Morgunblaðið - 05.01.1974, Side 29

Morgunblaðið - 05.01.1974, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. JANUAR 1974 29 MAIGRET OG SKIPSTJÓRINN Framhaldssagan eftir Georges Simenon Jóhanna Kristiónsdóttir þýddi 30 hafði hnigið niður í stól og hágrét. Öðru hverju stamaði hún: — Veslings Conrad ... Conrad. Og Barens beit á vörina, ákaflega óttasleginn á svip. — Te! sagði Maigret skipandi við Any. — Það var ekki alveg strax . . . Teppinu var rúllað upp . . . og Conrad dansaði . . . Beetje grét enn beizklegar. Maigret leit niður á teppið, eikar- borðið með útsaumaða dreglinum, gluggann og hann leit líka á frú Wienands, sem vissi ekkert, hvað hún átti af sér að gera né heldur börnum sínum. 10. kapítuii SA, SEM BÍÐUR EFTIR RÉTTU ANDARTAKI Maigret gnæfði upp úr hópnum — ekki aðeins vegna stærðar sinnar, heldur umfangs og mikil- úðlegs fas. Dagstofan var ekki stór og þar sem hann stóð núna og hallaði sér upp að dyrastafnum var eins og hann kæmist naumast fyrir. Kannski hafði hann aldrei verið manneskjulegri en einmitt nú, þegar hann sagði alvarlegri, hægri og dálítið óskýrri röddu: — Áfram er haldið að spila . . . Barens hjálpar Popinga að rúlla upp teppinu . . . Uti í horni er Duclos á tali við frú Popinga og Any og hann hefur sanna unun af að heyra sjálfan sig tala .. . Wien- ands og kona hans eru farin að hugsa til brottferðar vegna barn- anna og pískra um það sín í milli . . . Popinga hefur fengið sér eitt koníaksglas og það dugir til að setja meira líf í hann . . . Hann hlær . . . Hann raular . . . Svo gengur hann til Beetje og býður henni upp í dans... Frú popinga einblindi niður í gólfið. Any horfði á lögreglufor- ingjann með torkennilegri glóð í augum, og hann hélt áfram: — Morðinginn veit nú, að hann ætlar að drepa .. . Það er einhver, sem horfir á Conrad dansa og veit, að innan tveggja klukku- stunda mun þessi maður . . . þessi maður, sem skemmtir sér og hlær hátt og vill skemmta sér . . . þyrstir eftir ævintýrum . . . innan tveggja klukkustunda verður hann liðið lik. Hann fann hroll fara um við- stadda. Frú Popinga opnaði munninn eins og hún ætlaði að reka upp óp, en ekkert hljóð kom út fyrir varir hennar. Beetje var enn snökktandi. Andrúmsloftið hafði snögg- breytzt. Nú var engu líkara en allir sæju Conrad fyrir sér í dansinum . . . og' vissu, að augu morðingjans höfðu fylgt honum. Jean Duclos gat ekki orða bundizt: — Ja, þetta þykir mér svei mér ósvífið. Og þegar enginn virtist taka eftir þvi, sem hann sagði, hélt hann áfram í þeirri von, að Maigret veitti orðum hans athygli: — Nú skil ég aðferð yðar og hún er sannarlega ekki ný af nálinni! Þér ætlið að gera þann seka örvita af skelfingu, dáleiða hann, leiða hann aftur á vit þess andrúms, sem ríkti um kvöldið, og með því ætlið þér að knýja fram játningu . . . Ég þekki dæmi til þess, þar sem hinn seki endur- tekur allar sfnar gerðir gegn vilja sinum .. . En þetta varð aðeins að óskýru muldri. Það var ekki beðið eftir slíkri yfirlýsingu á borð við þessa nú. Utvarpið sendi enn frá sér djasstónlist og það nægði til að auka spennuna. Frú Wienand hvislaði eitthvað að manni sínum og hann reis stirðbusalega á fætur. — Já. Já. Þið megið fara, sagði Maigret, áður en maðurinn hafði mælt orð af vörum. Veslings frú Wienands, sem var siðfáguð kona, hefði áreiðanlega helzt viljað kveðja þau kurteis- lega og láta börnin gera slíkt hið sama, en hún vissi bara ekki, hvernig hún átti að snúa sér, svo að hún lét sér nægja að þrýsta hönd frú Popinga, án þess að segja neitt. — Er nú ekki tími til kominn að bera fram te? spurði Maigret. — Jú, svaraði Any, reis á fætur og gekk í áttina að eldhúsinu. — Afsakið, frú Popinga, en fóruð þér ekki fram og hjálpuðuð systuryðar . ..? — Jú, en ekki fyrr en aðeins seinna? — Og var hún þá í eldhúsinu? Frú Popinga strauk sér þreytu- lega um ennið. Hún reyndi að einbeita sér, svo að sljóleiki og mæða næðu ekki algerum tökum á henni. Eg veit það ekki . . . Jú . . . bíðum við. Ég held, að Any hafi komið úr borðstofunni, þvl að sykurskálin er í borðstofu- skápnum. — Var Ijós þar inni? — Nei. . . jú kannski . . . Nei. . . Ég held ekki. .. . — Sögðuð þér ekkert? — Jú ég sagði: ,,Það dugar ekki, að hann Conrad fái sér meira koníak, því að þá fer hann að hegða sér ósiðlega.“ Maigret gekk fram um leið og Wienandshjónin lokuðu á eftir sér. Eldhúsið var bjart og þar var ákaflega hreinlegt. Ketill stóð á gasvélinni. Any tók lokið af tepottinum. — Við þurfum ekki að búa til te. Þau voru ein. Any horfðist í augu við hann. — Hvers vegna neydduð þér mig til að taka húfuna? spurði hún. — Það skiptir engu .. Komið nú Inni í stofunni mælti enginn orð af vörum og engin hreyfing var á neinum. — Hafið þér i hyggju að láta þennan glymjanda standa enda- laust? ákvað Jean Duclos að spyrja að lokum. — Kannski. Það er einn í viðbót, sem mig langar að tala við ... vinnusiúlkan. Frú Popinga leit á Any, sem svaraði. — Hún er háttuð. Hún fer alltaf í rúmið klukkan niu á kvöldin. — Biðjið hana að koma stutta stund. Hún þarf ekki að klæða sig. Og með sömu mynduglegu röddinni og einkennt hafði hann i byrjun sagði hann nú þrjózku- lega: — Þér eruð að dansa við Conrad, Beetje ... I horninu þarna fóru fram alvöruþrungnar samræður . . . Og það var einhver þarna inni, sem vissi, að fljótlega væri einn úr hópnum látinn . . einhver vissi, að þetta var síðasta kvöld Popinga .. . Það heyrðist þrusk og dyrunum var lokað uppi, þar sem aðeins voru kvistherbergi. Svo heyrðist muldur, sem kom nær. Any kom inn á undan. Frammi stóð stúlkán. — Komið inn, sagði Maigret skipandi. — Einhver verður að segja henni, að hún skuli ekki vera hrædd, heldur bara koma hingað inn. Stúlkan hafði vingjarnlegt andlit, en hún var óttaslegin. Hún hafði farið í kápu yfir siðan gulan bómullarnáttkjólinn. Augun voru svefndrukkin og hárið úfið. Maigret sneri sér að Duclos. — Spyrjið hana á hollenzku, hvort hún hafi verið ástkona Pop- inga... Frú Popinga sneri sér örvingluð frá. Spurningin var þýdd á hollenzku. Stúlkan hristi áköf höfuðið. — Endurtakið spurninguna. Spyrjið, hvort húsbóndi hennar hafi aldrei verið nærgöngull við hana... Enn ákafari mótmæli. — Segið henni, að hún eigi yfir höfði sér að lenda í fangelsi ef hún segir ekki satt. Skiptið spurn- inguna niður I fleiri hluta. Hefur hann aldrei kysst hana? Hefur hann aldrei komið inn i herbergið hennar, þegar hún var ein þar inni? Allt _ í einu brast stúlkan f náttkjolnum f háværan grát og stamaði: — Eg sver, að ég hef ekki gert neitt.. .. Ég sver það ... Duclos túlkaði. Any horfði á stúlkuna kipruðum vörum. — Hún var sem sagt ástkona hans? Vinnustúlkan mátti ekki mæla um stund. Svo andmælti hún. Og grét. Og bað fyrirgefningar. Stundi upp orðum, sem vart mátti greina fyrir gráti. — Eg held ekki, sagði prófess- orinn að lokum. — Mér skilst hann hafi leitað á hana. Þegar hann var einn hjá henni á kvöldin var hann hjá henni i eldhúsinu . .. Hann kyssti hana ... Einu sinni kom hann inn í herbergið til hennar, þegar hún var að hátta sig . . . Hann gaf henni súkkulaði á laun ... en meira var það nú ekki. — Hún má fara aftur upp til sín. Þau heyrðu stúlkuna fara upp og skömmu síðar var dyrunum hjá henni lokað. Maigret sneri sér að Any. — Viljið þér gjöra svo vel og fara upp og sjá, hvað hún er að gera? Einn er þó kosturinn við þetta, að hér verður maðurinn að þola mig. VELVAKAIMDI Velvakandi svarar f síma 10-100 kl. 10.110 — 11.30. frá mánúdegi til föstudags. 0 Nógur sandur í Dugguvogi Indriði Björnsson hjá Sandi s/f við Dugguvog hafði samband við Velvakanda vegna klausu, sem birtist hér í dálkunum í fyrradag. Þar var rætt um hörgul á sandi í frostatíðinni, og lagt til að fram- takssamt fólk drifi í því að hafa til sölu sand til að strá á svellbunkana, sem verið hafa allt að þvi óyfirstiganlegir upp á síð- kastið. Indriði sagði, að sandur væri alltaf fáanlegur hjá þeim í Duggu- voginum, og væri mikið um það, að fólk hefði leitað til þeirra að undanförnu. % Umgengnisréttur og umgengnis- skyldur Ilulda Guðmundsdóttir, Birki- lundi við Vatnsveituveg, skrifar: ,,Eftir að hafa séð þáttinn Krunkað á skjáinn 21. nóvember s.l. langar mig til að spyrja eftir- farandi spurninga: Er nú hægt að fjalla um og afgreiða skilnaðarmál eftir lög- um, sem urðu ógild við setningu nýrra laga þann 1. janúar 1973? Hver er lagalegur réttur barns við skilnað foreldra? Er þess getið í hinum nýju lög- um, að móður sé sk.vlt að láta barn taka upp umgengni við föður, þar sem engin umgengni hefur verið né tilfinningatengsl myndast, t.d. ef barn fæðist eftir skilnað að borði og sæng? Getur móðir krafizt þess, að barnsfaðir umgangist barn sitt, ella verði hann beittur dagsekt- um, sbr. ákvæði um dagsektir á hendur móður, sem meinar föður umgengni við barn? (Hjónaband og skilnaður kemur þessari spurningu ekki við, ef það er álit- ið, að blóðböndin ein gefi föður rétt til umgengni). Öllum rétti fylgja sk.vldur. Hverjar eru skyldur þess. sem krefst umgengnisréttar við barn?“ 0 Hvað á að gera við jólatréð? Nú eru jólin um það bil að fjara út — jólatrén eru orðin ósköp óhrjáleg, nema auðvitað plastik- og nælontré, sem verða jafnfalleg eða ófalleg næsta ár, eftir því hvernig á það er litið. Nú upphefst sá árlegi höfuð- verkur, sem fylgir veseninu við að losa sig við hrísluna. Það væri svona með hálfum huga, að maður færi að stilla henni upp við hlið- ina á öskutunnunni — alla vega getur ekki verið ákaflega skemmtilegt að starfa við sorp- hreinsun upp úr þrettándanum, ef öll heimili f bænum fara þann- ig að ráði sínu. Þá er skemmtilegra að hugsa til þess að snaggaralegir strákar á brennualdri hringi á bjöllunni til að vita hvort ekki sé til aflóga jólatré, eins og stundum hefur gerzt. Og með þvi, að varla er hægt að hugsa sér neitt eins fúlt og óspennandi eins og jólatré, sem er búið að velkjast á milli landa og standa síðan í hálfan mánuð inni á stofugölfi uppi á Islandi, lætur maður tréð fiislega af hendi, gefur gotterí í kaupbæti, og er feginn að vera laus allra mála. Hvað strákarnir ætla sér svo með jólatréð, veit enginn — a.m.k. hefur enginn sagt, að bann- að sé að gefa börnum jólatró, Kissinger dáður mest New York, 2. janúar, AP. HENRY Kissinger utanríkisráð- herra er sá maður, sem Banda- ríkjamenn dá mest, samkvæmt skoðanakönnun Gallups. Nixon forseti er nú í þriðja sæti, en hefur verið í efsta sæti fjögur síðastliðin ár. Aðeins fimm sinnum áður hefur forsetinn ekki verið í efsta sæti síðan þessar kannanir hófust 1946. Séra Billy Graham var í öðru sæti að þessu sinni, en var f fjórða sæti i fyrra. Edward Kennedy öld- ungardeildarmaður var í fjórða sæti nú og Gerald Ford varafor- seti i fimmta sæti. í 6. til 10. sæti voru: George Wallace ríkisstjóri, Ralph Náder baráttumaður hagsmuna neyt- enda, Henry Jackson öldunar- deildarmaður, Páll páfi VI og Barry Goldwater öldungadeildar- maður. Haninn háttprúði á Akureyri Akureyri, 3. janúar — LEIKFÉLAG Akureyrar frum- sýnir á sunnudaginn sjónleikinn Hanann háttprúða eftir írska höf- undinn Sean O’Casey. Margir munu kannast við leikrit hans, Júnó og páfuglinn og Plógur og stjörnur. Þorleifur Hauksson þýddi leikritið fyrir Leikfélag Akureyrar. Leikstjóri er skozkur maður, David Scott, en eiginkona hans Jónína Ölafsdóttir leikur gesta- leik hjá L.A. í þessu verki. Ann- ars búa og starfa hjónin í Lund- únum. Leikmynd gerði Magnús Pálsson. Með helztu hlutverk fara Arnar Jónsson, Þráinn Karlsson, Jón Kristinsson, Aðalsteinn Bergdal, Guðmundur Ölafsson, Saga Jóns- dóttir og Þórhildur Þorleifsdóttir, en alls koma um 20 manns fram í sýningunni. — Sv.P. Kalt vatn í Svíþjóð Stokkhólmi, 3. janúar, NTB. ELDSNEYTISNEFNDIN í Sví- þjóð hefur ákveðið, að í febrúar verði lokað fyrir heitt vatn sam- tals í tvær vikur í öllum fjölbýlis- húsum, þar sem olíunotkun verð- ur dýr. nucLvsmcnR *£*--*22480

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.