Morgunblaðið - 07.06.1974, Síða 3
LISTAHATIÐ
1974
MOKGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. JUNÍ 1974
Y firlitssýning
Listasafn Islands efnir f til-
efni listahátfðar til yfirlits-
sýningar á verkum Nínu
Tryggvadóttur og verður sýn-
ingin opin frá kl. 2 á laugardag,
en engin opinber opnun fer
fram. A sýningunni eru 222
verk eftir Nínu og eru
myndirnar f öllum sölum safns-
ins. Sýningin verður opin til 7.
júlf, kl. 1.30 til kl. 22 daglega.
Nfna Tryggvadóttir átti
glæsilegan listferil. Hún lézt
1968 aðeins 55 ára gömul og átti
þá 40 ára Iistferil að baki.
Myndirnar á yfirlitsýningunni
eru allt frá unglingsárum
hennar, er hún var í Kvenna-
skólanum og fram til síðasta
dags. M.a. er 'þarna m.vnd, sem
hún var byrjuð á f tilefni 1100
ára byggðar á tslandi og sýnir
stofnun alþingis, en þvf verki
var ólokið. Einnig er mikið af
hinum kunnu andlitsmyndum
hennar af þekktum mönnum,
svo sem Halldóri Laxness,
Erlendi í Unuhúsi, Þorvaldi
Skúlasyni, Kjarval og fleirum.
Nfna var snillingur í slíkum
portrettum. Einnig er þarna
mikið af svonefndum abstrakt
myndum, en Nfna var einn af
frumkvöðlum þeirrar stefnu á
íslandi. Flestar myndanna eru
f einkaeigu hér, en 40 myndir
voru lánaðar frá Ameríku.
t tilefni af þessari yfirlits-
sýningu á verkum Nínu, komu
maður hennar Alcopley, sem
einnig er listmálari, og dóttir
hennar, Una Dóra, til tslands
og voru þau viðstödd blaða-
mannafund, sem Selma Jóns-
dóttir forstöðumaður safnsins
efndi til. Þar voru einnig
Jóhannes Jóhannesson og
Hrólfur Sigurðsson, sem settu
sýninguna upp.
Auk málverka eru á þessari
sýningu bækur, sem Nfna
skreytti og samdi eða gaf út í
samvinnu við höfunda, svo sem
Stein Steinarr og Sigurð
Nordal, — og einnig slíkar
bækur, sem hún gerði og
ekki komu út. Þá eru þarna
sýnishorn af teikningum sem
hún gerði f.vrir leiktjöld að The
Soldiers Tale eftir Stravinsky,
sem bæði var leikið og dansað í
New York.
t sýningarskrá segir Selma
Jónsdóttir m.a.: „Þó að hér séu
aðeins sýnd 222 verk Nínu, þá
eru þau aðeins hluti af ævi-
starfi hennar, en það var bæði
fjölbreytt og frjótt. Hér f Lista-
safninu má Ifta ýmsa þá tækni,
sem Nfna notaði við listsköpun
sína, en þvf miður ekki allar
greinar hennar, t.d. var gerð
glermynda viss hluti listferils
hennar. Hún kynnti sér tækni
miðaldalistamanna í þeim efn-
um og vann sjálf með glergerð-
armönnum. Ekki varð þvf við
komið að sýna hér neitt þessara
verka, þannig að þau gætu not-
ið sín, til þess eru skilyrði hús-
rýmis ekki fullnægjandi. Þó
vill svo skemmtilega til að
þrjár af glermyndum eru
greyptar inn í glugga Þjóð-
minjasafnshússins og gefst því
sýningargestum einnig tæki-
færi til að njóta þeirra. Mósaik
er annað þeirra efna, sem Nína
vann með, einkum á sfðari ár-
um og erum við tslendingar svo
heppnir að þrjár slfkar myndir
eftir hana eru hér á landi, mjög
stórar, og ein er í New York.“
Nfna var heiinsborgari, bjó í
Kaupmannahöfn, París, Lond-
on og New York, en dvaldi
einnig mikið á íslandi.
Lengi hafði verið ætlun
Listasafnsins að setja upp yfir-
litssýningu á verkum Nfnu
Tryggvadóttur, en safnráð sam-
þykkti nú að láta verða af því á
listahátfð, í samráði við stjórn
Listahátfðar.
Á sýningunni, frá vinstri: Jðhannes Jóhannesson, Selma Jónsdóttir, Alcopley,
Una Dóra Copley og Hrólfur Sigurðsson.
Nínu í
Sjálfsmynd af Nínu, sem
er á sýningunni.
Listasafninu
ALDREI MEIRA (JRVAL
AF NÝJUM HLJÓMPLÖTUM
ABBA — WATERLOO
MAHVISHNU ORCH — NÝ
MAHVISHNU ORCH — Ný plata
EDGAR WINTER — SHOCK TREATMENT
LOGGINS & MESSINA — ON STAGE
FLASH CADILLAC — THER'S NOEACE LIKE CHROME
MARIN MULL — Ný plata
MELANIE — MADRUGRANDA
DAVID BOWIE — DIAMOND DOGS
DAVID BOWIE — SPACE ODDITY
DAVID BOWIE — THE MAN WHO SOLD
DAVID BOWIE — ALADDIN SANE
DAVID BOWIE — PIN UPS
SANDY DENNY — LIKE AN OLD FASHIONED WALTZ
MIKE ODFIELD — TUBULAR BELLS
KING CRIMSON — STARLESS & BIBLE BLACK
PROCOL HARUM — EXOTIC BIRDS & FRUIT
STEELEY SPAN — NOW WEARE SIX
NEW RIDERS OF THE PURPLE SAGA — HOME ON THE
LOVE UNLIMITED ORCH — RHAPSODY IN WHITE
WAR — LIVE
CHICAGO VII
STEVIE WONDER — TACKING BOOK
STEVIE WONDER — INNERVISION
STEVIE WONDER — MUSIC OF MY MIND
LINDA LEWIS — HEART STRINGS
SONNY & CHER — LIVE
ROD MCKUEN — BEST OF MONTROSE Ný plata
BALLINJACK — LIVE & IN COLOR
ARGENT — NEXUS
WEST BRULE & LAING — LIVE & KICKING
FRANK ZAPPA — APOSTOPAE
HOTTUNA — Ný plata
JEFFERSON AIRPLANE — EARLX FLIGHT
HARRY NILSON — SON OF DRACULA
STING — SOUNTRACK
2001 — SOUNTRACK
AMERICAN GRAFFITI — SOUNTRACK
JESUS CHRIST SUPPERSTAR — SOUNTRACK
CABARET — SOUNTRACK
PINK FLOYD — DARK SIDE OG THE MOON
PINK FLOYD — MEDDLE
PINK FLOYD — ATOM HEART MOTHER
PINK FLOYD — MORE
PINK FLOYD — RELICS
JOHNNY WHINTER — SAINT & SINNERS
STRAWBS — HERO & HEROINE
TROWER OF POWER — BACK TO OAKLAND
MAGGIE BELL — QUEEN OF THE NIGHT
GOLDEN EARRING — MOONTAN
SEALS & CROFTS — UNBORN CHILD
CANA GILLESPIE — WEREN'T BORN A MAN
STEELEY DAN — PRETZEL LOGIG
JAMESGANG — BANG
TEN YEARS AFTER — POSITIVE VIBRATION
ROBIN THOWER — BRIDGE OF SHIGHTS
FOGHAT — ENERZISED
DOOBIE BROGS — ONCE VICES NOW HABITS
SUZY QUATRO
DEEP PURPLE — BURN
DEEP PURPLE — MADE IN JAPAN
DEEP PURPLE — WHO DO YOU THINK VE ARE
DEEP PURPLE — MACHINE HEAD
DEEP PURPLE — PURPLE PASSAGES
Einnig mikið úrval af soul og quadraphonic plötum
Póstsendum
<pi KARNABÆR
Hljómplötudeild Laugavegi 66 — Lækjargötu 2.