Morgunblaðið - 09.12.1973, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 09.12.1973, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. DESEMBER 1973 29 MAIGRET OG SKIPSTJORINM Framhaldi eftir G eftir Georges Simenon Jóhanna Kristjónsdóttir þyddi 12 líklega hvort hún færi rétt með skilaboð hans. ... að í Hollandi setja lögreglu- menn ungum stúlkum ekki stefnumót um hánótt... Maigret setti dreyrrauðan og hann fann þungan nið fyrir eyrunum. Þessi áburður var svo fullkom- lega úr lausu lofti gripinn og lýsti alveg sérstakri tortryggni! Því að Cornelius var þarna líka, enda þótt hann hnipraði sig saman i skugganum og reyndi að láta sem allra minnst fara fyrir sér! Og faðir Beetjes hlaut að vita, að það var vegna Cornéliusar, sem stúlkan hafði farið út! En hverju átti Maigret svosem að svara... þegar unga stúlkan varð að vera túlkur þeirra á milli i þokkabót? Reyndar var enginn, sem vænti svars frá honum. Bóndinn smellti fingrum, eins og hann væri að kalla á hund og benti. Stúlkan hikaði við, sneri sér um stund að Maigret, en lét sem hún sæi ekki aðdáanda sinn. Svo ákvað hún að fylgja föður sínum heim á leið. Cornelius hafði hvorki stunið né hóstað. Hann lyfti ^hendinni þegar Liewens gekk framhjá hon- um, kannski til að reyna að stöðva hann. En hann lét höndina fljót- lega síga. Feðginin hurfu út í myrkrið og skömmu siðar var úti- dyrunum skellt. Höfðu froskarnir þagað meðan þessu fór fram? Maigret treysti sér ekki til að segja um það, en nú varð kvak þeirra svo hávært og ákveðið, að við borð lá, að hann fengi hellu fyrir eyrun. — Talið þér frönsku? — Örlítið. .. Hann leit illilega á Maigret, opnaði varla munninn og stóð eins og hann væri tilbúinn að ráðast á lögregluforingjann. — Hvers vegna eruð þér svona hræddur? Tárin streymdu úr augum hans, en ekkert hljóð kom yfir varirnar. Svo snýtti hann sér". Hendurnar skulfu. Kannski var hann að brotna aftur? — Eruð þér virkilega hræddur um, að verða ákærður fyrir að hafa myrt kennarann yðar? Andartaki síðar bætti Maigret við: — Við skulum koma. Hann ýtti unga manninum í áttina til bæjarins. Svo fór hann að tala og talaði lengi, því að hann fann á sér, að ungi maðurinn fylgdist illa með. Afsakið maður minn en ég heyri illa — hvað er hvað? — Eruð þér hræddur yðar vegna? Hann var bara stór drengur. Grannleitt andlit, veiklyndislegir andlitsdrættir og fölur hörunds- litur. Mjóslegnar axlir i þröngum einkennisbúningum. Húfan virtist alltof fullorðinsleg á hon- um og hann líktist einna helzt litlum dreng, sem var að leika sjómann. í fasi hans og svip var þrjózka. Ef Maigret hefði brýnt röddina hefði hann sennilega lyft hendinni til að skýla andlitinu, eins og hann byggist við löðrungi. Svarta sorgarbindið stakk í stúf. Það var ekki nema tæpur mánuður siðan hann hafði fengið fréttina um andlát móður sinnar I Austur-Indium... kannski meðan hann var að skemmta sér kvöld i Delfzijl — kannski á skólaballi. Eftir þrjú ár kæmist hann á skip og þá færi hann heim og faðir hans myndi sýna honum þriggja ára garhla gröf. Kannski væri þá önnur kona tekin við búsforráðum. Við tæki sjómannslífið á stóru skipi... Java-Rotterdam, Rotter- dam-Java, tveir dagar á einum stað, fimm sex klukkustundir á öðrum. — Hvar voruð þér staddur, þegar kennari yðarvar skotinn? Gráturinn hófst á nýjan leik. Drengurinn greip með hvitu hönzkunum sfnum í jakka Maigrets og lögregluforinginn fann, að pilturinn skalf frá hvirfli til ilja. — Ekki satt . . . ekki satt . . . endurtók hann hvað eftir annað. —Nei . . . þér skiljið ekki . . . Nei. Ekki satt.. . Þeir gengu aftur inn í ljós- glampann frá vitanum. Þeir fengu ofbirtu í augun um stund. — Hvar voruð þér? — Þarna. — Þarna var bæði hús Popinga, og skurðurinn, sem hann var van- ur að stökkva yfir. Það var eitt mjög alvarlegt atriði í þessu. Popinga hafði verið drepinn þegar klukkuna vantaði fimm mínútur f tólf. Cornelius hafði komið til skipsins klukkan fimm mínútur yfir tólf. Ef hann hefði farið venjulegu leið, það er að segja gegnum bæinn, hefði ferðin tekið að minnsta kosti hálfa klukku stund, en aðeins sjö til átta mínútur, þegar stokkið var yfir timbur- fleka yfir skurðinn og engar krókaleiðir farnar. Maigret gekk hægt og þungsla- lega við hlið unga mannsins, sem skalf eins og strá í vindi. Þegar þeir heyrðu asnann reka upp enn eitt öskur virtist Cornelius langa einna mest til að taka undir sig stökk. — Elskið þér hana Beetje? Þvormóðskuleg þögn. — Þér sáuð hana koma aftur, eftir að kennarinn yðar hafði fylgt henni heim? — Það er ekki satt... það er ekki satt. Maigret langaði til að róa hann með því að skamma hann dug- lega, en samt gat hann ekki varizt þvi að líta á piltinn með um- burðarlyndi og næstum blíðlegu augnaráði. — Hittið þér Beetje á hverjum degi? En þessi þrjózkulega þögn. — Hvenær eigið þér að vera komnir aftur um borð? — Klukkan tíu . . . venju- lega... þegar ég var hjá kennaranum í aukatíma gat ég fengið... — Að koma seinna heim! En ekki í kvöld? Þeir stóðu við skurðinn, einmitt á þeim stað, þar sem Cornelius hafði farið yfir hann. Maigret gekk niður að timburflekunum, og sté á einn þeirra eins og ekkert væri sjálfsagðara. Minnstu munaði, að hann missti jafn- vægið, því að hann skorti alla æfingu og trjábolurinn snerist undir þunga hans. Cornelius htkaði. — Komið þér nú! Klukkan er að verða tíu! Ungi maðurinn horfði á hann hissa. Hann hafði augsýnilega ekki átt von á því að hann færi framar um borð í skipið, heldur yrði hann tekinn fastur og varpað i fangelsi. En nú fylgdi þessi ógnþrungni lögreglumaður honum til skips og tók tilhlaup til að komast yfir tveggja metra autt svæði úti á miðjum skurðinum. Vatnið skvettist yfir þá á leiðinni. Þegar yfir kom, nam Maigret staðar til að reyna að þurrka af buxunum. — Hvaða leið förum við? Hann hafði ekki enn þá komið yfir á hinn bakka skurðarins. Stórt autt svæði lá milli Amster- diep og næsta skurðar, sem var breiður. og skipgengur. Þegar Maigret leit um öxl sá hann að enn var Ijós i glugga í húsi Popinga. Hann sá veru innan við gluggatjöldin. Það hlaut að Amerískur leik- stjóri ieiðbeinir íslenzkum leikurum VELVAKANDI Vatwakandi avarar ( sbna 10- 100 M. 10.30—1130. W mánudagi tB Watudaga. • Félagslíf Góðgerðastarfsemi ýmiss konar er eigi svo litill eða ómerkur þáttur í félagslifi almennings hér- lendis. Klúbbar, kvenfélög, framfara- félög og samstarfshópar hvers konar hafa hin ýmsu mál á stefnu- skrám sínum, og vinnur hver að sinu, að því er virðist af mikilli eljusemi og áhuga. Stundum er af nöldurseggjum amast við þessari starfsemi og sagt, að aldrei sé flóafriður fyrir merkjasölum, kaffisölum, basör- um og „sníkjuherferðum“, en er þessi starfsemi ekki einmitt gott dæmi um framtakssemi og sam- stöðu hópa, sem vinna gott og þarft starf, hver á sínu sviði? Það eru til dæmis fáar kirkjur, sem upp hefur verið komið fyrir styrktarfé, sem safnazt hefur með þessum hætti, auk þess sem sjúkrahús og — deildir hafa bein- línis risið vegna þessa starfs, svo að eitthvað sé nefnt. Það er lika stór spurning, hvort það sé ekki hollur hugsunarhátt- ur, að eitthvað megi á sig leggja til að hrinda nauðsynjamálum i framkvæmd — og hvort stofnan- ir, sem risið hafa fyrir þetta frum- kvæði almennings, standi ekki nær fólkinu, ef svo má að orði komast, og séu þvi kærari en sam- bærilegar stofnanir, sem greiddar eru beint úr opinberum sjóðum. Stundum heyrist um það talað, að hinir ýmsu klúbbar og félög, sem hafa góðgerða starfsemi að markmiði, séu fyrst og fremst til að þjóna „snobbþörf" félaganna og meðlimirnir helgi sig einkum dýrlegum átveizlum, en hafi góð- gerðastarfsemi sem nokkurs konar afsökun fyrir iðju sinni. En er það ekki einmitt að slá tvær fiugur í einu höggi, þegar unnið er að þörfum og brýnum málefn- um og félagsþörfinni sinnt um leið? Maðurinn er þó alltént félagsvera. % Krunkað á skjáinn A þessum vettvangi hefur áður verið borið lof á þátt Magnúsar Bjarnfreðssonar, Krunkað á skjáinn. Eftir siðasta þátt, sem var á dagskrá s.l. miðvikudag hringdu nokkrir sjónvarpsnot- endur og báðu Velvakanda um að koma á framfæri ánægju sinni með þáttinn og er það gert hér með. Einn þeirra, sem hringdu vildi koma þeirri hugmynd á framfæri við Magnús, að liann færi og heimsækti fjölskyldur á heimilum þeirra. Annar vildi lýsa sérstakri velþóknun sinni á fræðsluþáttunum um slysavarnir og varúðarráðstafanir á heimil- um, og sagðist hafa trú á því, að þeir yrðu til þess að vekja fólk til umhugsunar um ýmsar hættur, sem það hefði e.t.v. ekki gert sér grein fyrir áður. Fleiri tóku I sama streng, þótt ekki sé ástæða til að tíunda það frekar hér. Almenn ánægja virðist vera með þennan þátt, ef það er haft i huga, að fólk gerir sér oftar það ómak að Iáta til sín heyra þegar þvi mislíkar en hið gagnstæða. % Svava og CIA Kristin Magnúsdóttir, sem reyndar er hvorki meira né minna en húsmóðir í Vesturbæn- um, hafði samband við Vel- vakanda. Hún sagðist hafa verið að lesa Þjóðviljann, og hefði hún þá rekizt á grein undir fyrirsögn, sem flött var út yfir um það bil fjórðung siðu. Fyrirsögnin var tekin úr ummælum Svövu Jakobsdóttur á Alþingi, þar sem frúin segir: „Bandarísk stjórn- völd og CIA bera ábyrgðina ásamt auðhringum“, og er þar átt við valdatöku herforingja í Chile. Kristin sagði, að sér Iéki hugur að að vita nánar um samband Svövu Jakobsdóttur við CIA, þar sem svo virtist, að frúin hefði nákvæmari vitneskju um starf- semi þessarar bandarisku stofnunar en flestir aðrir. Kristin sagðist ekki ætla þingkonunni svo óábyrgan málflutning, að hún slægi fram á Alþingi órök- studdum fullyrðingum og sleggju- dómum um stjórnmál í öðrum heimshlutum, nema hún hefði eitthvað fyrir sér i málinu. % Tollar af af atvinnutækjum Sigrún Jónasdóttir skrifar: „Kæri Velvakandi. Mér hefur stundum dottið í hug að senda þér línu, en af því hefur ekki ot ðið fyrr en nú. Þannig er mál með vexti, að lengi hefur verið mér ráðgáta hversvegna sumarstéttirfá eftir-j gjöf eða tilslökun á aðflutnings- gjöldum af atvinnutækjum sín- um, og má þar t.d. nefna leigubif- reiðastjóra. Hins vegar hef ég aldrei skilið hVers vegna tollar af heimilistækjum eru svo háir sem raun ber vitni. Eru þessi tæki kannski ekki atvinnutæki hús- mæðra eða þeirra, sem vinna heimilisstörf. Lika finnst mér hálfskrýtið, að leigubifreiðastjórar fái eftirgefin gjöld af bifreiðum meðan annað fólk, sem notar bifreiðar í sarn- bandi við atvinnu sina og kemst ekki af án þeirra þarf að borga full gjöld af þeini. Þú ræður hvort þú birtir þetta en mér finnst þetta vera mis- munun og ósanngirni. Sigrún Jónasdóttir.1* AMERlSKUR leikhússtjóri og leiklistarkennari, Stefan Rudnicki, er væntanlegur til landsins um helgina, á vegum Menningarstofnunar Banda- rikjanna. Þann 10. og 11. desem- ber mun hann leiðbeina leikurum hjá Leikfélagi Reykjavikur í sam- ráði við Vigdfsi Finnbogadóttur leikhússtjóra. A mánudag, 10. desember, flytur hann fyrirlestur hjá Menningarstofnuninni. Hefst fyrirlesturinn kl. 19.15 og fjallar um túlkun sígildra verka á nútíma leiksviði. Fyrirlesturinn er opinn almenningi og áhuga- fólki um leiklist. Stefan Rudnicki er prófessor við Roehester háskóla í New York og jafnframt leikhússtjóri við sama skóla. Hann stundaði nám við Yale háskóla og vann siðar undir leiðsögn Joseph Papp, sem veitir forstöðu hinu þekkta alþýðuleikhúsi i New York borg. Enda þótt Rudnicki sé ungur að árum, eða tæplega þritugur, hefur hann verið afkastamikill leikstjóri og meðal annars sett upp 17 verk við Rochester háskóla. Hefur hann tekið sér margs konar verk fyrir hendur, þ.ám. verk eftir Shakspeare og Brecht. Rudnicki hefur meðal annars fengizt nokkuð við að færa sigild verk í nútíma búning og mun halda fyrirlestur hér um það efni. Kona Rudnickis, Judith Ann, sem er leikkona, kemur með hon- um. Mun hún einnig taka þátt i starfi hans hér. JOLAPLATA PÓLÝFÓNKÓRSINS ER KOMIN FOLÝFÓNKÓRINN POLYFÖNKÖREN, REYKJAVIK Flatan fer ð heimsmarkaS hjá RCA en upplagið er takmarkað. Tryggið yður eintak ! tima. Tilvalin jólagjöf til unnenda góðrar tónlistar. Fæst ! hljóðf æraverzlunum. Veggskjöldur PÓLÝFÓNKÓRSINS teiknaður af Baltazar og gefin út ! tilefni söngferðar kórsins til Svi- þjóðar og Danmerkur og útgáfu fyrstu hljómplötu kórsins F aðeins 200 númeruðum eintökum. IMokkur eintök til sölu í verzlunum Rammagerðarinnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.