Morgunblaðið - 05.01.1974, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 1974
Gífurleg snjóalög
á Breiðdalsvík
Fáksfélagar hafa nú hafizt handa um að reisa sér nýtt félagsheimili við hið nýja
athafnasvæði Fáks í Selásnum. Þessa mynd tók Sveinn Þormóðsson í gær, þegar
verið var að vinna í grunni hússins.
Góður ufsaafli hjá
Þorlákshafnarbátum
SNJÓALÖG á Breiðdalsvfk eru
þau meslu, sem menn muna eftir.
Svo er ástatl um 2-3 hús í kaup-
túninu, að á aðra mannhæii er
niður á þakið á þeim frá snjó-
brúninni og því hafa menn hér
haft ærinn starfa við að moka sig
og aðra út úr hásum,“ sagði Svan-
ur Sigurðsson á Breiðdalsvík,
þegar við ræddum við hann í gær.
Hann sagði, að við hefði legið,
að fólk hefði flúið húsin, bæði
vegna þess, hve erfitt var að
komast í og úr húsunum, og einn-
Enginniður-
staða um
loðnuverð
VERÐLAGSRÁÐ sjávarút-
vegsins kom saman til fundar í
gærmorgun til að fjalla um
loðnuverðið. Að sögn Sveins
Finnssonar framkvæmda-
stjóra Verðlagsráðsins var
málið aðeins reifað á þessum
fundi, og því ekki von á neinni
niðurstöðu. Næsti fundur um
loðnuverðið verður eftir helgi.
Yfirnefnd Verðlagsráðs
sjávarútvegsins átti að koma
saman til fundar fyrir hádegið
í dag og ræða um fiskverðið.
Talið er, að nokkuð geti þokazt
í samkomulagsátt á þeim
fundi.
Geysileg
aðsókn að
Leðurblökunni
GEYSILEG aðsókn er að Leð-
urblökunni í Þjóðleikhúsinu,
og er uppselt á hverja sýningu.
Er nú til að mynda uppselt á
allar sýningar, sem ákveðnar
hafa verið í næstu viku, og
minnast Þjóðleikhússmenn
ekki annarrar eins aðsóknar
frá því að My Fair Lady var
sýnd hér á árunum. Löng bið-
röð var við aðgöngumiðasölu
Þjóðleikhússins í gær og má
geta þess, að einn maður
keypti samtals 120 miða fyrir
rúmar 60 þúsund krónur.
Kvenmaður
deildarstjóri
í landbúnaðar-
ráðuneytinu
RAGNHEIÐUR Arnadóttir
hefur verið skipuð deildar-
stjóri í landbúnaðarráðuneyt-
inu frá og með áramótuin. Ilún
hefur starfað um langt skeið í
ráðuneytinu, síðast sem full-
trúi.
Sveinbjörn Dagfinnsosn
ráðuneytisstjóri sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær, að því
miður væru konur of sjaldan í
embættum sem þessum í ráðu-
neytunum, en Ragnheiður
væri þó ekki fyrsta konan, sem
skipuð væri í deildarstjóra-
embætti.
Gömul mynd
ÞAU mistök urðu við mynd-
birtingu á forsíðu blaðsins í
gær, að í stað nýrrar myndar af
umferðinni í krapanum á göt-
unum birtist nokkurra ára
gömul mynd sem tekin var á
svípuðum stað og hin myndin.
ig hefði fólk verið hrætt um, að
þök húsanna þyldu ekki snjólög-
in. 1 gær var hins vegar komin
hálka á Breiðdalsvík og við það
þjappaðist snjórinn mikið saman.
Byrjað var á að ryðja Breiðdals-
heiði í gær og var vonazt til, að
því verki lyki um helgina, ef ekki
snjóaði aftur. Engar samgöngur
hafa verið við Breiðdalsvik síðan
fyrir jól.
Sagði Svanur, aðömurlegt væri,
að enginn sk.vldi beita sér fyrir
samgöngum á sjó, þegar allir veg-
ir væru ófærir. Flestir bátar á
Austfjörðum væri í höfn síðari
hluta desember og lengst af janú-
ar. Það væri því upplagt að leigja
eins og einn bát til að halda uppi
samgöngum milli Austf jarða, þeg-
ar snjólög væri svona mikil. Einn-
ig yrði það ódýrara fyrir Vega-
gerðina að leigja bát, þegar svona
værí ástatt en að láta ýturnar
hjakka í sama farinu.
Breiðdælinga var farið að
skorta vatn um tíma, þrátt fyrir
að ekkert af aðalatvinnutækjum
staðarins væri í gangi. En þetta
hefur breyzt i hálkunni.
Öll skip Breiðdælinga voru í
höfn um jól og áramót þangað til í
gær, að skuttogarinn Hvalbakur
hélt til veiða. Tvö önnur skip
verða gerð út frá Breiðdalsvík í
vetur, Ami Magnússon, sem fer
til loðnuveiða, og Sigurður Jóns-
son, sem að öllum líkindum verð-
ur gerður út á net.
Aldrei hugsað
mér að segja
upp segir
Konráð á Sögu
ALÞÝÐUBLAÐIÐ skýrir frá því í
gær, að Konráð Guðmundsson
hótelstjóri á Hótel Sögu hafi sagt
upp starfi sínu og sé ástæðan til
þess þjónaverkfallið. Hefur blað-
ið þetta eftir einum stjórnar-
manna Bændahallarinnar.
Vegna þessarar fréttar hafði
Morgunblaðið samband við Kon-
ráð Guðmundsson og spurði,
hvort frétt Alþýðublaðsins væri
rétt. — „Ég hef aldrei heyrt þetta,
né hugsað mér að segja upp starfi
minu á Hótel Sögu, og það, sem
stendur í Alþýðublaðinu í gær, er
því algjör vitleysa," sagði Konráð.
í LOK næstu viku koma til lands-
ins 500 lestir af pólskum kartöfl-
um og er það fyrsti farmurinn af
erlendum kartöflum, sem kemur
til landsins á þessu ári. Kartiiflu-
birgðir eru frekar litlar í landinu
og gert ráð fyrir, að íslendingar
kaupi að minnsta kosti 3000 lestir
af kartöflum frá Póllandi á þessu
ári.
Jóhann Jónasson framkvæmda-
stjóri Grænmetisverzlunar ríkis-
ins sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gær, að þessar 500 lestir
hefðu átt að koma til landsíns í
síðustu viku, en seinkað vegna
tafar á skipsferð frá Póllandi. Nú
hefði alls verið samið um kaup á
3000 lestum af kartöflum frá Pól-
landi, en erfitt væri að segjá, hve
mikið magn af kartöflum íslend-
ingar þyrftu að kaupa erlendis
NOKKRIR Þorlákshafnarbátar
stunduðu ufsaveiðar í net austur
af Vestmannaeyjum fyrir jólin og
fengu þeir ágætis afla, allt að 50
lestir í róðri.
Benedikt Thorarensen fram-
kvæmdastjóri Meitilsins í Þor-
lákshöfn sagði í samtali við blaðið
í gær, að Arnar hefði stundað
þessar veiðar lengst, eða í tæpa
tvo mánuði, og aflinn þá verið
tæpar 400 lestir, sem tljast yrði
mjög gott á þessum árstíma. Brynj
ólfur stundaði þessar veiðar frá
12. desember og fram að jólum og
fékk 50 lestir í þremur lögnum, og
Skálafell, sem hóf ufsaveiðarnar
23. nóvember, fékk 173 lestir
fram til jóla.
Sagði Benedikt, að þetta yrði að
teljast góður árangur hjá bátun-
um og væri fundið fé á þeim
ELSTI togari íslenzka togaraflot-
ans og eitt mesta happaskip hans,
Hjörleifur RE, seldi 145.6 lestir
af fiski í Cuxhaven í gær fyrir
227.400 miirk. Eru þetta rétt tæp-
ar 7 milljónir kr. og meðalverðið
er kr. 47.25, sem teljast verður
mjög gotL
frá á þessu ári. Verðið á pólsku
kartöflunum er einkar hagstætt
og verður mun lægra en á þeim
islenzku.
Sagði Jóhann, að Grænmetis-
verzlunin hefði átt i miklum
vandræðum að undanförnu, með
að fá kartöflur frá íslenzkum
bændum. Bændur hefðu verið
tregir að flokka þær, og eins hefði
tíðarfarið tafið fyrir flokkun.
Grænmetisverzlunin hefði ávallt
reynt að eiga fyrirliggjandi um
það bil mánaðarbirgðir af kartöfl-
um til neytenda og hefði það tek-
izt þangað til í vetur. Fyrir hefði
komið, að aðeins hefðu verið til
vikubirgðir. Því væri ástæða til að
skora á bændur að koma kartöfl-
um sinum sem fyrst til Grænmet-
isverzlunarinnar, helzt fyrir 20.
janúar, þ.e. áður en útlendu kart-
öflurnar koma á markaðinn.
árstima, sem útgerð lægi að
mestu niðrí. Bátarnir legðu netin
á mikiu dýpi, oft væri annar stjór-
inn lagður á 90 föðmum, en þar
sem hinn færi niður væri hálf-
gerð botnleysa, og því gætu þess-
ar veiðar kostað nokkurt veiðar-
færatap, ef ekki væri farið að með
gát.
Undirbúningur fyrir vetrarver-
tíðina er fyrir nokkruhafinní Þor-
lákshöfn. Gera menn sér vonir um
Fáskrúðsfirði, 4. janúar.
JÖLIN hér á Fáskrúðsfirði fóru
Ingimar Einarsson fram-
kvæmdastjóri Félags íslenzkra
botnvöruskipaeigenda sagði í
samtali við Morgunblaðið í gær,
að vitað væri um tvö íslenzk skip,
sem selja ættu í Þýzkalandi í
næstu viku. Er það togarinn
Víkingur frá Akranesi og netabát-
ur, sem kemur með ufsa.
Ilins vegar sagði Ingimar, að
sölur í Bretlandi byrjuðu af krafti
eftir helgina. Á mánudag og
þriðjudag seldu Dagstjarnan og
Kaldbakur, en Ögri og Svalbakur
ættu að selja á miðvíkudag. Siðan
ætti Maí aðselja á fimmtudag.
góða loðnuveiði og hefur Meitill-
inn fengið nýjar frystipressur,
sem gera það að verkum, að hægt
verður að auka loðnufrystingu til
muna. Þá hefur verið byggð sér-
stök beinamjölsverksmiðja til að
mala úrgangsbein frá bolfisk-
vinnslunni og verður einnig hægt
að nota hana við loðnubræðsluna
og eykur það afköst bræðslunnar
á staðnum um 100 lestir á sólar-
hring.
fram með hefðbundnum hætti og
mjög jólalegt var vegna mikilla
snjóa. Minna var um ljósaskreyt-
ingar en oft áður vegna tilmæla
rafmagnsveitnanna um orku-
sparnað, en aldrei kom þó til raf-
magnsskömmtunar. Hér var gott
veður fyrir hátiðardagana, en
færð heldur erfið. Messað var hér
í Búðarkirkju á jóladag, og var
kirkjan fullsetin.
Mjög slæmar samgöngur voru
hér fyrir og eftir jólin, og var
samgöngunum bjargað með því að
bátar fóru á milli með fólk og
vörur. Þó var fært á milli Fá-
skrúðsfjarðar og Reyðarfjarðar á
annan dag jóla. Á milli jóla og
nýárs snjóaði aftur, en þann 29.
desember var rutt fyrir áætlunar-
bílinn vegna þess, að margir far-
þegar voru að fara og aðrir að
koma, en ekki var Vegagerðin
ákveðnari í að halda opnu en það,
að hún lét áætlunarbílinn með 15
farþegum sitja fastan á Reyðar-
firði og neitaði að opna. Var það
ráð þá tekið að senda bát frá
Framhald á bls. 18
Erfið færð, en
fer batnandi
„FÆRÐ á þjóðvegum hefur
víða batnað til muna, það er
helzt hálkan, sem tefur fyrir
mönnum, alla vega á Suður- og
Vesturlandi," sagði Adolf Pet-
ersen vegaeftirlitsmaður, þeg-
ar Morgunblaðið hafði sam-
band við hann í gær.
Vegir um Hvalfjörð, Borgar-
fjörð, Snæfellsnes og allt vest-
ur í Búðardal eru sæmilega
færir. Þá var Holtavörðuheiði
opnuð í gær, og við það varð
fært á milli Reykjavíkur og
Akureyrar. Einnig átti að opna
veginn til Siglufjarðar og fært
var orðið milli Akureyrar og
Hiísavíkur.
Allir vegir í Norður-Þingeyj
arsýslu voru ófærir, og á Aust-
fjörðum var aðeins fært frá
Egilsstöðum til Reyðarfjarðar
og Eskifjarðar. Á Vestfjörðum
voru allir vegir ófærir, frá
Bröttubrekku norður úr. Aftur
á móti átti að reyna að opna
veginn til Hólmavíkur í gær.
Pólskar kartöfl-
ur á markaðinn
Góð sala Hjörleifs
í Þýzkalandi í gær
• •
ERFIÐAR SAMGONGUR
VIÐ FÁSKRÚÐSF JÖRÐ