Morgunblaðið - 05.01.1974, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. JANUAR 1974
19
1 íwmmíniii MowiiBUflSiiis
Skíðamenn á
heimsmeistaramót
ÞRÍR íslenzkir skfðamenn verða
meðal þátttakenda á Heims-
meistaramótinu á skfðum í alpa-
greinum og tveir keppa_______f^
norrænum greinunum. Það eru
þeir Árni Oðinsson, Hafsteinn
Sigurðsson og Haukur
JóhannssOn, sem taka þátt f
keppninni f svigi og stórsvigi í St.
Moritz um miðjan febrúar. Heldu
þeir féiagar utan f gær og verða
við æfingar og keppni fram að
mótinu. Um miðjan febrúar fer
fram f Falun f Svíþjóð keppni í
norrænu greinunum og verða
göngumennirnir Halldór Matt-
híasson, Akureyri og Reynir
Sveinsson, Fljótum meðal þátt-
takenda þar.
Á mótinu í St. Moritz verða
þátttakendur frá 35 þjóðum, 111
konur og 191 karl — eða fleiri en
nokkru sinni fyrr. Flestir þátttak-
endur koma frá Austurríki,
Frakklandi, V-Þýzkalandi, Ítalíu,
Japan, Sviss og USA, 18 kepp-
endur frá hverri þjóð. Fæstir
Hudson og Osgood
á sölulista
keppendur Koma frá Brasilíu og
Tyrklandi, einn frá hvoru landi.
Af Norðurlandaþjóðunum senda
Norðmenn flesta keppendur eða
14, Svíarnir verða 11, Finnarnir
fimm og íslendingarnir þrír eins
og áður sagði.
Það er orðið langt síðan
islenzkir skíðamenn hafa tekið
þátt í heimsmeistaramóti á
skíðum. Síðustu ár hefur skiða-
íþróttin verið i miklum vexti og
skíðafólk verið á faraldsfæti til
æfingaog keppni erlendis.
TVEIR beztu menn enska knatt-
spyrnuliðsins Chelsea eru nú
komnir á sölulista, það eru þeir
Alan Hudson og Peter Osgood.
Þeir léku ekki með liði sínu gegn
Sheffield United á nýársdag og
verða ekki með i bikarnum á
laugardaginn, en þá leikur
Chelsea gegn QPR.
Þeir voru settir út úr liðinu
vegna agabrots, en hafa sjálfir
óskað eftir að verða seldir, til
samans eru þeir metnir á um 100
milljónir islenzkra króna. Osgood
er einn af markhæstu leikmönn-
um ensku 1. deildarinnar og Hud-
son hefur staðið sig vel með liði
sínu í vetur.
Haukur Jóhannsson — hann vann
Bikarkeppni Skíðasambandsins
meðyfirburðum sfðasta vetur.
f keppni f handknattleik um helg-
ina. Mest athygli beinist að 1.
deild karla og í henni fara fram
þrfr leikir á morgun og mánudag.
Klukkan 20.15 annað kvöld
hefst í Höllinni leikur Vals og
Þórs frá Akureyri. Valsmenn eru
sigurstranglegri á pappírnum en
Þórsarar hafa sýnt það f fyrri
leikjum sínum i vetur, að engin
ástæða er til að vanmeta þá. Að
þeim leik loknum mætast ÍR og
Armann, liðin, sem sitja á botn-
inum ásamt Þór með þrjú stig.
Vafalaust verður bar um jafnan
leik að ræða. ÍR-ingar með sinn
beitta sóknarleik mæta stórgóðri
vörn Ármenninganna og spuring-
in er hve langt þeir komast.
Á mánudagskvöldið fer fram
leikur Hauka og FH í íþróttahús-
inu í Hafnarfirði og hefst leikur-
inn klukkan 20.15. Um leiki Hafn-
arfjarðarliðanna er óþarft að hafa-
mörg orð þeir eru hinir fjörug-
ustu og barizt til siðasta blóð-
dropa. Hafnarfjarðarliðin hafa
leikið nokkra leiki í vetur og
hefur þar verið um hnífjafna bar-
áttu að ræða.
I 2. deild karla fara fram tveir
leikir á morgun, báðir í Laugar-
dalshöllinni, KR leikur gegn
Fylki og Þróttur við ÍBK. Fyrri
leikurinn hefst um klukkan 17.
i þriðju deildinni leika ÍA —
Viðir og Þróttur — Afturelding í
iþróttahúsinu í Hafnarfirði og
Framhald á bls. 18
ÞAÐ fór sem vænta mátti, Luther
College sigraði í fjögurra liða
keppni K.K.Í. Liðið sigraði Urval
K.K.Í. í úrslitaleik mótsins með 89
stigum gegn 76. Staðan í hálfleik
var 52:30 fyrir Luther, þannig að
Urvalið vann síðari hálfleikinn
með 46 stigum gegn 37. i leik um
þriðja sætið í mótinu sigraði úr-
valslið af Keflavíkurflugvelli B
Iið K.K.Í. með 67:62.
Fyrri hálfleikurinn var hreint
út sagt frábær hjá Luther. Þá lék
sterkasta liðið á fullu, þeir
O’Neill, Anderson, Leix, Claus-
sen, Kennedy og Denner. Þetta
eru allt frábærir leikmenn. Vörn
ísl. liðsins var mjög sterk, og
hleypti þeim ekki inn að körf-
unni, og hófu þeir þá mikla skot-
hríð fyrir utan. A löngum köflum
í hálfleiknum hafnaði hvert ein-
asta skot þeirra í körfunni, og var
sama hver skaut og hvaðan var
skotið.
Þótt okkar menn næðu af og til
mjög skemmtilegum samleiks-
köflum, var hittni liðsins mjög
slök fyrir utan, og það gerði það
að verkum fyrst og fremst, að
Luther var með yfirburðastöðu í
hálfleik 52:30.
Helstu stjörnur Luther fengu
að hvíla sig í síðari hálfleiknum
lengst af, og þeir, sem komu inná
í þeirra stað, hittu ekki eins vel
fyrir utan. Vörnin inni á miðj-
unni var enn sem fyrr mjög sterk,
og nú tók. ísl.liðið að saxa á forskot
Luther. Minnstur varð munurinn
fimm min. fyrir leikslok 78:69, en
13 stig skildu I lokin 89:76. .
Þrátt fyrir þennan ósigur verð- '
ur að segjast, að ísl. liðið kom
mjög þokkalega frá þessum leik í
heild. Liðið er að ná mjög góðum
tökum á varnaraðferðum sínum,
en gegn slíkum skyttum stoðar
ekkert, „þær stöðvar engin vörn,
þegar þær eru í þessum ham“
sagði Einar Bollason i leikhléi
Helst mátti finna það að liðinu í
þessum leik, að sóknarleikurinn
er ekki orðinn nógu öruggur, og
það þarf að laga. — Um Luther-lið
ið þarf ekki að hafa mörg orð,
liðið er mjög gott, og hefur yfir
frábærum einstaklingum að ráða.
Það þarf ekkert lið að skammast
sin fyrir að tapa með 13 stigum
gegn þessu liði, jafnvel þótt besta
lið þeirra léki ekki allan tímann.
En auðvitað er takmarkið að sigra
þá á mánudaginn þegar Luther
leikur sinn siðasta leik hér á landi
að þessu sinni. Claussen var stig-
hæstur að þessu sinni með 14 stig,
Denner og O’Neill 12 hvor.
Þórir Magnússon skoraði 13
stig, Kristinn Jörundsson og Kol-
beinn Pálsson 11 hvor.
VALLARLIÐIÐ: B-LIÐ
K.K.Í
Á undan úrslitaleiknum lék B-
lið K.K.Í. gegn úrvali af Kefla-
víkurflugvelli. Sá leikur var jafn
lengst af, þótt vallarliðið leiddi
oftast. Staðan i hálfleik var 27:18
vallarliðinu í vil. Lengi vel fram-
an af síðari hálfleiknum var mun-
urinn um 10 stig, en rétt fyrir
leikslok tókst ísl. liðinu að
minnka muninnn niður í tvö stig
64:62. En lengra komust þeir
ekki, og úrvalsliðið af Keflavíkur- |
flugvelli hreppti 3. sætið með þvi
að sigra með 67:62. Það, sem vakti
einna mesta athygli í þessum leik,
var góður leikur Agnars Friðriks-
sonar, hann skoraði 16 stig, sum á
glæsilegan hátt, og var sterkur i
vörn.
David Devany var langbestur í
vallarliðinu, og þessi skemmtilegi
leikmaður skoraði alls 24 stig,
mest með sinum kunnu langskot-
um.
Birgir Guðbjörnsson skorar.
ÞAÐ verður mikið um að vera í
handknattleiknum um þessa
helgi þvi alls fara fram 35 leikir í
hinum ýmsu flokkum og deild-
um. Alls verða því um 800 manns
Luther vann hraðmótið
Full ferð á
r
Islandsmótinu