Morgunblaðið - 07.06.1974, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 07.06.1974, Qupperneq 30
30 MOKGUNBLAÐIÐ. KOSTUDAUUK 7. JUNI 1974 Sjö sögur af Villa Rudolf O. Wiemer „Skelfing hlýtur hann að vera heimskur þesi Jón bóndi.“ „Hvers vegna?“ „Úr því hann gefur þér pylsu fyrir að kveikja í hlöðunni hans.“ Villa iangar mest til að reka drengnum löðrung af því að hann er búinn að komast að hinu sanna. „Láttu mig í friði. Ég hlusta ekki á þig, frekjudall- ur.“ „Góða nótt, ágæti ræningi," segir Hans. „Þegar ég hitti börnin hans Jóns bónda næst, þá ætla ég að spyrja þau, hvað gerðist í raun og veru.“ Villi svarar ekki. Hann dustar af vinstri stígvéla- tánni, lítur fýldur á pylsuna, lagfærir hattinn á höfði sér og hverfur inn í myndabókina. Fjórða sagan. „í dag ætla ég að stela fullum poka af peningum frá nirflinum honum Kristófer,“ segir Villi, þegar líður að kvöldi næsta dags. „Fullum poka?“ Villi slær sér á brjóst: „Ræningi stelur alltaf eins miklu og hægt er.“ „Hernig ætlarðu að komast inn til hans?“ „Inn um glugga.“ „En ef rimlar eru fyrir gluggunum?“ „Þá renni ég mér niður skorsteininn. Hafðu til- búna stóra kistu. Undir peningana.“ „Nú ertu víst nokkuð orðstór,“'segir Hans „Það eru ræningjar líka alltaf,“ segir Villi og strýkur sér um skeggið. Kristófer nirfill býr á bak við þykkan múrvegg, sem ræningjum veitist þó auðvelt að klifra yfir. Innan við múrinn tekur við sýki, síðan háar grindur og gaddavír. Og loks húsið sjálft. Villi læðist kring um húsið. Hann tekur varlega í hurðarhúninn. „Allt læst. Ætti ég að klifra upp þakrennuna?“ Hann spýtir í lófana. Þá fær hann bylmingshögg í bakið. „Hver er þar?“ hrópar Villi skelkaður. „Memememe," er jarmað aó baki hans. „Hver ert þú?“ „Geithafurinn hans Kristófers.“ „Sæll vertu,“ segir Villi. „Hvað ert þú aö gera hér? Kristófer er önnum kafinn.“ „Ég líka,“ segir Villi. „Ég ætlaði bara að stela peningapoka frá honum.“ „O, sveiattan,“ segir geithafurinn. „En þú? Hvað ert þú að gera hér um miðja nótt?“ „Ég er að ferðbúast.“ „Ertu á leið til Ameríku?“ „Ég á engan sérstakan ákvörðunarstað. Helzt vildi ég vera kyrr hér.“ „Vill Kristófer ekki lofa þér að vera?“ Nú eitthvað hef- ur nú ruglazt hér. — Já, hver á að skipta við hvern? — Skoðaðu teikn- inguna vel og svo leysirðu vandann og hver fær það, sem honum ber. (^JVonni ogcTVIanni Jón Sveinsson Yið lirukkum frá ósjálfrátt. En þá datt mér ráð í hug. Eg tók upp sjálfskeið- inginn minn, opnaði hann og sagði við Manna: „Nú datt mér nokkuð í hug. Þú hefur séð það. að þegar naut eru mannýg á básnum, þá er settur járn- hringur í miðsnesið á þeim, og þá verða þau dauð- meinlaus. Ættum við ekki að reyna það?“ „En við liöfum engan járnhring, Nonni“. „Það gerir ekkert til. Eg er með seglgarn. Við skul- um setja það í hann“. „En hvernig ætlarðu að fara að því, Nonni?“ „Ég ætla að stinga gat á miðsnesið á nautinu með hnífnum mínum, og svo þræði ég seglgarninu í gegn“. Manni hugsaði sig um. Síðan leit hann til mín og sagði glaðlega: „Jahá, Nonni. Það liugsa ég, að geti orðið gott“. Ég tók nú seglgarnið upp úr vasa mínum. Síðan lagðist ég endilangur á steininn og sagði Manna að halda í fæturna á mér, svo að ég dvtti ekki niður. Freysteinn Gunnarsson þýddi Svona lá ég grafkyrr, þangað til nautið teygði haus- inn upp á steininn. Hnífinn hafði ég opinn í liægri hendinni, en seglgarnið í hinni. Og ég þurfti ekki lengi að bíða. Boli byrjaði fljótt aftur að sleikja steininn og tevgði Iiausinn alltaf lengra og lengra. „Haltu nú vel í fæturna á mér, Manni“, kallaði Og Manni sveikst ekki um það. Nú greip ég skyndilega með Þeimur fingrum í nas- irnar á nautinu, alveg eins og ég hafði séð vinnumenn- ina gera, og í sömu svipan stakk ég hárbeittum hnífn um inn í aðra nösina og gegnum miðsnesið, svo að oddurinn kom út í hinni nösinni. En við það tók nautið svo snöggt viðbragð, að skurð- urinn varð miklu stærri en ég ætlaði, og hnífurinn stakkst í einn fingurinn á vinstri hendinni á mér, en ekki var það neitt til muna. fneÓtnorgunkofMnu — Þetta er sjálfsagt snidug uppfinning hjá þér, en ég vona nú samt, art við mætum ekki neinum, sem við þekkjum... Og með þetta apparat hér ertu öruggur um að fá alls staðar stæði. . . — Ég var fluttur vfir í górillu- deildina. .. — Halló, tengdamamma. . . mig langaði bara til að heyra f þér hljóðið. . . — Hvernig stendur á því að maöurinn þinn þarf aldrei ad vinna eftirvinnu?

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.