Morgunblaðið - 07.06.1974, Síða 5

Morgunblaðið - 07.06.1974, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUK 7. JUNl 1974 5 METÞÁTTTAKA í HVÍTA- SUNNUKAPPREIÐUM FÁKS AÐ VENJU fóru fram kappreiðar hjá Fáki um hvítasunnuna. Al- gjör metþátttaka var í kappreið- unum að þessu sinni og tókust þær f alla staði mjög vel. Keppt var f mörgum greinum og oft vantaði lftið á, að íslandsmet yrðu slegin. í gæðingakeppninni sigraði Kóngur Hjalta Pálssonar, en knapi var Reynir Aðalsteinsson. I 250 metra skeiði sigraði Máni Sigurbjörns Eiríkssonar á 23.3 sek., knapi var Sigurður Sæ- mundsson. I 250 metra unghrossa- hlaupi sigraði Sörli Reynis Aðal- steinssonar á 19.3 sek., knapi var Aóalsteinn Aðalsteinsson. Vinur Hrafns Hákonarsonar sigraði í 350 metra stökki á 26.2 sek., knapi var Ragnar Björgvinsson. I 800 metra stökki sigraði Stormur Odds Oddssonar á 64.0 sek og var Oddur knapi. Lýsingur Baldurs Oddssonar sigraði í 1500 metra stökki á 2.18.6 sek. og var Oddur einnig knapi á þeim hesti. Sigurður A. Magnússon skólastjóri, Bréfaskóla SIS og ASI SIGURÐUR A. Magnússon rit- stjóri hefur verið ráðinn skóla- stjóri Bréfaskóla SlS og ASÍ og verður fyrstur til að hafa það að fullu starfi. Mikil aukning hefur að undanförnu orðið á nemenda- fjölda bréfaskólans, en á sfðast- liðnu ári stunduðu þar nám rúm- lega eitt þúsund nemendur og var aukningin 44% frá 1972. Frá upp- hafi hafa tæp 22 þúsund manns stundað nám við skólann. Sigurður A. Magnússon sagði á blaðamannafundi nýlega, að ýms- ar breytingar yrðu gerðar á skól- anum og væri stefnt að því að hann yrði tengiliður við grunn- skólana og gagnfræðaskólana i landinu og e.t.v. síðar mennta- skóla og sérskóla. Er þá ráðgert að nemendur skólans geti tekið próf í hinu almenna skólakerfi á þessum stigum. Skólinn mun einnig bjóða upp á annað náms- efni sem aðrir skólar kenna ekki. Fljótlega verður farið af stað með vandað námskeið i sænsku, sem lítt sem ekki hefur verið kennd hérlendis. Námskeið þetta er gert af sænskum bréfaskóla i sam- vinnu við sænska rikisútvarpið i Sigurður A. Magnússon. samræmi við nýjustu kennslu- tækni. Þá er fyrirhugað að endur- nýja alveg tungumálakennslu skólans og taka upp notkun kassettutækja. Sagðist Sigurður A. Magnússon vonast til að tungu- málakennsla skólans gæti orðið eins og hún gerist bezt í öðrum skólum. Mynd þessi var tekin þegar fyrsta skóflustungan var tekin aó byggingu nýs húss fyrir Dansskóla Heiðars Astvaldssonar við Drafnarfell 2—4 f Breiðholti. Það er Hanna Frímannsdóttir sem tekur fyrstu skóflu- stunguna. t húsinu verður rúmlega 1000 fermetra salur auk eldhúsað- stöðu. Áætlað er að kennsla geti hafist í hinu nýja húsnæði næsta vetur eða veturinn 1975—76. LÆKJARGÖTU 2 SÍMI 21800 VIÐ HÖFUM TEKIÐ UPP: FÖT MEÐ VESTI, RÖNDÓTT, EINLIT, LJÓST DUNIGAL TWEED, FALLEGIR LITIR ÞAR Á MEÐAL LJÓSIR SUMARLITIR □ MJÖG FALLEGA STAKA SPORTJAKKA Q BOLI QSTUTTERMA JERSEY SKYRTUR í FALLEGUM LJÓSUM LITUM □ TERELENE & ULLARBUX- UR MJÖG FALLEGIR LITIR □ MJÖG GOTT ÚRVAL AF LÉTTUM SKYRTUM MYNSTRUÐUM OG EINLITUM. LÆKJARGÖTU 2 SÍMI 21800

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.