Morgunblaðið - 05.01.1974, Side 25

Morgunblaðið - 05.01.1974, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. JANUAR 1974 25 félk í fréttum TRYGGUR HIJNDUR TryggS hundá við húsbændur sina er við brugðið og er hér eitt gott dæmi um það. Hinn fimm ára gamli þýzki fjárhund- ur Barry gekk 2000 km frá Bari á Suður-ítalíu til fyrri heim- kynna sinna i Solingen, sem er nálægt Cologne í Frakklandi. í növentber sl. urðu eiganda- skipti á Barry, en eitthvað hef- ur honum ekki fallið við hina nýju húsbændur, þvi að hann strauk jafnskjótt og hann var kominn á nýja staðinn. Barry náði mátulega heim til Sol- ingen fyrir jól, en var sagður við slæma heilsu eftir hina löngu göngu yfir fjöll og veg- leysur. Utvarp Reykjavík f LAUGARDAGUR 5. janúar 7.00 Morgunútvarp Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Morgunleikfimi kl. 7.20 Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og forustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00 Morgunbæn ki. 7.55. Morgunstund barnanna kl. 8.45: Knútur R. Magnússon byrjar að lesa söguna „Villtur vegar'* eftir Oddmund Ljone í Þýð. Þorláks Jónss. Morgun- leikfimi kl. 9.20. Tilkynningar kl. 9.30. Léttlög lög á m. atr. Morgunkaffið kl. 10.25: Páll Heiðar Jónsson og gestir hans ræða útvarpsdagskrána. Auk þess sagt frá veðri og vegum. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynning- ar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynn- ingar. 13.00 Öskalög sjúklinga Kristín Svein- björnsdóttir kynnir. 14.30 íþróttir Umsjónarmaður: Jón Ás- geirsson. 15.00 tslenzkt mál Jón Aðalsteinn Jóns- I son cand.mag. flytur þáttinn.. 15.20 Útvarpsleikrit barna og unglinga: „Ríki betlarinn“ eftir Indriða tJlfsson Leikstjóri: Þóhildur Þorleifsdóttir. Fimmti þáttur: Leyndarmálið. Persónur og leikendur: Broddi ..........Aðalsteinn Bergdal Afi ........Guðmundur Gunnarsson Þórður ........Jóhann Ögmundsson Fúsi .........Gestur Einar Jónasson Gvendur .......Guðmundur Ölafsson W A skjánum LAUGARDAGUR 5. janúar 1974 17.00 lþróttir M.a. myndir frá innlend- um íþróttaviðburðum og mynd frá leik ensku knattspyrnuliðanna Birming- ham og West Ham. Umsjónarmaður Ómar ragnarsson. Hlé 20.00 Fréttir 20.20 Veður og auglýsingar 20.25 Söngelska fjölskyldan Bandarísk- ur söngva- og gamanmyndaflokkur. Þýðandi Guðrún Jörundsdóttir. 20.50 Alþýðulýðveldið Kína Ein þjóð — Margar þjóðir Fyrsti þáttur í nýjum, breskum sex mynda fræðsluflokki um menningu og þjóðlíf í Kína. Hérgreinir frá hinum ýmsu þjóðum og þjóðabrot- Ríki betlarinn .... Árni Valur Viggósson Sólveig ...............Saga Jónsdóttir Lási ...................Þórir Gíslason María ............Sigurveig Jónsdóttir Sögumaður: Arnar Jónsson 15.45 Barnalög 16.00 Fréttir. 16.15 Veðurfregnir. Tíu á toppnum Örn Petersen sér um dægurlaga þátt. 17.15 Tónleikar. Tilkynningar. 18.30 Fréttir. 18.45 Veðurfregnir. 18.55 Tilkynningar. 19.00 Veðurspá. Fréttaspegill 19.20 Framhaldsleikritið: „Sherlock HoImes“ eftir Sir Arthur Conan Doyle og Michael Hardwick. (áður útv. 1963) Annar þáttur: Herra Ágústus Milver- ton. Þýðandi: Brynja Benediktsdóttir. Leikstjóri: Flosi ólafsson. Persónur og leikendur: Holmes...........Baldvin Halldórsson Watson ............Rúrik Haraldsson Lestrade.....Þorsteinn ö. Stephensen Milverton .......Haraldur Björnsson Susan .......Brynja Benediktsdóttir Garðyrkjumaður.....Jón Múli Árnason 20.00 Létt tónlist frá Múnchen 20.15 Gaman af gömlum blöðum Umsjón: Loftur Guðmundsson. 20.55 Frá Bretlandi Agúst Guðmundsson talar. 21.15 Hljómplöturabb Þorsteinn Hannesson bregður plötum á fóninn. 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Danslög 23.55 Fréttir í stuttu máli. Dagskrárlok. * um innan ríkisins og þjóðlegum sér- kennum þeirra, sem reynt er að verð- veita eftir megni. Þýðandi og þulur Gylfi Pálsson. 21.15 Topkapi Bandarísk bíómynd frá árinu 1964, byggð á sögu eftir Eric Ambler. Leikstjóri Jules Dassin. Aðal- hlutverk Peter Ustinof, Melina Mercouri og Maximilian Schell. Þýð- andi Ingi Karl Jóhannesson. Nokkrir harðsvíraðir náungar gera áætlun um að stela verðmætum gimsteinum úr Topkapi-safninu í Istanbúl. Leiðtogi hópsins er kona, Elisabet Lipp að nafni. Gerð er ýtarleg og hárnákvæm áætlun um ránið, en þrátt fyrir það gerast óvænt atvik, sem setja strik í reikning- inn. 23.10 Dagskrárlok. □ í HEIMSÓKN HJÁ ÖMMU A þessari mynd sjáum við Ted Kennedy yngri í heimsókn hjá ömmu sinni Rósu Kennedy, en myndin var tekin á heimili hennar í Flórída einhvern daginn milli jóla og nýárs. Eins og kunnugt er, varð Ted yngri fyrir því óláni að fá beinkrabba i hægri fót, svo að taka varð hann af fyrir ofan hné. En Ted litli lætur það þó ekki aftra sér frá þvi, að hjóla um garðinn hennar ömmu á þrihjölinu sínu. ☆ Lemmy búinn að vera Margir muna eflaust eftir slagsmálahetjunni Eddy Lemmy Constantine, sem var mjög eftirsóttur leikari og söng- vari hér i eina tíð. Lemmy, sem fyrir nokkrum árum græddi milljónir á því að slá menn niður á hvíta tjaldinu hefur nú sjálfur verið sleginn út. Hann er atvinnulaus og lifir á sparifé sínu. Kona hans hefur hlaupið frá honum með öðrum eftir 32 ára hjónaband. Nú eyðir hann tima sínum á næturklúbbum og dregst að sögn siðastur heim á morgnana aleinn og yfirgefinn. Lemmy talar oft um að hann fái mörg kvikmyndatilboð, en þegar hann er spurður hvers vegna hann taki ekki einhverju þeirra segist hann bíða eftir þvi rétta. Einn af fyrrverandi vin- um hans segir, að hann lifi í fortíðinni og reyni að fela það, að ferli hans sem leikara er endanlega lokið. ffclk f fjclmiélum Myndin er tekin í efna- rannsóknastofu í háskóla f borginni Kanton í Kfna. Það er reyndar ekkert smá- ræðis fólk, sem verður á ferð- inni í sjónvarpinu í kvöld kl. 20.50. Þá verður sýnd fyrsta myndin af sex í flokki, sem fjallar um líf og starf fólksins í Alþýðulýðveldinu Kina. Þessi myndaflokkur er brezk- ur, og fjallar fyrsta myndin um það, hvernig leitast er við að láta hin ýmsu þjóðarbrot halda sérkennum sínum i bákninu. Kínverjar eru nú um 750 milljónir talsins, en landið skiptist í 29 héruð. Szachuan er fjölmennasta héraðið — en þar búa milli 70 og 80 milljónir manna, sem teldist vera stór- þjóð á Vesturlöndum. Nú eru aðeins fáein ár siðan Kína var „lokað" land, og var fátt eitt vitað um líf fólksins í landinu. Oðru hverju bárust þaðan óstaðfestar fréttir eða sögu- sagnir um ævintýralega at- burði, svo sem sundferð Maós formanns og menningarbylting- una, eins og menn rekur minni til. Á siðari árum hafa samskipti Kína og umheimsins tekið stakkaskiptum, og við það.hef- ur þekking og skilningur væntanlega aukizt á báða bóga. Verður þvi forvitnilegt að skoða þessa þætti. í kvöld kl. 21.15 er Hljóm- plöturabb Þorsteins Hannes- sonar á dagskrá útvarpsins. Þorsteinn sagði okkur i sim- tali, að í þessum þáttum hefði oft verið horfið aftur í tímann, en að þessu sinni væri ætlunin að sanna fyrir útvarpshlustend- um á hversu háu stigi óperu- söngur nútímans stæði. í þætt- inum koma einungis fram ung- ir söngvarar, sem allir eru úr fremstu röð óperusöngvara. Þeirra á meðal eru Placido Domingo, Cheryll Milnes, Monserat Cabaellé, Alfredo Kraus og Shirley Verrett, en óperur Giuseppis Verdis verða aðalviðfangsefni þeirra.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.