Morgunblaðið - 05.01.1974, Síða 28

Morgunblaðið - 05.01.1974, Síða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. JANUAR 1974 rgunkoffinu Þýtur ískóginwn s.K.r,h Moldvarpan leiddi því frosk sér við hlið út í ferska loftið, lét hann setjast í körfustól og bað hann að segja sér frá nýafstöðnum þrengingum sínum frá upphafi til enda og ekki stóð á froski. Moldvarpan var góður áheyrandi og froskur lét gamminn geysa og naut þess vissulega að enginn var viðstaddur til að rengja orð hans eða draga sannleiksgildi þeirra í efa. Satt að segja byggðist megin hluti frásagnarinn- ar á því. Hvað „hefði-getað-orðið-ef-mér-hefði-dottið- það-í-hug-á-réttum-tíma-en-ekki-tíu-mínútum-of- seint“. Slíkar frásagnir verða alltaf beztar og fjör- legastar, og því skyldu þær ekki eiga eins mikinn rétt á sér eins og hinar sömu, sem alltaf vantar á herzlumuninn? 12. kafli „Odysseifur snýr heim” Þegar dimma tók, kallaði rottan þær inn í stofuna, hátíðleg og ábúðamikil á svip. Hún lét þau raða sér upp við staflana góðu og tók til að hervæða þau fyrir leiðangurinn. Þetta var mikið verk og vandasamt og tók því sinn tíma. Fyrst fékk hvert þeirra belti og síðan afhenti hún sverð í hvert belti og sveðju í beltið hinum megin, svo jafnvægi fengist. Að því búnu útdeildi hún byssum, lögreglulurkum, hand- járnum, sárabindum, plástrum, vatnsflöskum og brauðboxum. Greifinginn hló góðlátlega og sagði: „Gott og vel, rotta. Þú hefur gaman og þessu og mig sakar það ekki. En ég þarf ekki á öðru að halda en þessum lurki hérna.“ Rottan sagði bara: „Æ, gref- ingi, þú veizt að mér þætti verra, ef þú kenndir mér um það seinna að hafa gleymt einhverju.“ Þegar allt var tilbúið, tók greifinginn ljósker í aðra framlöppina og lurkinnihina og sagði: „Jæja, öll í halarófu á eftir mér! Moldvarpan fyrst, því hún er mér mjög að skapi. Rottan næst og froskur síðastur. Og gættu þess, froskur, að tala ekki eins mikið og þú átt vanda til, annars verður þú sendur til baka. Það máttu bóka.“ Falleg taska Þessi taska er saumuð úr 5 jafnstórum ferningum og efnið má vera filt, skinn eða plastefni. Fyrst tekur þú tvo ferningana, leggur röngu móti röngu og saumar þá saman eftir annari brún þeirra. Notaðu nógu sterkan saumaþráð. Þráðarendana verður þú að hefta vel niður. Hina ferningana saumar þú svo við þessa tvo á sama hátt og skýrt er á teikningu A. Síðan eru stuttu hliðarnar saumaðar saman. Fimmta ferninginn notar þú sem botn. B Snúðu nú röngunni út á töskunni og saumaðu þrjá hringa á röngu hliðanna fjögurra. Tvær snúrur eru síðan gerðar og notaðar til að loka töskunni og það þarf að gera með'hagleik. Snúrurnar eru síðan bundnar saman e.t.v. í speldi. Að því búnu er taskan tilbúin og getur verið til margra hluta nýt. £JVonni ogcTManni Jón Sveinsson Var komin nótt, eða var það bara þokan, sem gerði það? Við vissum það ekki. Við höfðum ekki hugmynd um, hvað klukkan var. Ég þrýsti Manna að mér til þess að hlýja honum dálítið. Mér þótti ákaflega vænt mn bróður minn og þoldi ekki að sjá, að honum liði illa. Hann hjúfraði sig upp að mér og lét aftur augun. Þannig sátum við lengi. Ég leit á hann. Honum leið ekki vel. Hann var vanur að vera rjóður og sællegur, en nú var hann fölur og bleikur. Ég nagaði mig í handarbökin fyrir ógætni mína. Þetta var allt mér að kenna. Loks opnaði hann augun og sagði: „Sést ekki til lands enn?“ Freysteinn Gunnarsson þýddi „Nei, Manni. Okkur ber til hafs með straumnum“. „En hvað það er orðið kalt“, sagði hann. „Ég vil helzt fara að sofa, en ég get það ekki fyrir kulda“. Þetta var slæmt. En hvað átti ég að gera? Ég hafði ekki neitt til þess að hlýja honum með. Þá datt mér í hug, að við áttum enn kökur og rúsínur í vösunum. Það var kannske bót í máli, að minnsta kosti við sulti, þótt ekki væri við kulda. Ég spurði því Manna: „Ertu ekki svangur?“ „Jú, en mér er samt meira kalt“. Ég stakk upp á því, að við skyldum fá okkur af kökunum og rúsínunum. Hann tók því vel, og við át- um mest af því, sem við áttum. Heldur bætti það úr. Við urðum dálítið hressari. En kuldinn hélt áfram að bíta okkur. Mér var orðið mjög kalt líka. — Þetta er klukkan, sem sonur minn kom með frá Kfna ... — Ef ég hefði rifið plásturinn af á þennan hátt hefirðu barið mig... — Hugsaðu þér ósvffnina . . . einhver hefur stolið veskinu mínu ... — Já, við krefjumst þess, að ákveðin skilyrði séu uppfyllt áður en við veitum námslán . . . í fyrsta lagi verðið þér að stunda eitthvert nám ... — Af hverju förum við ekki í leik þar sem við öll þrjú getum verið með...?

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.