Morgunblaðið - 17.11.1973, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 1973
Jeane Dixon
Spáin er fyrir daginn f dag
Hrúturinn
■iVl 21. marz — 19. apríl
Góður dagur til að taka til gagngerrar
endurskodunar mál heimilis og f*ö|-
skyldu, sérstaklega ef um er ao ræða
hvers konar umbætur oe laefæringar
þvf, sem miður hefur farið að undan
förnu. Sýndu þínum nánustu þolinmæði
og skilning.
Nautið
20 aprfl —20. maí
Næmleiki þinn og innsæi gerir þér
kleift að skilja hismið frá kjarnanum í
dag, og sennilega munt þú verða ein-
hvers áskynja, sem kemur þér á óvart.
Nauðsynlegt er fyrir þig að taka fjármál
in til nánari athugunar
Tvíburarnir
21. maf — 20. júnf
Gerðu þér grein fyrir því hvaða fram
kvæmdir eru nauðsynlegar að sinni og
gerðu þínar ráðstafanir. Ekki erdsenni
legt, að þú þurfir að grfpa til óvinsæila
aðgerða, sérstaklega ef f hlut á ung
menni, sem hefur stöðugt verið að færa
sig upp á skaftið að undanförnu.
Krabbinn
21. júnf — 22. júlí
Fólk, sem þú hefur stofnað til kunn-
ingsskapar við nýlega er greinilega ekki
á sömu bylgjulengd og þú, og kann þetta
að valda nokkrum óþægindum og jafnvel
misskilningi. Verið gæti, að þú værir
óþarflega þröngsýn (n), eða h vað?
Ljónið
23. júlf —22. ágúst
Við freistingum gæt þfn — sérstaklega
f peningamálum. Gættu þess að eyðaekki
umfram efni. Þér hættir við þvf að rugla
saman staðreyndum, og á þetta sérstak-
lega við þegar þér hleypur kapp f kinn
Undrastu ekki þótt einhver segi þér til
syndanna.
Mærin
23. ágúst —22. sept.
Þú hefur þann dskemmtiiega ávana að
geta ekki viðurkennt, að þú hafir haft
á röngu að standa. Þetta gæti komið séi
illafyrir þig f dag. og gæti jafnvel valdið
vinslitum eða þvf sem næst Hugsanlegt
er, að um sé að kenna vanþekkingu þinni
á málinu.
m\
Vogin
23. sept. — 22. okt.
Þér berast gleðitfðindi, og er full
ástæða til að efna til mannfagnaðar af
þvf tilefni. Þú þarft á leíðsögn að halda
Engin skömm er að því, að biðja um
ráðleggingar þar sem þeirra er að leita.
Brjóttu odd af oflæti þfnu, og sýndu
samstarfsvilja þinn f verki.
Drekinn
23. okt. —21. nóv.
Ljúktu skyldustörfum þfnum af svo
snemma sem auðið er. Sfðari hluta dags
er líklegt að þú verðir var við ótvfræðan
árangur af erfiði þínu undanfarið. Gættu
þess að taia ekki af þér eða vera of
opinská(r), þvf að oft er f holti heyrandi
Bogmaðurinn
22. nóv. —21. des.
Heilsufar þitt er ekki með bezta móti
um þessar mundir, og ættirðu að gera
ráðstafanir til að bæta úr því. Kappkost-
aðu heilbrigt Ifferni, og gættu sérstak-
lega hófs f mat og drykk. Láttu stundar-
erfiðleika ekki á þig fá, en notaðu tfm
ann t il að gera áætlanir.
Steingeitin
22. des. — 19. jan.
Gefðu gaum þörfum og kröfum ann-
arra, og leggðu þig f framkróka með að
geðjast þfnum nánustu. Láttu ekki slá
ryki f augu þér varðandi eitthvað, sem
hefur valdið þér heilabrotum að undan-
förnu. Gættu þess, að utanaðkomandi að-
ilar blandisér ekki f einkamál þfn.
Vatnsberinn
20. jan. — 18. feb.
Þeir fjármunir, sem þú verð til endur-
bóta á heimilinu núna fara ekki f súginn.
Þú skalt varast að eiga fjármálaviðskipti
við vini eða kunningja þar sem Ifklegt er,
að slfkt gæti valdið misskilningL Skrif-
aðu ekki undir neinar skuldbindingar f
dag.
Fiskamir
19. feb. —20. marz
Tilfinningamál hafa áhrif á allt, sem
þú tekur þér fyrir hendur f dag. Gættu
þess, að hlutur þinn verði ekki fyrir borð
borinn þegar um er að ræða viðskipta-
samninga, sem þú hefur kosið að fela
öðrum að gera fyrir þína hönd, þar sem
Ifkur eru á þvf, að viðkomandi sé ekki
alvegmeð ánótunum.
HÆTTÁ Á NÆSTA L.EITI
FERDINAND
X-0
HEFOARKETTIRIMIR