Morgunblaðið - 05.01.1974, Side 7

Morgunblaðið - 05.01.1974, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. JANUAR 1974 7 Norðmenn smeykir við olíu-auðinn Borunarpallur á Norðursjó. Olíulindirnar undir Norður- sjó og Norður-ishafi eiga eftir að reynast Norðmönnum hin mesta gullnáma, en norsk yfir- völd virðast helzt vilja gera sem minnst úr framtíðarhorfunum. Þau virðast síður uggandi vegna yfirstandandi orkuskorts en vegna væntanlegra áhrifa oliunnar á norskt þjóðfélag. „Olíunni fylgja alls staðar vandræði,“ sagði einn fulltrúi norsku stjórnarinnar nýlega. Verið er að ljúka við skýrslu um olíulindir í landgrunni Noregs, og á hún væntanlega eftir að hafa markandi áhrif á efnahagsmálin í framtíðinni. Er þar mælt með því, að farið verði að öllu með gát þrátt fyrir — eða öllu heldur vegna — möguleika á auðveldum og skjótteknum gróða. Sérfræðingar óttast afleiðing- ar þær, sem gífurlegt peninga- flóð getur haft í för með sér í tiltölulega fámennu iðnaðar- þjóðfélagi. Tekjurnar af Norðursjávar- og Íshafsoliunni hljóta að verða himinháar. Talið er nú, að olíu- magnið á þessum slóðum sé mun meira en af er látið. Öðru hvoru birtast endurskoðaðar áætlanir um olíumagnið, og fara þær alltaf hækkandi. Það er eins og yfirvöldin séu hálf hrædd við að skýra rétt frá olíu- magninu, en samkvæmt þeim upplýsingum, sem fyrir liggja, aukast olíu- og gasbirgðirnar jafnt og þétt, eftir því sem leit- in verður víðtækari. Það, sem norskir hagfræðing- ar óttast mest í sambandi við olíuvinnsluna, er, að hún hrein- Iega veiti of miklu fjármagni inn í efnahagslífið. Beinustu af- leiðingar þess yrðu verðbólga og of örar kauphækkanir. Bent er á, að í Stavanger, sem er eina norska borgin, þar sem olíu- vinnslan er þegar farin að hafa einhver áhrif, hafi vinnuaflið streymt til olíuiðnaðarins vegna betri kjara. Hafa aðrir atvinnuvegir i Stavanger átt í vandræðum af þeim sökum. Norðmenn telja, að ótak- mörkuð olíuvinnsla hljóti að leiða til ójafnvægis í efnahags málum. Félög, sem fengið hafa heimild til að leita olíu i norska landgrunnínu, greiða ríkinu ríflegar þóknanir fyrir. Fram- tíðarþróunin verður þó án efa sú, að sérstök félög verða stofn- uð til að annast olíuvinnsluna, og í félögum þessum verður norska ríkið eigandi helinings hlutafjár. Er áætlað, að tekjur ríkisins af olíuvinnslunni muni samsvara fjórðungi eða þriðj- ungi heildarupphæðar fjárlag- anna eins og þau eru nú. Þótt nota megi þessar miklu tekjur til að leysa margan vandann, óttast þó hagfræðingar, að áhrifin verði slæm. Norskir sérfræðingar hafa unnið að þvi að skipuleggja olíuvinnsluna á þann veg, að hún gefi sem mest af sér fjár- hagslega, en valdi sem minnst- um truflunum á efnahagslíf- inu, og það sem meira er, að þær breytingar, sem hún veldur, verði það hægfara, að þær valdi ekki skyndilegri efnahagsþenslu. Ekki er unnt að segja á þessu stigi málsins, hve mikil oliuvinnslan verður, en talað er um, að upp úr árinu 1980 ætti að vera orðið unnt að vinna um 50 milljón tunnur ár- lega. Oliuvinnslan leiðir óhjá- kvæmilega til nokkurra fólks- flutninga í landinu, þvi að starfsmenn olíuiðnaðarins eiga eftir aðflytjasttil þeirra byggð- arlaga við ströndina, þar sem iðnaðurinn hefur stöðvar sínar. Sérfræðingarnir hafa lagt til, að nokkur hluti olíuteknanna verði notaður til að draga úr áhrifum þessara flutninga, til dæmis með uppbótagreiðslum til annarra atvinnugreina svo þær geti haldið sinu vinnuafli. Norðmenn ana ekki út i neina óvissu. ,,Við erum ekkert nor- rænt Kuwait,“ sagði einn tals- maður stjórnarinnar. Margir Norðmenn vildu bæta þvi við, að Noregur væri ekki heldur neitt Texas, né sjórinn við Noreg neinn Mexikóflói. Tals- maður félags nokkurs i Osló, sem smíðar olíuborunarpalla, tók það fram, að félag hans vildi reyna að forðast þá rusl- dreifingu, sem fíðkaðist við strendur Bandarikjanna. Benti hann á, að margir bandariskir olíuleitarleiðangrar á Mexíkó- flóa skildu eftir undirstöður borunarpallanna, þegar leit væri lokið, og þar fengju undir- stöðurnar að menga umhverfið, auk þess sem þær væru hættu- legar siglingum. Félag þessa manns smiðar eingöngu bor- unarpalla, sem unnt er að taka upp og flytja á brott í heilu Iagi. Norðmönnum er einnig ljós sú hætta, sem umhverfinu stafar af olíuleit og'vinnslu. Hafa opinberir aðilar viður- kennt, að óhöpp geti alltaf gerzt og meðal annars bent á, að olíu- útstreymi á botni Norður- sjávarins geti haft hörmulegar afleiðingar. Sumir hafa gengið svo langt að lýsa því yfir, að bezt væri að lofa olíunni að vera, þar sem hún er. Eftir 1 • Roland THE OBSFRVER Huntford * * Ný olíustöð að rfsa f Mongstad í Noregi TVEIR HÚSASMIÐIR geta bætt við sig innivinnu. Uppl. í síma 72907 eftir kl 19.00. DÖMUR ATHUGIÐ Látið sauma tímanlega á ykkur fyrir vorið Tek í saum kápur, dragtir, buxnadragtir G.G. Dömuklæðskeri. Sími 3268& 18ÁRA STÚLKA óskar eftir atvinnu Enskukunn- átta Tilboð sendist Mbl. merkt: 4850. BÍLASKIPTI Diesel — jeppi óskast i skíptum fyrir Toyota Crown árgerð '67. Upplýsingar í sima 99-1 595. UNGA, REGLUSAMA stúlku vantar vinnu, helzt á hóteli við uppvöskun. Upplýsingar I sima 52477 LÍTIÐ VERZL- UNARHERBERGI ÓSKAST mætti vera á 2. hæð við góða verzlunargötu. Upplýsingar i síma 1 7977. TIL LEIGU í NORÐURMÝRINNI 4ra herb íbúð. Tlb óskast sent Mbl. fyrir 9. jan. með uppl. um fjölskyldustærð, leigutíma og fyrir- framgr. ..merkt 3073”. BARNAGÆSLA — ÆSUFELL Stúlka óskast til að koma heim og gæta tvetjgja drengja '/2 árs og 2ja ára, 5 — 6 tíma á dag. Tímakaup og vinnutimi eftir samkomulagi Upplýsingar i sim" 7 1 744. HEKLUBÆKUR frá Marks og Jakobsdals. Fjölbreytt úrval lita og tegunda af heklugarni ma: Bianca og Lenacryl. Hannyrðaverzlunin Erla, Snorra- braut. ÓSKUM EFTIR að kaupa traktorsgröfu, helst með drifi á öllum hjólum. Þeir, sem áhuga hafa sendi uppl. um vélina ásamt verði og greiðsluskilm. til afgr. Mbl fyrir 11. þ.m. merkt „3069”. BÍLAVIÐGERÐIR Bílaverkstæðið Bjarg Bjargi við Sundlaugaveg. sími 38060. Tökum að okkur allar almennar bílaviðgerðir. Bilaverkst. Bjarg. Bjargi, s 38060 ÍBÚÐ ÓSKAST 2ja herb íbúð óskast til leigu. Tilboð sendist afgr Mbl. merkt: „3074” REGLUSAMUR VÉLSTJÓRI óskar eftir vinnu. Margt kemur til greina. Tilboð sendist Mbl. Merkt 983 tilleigu nýleg 3ja herb. ibúð i Norðurbæ í Hafnarfirði. Tilboð er greini fjöl- skyldusteerð og fyrirframgreiðslu sendist afgr. Mbl. fyrir 10. jan. merkt: „3070 VERKSTÆÐIS- PLÁSS Óska eftir verkstæðisplássi til bíla- réttinga Upplýsingar í símum 33248 og 41 756. HESTUR Óska eftir að kaupa hest Uppl. i síma 301 03 eftir kl. 8. TEK AÐ MÉR réttingar og almennar boddývið- gerðir. Upplýsingar í slmum 33248 og 41756 STÚLKA ÓSKAST til léttra heimilisstarfa fyrri hluta dags. Tvennt i heimili Tilboð ósk- ast send Mbl. merkt: 981. STÚLKA ÓSKAST i brauð- og mjólkurbúð hálfan dag- inn. Upplýsingar i sima 33435. HÚSNÆÐI ÓSKAST! Ungt og reglusamt par, háskóla- nemi og stúlka i góðri atvinnu óska eftir húsnæði strax. Sími 27203, næstu daga. EINHLEYPUR MAÐUR með 2ja ára barn óskar eftir litilli 2ja til 3ja herb. ibúð eða stóru herb. með aðg. að eldh. Æskilegt að pössun fengist yf'r daginn fyrir barnið. S 31481 frá 10 — 14. HÚSBYGGJENDUR Önnumst uppsetningu á viðar- veggjum og loftum Einnig isetn- ingar á hurðum. Gerum föst verð- tilboð. Upplýsingar í símum | 43270og71869 FIAT — NOTAÐIR BILAR TIL SOLU Fiat 1 32 special árg. '73 Fiat 125 special árg. '71 —72 Fiat 125 Berlina árg. '71 Fiat 125 P árg. '72 Fiat 128 Sport Coupé árg.'73 Fiat 1 28 4ra dyra árg. '71 Fiat 1 28 2 ja dyra árg. '71 Volkswagen 1 300 árg. '72 Fiat 850 Berlina árg. '66 Fiat 850 Special árg. '72 GOTT VERÐ — GOÐ KJOR DflVH) SIGURÐSSON HF„ SÍÐUMÚLA 35. FÍATUMBOÐIÐ. SÍMAR 38845 OU 38888

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.