Morgunblaðið - 05.01.1974, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUG ARDAGUR 5. JANÚAR 1974
23
Olíuverzlun Islands h/f, sem
hann annaðist í áratugi. Hann
hafði umsjón með birgðastöð fé-
lagsins hér, en við hana starfaði
einnig bróðir hans, Friðrik,
kunnur borgari á staðnum og lát-
inn fyrir nokkrum árum. Har-
aldur hafði einnig með höndum
— fyrstur manna í Skagafirði —
afgreiðslu langferðabifreiða, og
sjálfur starfrækti hann fyrstu bif-
reiðastöð hér.
Á því, sem hér hefur verið
rakið, sést glöggt, að Haraldur
hefur færzt margt í fang og hugað
að ýmsu. Má með fullum sanni
segja, að honum hafi aldrei fallið
verk úr hendi. Starfsgleði hans
var dæmafá. Barnungur varð
hann að hefja lífsbaráttuna og
gerði ævinlega meiri kröfur til
sjálfs sín en annarra. Síðasti
starfsdagur hans var aðfangadag-
ur jóla. Þann dag gekk hann til
vinnu sinnar eins og endranær.
Á jóladag kenndi hann lasleikí
og hélt kyrru fyrir þann dag og
hinn næsta, en að morgni 27.
desember andaðist hann að heim-
ili sínu. Var þá lokið langri og
starfsamri ævi.
Hjónaband Guðrúnar og Har-
alds var farsælt og traust. Guðrún
var ástrík og góð húsmóðir, og
mat Haraldur hana mikils. Hún
lézt 1971 eftir þungbær veikindi,
74 ára að aldri. Missir hennar
varð Haraldi mikið áfall, þótt ekki
bæri hann söknuð sinn á torg.
Börn þeirra hjóna eru: Bjarni
kaupmaður á Sauðárkróki og
María Kristín, gift Guðfinni
Einarssyni forstjóra í Bolungar-
vík. Haraldur var börnum sínum
góður faðir, hollráður og um-
hyggjusamur. Baynabörn hans
voru honum einkar kær, enda var
hann barngóður. Á síðustu árum
hans voru heimsóknir barnabarn-
anna honum sólskinsstundir, sem
hann hlakkaði til og naut í ríkum
mæli.
Sauðkrækingar eiga nú á bak
að sjá þeim manni, sem einna
lengst hefur starfað á meðal
þeírra og notið vinsælda og virð-
ingar. Mörgum mun reynast erfitt
að sætta sig við að sjá ekki framar
þennan síkvika, glaðlega mann.
En hann hefur ákilað fullu dags-
verki flestum fremur, og við meg-
um vera þakklát fyrir að hafa átt
þess kost að kynnast honum,
njóta verka hans og návistar.
Um leið og ég votta ástvinum
Haralds Júlíussonar einlæga sam-
úð flyt ég honum þakkir aldraðra
foreldra minna, sem áttu hann að
nágranna og vini, allt frá því að
faðir minn hóf störf við hlið hans
í Verzlun Kr. P. Briems 1915.
Að leiðarlokum færi ég honum
persónulegar þakkir mínar fyrir
óbrigðula vináttu og umhyggju
frá fyrstu kynnum. Hús hans var
um árabil annað heimili mitt og
starfsvettvangur. Þaðan á ég dýr-
mætar minningar, sem ég mun
geyma í þakklátum huga. Far vel,
vinur.
Kári Jónsson.
Á ÞESSUM skammdegisdögum
kveðja Skagfirðingar heiðurs-
mann í þess orðs bezta skilningi.
Þó að Haraldur Júlíusson, sem nú
er kvaddur, væri hvorki fæddur
né uppalinn í Skagafirði — en
hann fluttist úr Eyjafirði 27 ára
að aldri — þá má hiklaust telja
hann einn ágætasta son þess
fagra héraðs Skagafjarðar. Enda
unni hann því heitt og lagði mörg
lóð á vogaskálar framfara þess og
þróunar.
Eins og allir aðrir strákar á
,,Króknum“ í þá daga kynntist ég
Haraldi og fékk mörg holl ráð hjá
þessum hæverska manni. Har-
aldur átti meiri þátt
í, á hvern hátt mitt lífs-
starf mótaðist en nokkur ann-
ar maður. Á verzlunarferð í
Reykjavík mælti hann með mér
sem væntanlega heppilegum
unglingi til að nema viðgerð á
skrifstofuvélum erlendis. Orðum
Haralds þótti ætíð óhætt að
treysta, og ég var því sendur.
Ekki hafði ég beðið hann sérstak-
lega að koma mér í nám, enda
erfitt á þessum atvinnuleysis-
árum, í kringum 1937. En svona
var hann vakandi, ávallt að
hjálpa.
Náin samskipti okkar Haralds
byrjuðu um 1933, þegar ég réðst
sem ,,kuskur“ og síðar kokkur til
vegavinnuverkstjórans Rögn-
valds Jónssonar frá Ytri-Kotum,
en hann ,,provanteraði“, að ég
held, flesta vegavinnuflokka I
héraðinu. Var það mikið og
erilsamt starf, sem gaf lítið í aðra
hönd. Lftið var um aura á þessum
kreppuárum, en Haraldur treysti
okkur strákunum ekki síður en
þeim kvæntu og ráðsettu. Vildi
hann ávallt hvers manns vanda
leysa og það jafnt á nóttu sem
degi. Sennilega hefur enginn
sunnudagur eða aðrir helgidagar
liðið svo, að hann væri ekki að
erinda fyrir Pétur og Pál, sem
vanhagaði um eitthvað úr
verzluninni hans, eða leiðbeina
ferðamönnum. Mun slík greið-
vikni vart eiga sinn lika. Ekki var
þess vart, að þetta hefði truflandi
áhrif á fjölskyldulíf þeirra hjóna,
svo samhent var fjölskyldan í
þessum lífsvenjum.
Kvæntur var Haraldur Guð-
rúnu Bjarnadóttur, Magnússonar
járnsmiðs, og konu hans,
Kristínar Jósepsdóttur, sem var
austfirzkrar ættar. '
Guðrún andaðist árið 1971, 74
ára að aldri. Börnin voru tvö,
María giftist athafnamanni í
Bolungarvik og Bjarni, sem hefur
rekið verzlunina með f öður sínum
í mörg ár.
Mikil og gróin vinátta var með
þeim hjónum og foreldrum
minum, sem hélzt meðan bæði
lifðu.
Má segja, að þessi vinátta hafi
gengið í erfðir til minnar fjöl-
skyldu, þegar við heimsækjum
æskustöðvarnar, en þá var boðið
til veizlu, sem ljúft er að minnast.
Haraldur hóf verzlunarstörf hjá
Kristni P. Briem árið 1912, þegar
hann kom til Sauðárkróks, og var
hjá honum til 1919, að hann hóf
eiginn verzlunarrekstur.
Eitt sinn átti ég mikilvægt
erindi við Briem. Vissi Haraldur
um það og innti mig eftir, hvað
Briem hefði sagt. Hafði ég orðrétt
eftir svar hans, sem var: „Já, ég
skal athuga þetta.“ Er mér þá
minnisstæð athugasemd Haralds
við svari Briems „Þetta svar frá
Briem jafngildir loforði.“ Gekk
þetta eftir. Svona voru nú kaup-
mennirnir á Sauðárkróki i þá
daga. Móðurmálið okkar á mjög
gott orð, sem lýsir innra manni
Haralds, hann var grandvar
maður.
Haraldur var meðalmaður á
hæð, grannur alla tíð, skarpleitur
og léttur á fæti. Yfir andliti og
höfuðlagi var sérstök fegurð, sem
speglaði hans innri mann. Ekki
vissi ég til, að hann skipti skapi,
því að geðprúður var hann með
afbrigðum og brá fyrir sig hæg-
látri kímni.
Mörgum góðum málefnum lagði
hann lið í kauptúninu, og voru
þau hjón samhent í því sem öðru.
Mun nú mörgum þykja skarð
fyrir skildi að geta ekki leitað til
Haralds, átt við hann orð og
fundið hans trausta handtak. Sár
'verður söknuður barna hans og
barnabarna, en þá er gott að geta
yljað sér við minningarnar úm
fyrirmyndar mann og fjölskyldu-
föður.
Haraldur hefur átt langan og
giftudrjúgan starfsdag, og mun
honum nú fagnað í æðri heimum
af konu sinni, sem látin er fyrir
nokkrum árum. Hafi hann þökk
og virðingu okkar hjónanna fyrir
allt, i gegnum mörgu árin.
Ottó A. Michelsen.
Ný 2)a herb. íbúð
í Breiðholti til leigu. íbúðin leigist til eins árs og skal sem
mest borgað fyrirfram. Snyrtileg umgengni og reglusemi
algjört skilyrði. Tilboð óskast send á afgr. Mbl. fyrir 15.
jan. '74 merkt: íbúð — 979.
JdZZBOLL©CtSl<ÓLÍ BÚPU
Q
N
6 vikna og 12.
mánudaginn 7. |Nl
Ný námskeið,
vikna hefjast
janúar. Y )
Líkamsrækt og megrunaræfingar X
fyrir dömur á öllum aldri.
Morgun- dag- og kvöldtímar. ?T\
Innritun frá 1-6 i dag í síma
83730 eða í skólanum. V-L
§
5
jazzBaLLettskóu búpu
Dansskóli Hermanns Ragnars, Reykjavík.
GLÆSIBÆR TÓNABÆR SKÚLAGATA 32
Innritun nýrra nemenda er
daglega í síma 721 22.
Byrjendur og framhald.
Allir flokkar sem voru fyrir
jól verða á sama stað og
tíma.
Kennsla hefst mánud. 7.
janúar.
Nemendur, sem voru fyrir
jól, geta endurnýjað
skírteini sín á jóladansleik
á Hótel Sögu í dag.
AthugiS nýtt símanúmer
skólans 72122 —
72122.
Skðll fyrlr yngrl bðrn
Breiðhoill iii
Kennsla hefst í skólanum að Unufelli 1 8 (aldur 5 — 6 ára)
þann 7. janúar kl. 10 f.h. Vegna nýrra nemenda hafið
samband í dag og næstu daga kl. 6—9 e.h. i síma
25244.
Ása Jónsdóttir, uppeldisfræðingur.
Félagsstarf
ADUFUNDUR FULLTRUARADSINS
Aðalfundur Fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík verður
haldinn mánudaginn 7. janúar n.k. klukkan 20.30 að Hótel Sögu,
Súlnasal.
Dagskrá:
1. Skýrsla stjórnar um s.l. starfsár.
2. Nýjar prófkjörsreglur.
3. Breyting á reglugerð Fulltrúaráðsins
4. Stjórnarkjör
5. Kjör 1 2 fulltrúa í
flokksráð Sjálfstæðisflokksins
6. Önnurmál.
Geir Hallgrímsson, formaður Sjálf-
stæðisflokksins flytur ræðu.
BLAÐBURÐARFOLK OSKAST
Upplýsingar i síma 35408
AUSTURBÆR
Barónstíg.
Laufásvegur 2 — 57, Bergstaðastræti, Bergþórugötu,
Sjafnargötu, Freyjugata 28—49, Miðbær, Hraunteig,
Úthlið, Háahlíð, Grænuhlið, Grettisgata frá 2 — 35.
Ingólfsstræti, Bragagata, Skaftahlíð, Skipholt I
Laugaveg 34—80.
VESTURBÆR
Asvallagata II Seltjarnarnes, Skólabraut
Hávallagata, Vesturgata 2 — 45., Seltjarnarnes, Mið
braut. Sörlaskjól, Tómasarhaga, Nesveg frá 31 —82
Lynghaga, Lambastaðahverfi, Grenimel.
ÚTHVERFI
Sólheimar 1 . — Kambsvegur.
Vatnsveituvegur, Nökkvavogur.
Laugarásvegur, Sæviöarsund,
Efstasund, Tunguveg, Blesugróf.
Kópavogur
Blaðburðarfólk óskast við Hrauntungu og Digranes
veg, Birkihvamm, Bræðratungu, Nýbýlaveg, Lundar-
brekku, Auðbrekku, Kópavogsbraut.
Upplýsingar í sima 40748
Telpa óskast
til sendistarfa á skrifstofu blaðsins, vinnutími 1_5
e.h.
GARÐUR
Umboðsmaður óskast i Garði. — Uppl. hjá
umboðsmanni, sími 71 64, og í sima 101 00.
MOSFELLSSVEIT
Umboðsmenn vantar í Teigahverfi og Markholtshverfí
Upplýsingar á afgreiðslunni i sima 10100.
GRINDAVÍK
Umboðsmaður óskast til að annast dreifingu og inn
heimtu fyrir Morgunblaðið.
Upplýsingar hjá umboðsmanni Onnu Bjarnadóttur og
afgreiðslunni i sima 1 01 00.
ESKIFJÖRÐUR
Umboðsmaður óskast til að annast dreifingu og inn-
heimtu fyrir Morgunblaðið. Upplýsingar hjá umboðs-
manni í síma 62 eða afgreiðslunni í síma 10-100.