Morgunblaðið - 05.01.1974, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 1974
11
Attræður:
Guðlaugur Þorleifsson
skipstjóri frá Dalvík
í dag laugardag 5. janúar er
Guðlaugur Þorleifsson frá Dalvík
áttræður. Guðlaugur Jön Þorleifs-
son er fæddur að Upsum í
Svarfaðardal 5. janúar árið 1894,
sonur hjónanna Bjargar Jónsdótt-
ur og Þorleifs Baldvinssonar. Sex
vikna gamlan tóku hjónin Anna
Björnsdóttir og Jón Hansson, er
bjuggu að Miðkoti á Dalvik, Guð-
Iaug og skyldi hann vera hjá þeim
um tíma. En sá tími varð lengri en
ætlað var í fyrstu, því Anna og
Jón gerðust fósturforeldrar Guð-
laugs og ólu hann upp. Guðlaugur
var í Miðkoti þar til hann var 21
árs og reyndust þau Miðkotshjón
honum sem beztu foreldrar og
dætur þeirra honum sem beztu
systur. Guðlaugur fór til sjós 16
ára gamall á vegum fóstra síns og
var ýmist á skútum eða kútterum
milli þess, sem hann vann honum í
landi. 21 árs gamall fluttist Guð-
laugur frá fósturforeldrum sínum
til Siglufjarðar og gekk að eiga
Andreu Kristjönu Bessadóttur
Þorleifssonar skipstjóra á Siglu-
firði.
Á Siglufirði bjuggu þau svo í
sex ár og stundaði Guðlaugur þar
jöfnum höndum landvinnu sem
sjósókn með tengdaföður sínum.
Frá Siglufirði fluttust þau hjón
svo til Dalvíkur, og byggði Guð-
laugur bæ f iandareign fóstra síns
f Miðkoti. Höfðu þau þá eignazt
þrjár dætur en alls varð þeim níu
barna auðið, eignuðust sex dætur
og þrjá syni.
Konu sína missti Guðlaugur
árið 1932 af barnsförum, eftir 17
ára farsælt hjónaband. Elzta
barnið, Bergþóra, var þá 15 ára en
það yngsta rúmlega viku gamalt.
Tók nú Bergþóra við búsforráð-
um hjá föður sínum og gætti bús
og barna með hjálp ömmusystur
sinnar, þar til foreldrar Guðlaugs
fluttust til hans árið 1934.
Frá Dalvík fluttist Guðlaugur
árið 1956 til Húsavíkur til Bessa
sonar sins og var þar í 12 ár, en
flyzt þá suður til Reykjavíkur og
hafði þá fengið pláss á Hrafnistu,
þar sem hann er enn og kann
vel við sig. Eins og þeg-
ar er sagt lagði Guðlaugur
stund á sjómennsku frá unga
aldri, á seglskútum og
kútterum en siðar á vélbátum,
fyrst sem vélstjóri og síðar sem
formaður og skipstjóri.
Hann var formaður á Baidri,
fyrir Loft Baldvinsson, en Loftur
var faðir Aðalsteins, sem nú á hið
mikla aflaskip Loft Baldvinsson.
Segja má, að Guðlaugur hafj að
nokkru rutt veginn fyrir þessa
útgerð með miklum aflabrögðum
strax í upphafi, en hann var einn-
ig skipstjóri á Baldvini Þorvalds-
syni, fyrir sömu útgerð.
Guðlaugur var með fleiri báta
en hér hafa verið taldir, og farn-
aðist jafnan vel. Hann var ætið
farsæll i störfum sínum, framúr-
skarandi aflamaður og hlekktist
aldrei á, þrátt fyrir ötula og harð-
dræga sjósókn í misjöfnum veðr-
um. Sjálfur átti Guðlaugur trillu,
sem hann kallaði Björg, í höfuðið
á móður sinni. Björg var mikil
happafleyta og á hana aflaði hann
afburða vel. Hann var einnig með-
eigandi i mótorbátnum Frosta.
Eins og nærri má geta hefur Guð-
laugur á löngum sjómannsferli
sínum lent í mörgum ævintýrum
og svaðilförum. Einna minnis-
stæðast er honum, er hann var á
kútter Tylishman, sem var segl-
skip frá Akureyri. — Þeir voru
staddir í Reykjafjarðarál og urðu
að hleypa upp í Kúvikur á Strönd-
um, undan verðri í svarta myrkri
að næturlagi. Um morguninn
voru komin hafþök af ís, en
skammt frá þeim þarna í Kúvík-
unum voru tvö önnur skip einnig
föst í hafísnum, voru það Brúni
og Kristjana frá Siglufirði.
Fjöldamörg önnur skip voru þá
einnig orðin föst í hafísnum und-
an Ströndunum.
Þarna urðu þeir svo að dúsa,
fastir í ísnum í sex vikur ásamt
mörgum öðrum skipshöfnum og
skipum, en margar skipshafnir
fóru gangandi alla leið til Akur-
eyrar þegar vistir þraut til þess að
svelta ekki í hel. Eftir sex vikur
fór ísinn að greiðast sundur og
var þá lagt af stað úr Kúvíkum.
Brúni tók hin skipin tvö í tog, því
hann var með hjálparvél, en
mannskapurinn gekk á ísnum og
stjakaði eftir föngum. Eftir
margra sólarhringa streð mættu
þeir togaranum Maí, sem tók þá í
tog og fór með þá til Siglufjarðar.
Börn Guðlaugs eru öll á lífi og
eru átta þeirra gift og eru afkom-
endurnir orðnir nær hundrað.
Guðlaugur er fríður sýnum og
vörpulegur á velli og heldur enn
góðri heilsu. Hann er skapfastur
en léttur í lund og hrókur alls
fagnaðar á góðum stundum. Á sjó-
mannadaginn 1972 var Guðlaugur
sæmdur heiðursmerki sjómanna-
dagsins, og var honum afhentur
krossinn á Hrafnistu, en það
gerðu fyrir hönd Dalvíkinga þeir
Egill Júlíusson útgerðarmaður og
Bjarki Eliasson yfirlögreglu-
þjónn.
Kunningjar og vinir Guðlaugs
senda honum i dag, á áttræðisaf-
mælinu, hugheilar árnaðaróskir
og þakka honum margar ánægju-
legar samverustundir til sjós og
lands á liðnum árum.
Guðlaugur tekur á móti gestum
í dag klukkan fjögur til sjö í
Glæsibæ, og er ekki að efa, að þar
verður setinn Svarfaðardalur í
glöðum fagnaði ættingja og vina.
Jón 1. Bjarnason.
ALLTMEÐ
IMSKIP
Á næstunni ferma skip vor
til íslandssem hérsegir:
ANTWERPEN:
Reykjafoss 14. janúar
Skógafoss 25. janúar
ROTTERDAM:
Reykjafoss 1 2. janúar
Skógafoss 24. janúar
FELIXTOWE:
Dettifoss 8. janúar
Laxfoss 1 5. janúar
Dettifoss 22. janúar
HAMBORG:
Fjallfoss 5. janúar
Dettifoss 1 0. janúar
Laxfoss 1 7. janúar
Dettifoss 24. janúar
NORFOLK:
Goðafoss 9. janúar
Selfoss 25. janúar
Brúarfoss 8. febrúar
WESTON POINT:
Askja 1 5. janúar
Askja 28. janúar
KAUPMANNAHÖFN:
Irafoss 1 0. janúar
Múlafoss 1 5. janúar
HELSINGBORG:
Tungufoss 1 4. janúar
GAUTABORG:
írafoss 9. janúar
Múlafoss 14. janúar
KRISTIANSAND:
írafoss 8. janúar
Múlafoss 1 6 janúar
FREDERIKSTAD:
Tungufoss 1 6 janúar
GDYNIA:
Hofsjökull 5. janúar
Bakkafoss 5. janúar
VALKOM:
Lagarfoss 10. janúar
VENTSPILS:
Hofsjökull 7. janúar
Lagarfoss 1 2. janúar.
SYFR
KAST-
NAMSKEK)
Fyrst kastnámskeið ársins hefst í Laugardalshöllinni
sunnudaginn 6. janúar kl. 10.20. stundvíslega. Nokkur
pláss laus. Áhöld á staðnum fyrir þá er þess óska. Allir
velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Kastnefndir SVFR — SVFH — KKR
íbúð
tvö til þrjú herbergi, óskast til leigu sem fyrst.
Ingi R. Helgason hrl.
Laugavegi 31
Sími 19185
Geymsluhúsnæði
eða lagerpláss
óskast til leigu.
Sælkerinn,
Hafnarstræti 1 9,
sími 1 2388.
Bröyl elgendur
Námskeið verður haldið í meðferð og daglegum rekstri
Bröyt vinnuvéla, dagana 28/1 — 1/2 '74, ef næg
þátttaka fæst.
Vinsamlegast hafið samband við Kristján Tryggvason eða
Jón Þ Jónsson fyrir 10. þ.m.
Gunnar Ásgeirsson h.f.
Suðurlandsbraut 16,
sími 35200.
Seljum næstu daga mikið magn af smáteppum
og mottum á stórlækkuðu verði.
Notið tækifærið og kaupið strax fyrsta flokks teppi á þessu
sérstaka tækifærisverði, er aðeins stendur í nokkra daga.
Sími 83430