Morgunblaðið - 07.06.1974, Qupperneq 10
Brærturnir eru komnir á kreik á ný, illu heilli. Þetta er mynd af þeim félögum ásamt tveimur
aðalkerlingunum. Sá í miðið leikur elzta hróðurinn f þessum nýja flokki, en sá, sem með það
hlutverk fór f þeim fyrra, hefur sennilega sprungið á limminu. Lái honum það hver sem vill. Frá
vinstri: Robin Chadwick (David Hammond), Jennifer Wilson (Jennifer Kingsley), Patrick
O’Connell (Edward Hammond), Jean Anderson (Mary Hammond) og Richard Easton (Brian
Hammond). Sunnudagur kl. 20.55.
SUNNUD4GUR
9. júní 1974
17.00 Endurtekið efni
Munir og minjar
„Blátt var pils á baugalfn".
Elsa Guðjónsson, safnvörður,
kynnir þróun islenska kven-
búningsins.
Umsjónarmaður dr. Kristján
Eldjárn.
Áður á dagskrá 9. júni 1967.
17.25 Knud Ödegaard
Þáttur frá norska sjónvarp-
inu, byggður á ljóðum eftir
norska skáldið Knut Öde-
gaard, sem mikið hefur ort
um byggðaþróun í landinu og
fólksflótta úr sveitum.
íslenskur texti Jón O. Ed-
wald.
Ljóðaþýðingar Einar Bragi.
Þulur Gísli Halldórsson.
(Nordvision — Norska sjón-
varpið)
Áður á dagskrá 3. maí siðast-
liðinn.
18.00 Skippf
Ástralskur myndaflokkur
fyrir börn og unglinga.
Þýðandi Jóhanna Jóhanns-
dóttir.
18.25 Gluggar
Breskur fræðslumyndaflokk-
ur fyrir börn og unglinga.
Þýðandi og þulur Silja Aðal-
steinsdóttir.
18.25 Steinaldartáningarnir
Bandarískur teiknimynda-
flokkur.
Þýðandi Heba Júlíusdóttir.
19.10 Hlé
20.00 Fréttir
20.20 Veður og auglýsingar
20.25 Borg kóralianna
Fræðslumynd um dýralif á
kóralrifjum og skipsflökum
neðansjávar.
Þýðandi og þulur Óskar Ingi-
marsson.
20.55 Bræðurnir
Bresk framhaldsmynd í
beinu framhaldi af mynda-
flokknum um Hammond-
bræðurna, sem var hér á dag-
skrá í vetur, sem leið.
1. þáttur. Fjölskyldufundur.
Þýðandi Jón O. Edwald.
21.45 Tökum lagið
Breskur söngvaþáttur, sem
hljómsveitin ,,The Settlers”
og fleiri leika og syngja.
22.20 Að kvöldi dags
Séra Jón Einarsson i Saurbæ
flytur hugvekju.
22.30 Dagskrárlok
AlbNUDtdGUR
10. júnf 1974
20.00 Fréttir
20.25 Veður og auglýsingar
HVAÐ EB AÐ SJA?
VIÐ viljum vekja athygli
yngstu sjónvarpsþrælanna á
því, að Stundin okkar er nú
komin í sumarfrí. Á sunnudags-
síðdögum verða því í sumar
þættir eins og Skippí og
Gluggar og svo Steinaldartán-
ingarnir, sem verið hafa á mið-
vikudögum í vetur. Verður
þetta því að koma í stað
Stundarinnar okkar, en útsend-
ingar á miðvikudagssfðdögum
leggjast niður í sumar. Við vilj-
um bæta því við, að í þau fáu
skipti, sem við höfum horft á
stundina siðastliðinn vetur virt
ist okkur sem þar væri afar vel
að verki staðíð, fjölbreytt efnis-
val og vönduð vinnubrögð.
Á miðvikudagskvöld kl. 20.30
hefur göngu sína nýr flokkur
gamanleikja sem (og þetta er
dálítið óvenjulegt) er gerður af
norska sjónvarpinu, en saminn
af brezkum höfundum. Flokkur
inn nefnist Fleksnes og er eftir
Ray Galton og Alan Simpson,
en íslenzka sjónvarpið hefur
sýnt nokkra brezka þætti eftir
þessa félaga, sem einkum og
sérílagi hafa sérhæft sig í gerð
sjónvarpsfarsa. Norska sjón-
varpíð flytur sem sagt handrit-
in inn frá Bretlandi, en það er
Bo Hermannsson, sem stað-
færir farsana og stjórnar síðan
uppfærslunni.
Hafa Norðmenn tekið miklu
ástfóstri við þessa farsa og hafa
þeir gert a.m.k. tvo mynda-
flokka um þennan ágæta mann,
Fleksnes, sem Rolv Wesenlund
leikur, — að sögn af mikilli
snilld. Segir myndin frá draum-
um Fleksnes (sem sumir hafa
nefnt „andhetju") um betra líf
og frama, um „litla manninn í
stóra samfélaginu”, og ýmsum
ævintýrum hans í því sam-
bandi. Kvað þetta vera geggjað
grín frá upphafi til enda, hafa
þættirnir náð vinsældum í Dan-
mörku og Svíþjóð einnig, og
mun standa til, að gerð verði
kvikmynd um þessa merkilegu
söguhetju, Fleksnes. Gagnrýn-
endur í Danmörku hafa t.d.
nefnt Flesknes „hinn norska
Marty Feldman" og Dagens
Nyheter í Svfþjóð likti
Fleksnes við skáldskap grísku
gamanleikjaskáldanna, jafnvel
Aristófanes; hér sé á ferðinni
„satira," sem sé í raun hvorki
bundin við stað né stund — sé
sígild. Og þótt ef til víll sé var-
hugavert að búast við of miklu
eftir slíkar yfirlýsingar og sam-
anburð, þá virðist hér vera
myndaflokkur sem verulegur
fengur og tilbreytni er að.
Norska sjónvarpið hefur
mjög vandað til allrar ytri gerð-
ar þáttanna, og eru þeir teknir
upp í lit (eins og það skipti
okkur máli!). Þess má geta, að
hláturinn, sem við heyrum
vanalega í bakgrunni gaman-
leikja i sjónvarpi, er í þessu
tilviki ekki niðursoðinn, heldur
tekinn upp í áhorfendasal, þar
sem leikritin eru flutt. Meðal
leikenda, auk Rolv Wesenlund,
má nefna Helga Backe, Sverre
Anker Ousdal, Sverre Hansen,
Magne Lindholm og Kai
Remlov.
Á laugardagskvöld kl. 20.50
er á dagskrá sjónvarpsins
sænsk fræðslumynd um Dul-
sálarfræði eða „para-
psychology", en þetta er efni,
sem stendur Islendingum mjög
nærri. Þeir hafa löngum haft
óútskýrðan áhuga á dulrænum
fyrirbrigðum svokölluðum,
furðum á mörkum efnis og
anda. Til að mynda stendur nú
fyrir dyrum félagsfræðileg
könnun á þessum efnum meðal
íslendinga, sem dr. Erlendur
Haraldsson mun sjá um, en sér-
grein hans er einmitt dulsálar-
fræði. Þá er nú í gangi greina-
flokkur um þetta efni í Lesbók
Morgunblaðsins. Þessi sænska
mynd fjallar um sérstaka hug-
orku, sem menn búa yfir —
sumir raunar meir en aðrír, eða
kunna a.m.k. að beita henni —
og um rannsóknir á útgeislun
slíkrar orku hjá mönnum og
dýrum. Til dæmis fáum við að
sjá í þessari mynd, hvernig
kona nokkur getur fært hluti
úr stað með einbeitingu og
handapati einu saman, hvernig
blind kona segir til um liti
hluta með þvf einu að þreifa á
þeím, og þá sjáum við einnig
hvernig útgeislunin er ljós-
mynduð (t.d. hvernig útgeisl-
um manns eykst eftir því sem
hann drekkur meira vodka!).
Hér virðist því vera á ferð hin
forvitnilegasta mynd. Hún er
úr flokki fræðsluþátta sænska
sjónvarpsins,” Vátenskapens
varld“.
if Laugardagsmynd sjón-
varpsins í þessari viku nefnist
Heilög Jóhanna, er bandarísk,
gerð árið 1948, og þar með ættu
menn að geta vitað, á hverju
þeir eiga von. Heilög Jóhanna
hefur fengið ýmsa útreiðina af
kvikmyndagerðarmönnum um
dagana. Fyrsta myndin um
hana var gerð árið 1916 og
nefndist „Joan the Wornan" og
þar lék Geraldine Farrar dýrl-
inginn. Síðan koma meistara-
verk Carl Dreyers „The
Passion og Joan of Arc“ með
Falconetti í titilhlutverkinu ár-
ið 1928, og „Saint Joan the
Maid“ gerð af Marco do
Gascogne árið 1930. Hollywood
lét ekki sitt eftir liggja og hefur
gert a.m.k. tvær myndir um Jó-
hönnu. Báðar þeirra hafa verið
taldar misheppnaðar og önnur
þeirra verður sýnd á laugardag-
inn.
Henni leikstýrir Victor
Fleming, en titilhlutverkið
leikur Ingrid Bergman. Af
öðrum leikurum má nefna Jose
Ferrer og Ward Bond. Sjón-
varpsmyndabiblían okkar gef-
ur myndinni aðeins tvær og
hálfa stjörnu. Hún þykir of-
hlaðin og þyngslaleg og gera
glansmynd úr sögunni um
frönsku sveitastelpuna, sem
fékk köllun til að leiða her
lands síns gegn her Englend-
inga og var síðan dæmd fyrir
villutrú og brennd á báli.
Því má bæta við til gamans,
að meðal annarra leikkvenna,
sem farið hafa með hlutverk
Jóhönnu, eru Jean Seberg í
Hollywood-útgáfu Otto Prem-
ingers „Saint Joan“, Hedy
Lamarr í „The Story of Man-
kind“ (1957) ’ og Florence
Carrez í mynd Robert Bresson
„The Trial of Joan of Arc“, frá
árinu 1962.
Fyrir þá, sem hafa gaman af
svokölluðum „stórmyndum”,
kann þó „Heilög Jóhanna" að
vera þolanleg afþreying.
Sjónvarps- og útvarpsdag-
skráin er á bls. 27.
20.30 Bandaríkin
Breskur fræðslumyndaflokk-
ur um sögu Bandarikja N-
Ameríku.
11. þáttur. Skin og skúrir.
Þýðandi og þulur Óskar Ingi-
marsson.
21.25 Dæmalausdári
Breskt sjónvarpsleikrit eftir
Tom Clarke.
Þýðandi Kristmann Eiðsson.
Leikurinn gerist i Bretlandi,
þegar liður að lokum fyrri
heimsstyrjaldarinnar.
Aðalpersónan er liðsforingi,
sem barist hefur á vígvöllum
Evrópu. Hann særist alvar-
lega og er fluttur á sjúkrahús
heima i Bretlandi. Meðan
hann bíður eftir að ná fullum
bata, tekur hann að ihuga
orsakir og tilgang styrjaldar-
innar og kemst að þeirri at-
hyglisverðu niðurstöðu, að
hún sé aðeins háð til að full-
nægja hégómagirnd og valda-
fikn stjórnmálamanna. I sam-
ræmi við þessa skoðun sína
ákveður hann að neita að
snúa aftur til vígvallanna, eh
tekur þess i stað upp harða
baráttu gegn stríðsrekstri.
22.30 Dagskrárlok
ÞRIÐJUDKGUR
11. júni 1974
20.00 Fréttir
20.25 Veður og auglýsingar
20.30 Bændurnir
Pólsk framhaldsmynd, byggð
á samnefndri skáldsögu eftir
Nóbelsskáldið Wladislaw S.
Reymont.
2. þáttur.
Þrándur Thoroddsen.
21.25 Heimshorn
Fréttaskýringaþáttur um
innlend málefni.
Umsjónarmaður Jón Hákon
Magnússon.
22.00 íþróttir
Umsjónarmaður Ómar Ragn-
arsson.
Dagskrárlok
Rolv Wesenlund f hlutverki Fleksnes f nýja norska gaman-
myndaflokknum. Miðvikudagur kl. 20.30.