Morgunblaðið - 17.11.1973, Síða 4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBEP. 1973
Fa
m i. t i.i io i \
u iAit;
BÍLALEIGA
CAR RENTAL
21190 21188
Itel 14444 • 25555
mmm
I BlLALEIGA car rentalI
Æ BÍLALEIGAN
felEYSIR
CAR RENTAL
24460
í HVERJUM BÍL
PIOIM EGR
ÚTVARP OG STEREO
KASETTUTÆKI
Hverfisgöto 18
86060
SKODA EYÐIR MINNA.
Shodb
LEIGAN
AUÐBREKKU 44-46.
SÍMI 42600.
EMUR GAVALL TEVUR
Tölurnar
orðnar góðar
Nú, að landhelgissamningun-
um samþykktum, er eðlilegt,
að menn lfti um öxl
og hugleiði, hvernig mál
hafa þróast sfðan landhelgin
var færð út 1. september 1972.
Það er alveg rétt hjá Þjdð-
viljanum og Lúðvfk Jösepssyni,
að allt fram að forsætisráð-
herrafundinum þá réð hann og
Alþýðubandalagið ferðinni, í
landhelgismálinu. Enda gekk
hvorki né rak. Lúðvfk hafði
fullyrt, að Bretum yrði með
öllu ömögulegt að veiða mikið
magn af fiski á íslandsmiðum
gegn vilja fslenzku landhelgis-
gæzlunnar og skipti þar engu,
hvort þeir sendu hingað her-
skip eða ekki. Þegar út hingað
bárust svo tölur, sem sýndu hið
gagnstæða, þá greip Lúðvfk til
þess ráða að fullyrða, að slfkt
væri allt saman lygatölur og
með þvf að þær voru birtar f
fréttum Morgunblaðsins, var
reynt f tfma og ótfma að sverta
blaðið og væna það um að
ganga erinda Breta á Islandi.
Meira að segja forsætisráðherr-
ann freistaðist til þess, f raun-
um sfnum sem undirlægja Lúð-
vfks Jósepssonar, að taka undir
dylgjur Lúðvfks um lygafréttir
og landráðastarf'semi Morgun-
blaðsins. Morgunblaðið hafðí
haft þær fréttir eftir brezkum
fiskveiðiskýrslum, að Bretar
myndu veiða um og yfir 160
þúsund tonn á árinu. Þessar
upplýsingar sýndu, að Lúðvfk
Jósepsson fór með fleipur eitt,
þegar hann fullyrti, að Bretar
gætu ekki fiskað við Islands-
mið undir herskipavernd. Þvf
þótti honum og forsætisráð-
herranum rétt að grfpa til land-
ráðastimpilsins, sem ætfð var
innan seilingar hjá
ráðherranum.
En hvað hefur nú gerzt? Þeg-
ar forsætisráðherrann og
reyndar Lúðvfk Jósepsson, hafa
þurft á sfðustu dögum að sýna
fram á ágæti landhelgis-
samningsins hafa þeir sagt, að
með samningnum væri verið að
tryggja, að Bretar veiddu ekki
nema 130 þúsund tonn, en áður
hefðu þeir veitt rúm 160 þús-
jind tónn. Og hvaðan skyldi
nú seinni talan vera komín? Er
þetta ekki gamla landráðatalan
þeirra Lúðvfks og Ólafs? Það
má segja, að tilgangurinn helgi
ekki bara meðalið, nú er hann
farinn að helga landráðatölurn-
ar Ifka.
Forgangurinn
úr sögunni
Þvf er ekki að neita, að rfkis-
stjórnin hefur allt sfðastliðið ár
notað landhelgismálið sem
skálkaskjól fyrir að láta fjölda
stórmála reka á reiðanum. Þeg-
ar ráðherrar hafa verið spurðir
um, hvað gera eigi til að hamla
á móti hinni geigvænlegu verð-
bólgu, hafa þeir svarað: Land-
helgismálið hefur algeran for-
gang og annað verður að bfða.
Þegar þeir hafa verið spurðir
um hina ógnvænlegu skatt-
pfningu hafa þeir sagt, jú eitt-
hvað verður að gera, en menn
verða að athuga, að landhelgis-
málið er mál málanna og hefur
algjöran forgang. Þannig hefur
rfkisstjórnin notað hinn svo-
nefnda forgang landhelgis-
málsins til að koma fjölda
annarra stórmála á vergang. En
nú er sú átylla horfin, og ráð-
herramir verða að manna sig
upp til að horfast f augu við
þau stórkostlegu vandamál,
sem hún hefur hlaðið upp með
ráðdeildarleysi sfnu undanfar-
in tvö ár. Hermann Jónasson
leysti rfkisstjórn sfna upp á sfn
um tfma, þar sem hann vildi
ekki hrapa ofan f það hyldýpi,
sem framundan var og draga
þjóðina með sér f fallinu. En
Ólafur Jóhannesson virðistekki
hafa áhyggjur af slfku. Hann
telur verjandi, að ósam-
stæðustu og sundurklofnustu
rfkisstjórn, sem nokkru sinni
hefur verið við völd á Islandi,
sé falið að takast á við einn
mesta efnahagsvanda, sem
þjóðin hefur þurft að glfma við.
Ólafur Jóhannesson vill fórna
hag og heill þjóðarinnar til
þess að sanna, að vinstri stjórn
geti tórt lengur en 26 — 7
mánuði. Menn verða að vona,
að þessi rfkisstjórn verði
stöðvuð áður en hún stfgur það
skref út f tómið, sem Hermann
Jónasson sá fyrir á sfnum tfma.
Nýtt jólakort
frá Asgrímssafni
JÓLAKORT Ásgrímssafns á
þessu ári er gert eftir vatnslita-
myndinni Ur Skíðadal. Mynd
þessa málaði Asgrímur Jóns-
son árið 1951, í síðustu fer
sinni til Norðurlands. I endur-
minningum sfnum segir hann
m.a. um þennan norðlenzka
dal: „Skíðadalur er einn þeirra
staða, sem ég mundi hafa kosið
að kynnast miklu fyrr, og feg-
urri dal getur naumast á þessu
landi."
Þetta nýja kort er í sömu
stærð og hin fyrri listaverka-
kort safnsins, með islenzkum,
dönskum og enskum texta á
bakhlið, ásamt ljósmynd af As-
grími, sem Ósvaldur Knudseri
tók af honum árið 1956. Mynd-
iðn sá um ljósmyndun, Litróf
gerði myndamót, en Vfkings-
prent hf. annaðist prentun.
Einnig hefur safnið látið end-
urprenta kortið Cr Fljótshlíð,
en það hefur verið ófáanlegt í
nokkur ár. Nokkuð af hinum
fyrri listaverkakortum Ás-
grímssafns eru enn til sölu.
Verð kortanna er mjög í hóf
stillt.
Það er venja Ásgrfmssafns að
byrja snemma sölu jólakort-
anna til hægri verka fyrir þá,
sem langt þurfa að senda jóla-
og nýárskveðju, en þessar litlu
eftirprentanir má telja góða
landkynningu.
Eins og fyrr hefur verið frá
sagt, er ágóði kortasölunnar
notaður til greiðslu á viðgerð og
hreinsun gamalla listaverka í
safninu, en slfk vinna kostar
mikið fé.
Listaverkakortin eru aðeins
til sölu f Asgrímssafni, Berg-
staðastræti 74 og í verzlunum
Rammagerðarinnar í Hafnar-
stræti 17 og Austurstræti 3.
Ásgrimssafn er opið sunnu-
daga, þriðjudaga og fimmtu-
daga frá kl. 1,30-4.
Messur á morgun
Á rb æ ja rpres takal I
Barnaguðsþjónusta í Árbæjar-
skóla kl. 10.30. Messa i
Árbæjarkirkju kl. 14.00. Æsku-
lýðsfélagsfundur í Arbæjar-
skóla kl. 20.30. Séra Guðmund-
ur Þorsteinsson.
Langhol tspres takal 1
Barnasamkoma kl. 10.30. Guðs-
þjónusta kl. 2. Séra Arelíus
Nielsson. Óskastundin kl. 4.
Séra Sigurður Haukur Guðjóns-
son.
Laugarneskirkja
Messa kl. 2, barnaguðsþjónusta
kl. 10.30. Séra Garðar Svavars-
son.
Grensásprestakall
Bamaguðsþjónusta kl. 10.30.
Guðsþjónusta kl. 2. Séra
Halldór S. Gröndal.
Frfkirkjan Reykjavfk
Bamaguðsþjónusta kl. 10.30.
Friðrik Schram. Messa kl. 2.
Séra Þorsteinn Björnsson.
Hallgrfmskirkja
Bamaguðsþjónusta kl. 10,
messa kl. 11. Séra Ragnar
Fjalar Lárusson.
Neskirkja
Bamaguðsþjónusta kl. 10.30.
Guðsþjónusta kl. 2. Séra Frank
M. Halldórsson.
Háteigskirkja
Lesmessa kl. 9.30, bamaguðs-
þjónusta kl. 10.30. Séra Arn-
grfmur Jónsson. Messa kl. 2.
Séra Jón Þorvarðsson.
Dómkirkja Krists konungs f
Landakoti
Lágmessa kl. 8.30. f.h. Hámessa
kl. 10.30 f.h. Lágmessa kl. 2 e.h.
Bústaðakirkja
Bamasamkoma kl. 10.30. Guðs-
þjónusta kl. 2. Séra Ólafur
Skúlason.
Breiðholtsprestakal I
Æskulýðsguðsþjónusta er f
Breiðholtsskóla kl. 2 e.h.
Sunnudagaskóli í Fellaskóla kl.
10 f.h. og f Breiðholtsskóla kl.
10.30 f.h. Sóknarpresturinn.
Dómkirkjan
Messa kl. 11. Séra Öskar J. Þor-
láksson dómprófastur. Messa
kl. 2. Foreldrar fermingar-
barna eru beðnir að mæta með
börnunum. Séra Þórir
Stephensen. Bamasamkoma kl.
10.30 í Vesturbæjarskólanum
við Öldugötu. Séra Þórir
Stephensen.
Kársnesprestakall
Barnaguðsþjónusta f Kárnes-
skóla kl. 11. Guðsþjónusta f
Kópavogskirkju kl. 11. Séra
Ami Pálsson.
Digranesprestakall
Bamaguðsþjónusta f Víghóla-
skóla kl. 11. Guðsþjónusta f
Kópavogskirkju kl. 2.
Aðalsafnaðarfundur eftir
messu. Séra Þorbergur
Kristjánsson.
Kirkjuvogskirkja f Höfnum
Messa kl. 2. Bamaguðsþjónusta
kl. 4. Séra Jón Ami Sigurðsson.
Hvalsneskirkja
Messa kl. 2. Séra Guðmundur
Guðmundsson.
Stokkseyrarkirkja
Messa kl. 2. Sóknarprestur.
Eyrarbakkakirkja
Bamaguðsþjónusta kl. 10.30.
Sóknarprestur.
Selfosskirkja
Messa kl. 2. Séra Sigurður Sig-
urðsson.
Frfkirkjan Hafnarfirði
Guðsþjónusta fellur niður á
morgun vegna viðgerða á kirkj-
unm. Guðmundur Óskar ólafs-
son.
Garðakirkja
Barnasamkoma f skólanum kl.
11. Helgiathöfn í Gaðakirkju
kl. 8.30. e.h. Sigfús Halldórsson
tónskáld talar og flutt verður
tónlist eftir hann, Bragi Frið-
riksson.
Kálfatjamarkirkja
Messa kl. 2. Bragi Friðriksson.
Lágafellskirkja
Barnagusþjónusta kl. 2
Bjami Sigurðsson.
Keflavfkurkirkja
Baraaguðsþjónusta kl. 10.
Björn Jónsson.
Yt ri-Nj arðvf kursókn
Messa í Stapa kl. 2 (Þess er
vænzt, að væntanleg fermingar-
börn mæti ásamt foreldrum sín-
um). Björn Jónsson.
Innri-Njarðvfkurkirkja
Messa kl. 11. (Þess er vænzt að
væntanleg fermingarbörn mæti
ásamt foreldrum sínum). Björn
Jónsson.
Hveragerðisprestakall
Bamamessa kl. 11. Messa
Kotströnd kl. 2. Sóknarprestur.
Ásprestakall
Barnaguðsþjónusta í Laugarás-
bfói kl. 11.00. Messa í Laugarás-
bíói kl. 1.30. Séra Grímur
Grímsson.
El liheimi lið Grund
Messa kl. 10.00. Séra Magnús
Guðmundsson fyrrv. prófastur.
Sunnudagaskóli kristniboðs-
félaganna
er f Alftamýrarskóla kl. 10.30.
öll börn em velkomin.
Sunnudagaskóli Heimatrúboðs-
ins
er að Óðinsgötu 6A, byrjar
ávallt kl. 14.00. ÖIl börn vel-
komin.