Morgunblaðið - 09.12.1973, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 09.12.1973, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. DESEMBER 1973 Mannréttinda yfirlýsing SÞ 25 ára Fegurðarsamkeppni var haldin f Austurbæjarbfói f fyrrakvöld og kusu áhorfendur, um 100 talsins, ungfrú Reykjavík úr hópi þriggja keppenda. Heitir ungfrúin Elva Gfsladóttir, 18 ára verzlunarmær, en hinar tvær voru Ragnheiður Björk Reynisdóttir 19 ára (t.v.) og Sólrún Amadóttir, 19 ára (t.h.). (Ljósm. Mbl. Br. H.). MANUDAGINN 10. des. verður 25 ára afmælis mannréttindayfir- lýsingar Sameinuðu þjóðanna minnzt um heim allan. í tilefni dagsins munu framkvæmdastjóri S.Þ. og forseti allsherjarþingsins flytja ávörp, en þingið efnir til sérstaks hátfðarfundar. Sam- kvæmt ákvörðun þess hefst þá einnig „áratugur baráttu gegn kynþáttarhatri og kynþáttamis- rétti". Utanríkisráðherra flytur á mánudag ávarp í ríkisútvarpið um yfirlýsinguna og starfsemi Sameinuðu þjóðanna á sviði mannréttinda. Félag Sameinu þjóðanna á ís- landi boðar til almenns fundar um mannréttindi kl. 17.30 á mánudag í Lögbergi, húsi laga- deildar Háskóla íslands, stofu 102. Verða frummælendur Sigur- geir Sigurjónsson hr. og Þór Vilhjálmsson prófessor. Mannréttíndayfirlýsingin var á sfnum tíma birt öllum þjöðum og rfkjum til fyrirmyndar. Hún er í 30 greinum, er fela f sér ákvæði um borgaraleg, stjórnmálaleg, efnahagsleg, félagsleg og menn- ingarleg réttindi til handa öllum mönnum. Var hún sett til að árétta hin háleitu markmið, sem Sameinuðu þjóðunum eru sett í 1. grein stofnsáttmála samtakanna, þ.e. að styrkja og stuðla að virð- ingu fyrir mannréttindum og grundvallarfrelsi allra án tillits til kynþáttar, kyns, tungu eða trú- arbragða. Hitaveita til í allt þéttbýli í Árnes- og Gullbringusýslu KRISTJAN Sæmundsson jarð- fræðingur og Valgarð Stefánsson á Orkustofnun hafa afhent skýrslu um jarðhita á íslandi, með tilliti til nýtingar í jarðhita í þéttbýli. Þar kemur m.a. fram að Gullbringusýsla og Arnessýsla hafa innan sinna marka öflug- ustu lághitasvæði. Allir þéttbýlis- staðir f þessum sýslum hafa möguleika á að hagnýta jarðhita til hitaveitu. í Borgarfirði er öfl- ugt lághitasvæði og áform uppi um að leiða þaðan vatn til Hvann- eyrar og Borgarness og jafnvel Akraness. Könnun stendur yfir á því, hvort ha*gt sé að fá vatn á Leirársvæðinu fvrir Akranes. Möguleikar eru á. að hægt sé að fá með borunum heitt vatn fvrir Miðsand í Ilvalfirði. Annars stað- ar á Vesturlandi eru ekki mögu- leikar á að afla heits vatns fvrir þéttbýli. A Vestfjarðakjálkanum eiga einungis T álknafj örður og Drangsnes möguleika á hita- veitu frá nálægum jarðhitasvæð- um A Miö-norðurlandi milli Húnaflóa og Eyjafjarðar og í Suð- Nafn misritaðist VEGNA fréttar í Mbl. í gær um að Axel Axelsson, hinn kunni hand- knattleiksmaður, færi e.t.v. til þýzks liðs á komandi ári, skal tek- ið fram, að sá, sem hefur haft milligöngu um þetta mál, er Dierter Wendler, forstjóri skrif- stofu Flugfélags íslands í Frank- furt, en nafn hans misritaðist í blaðinu í gær. Umræður um mál- efni aldraðra Samtök sveitarfélaga í Reykja- nesumdæmi gangast fvrir umræðufundi um málefni aldraðra og þá fyrst og fremst um nauðsyn á elli- og hjúkrunar- heimilum í kjördæminu. Fundurinn verður haldinn þriðjudaginn 11. þ.m. í Félags- heimilinu á Seltjarnarnesi og hefst kl. 14.00. Fundurinn er opinn öllum þeim, sem áhuga hafa á þessu máli. Þess er fastlega vænzt, að þeir. seni starfa að þessurn málum í kjördæminu, sjái sér fært að sækja fundinn, svo sem læknar, hjúkrunarfólk, sveitarstjórnar- menn, formenn nefnda og ráða á vegum sveitarstjórna og aðrir áhugamenn um þessi málefni. Ráðune.vtisstjóra heilbrigðis- og tryggingaráðuneytisins, þing- mönnurn kjördæmisins og stjórn D.A.S. er sérstaklega boðið á fundinn. (Frétt frá SASIR) FORNIHVAMMUR ILLA FARINN í fornahvammi hefur verið heldur dauft yfir í haust, sagði Hafsteinn Ólafsson í Forna- hvammi í símtali við Mbl. Við reynum að leysa vanda ferðamanna, sem að ber, þó að aðkoma og aðstæður séu heldur ömurlegar. Húsurn hefur ekki verið haldið við og í október- mánuði í haust var lokað fyrir rafmagnið í hluta hússins af þeim sökum. Liggur húsið undir mikltim skemmdum og inuii vafa- lítið kosta Vegagerðina, sem á Fornahvamm, mikla peninga að lagfæra það. Um langt árabil hefur Forna- hvammshúsinu ekki verið haldið við og nú er syo komið að það lekur ekki aðeins með gluggum heldur líka þakið og jafnvel út- veggir. Það var þessi húsleki, sem leiddi til þess, að rafmagnseftir- litsmenn lokuðu fyrir rafmagnið f hluta al' húsinu. Seinna komu svo viðgerðarmenn og slógu plöt- um á þakið, en samt sem áður lekur það. ur Þingeyjarsýslu eiga allir þétt- býlisstaðir möguleika á hitaveitu nema Skagaströnd, Hofsós, Akur- eyri og Grenivík. Flestir þessir staðir hafa þegar hitaveitu en á fáeinum er rannsókn nýlokið eða hún stendur yfir. í Norður Þingeyjarsýslu, Múla- sýslum og Skaftafellssýslum er hvergi von um jarðhita til hita- veitu fyrir þéttbýli, nema á Egils- stöðum. t Rangárvallasýslu er Ilella eini staðurinn, sem einhver von er um jarðhita nærri þéttbýli. 1 Vestmannaeyjum er ekki von um jarðhita f venjulegum skiln- ingi, en hugsanlega mætti nýta varmaforðann í nýja hrauninu til húshitunar. Ljóst er, að margir þéttbýlis- staðir á landinu eiga kost á hita- veitu í náinni framtfð. Tækjakost- ur jarðborana leyfir ekki að allt sé gert í einu, þannig að þeir staðir, þar sem borana er þörf verða að sætta sig við forgangs- röð. Hér á eftir er þessum verk- efnum stillt upp i forgangsröð eft- ir fjórum flokkum, sem miðast við A) lögn frá hverum borholum, sem þegar eru til, B) borun með gufubor, C) borun með bor af miðlungsstærð, D) borun meðlitl- um bor. A) 1. Borgarnes, Hvanneyri, Akranes — frá Deildartungu 2. Þorlákshöfn, Eyrarbakki, Stokkseyri — frá borholum ofan við Hveragerði. 3. Siglufjörður — frá borholum f Skútudal. B) 1. Svartsengisveita fyrir þétt- býliðá Suðurnesjum. 2. Ilitaveita Reykjavíkur fyrir Kópavog, Garðahrepp og Hafnar- fjörð. 3. Hitaveita Selfoss f.vrir E.vrar- bakka og Stokkseyri. C) 1. Akranes, boranir á Leirá. 2. Reykhólar, Barð., vegna þang- og þaravinnslu. 3ÞorIákshöfn, boranir í Ölfusi. 4. Blönduós, boranir á Reykjum við Reykjabraut. 5. Ilúsavík, boranir á Hveravöll- um vegna stækkunar. D) 1. Egilstaðir, borun við Urr- iðavatn. 2. Tálknafjörður, borun vestan við þorpið. 3. Hella, borun austan við Kauptúnið. 4. Drangsnes, borun í Hveravík. 5. Haganesvík, borun í Fljótum. 6. Svalbarðseyri, borun þar á staðnum. Einnig þarf að gera ráð fyrir borunum til að auka vatnsmagn á ýmsum stöðum, þar sem hitaveit- ur eru fyrir bæði í bæjum og kauptúnum og eins fyrir skóla, félagsstofnanir og bæjahverfi, líkt og verið hefur undanfarin ár. Jafnframt því, sem unnið er markvisst að aukinni nýtingu jarðhitans, þarf að hafa augun opin fyrir tækninýjungum. Hér skulu aðeins nefnd þrjú atriði. Pökkun með háþrýstidælu gæti orðið til þess að auka innrennsli í borholur þar sem berggrunnur er mjög þéttur. Þörf er á bor, sem getur borað hratt víðar holur niður í ca 50 — 100 m dýpi eftir heitu vatni á hverasvæðum. Slík- ur bor myndi einnig nýtast við boranir eftir neyzluvatni. Fylgj- ast þarf með því hvernig tækni fer fram í að nýta heitt, þurrt berg. Hér á landi er berggrunnur víða þéttur en hitastigull hár. I framtiðinni gæti reynst hag- kvæmt að nýta slík svæði eftir að þau hefðu verið gerð vatnsgeng með sprengju. Nýlegur samning- ur milli Orkustofnunar og Atomic Energy Commision Bandaríkj- anna ýtir undir bjartsýni á að tilraunir af þessu tagi mættu vera gerðar hér. Skógræktarfélag Kópavogs ANNAR fræðslufundur Skóg- ræktarfélags Kópavogs verður haldinn I Félagsheimili Kópa- vogs, mánudaginn 10. desember 1973, kl. 21.00. Eyþór Einarsson grasafræðing- ur sýnir litskuggamyndir og talar um gróður Grænlands og Alpa- fjalla. Þar verður fjallað um margar fegurstu fjölærar jurtir, sem hægt er að rækta í görðum hérlendis. Skógræktarfélagið hefur jóla- tréssölu, sem hefst 10. des., og verða aðalbækistöðvar hennar viðNeðslutröð. FH vann Þór FH vann Þór 23:16 í leik liðanna f 1. deild íslandsmótsins í hand- knattleik á Akureyri 1 fyrrakvöld. FH vann einnig lið Þórs f meistaraflokki kvenna. Nánar verður sagt frá þessum ieikjum og öðrum íþröttaviðburðum helg- arinnar f íþróttafréttum Mbl. á þriðjudaginn. Vfir 5000til Islands í nóv. UMFERÐ ferðamanna til íslands með flugvélum var f nóvember- mánuði 5579. Kom 2561 íslendingur og 3018 útlendingar til landsins í mánuðinum. Af útlendingum voru Banda- rfkjamenn flestir eða 1691 tals- ins, en alls komu ferðamenn frá 52 þjóðlöndum. Með skipum komu í sama mánuði 13 manns til landsins, þar uf 7 íslendingar. Sögn og saga ANNAÐ bindi safnritsins Sögn og saga, eftir Oscar Clausen er komið út. Undirfyrirsögn er fróðlegir þættir um ævikjör og aldarfar. Þættirnir í bókinni eru alls 13, og bera þeir heitin: Frá séra Sigurði Gunnarssyni á Hallormsstað, Innlendir kaup- menn í Reykjavík eftir að verzlun varð frjáls, Um verzlun Þjóðverja á miðöldum og upp- haf verzlunar í Stykkishólmi, Mikillátur valdsmaður og dóm- harðar, Vesturfarahópurinn stærsti, Dætur fógetans og Leiðrétting Föðurnafn Lárusar Ingólfsson- ar misritaðist i blaðinu í gær, þeg- ar sagt var frá leikurum i Leður- blökunni í Þjóðleikhúsínu. Setningin átti að vera: Ennfrem- ur eru leikararnir Ámi Ti yggva- son og Lárus Ingólfsson i veiga- miklum hlutverkum. tengdasynirnir, Galdra- mennirnir í Grimsey, Ríkir Breiðfirðingar, Herskár prest- ur missir hempuna, Góður guðsmaður drukknar, Hugvits- maðurinn úr Geitareyjum, Harðæri í Vestmannaeyjum og Vandræði og bágindi í byrjun 19. aldar. Bókin er 208 bls. að stærð. Utgefandi er Skuggsjá. » * m ja k ■ • »*»«*•■*■ * mmm-.a mm-m-m mmm **»■•«** a~mm mm-mm'.mm mmmmm mmmmmm mm m * m m mmm m m mmmim-m. m mmmm mmm a m * mmm m.m m mm m-rnmm-a mm m mm ..i

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.