Morgunblaðið - 07.06.1974, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. JUNÍ 1974
17
Eldur í fangelsi á Ítalíu
FANGAR gerdu uppreisn í
fangelsi f Genúa á ítalíu fyrr í
vikunni og einn þeirra kveikti f
fangelsinu. Hér sést mann-
fjöldi horfa á baráttu slökkvi-
lids við eldinn. Uppreisnin
hófst, þegar leit var gerð f klef-
um fanganna að vopnum, sem
þar k.vnni að hafa verið komið
f.vrir til undirbúnings upp-
reisn. Stjórnvöld segjast vita
um áform, sem miði að þvf að
valda öngþveiti f fangelsismál-
um Itala.
Atkvæðagreiðsla um
samdrátt heria USA
Washington, 6. júní, AP.
STJÓRN Nixons forseta gerði í
dag lokatilraun til þess að fá
öldungadeildina ofan af þvf að
samþvkkja fækkun f herliði
Bandarfkjanna erlendis.
Henry A. Kissinger utanríkis-
ráðherra, Gerald R. Ford varafor-
seti og- James R. Schlesinger
landvarnaráðherra notuðu allir
tækifærið í dag til þess að mæla
gegn slfkri fækkun.
Atkvæðagreiðsla fer fram i
öldungadeildinni á morgun um
tillögu Mike Mansfields foringja
demókrata þess efnis, að fækkað
verði um 125.000 hermenn og
flugliða Bandarikjanna erlendis á
18. mánuðum.
Alan Cranston demókrati frá
Kaliforníu hyggst leggja til, að
Fundu
186
fækkað verði um 100.000 menn ef SÍÐUSTU FRÉTTIR
tillaga Mansfields nær ekki fram
aðganga.
Kissinger segir í bréfi í dag tii
John Stennis formanns hermála-
nefndar öldungadeildarinnar, að
meiri háttar fækkun í herliði geti
grafið undan samningum við
Rússa um gagnkvæma fækkun í
Evrópu og stefnt í hættu tilraun-
um til þess að tryggja varanlegan
frið í Asíu.
Kissinger benti á, að Bandarfk-
in hefðu þegar fækkað í herliðinu
í Evrópu úr 400.000 mönnum í
300.000 á rúmum áratug. A sama
tíma hefði verið fjölgað í sovézka
herliðinu úr 475.000 mönnum í
575.000.
Hann sagði, að einhliða fækkun
Bandarikjanna yrði til þess, að
Rússar hefðu þeim mun minni
ástæðu til þess að fallast á gagn-
kvæman og jafnan samdrátt herja
NATO og Varsjárbandalagsins.
Tillögur Mansfields og
Cranstons eru til breytingar á
hermálafrumvarpinu, sem hljóð-
ar upp á 21.8 milljarð dollara.
Samkvæint því verður hámarks-
fjöldi í heraflanum 2.103.100
menn 1. júlí 1975 eða 3% minni
en nú.
Nixon forseti vann f kvöld
mikinn sigur, er Öldungadeild-
in felldi tvær tillögur frá Mans-
field um fækkun f herjum f
Evrópu með 56 atkvæðum gegn
34.
• •
Bobbys áættir
New York, 6. júní, AP
LÖGFRÆÐINGUR Bobb.v Fisch-
ers, Paul Marshall, segir, að það
sé greinilegt, að heimsmeistarinn
hafi engan áhuga á skaðabótamál-
inu, sem Chester Fox höfðaði
gegn honum, og hefur þvf farið
fram á að verða leystur undan þvf
að fl.vtja málið.
Marshall segir, að Fischer hafi
verið ósamvinnuþýður og ábyrgð-
arlaus, erfitt hafi reynzt að hafa
samband við hann og hann hafi
sýnt svo mikið áhugaleysi, að
ómögulegt sé að flytja málið fyrir
hann.
Kox höfðaði málið fyrir rikis-
hæstarétti á Manhattan í október
1972 og hann krefst 3.2 milljón
dollara í skaðabætur, þar sem
Fischer hafi brotið samning, er
hafi heimilað fyrirtæki hans að
taka kvikmyndir af heimsmeist
Abrams
skorinn upp
Washington, 6. júní, AP.
CREIGHTON W. Abrams hers-
höfðingi, forseti herráðs banda-
ríska landhersins. verður skorinn
upp við lungnakrabba á morgun
að því er landherinn tilkynnti í
dag.
Abrams hefur legið f Walter
Reed-sjúkrahúsinu síðan 23. maí.
Fyrst var sagt, að hann þjáðist af
„vægri iungnabólgu".
Nú er sagt, að komið hafi i ljós,
að hann þjáist af illkynjuðum
krabba í vinstra lunga.
araeinvíginu í Laugardalshöllinni
í Reykjavík 1972.
Flugvélar-
ræningjar
dæmdir
Haarlem, Hollandi.
DÓMSTÓLL í Haarlem
dæmdi í dag tvo Palest-
ínu-Araba í 5 ára fang-
elsi fvrir flugvélarrán,
ólöglegan vopnaburö og
íkveikju.
Arabarnir tveir rændu
brezkri farþegaþotu af
gerdinni VC-10 8. marz
sl., er hún var á ieiðinni
frá Bombav á Indlandi
til London. 102 farþegar
og flugliöar voru meö
þotunni og siuppu þeir
ailir ómeiddir, en Ar-
abarnir gerevóilögóu
flugvélina, er þeir
sprengdu handsprengj-
ur í flugstjórnarklefan-
um.
Arabarnir, Adnan
Nuri 23 ára og Hussin
Tamimah 22 ára, viöur-
kenndu sekt sína, en sá
síóarnefndi neitaói aó
hafa átt þátt í íkveikj-
unni.
„Strætó-geimferðir”
undirbúnar af kappi
Washington, 6. júní, AP.
BANDARÍKIN ráðgera aðeins
eina mannaða geimferð á næstu
fimm árum, en frá og með 1979
verða farnar fastar áætlunarferð-
ir út f geiminn og 725 ferðir verða
áformaðar á 12 ára tfma.
Þetta þýðir, að meira en ein
ferð verður farin í hverri viku og
f hverri ferð verða fjórir til sjö
þátttakendur. Þar á meðai verða
konur og vfsindamenn frá mörg-
um löndum. Aðeins þeir. sem
eiga erindi út í geiminn, fá að
fara svo að ekki verður hægt að
panta sér far til þess eins að fara f
skoðunarferð þangað.
Kostnaður í hverri ferð verður
um 1.5 milljón dollara á mann ef
sjö eru með.
Dr. Myron S. Maliin forstöðu-
maður áætlunarinnar um þessar
„strætóferðir út í geiminn'' segir,
aö kostnaðurinn við smíði tveggja
„strætógeimfara" fyrir 1979 verði
5.15 milljarðar dollara — sem er
einn fimmti af því, sem Apollo-
áætlunin kostaði. Geimskot verða
svo tíð, að hann telur. að alls þurfi
sjö geimför til áætlunarinnar i
næsta áratug. Þannig verða fimir
geimför til viðbótar keypt hjá
verktakaf.vrirtækinu Rockwell
International fvrir um 25C
milljónir dollara hvert.
Farinu verður skotið eins og
eldflaug, það flýgur eins og geim-
skip og lendir á ste.vptri flugbraut
eins og flugvél. Það verður á
stærð við DC9, sem getur flut
90—110 farþega, og á að geta far-
Framhald á bls. 20.
hasspoka
Washington, 6. júni, AP.
BANDARÍSKA tollgæzlan
hefur gert upptæk 12.200
pund af hassi hjá Rio
Grande-fljóti í Suður-
Texas, meira magn en
nokkru sinni hefur verið
gert upptækt á landamær-
um Mexíkó.
Yfirmaður tollgæzlunn-
ar, Vernon D. Acres, kallar
þetta eitt mesta hassmál í
sögu tollgæzlunnar.
Hassið er metið á 3.38
milljón dollara. Það fannst
í 186 pokum, helmingurinn
í vörubifreið og helmingur-
inn á bökkum Rio Grande.
36 ára gamall maður frá
Edinburg í Texas, Leon
Romero Moreno, hefur
verið handtekinn. Hann
verður ekki látinn laus
nema gegn 100.000 dollara
tryggingu.
Annað bindi „Gulag”:
Solzhenitsyn kennir Lenín
um þrælkunarvinnubúðimar
París, 6. júni, AP.
ALEXANDKR Solzhenitsyn
segir 1 öðru bindi „Eyjaklasans
Gulags", að þrælkunarvinnu-
búðir hafi verið hluti af sov-
ézka stjórnkerfinu frá upphafi,
en ekki sfðari tfma uppfinning
Jósefs Stalfns.
Þar með skellir hann skuld-
inni á sjálfan Lenfn, hinn
helga föður Sovétrfkjanna.
Opinber skýring Kremlherr-
anna er, að búðirnar hafi verið
mistök, sem hafi stafað frá
„persónudýrkun Jósefs Stal-
ins“. Lenin hefur verið frið-
helgur og ásökum Alexanders
Solzhenitsyn telst því guðlast.
Annað bindi „Gulags" er 650
sfður og kemur á markaðinn f
næstu viku. Þar heldur Solzh-
enitsyn áfram ítarlegum heiin-
ildarfrásögnum sínum um hið
geysistóra þrælkunarvinnu-
búðakerfi, þar sem hann dvald-
ist sjálfur í átta ár.
Solzhenitsyn staðhæfir, að 66
milljónir manna hafi dvalizt í
vinnubúðunum á árunum 1918
til 1959. Hann segir, að fyrstu
búðirnar hafi verið gamalt
fangelsi frá keisaratímanum á
eynni Solovki á Hvítahafi norð-
an heimskautsbaugsins. Hann
segir, að ótaldar þúsundir hafi
dáið í fyrstu vinnubúðunum,
sem hafi verið miðaðar við það
að halda föngunum lifandi —
og láta þá vinna — i þrjá mán-
uði í mesta lagi.
Fangabúðakerfið var
„krabbamein, sem byrjaði i Sol-
ovki og breiddist út um allt
landið", segir Solzhenitsyn.
Kerfið byrjaði á valdaárum
Lenins, segir hann, en það var
fullkomnað undir stjórn
Naphtali Frenkels hershöfð-
ingja i leynilögreglunni NKVD
og eins af gæðingum Stal-
íns. Frankel beið sjálfur bana í
búðunum, sem hann átti þátt i
aó koma á fót, likt og margir
aðrir gæðingar Stalíns.
Solzhenitsyn segir, að á dög-
um Leníns hafi búðirnar verið
fylltar pólitfskum föngum, sem
voru taldir fjandsamlegir sovét-
kerfinu, en undir leiðsögn
Frenkels breytti Stalin þeim f
tæki til þess að hyjda hrynjandi
efnahagskerfi Sovétrikjanna
gangandi með eins litilli aðstoð
erlendis frá og hægt var.
Vinnuaflið, sem Stalin fékk i
vinnubúðunum. hafði ótvíræða
kosti að sögn Solzhenitsvns:.
það gerði engar kröfur, það
var hægt að flytja það hvert
sem var og hvenær sem var. það
var laust við öll fjölsk.vldubönd
og ekki þurfti að hugsa um að
sjá því fyrir húsnæði, skólum
eða sjúkrahúsum og stundum
þurfti ekki einu sinni að sjá þvi
fyrir eldhúsum eða hreinlætis-
aðstöðu. Ríkið gat aðeins fengið
slikt vinnuafl með þvi að
gleypa syni sína."
Ritið verður i þremur bind-
um. Það var allt samið fvrir
1968.