgerð á þessu ári, og önnur fjögur eru í byggingu. Allt verða þetta ein- býlishús. Nýlega settist hér að dýralækn- ir, ungur maður, Rögnvaldur Ingólfsson að nafni. Hann mun þjóna dýralæknishéraði, sem nær frá Jökulsá á Fjöllum austur I Vopnafjörð. öli. Sex seldu fyrir 14 milljónir kr. SEX fslenzk skip seldu sfld f Ilirtshals f gærmorgun fyrir sam- tals um 14 milljðnir fsl. króna. Meðalverð var um 32 kr. fyrir kg. Helga II seldi 1653 kassa fyrir 2,1 milljón kr., Höfrungur III seldi 1734 kassa fyrir 2,2 milljónir kr„ Keflvíkingur seldi 1712 kassa fyrir 2,2 milljónir kr., Dagfari seldi 1635 kassa fyrir 2,1 milljón kr., Jón Finnsson seldi 2070 kassa fyrir 2,6 milljónir kr. og Rauðsey seldi 2140 kassa fyrir2,5 milljónir kr. Hættið að spila á vísitölukerfið — segja póstmenn Póstmannaþing, haldið f Munaðarnesi 22. og 23. sept. sl., gerði ályktun um kjaramál, þar sem lýst var stuðningi við fram- komna kröfugerð Bandalags starfsmanna rxkis og bæja og lögð sérstök áherzla á þessi atriði: -A- Fimm daga vinnuviku. ★ Lengingu orlofs þeirra, sem langan starfsaldur eiga að baki, t.d. 35 virka orlofsdaga eftir 20 ára starf. Almennir frídagar, svo og laugardagar, teljist ekki til or- lofsdaga. if Framfærslutekjur sam- kvæmt útreikningi Hagstofunnar verði undanþegnar útsvari og sköttum. Krafizt er, að skatta- eftirlit verði hert verulega og viðurlög við skattsvikum stórlega þyngd. Á þann hátt verði opin- berir starfsmenn og aðrir, sem rétt telja fram til skatts, leystir undan því að greiða skatta þeirra, sem undan skatti svíkja. if Greiddar verði fullar vísi- tölubætur á öll laun. Þá mótmælir þingið þeirri hefðbundnu venju stjórnvalda að spila á vísitölu- kerfið öllum iaunþegum meira og minna 1 óhag. Þá gerir þingið þá kröfu, til rfkisvaldsins, að BSRB fái aðild áð öllum viðræðum þess og launþegasamtakanna, sem kunna eiga sér stað um kaup- gjaldsvfsitölu. ir Krafizt er, að aukavinna, sem unnin er eftir kl. 17 á föstu- dögum til kl. 8 á mánudags- morgni, verði greidd með 150% álagi. •k Þingið styður endregið kröfuna um staðaruppbót til opin- berra starfsmanna úti á landi. I pósthðlfadeild á aðalpðsthúsinu — sundurlestur bréfa f þröngum húsakynnum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.