Morgunblaðið - 09.12.1973, Page 18

Morgunblaðið - 09.12.1973, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. DESEMBER 1973 FORVITNILEG BÓK UM PÓLITÍSKA VIDSJÁRTÍMA Á MILLI WASHINGTON OG MOSKVA MINNINGAÞÆTTIR EMILS JÓNSSONAR FVRRUM RÁÐHERRA Emil Jónsson, fyrrum ráðherra, var um ára- tugaskeið einn svipmesti stjórnmálamaður þjóðarinnar. Hann segir hér sögu sína, sem án efa er mörgum forvitnileg og vís til að vekja deilur, því alltaf stóð styrr um Emil. Hann segir frá störfum í Hafnarfirði, á Al- þingi og í ríkisstjórnum, frá kynnum af inn- lendum og erlendum ráðamönnum og fjallar ítarlega um utanríkismál, sem nú eru í brennipunkti. Það verða ekki allir sáttir með það, sem Emil Jónsson hefur að segja, en allir, sem einhver afskipti hafa af stjórnmál- um eða hafa áhuga á þeim málum, verða að eignast þessa bók og lesa, hvar í flokki sem þeir standa. Þjóðleg, fróðleg og skemmtileg. Oscar Glausen: SÖGN OG SAGA Þetta annað bindi safnritsins Sögn og saga geymir margar minnisverðar frásagnir. Hér er langur þáttur um séra Sigurð Gunnarsson á Hallormsstað, náinn vin og samherja Jóns Sigurðssonar forseta, þáttur er um fyrstu innlendu kaupmennina í Reykjavik og upphaf verzlunar i Stykkis- hólmi, langur þáttur er um Ólaf Árnason sýslumann i Barðastrandarsýslu, sem var rikur maður og dómharður og fróðlegur þáttur er um dætur og tengdasyni Skúla fógeta. Galdramannaþáttur er úr Grímsey og frásagnir eru af ríkum Breiðfirðingum, auk fleiri frásagna og þátta. — Sögn og saga á þvi erindi við alla, sem þjóðlegum fróðleik unna. Sjófróður og skemmtilegur sögumaður. Ragnar Ásgelrsson: SKRURDA II Þetta annað bindi af Skruddu hefur að geyma sögur, sagnir og kveðskap úr Húnavatns- til Rangárvallasýslu og er skemmtilegt og fróðlegt, svo sem við er að búast, þvi Ragnar var mikill smekkmaður á íslenzkt mál, prýðilega ritfær og með næma eftirtekt og skarpskyggni á þjóðleg einkenni. Hann var sjófróður sögumaður, sem safnaði að sér miklu magni sagna og sérstæðra vísna á ferðum sinum sem erindreki Búnaðarfélags íslands. Fyrsta bindi af Skruddu kom út i fyrra, en lokabindið kemur út á næsta ári. Þessi nýja útgáfa á Skruddu Ragnars Ásgeirssonar er stóraukin og endurbætt. Horfnir atvinnuhættir og mannlíf á Suðurlandi. Jón Gfslason: ÚR FARVEGI ALDANNA í þessari bók kennir margra grasa: Hér er m.a. þáttur úr sögu sunnlenzkra höfuðbóla og eru þar skráðar sagnir ur Laugardalshverfi í Hraungerðishreppi í Flóa, þáttur er um árflóðið mikla í Hvítá 1889 og fróðlegur þáttur er um örnefni og horfna atvinnuhætti á Suðurlandi. Þá er hér einnig að finna valdar þjóðsögur úr safni séra Steindórs Briem, prests í Hruna, og er bókin góður viðauki við áður útgefin sagnasöfn, — kjörbók þeirra, er þjóðlegum fróðleik unna. JÓM GÍSUSON • XJPi BtÁJR.'VTŒCS-I -A.LID-A.ISnsrA. Öndvegisverk í nýjum búningi. Ellnborg Lárusdöttir: FÖRUMENN I—II Förumenn Elinborgar verður ávallt talið eitt lielzta ritverk þessarar mikilvirkju og vinsælu skáldkonu. Uppistaða sög- unnar er sveitarlífslýsing frá siðustu öld, þættir úr sögu Efra-Ás-ættarinnar, skapgerð hennar og lifsskoðanir, en inn á milli er ofið myndum úr lífi sérkennilegra förumanna, er hátternis vegna og umkomuleysis urðu utanveltu við samfélag annarra manna. Þegar Förumenn komu fyrstfyrir almenningssjónir fékk þetta mikla ritverk Elinborgar mjög lofsamleg ummæli og var skáldkonunní likt við Selmu Lagerlöf og Sigrid Undset. ÍSLENDINGA SÖGUR MER NÚTÍMA STAFSETNINGU Eina heildarútgáfa íslendinga sagna og þátta, sem prentuð hefur verið með lögboðinni nútímastafsetningu og auð- veldar þvl öllum að njóta bókanna til fulls. Út eru komin 8 bindi af þessari vönduðu heildarútgáfu og þar með er lokið útgáfu allra sagnanna, en á næsta ári kemur lokabindið, sem hefur að geyma nafnaskrá við sögurnar og atriðisorða- skrá, en slik skrá er alger nýlunda við útgáfu íslendinga- sagna. Eftir áramót verðum við að láta binda nýtt upplag sagnanna og þá hækkar verð þeirra. Frestið þvi ekki að kaupa þessa veglegu heildarútgáfu, en bækurnar er einnig hægt að fá með afborgunarkjörum. kr. 1.000.00 á mánuði. ISLENZKAR FORNSÖGUR STAI SI.'J SilNOr Skemmtilegar mannlýsingar og skyndi- myndir af atburðum. Magnús Gesisson: ÚR vestur- BYGGOUM BARDASTRANDARSÝSLU Sagt er frá sérstæðum og eftirminnilegum mönnum, t.d. Helga í Raknadal, Erlendi ríka á Látrum, Níels Björnssyni frá Hvallátrum, Þórði Guðbjartssyni á Patreksfirði, Guð- mundi Jónssyni, með auknefnið vinnumaður, Gunnlaugi Kristóferssyni frá Brekkuvelli, Eiríki á Konungsstöðum og Jóni bónda í Breiðavfk. Einnig koma við sögu Björn f Sauðlauksdal, Snæbjörn f Hergilsey og séra Þorvaldur Jakobsson. Auk þess er hór að finna óvenju kjarngóðar og magnaðar draugasögur, svo sem þær gerast svæsnastar á Vestfjörðum og frásagnir eru af álagablettum, sjóskrímsl- um og merkum draumum. — Þetta er bók, sem allir hafa gaman af að lesa. 0«\GDif< HLriiK ' VU SKÁLDU). Á U R Ö M : Úr dagbókum mannsins, sem varð kveikjan að Heimsljósi Halldórs Laxness. Gunnar M. Magnúss: OSAGÐIR HLUTIR UM SKÁLDID A ÞRÖM Áður óprentaðar og forvitnilegar frásagnir frá samtíð Magnúsar Hj. Magnússonar af persónu- legum kynnum hans af merkum mönnum og sérkennilegu fólki. Stórfróðlegir þættir um fræði- manninn Sighvat Grímsson Borgfirðing stórbónd ann Þorvald á Þorvaldseyri undir Eyjafjöllum, gáfumanninn Friðbert í Hraunakoti og Steindór í Botni, síðasta útilegumanninn, sem var á Vest- fjörðum, — auk margvíslegs annars efnis. Skáldið á Þröm var alþýðuskáld og sístarfandi fræðimaður, sem Halldór Laxness hefur gert ódauðlegan. SKUGGSJÁ STRANDGÖTU 31 — SÍMI 50045 — HAFNARFIRÐI

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.