Morgunblaðið - 07.06.1974, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. JUNt 1974
11
Setið við veizluborð í pólska framhaidsmyndafiokknum,
Bændurnir. Þriðjudagur kl. 20.30.
Þessi áferðarfallegi kvenmaður er heimasætan f þeim ágæta
myndaflokki LÆKNIR A LAUSUM KILI.
Arthur Lowe, Barry Evans og George Layton ásamt fórnarlambi f
Læknir á lausum kili. Laugardagur kl. 20.25.
í HVAÐ ER ÁÐ HEYRA?
DAGSKRÁ útvarpsins næstu
viku mótast fyrst og fremst af
tvennum stórviðburðum, —
annar er enn yfirvofandi, en
hinn hefur þegar skollið á.
Þetta eru annars vegar
alþingiskosningarnar og hins
vegar listahátið, sem væntan-
lega verður sett á morgun.
A SUNNUDAGINN er hins
vegar sjómannadagurinn og
verður að sjálfsögðu sitthvað
gert í útvarpinu í tilefni þess
dags. Síðdegis, eða kl. 14.00,
hefst beint útvarp frá hátíða-
höldunum, sem fram fara í
Reykjavík, og verða þar ef að
lfkum lætur á ferðinni hin
hefðbundnu ræðuhöld, lof-
söngvar og halleljújá um sjó-
mannastéttina. Er hún að sjáif-
sögðu vel að því komin.
En um kvöldið er hins vegar
brugðið á léttara hjal. Kl. 19.55
er sem sagt Svavar Gests
kominn á stjá, og er dagskrá
þessi sett saman að ósk sjó-
mannadagsráðs. „Þetta saman-
stendur fyrst og fremst af
hijómplötum," sagði Svavar í
stuttu spjalli. „Ég ætla að leika
sjómannalög — eingöngu eftir
íslenzka höfunda — og kem til
með að rabba svolítið um þessa
sérstöku tegund hljómlistar,
auk þess sem ég tek jafnvel
viðtöl við okkar kunnustu sjó-
mannalagahöfunda t.d. Svavar
Benediktsson og fleiri. Síðan
blanda ég inn i þetta skrýtlum
úr gömlum sjómannablöðum,
bæði sjómannadagsblöðum og
Sjómannablaðinu Vikingi, en
þar er mjög mikið af ákaflega
góðum skrýtlum. Guðmundur
Jensson ritstjóri hefur einmitt
lagt sig fram um að safna góð-
um gamansögum." Og þeir, sem
gluggað hafa í þáttinn „Frí-
vaktina" í Sjómannablaðinu
Vikingi, vita, hvað Svavar á við.
Dagskráin á sjómannadaginn
ætti því að geta orðið hin
áheyrilegasta.
A SVlANUDAGSKVÖLD kl.
19.40 er á dagskrá sá gamal-
gróni — að maður segi nú ekki
mosavaxni — þáttur UM DAG-
INN OG VEGINN. Gera verður
ráð fyrir að að þessu sinni blási
svolítið annars konar og sterk-
ari gustur um þennan þátt en
venjulega. Það er nefnilega
Sigurður Guðjónsson rit-
höfundur, sem ræðir um „dag
og veg".
Sigurður gaf eins og flestum
er kunnugt út nú fyrir jólin
sína fyrstu bók, „Truntusól" og
vakti hún ekki litla athygli#„Eg
er búinn að vera að koma þessu
saman alveg óskaplega lengi,"
sagði Sigurður, þegar við rædd-
um við hann, „eiginlega alveg
frá áramótum. Það má segja, að
þetta sé heildaryfirlit yfir það,
sem ég hef heyrt og séð hér i
Reykjavik i vetur, hræringar,
sem ég hef orðið var við — ekki
raunar aðeins hér, heldur líka
erlendis. Þar spilar inn i það
Sigurður — efnishyggjuþjöð-
félagið undir smásjá.
tómarúm, sem í þessu vélræna
þjóðfélagi hefur skapazt, og ég
dreg fram i dagsljósíð atriði,
sem af því leiða, eins og eitur-
lyfjanotkun, drykkjuskap og
fleira. Það er tvennt, sem þetta
tómarúm hefur í för með sér,
GLEFS
* SUMARDAGSKRAlN
dettur nú smátt og smátt inní
vetrardagskrána. Þannig er
Páll Heiðar aftur kominn á
kreik á laugardagssíðdögum
með þáttinn VIKAN SEM
VAR. 1 vetur var þessi góði
hlustunartimi meira og minna
ónýttur með alls k.vns efni fvrir
sérhópa, — sjúklinga, sport-
idjóta, börn, íslenzkumenn, og
poppara. En með „Vikunni sem
var" er aftur kominn þáttur
f.vrir alla á tíma fyrir alla, —
eða því sem næst. Páll Heiðar
virðist eftir f.vrsta þættinum að
dæma ætla að hafa þetta með
svipuðu sniði og í fvrra. Það
sem mestu máli skiptir varð-
andi þennan þátt, er að í
honum eru dægurmál tekin
öðrum og ferskari tökum en í
fréttamiðlum almennt. Páll er
afar naskur við að horfa svo-
lftið niður á viðfansefni sín,
hefja sig upp yfir allt mas og
pólitískt þras í kringum þau,
setja þau oft í háöulegt kastljós
þ.e. annaðhvort sendir það
manneskjur niður eða upp." Og
þótt Sigurður hafi skýrt þetta
nánar í spjallinu, þá er bezt að
leyfa mönnum að kynna sér
þær skýringar nánar á mánu-
daginn. Það er Þorleifur
Hauksson, sem flytur erindi
Sigurðar. „Eg flyt þetta ekki
sjálfur vegna þess," sagði Sig-
urður Guðjónsson aðspurður
,að ég er með skarð í munn-
inum um þessar mundir. Það er
ein tönn, sem er farin veg allrar
veraldar, og því heyrast svona
heldur óskemmtileg hljöð
þegar ég tala."
FRAMBOÐSKYNNING verður
í útvarpinu á mánudags-,
þriðjudags- og miðvikudags-
kvöld og í sjónvarpinu á mið-
vikudags- og föstudagskvöld.
Henni hafa þegar verið gerð
góð skil hér í blaðinu og verður
ekki farið út i fyrirkomulag
hennar. Hins vegar skal í lokin
vakin athygli á því, að fimin
daga næstu viku verður út-
varpað beint frá ýmsum liðum
listahátíðar. Hefst útvarpið kl.
21.00 alla dagana, en atriðín
eru þessi: Sunnudagur, hljóm-
leikar Daniel Barenboim;
mánudagur og þriðjudagur.
hljómleikar Sinfóníuhljóm-
sveitar tslands; fimmtudagur.
jasshljómleikar með Cleo
Laine, John Dankworth o.fl.;
laugardagur, hljómleikar
Martti Talvela.
og þegar bezt lætur jafnvel
komast til botns í þeim. Þáttur-
inn á laugardaginn var lofaði
góðu, — lifandi og pínulítið
„sensasjónelgur". Bezt
heppnuðu viðtöl við vegfar-
endur og úttektin á KGB-
málinu með óskalaginu „From
Russia with Love".
Og annar prýðilegur
útvarpsmaður. Jökull Ja-
kobsson, er kominn með
„óábvrgan fréttaskýringaþátt".
EFTIR FRÉTTIR á sunnu-
dögum. Jökull hefur ekki
i?svipaðan húmor og Páll
Heiðar, og fvrsti þátturinn var
heldur notalegt spjall, bæri-
lega hittið á stundum (sbr. frá-
bæra athugasemd um kosninga-
baráttuna núna: „Framboð á að
hyggjast á eftirspurn").
Kannski hefði mátt setja þetta
fvið hressilegar fram, skreyta
meir með innskotsviðtölum,
o.s.frv., en það mun standa til
bóta, og verulegt tilhlökkunar-
efni er að eiga von á Jiikli eftir
fréttir í sumar.
— A. Þ.
I GLUGG
ÞÓTT seint sé vil ég í upphafi
þessa gluggs þakka sjónvarpinu
fyrir sænska myndaflokkinn um
„Ferðaleikhúsið". Þegar maður
var einu sinni kominn inn á þessar
kostulegu manngerðir þá vildi
maður ekki fyrir nokkurn mun láta
þær framhjá sér fara. Þrátt fyrir
sína grófu skopgervinga tókst
þessum þætti að gera líf þessa
fólks manni viðkomandi. Það lá
við að efnistökin minntu mann á
stundum á Dickens, og mega
Svlar vel við það una. Ekki sízt var
fyrir að þakka samstilltum leik, og
hinn útsmogni Georg Rydeberg
fór á kostum I hlutverki Sjövalls
leikhússtjóra. I einu orði sagt,
(tveimur): pottþétt framleiðsla.
Ég sá mér þann kost vænstan
að byrja á þessum þætti. þótt
talsvert sé liðið frá sýningu hans,
einfaldlega til þess að þurfa nú
ekki enn einu sinni að byrja eins á
skrifum þessum, þ.e. svona: Lltil
hefur reisnin verið yfir dagskrá
Ríkisútvarpsins sjónvarps að
undanförnu . . .
Ekki svo að skilja, að öðru
hverju hafi ekki einhverjir smá-
bitar fengið að fljóta með I nagla-
súpunni. En ! heildina er búið að
nota sama gamla naglann of oft.
Það vantar öll nýstárleg tiiþrif. (Ég
undanskil kosningasjónvarpið, en
þv! er nú þegar búið að gera góð
skil ! glugginu).
Innlent efni er nú ! lágmarki, og
virðist aðeins verið að treina
timann fram að sumarfri'um. Föstu
þættirnir, eins og „Ugla sat á
kvisti", eru flestir hættir. „Lands-
hornið" er klofnað eins og hver
annar stjótnmálaflokkur og um-
sjónarmennirnir komnir í framboð
fyrir hin og þessi brotabrot út um
hvipp og hvapp. Hins vegar er
„Heimshorn" enn við lýði. Ég
held, að þessir fréttaskýringa-
þættir hafi báðir gefizt mjög vel
þegar liða tók á veturinn, og
greinilegt er, að það er rétt stefna
að hafa innlendar og erlendar
fréttaskýringar i aðgreindum
þáttum. Sennilega voru „Hornin"
þrátt fyrir allt beztu þættir slikrar
tegundar !. sjónvarpinu hingað til.
Um annað innlent efni undan-
farnar vlkur er bezt að hafa sem
fæst orð, — sérstaklega "65.
grein lögreglusamþykktarinnar".
Sé ástæða til að banna hunda, þá
er li'ka ástæða til að banna svona
leikrit.
Hins vegar eru i gangi nokkrir
erlendir þættir, sem eru þokka-
legasta afþreying. „Softly, softly"
eða „Kapp með forsjá" er nokkuð
óvenjulegur sakamálaþáttur, sér-
staklega vegna þess að hann er
svo venjulegur. Þarna er fátt um
súperkarla og glansmyndahetjur,
heldur eru fle.stir lögreglumenn-
irnir ósköp hversdagslegt fólk, —
vambmiklir, þunnhærðir, stress-
aðir o.s.frv. Og glæpirnir, sem þeir
glíma við, eru líka flestir heldur
hversdagslegir. Þar af leiðandi
virðist þetta allt heldur ekta, og
fyrir sumra smekk ekki nógu
spennandi. En i þessum þáttum er
reynt að rekja rætur glæpa !
mannlegu samfélagi, reynt að
varpa Ijósi á orsakir þess, að dags-
farslega prútt fólk leiðist út !
afbrot, og án þess að halda þv!
fram, að þetta heppnist alltaf i
„Kapp með forsjá", þá finnst mér
að hér sé um að ræða talsverða
viðleitni.
Og „Læknir á lausum kili" er
ánægjulegt framhald af „Lif og
fjör i læknadeild", sem fyrr i vetur
náði feikilegum vinsældum.
Hvítasunnudagskráin i sjón-
varpinu var afskaplega daufleg.
þótt tveir liðir hafi komið á óvart.
Annars vegar var Ijóðaflutningur
Geirlaugar Þorvaldsdóttur og
Jóninu H. Jónsdóttur á hvita-
sunnudag, sem var smekklega
unnið efni. Hins vegar var brezka
sjónvarpsleikritið „Sara" á annan
í hvitasunnu. Það hefði verið
auðvelt að gera væmnisvellu úr
þessu efni, en um þetta var farið
nærf ærnislegum höndum, sem
leikurum, leikstjóra og höfundi
tókst með kimni og fagmennsku
að gera að góðri skemmtan.
— Á.Þ.