Morgunblaðið - 01.09.1974, Page 4

Morgunblaðið - 01.09.1974, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 31. AGUST 1974 'Fa /7 «/ /. ! i v AIAH" LOFTLEIÐIR BILALEIGA f CAR RENTAL TT 21190 21188 LOFTLEIÐIR Æbílaleigan VfelEYSIR CAR RENTAL 24460 28810 PIOMŒEJ1 ÚTVARP OG STEREO KASETTUTÆKI Bílaleiga CAB RENTAL Sendum 1^*41660-42902 MARGFALDAR IWIMÍÍI |Hðrötmí)íatítt> |Hí>r$tmí>Iðt)tt> MARGFALDAR Leiðrétting 1 kveðjuorðum til Þorsteins Ingólfssonar fþróttakennara, sem birtust hér í blaðinu á föstudag- inn, urðu leið mistök, sem blaðið harmar. lupphafikveðjuorða, sem Þorsteinn Hjálmarsson skrifaði, féllu niður þessar ljóðlfnur Ein- ars Benediktssonar, I upphafi kveðjuorðanna: „Þegar ljósið deyr, er allt dapurt og svart.“ Síðan heldur greinin áfram: Þessi orð komu mér til hugar o.s.frv. Leyndardómur lífsins — trúin á sigur hins góða VIÐ kynnumst fólki, sem allt verður að angri, — alltaf er óánægt með allt og alla. Um- hverfis það er alltaf kalt og dimmt. Við skulum ekki á það minnast. En svo eru aðrir, sem gera gott úr öllu, sjá alltaf sólskinið, finna alltaf björtustu blómin, eiga alltaf afsökun, greina alltaf vonir gegnum alla skugga örvænis og vonbrigða. Umhverfiþess er alltaf bjart og hlýtt. Það býr yfir leyndar- dómi lffsins. En hver er þessi leyndar- dómur? Það er trúin — guðs- trúin — traustið á sigur hins góða. Það er lífsviðhorf þess, sem getur með undarlegum krafti alltaf verið í sambandi við hann, sem er nefndur „Faðir vor“ f bæn Krists. Sumum finnst allt verða einskisvirði, ef það glataði þessari sannfæringu um hand- leiðslu ósýnilegrar handar, sem ávallt sé með í öllu á einhvern hátt. Djúp þessarar sannfæringar er f senn ómælanlegt, en um leið svo einfalt og hversdags- legt eins og sólskinið, reyndar alveg eins óendanlega fjarlægt og þó allt f öllu. Það er ekki hægt að lýsa þessum leyndar- dómi með orðum. „Guð í öllu“ hefur það verið nefnt þetta samband manns- sálar við uppsprettu óendan- leikans og eilífðarinnar. Hann er við hið yzta haf, f ljósi og myrkri, lífi og dauða. ÞRIÐJUDAGINN 13. ágúst hélt Alþýðusamband Norðurlanda — Nordens Facklinga Samorgan- isation — NFS —, f fyrsta sinn stjórnarfund sinn hér é landi. NFS var stofnað 1 4 marz 19721 Ósló og 1 5. nóvember sama ár var ASÍ veitt innganga i sambandið. í stjórn þess sitja tveir fulltrúar frá hverju aðildarsambandanna og eru þeir Snorri Jónsson og Óskar Hall- grímsson fulltrúar ASÍ, en til vara Eðvarð Sigurðsson og Karl Steinar Guðnason. Stjórnarfundir eru haldn- ir tvisvar á ári i aðildarlöndunum á vixl. Einnig skulu árlega haldnar tvær verkalýðsráðstefnur um ákveð- in efni og á hvert samband þar rétt á 4 fulltrúum. NFS hefur fast aðsetur i Stokkhólmi og hefur Daninn John Svenningsen veitt skrifstofu þess forstöðu frá stofnun hennar í september 1972, en nú I september tekur Norðmaðurinn Richard Traelnes við þvi starfi. Fyrsti formaður NFS var Thomas Nielsen forseti danska Alþýusam- bandsins og varaforseti Lennart Bodström forseti TCO, Sambands starfsmanna I þjónustugreinum I Svíþjóð. Núverandi formaður er Lennart Bodström og varaformaður Tor Aspengren forseti norska Al- þýðusambandsins. Sumir nefna til skýringar orðið traust. Þetta er tilfinning hafin yfir öll form og helgi- siði, þótt sumum virðist slíkt nauðsynlegt. En helgisiðir, form og athafnir — trúar- brögðin öll, hverju nafni sem þau nefnast, verða þó aldrei annað en umbúðir, klæðnaður um kjarnann — leyndardóm til- finningarinnar, sem hvetur til leitar að Guði — trúartilfinn- ingu mannshjartans. Þessi tilfinning — þessi leyndardómur er frumþáttur flestra, kannski allra listaverka heims f tónum, línum, litum og orðum. En samt kannski fegurst og fullkomnust f lffi og starfi einstaklings eða sam- félags eftir atvikum. Einn smælingi gæti opinberað meira af þessum leyndardómi með lífi sínu og fórnum en fegursta kirkjan eða fullkomnasta sym- fónfan, af þvf að lífið sjálft er meira en það, sem það mótar og skapar, þrátt fyrir allt. Til er orðtak, nokkurs konar áminn- ing, sem alltaf gæti átt við f þessum orðum: „Gerðu þetta allt að ævlntýri.“ Það er einmitt þetta, sem Guðstrúin gerir. Þannig getur hversdagsstrit alþýðumanns eða konu orðið hliðstætt afreki Schweitzers f Afríku, hvort- tveggja unnið f trú — uppfyll- ing vona, óska, strits og fórna, en samt f sólskini þess krafts af hæðum, sem skapar gróandi lff. Samt gerast slík ævintýri fyrst og fremst f leynum, þögn Helztu verkefni NFS. Höfuðverkefni Norræna alþýðu- sambandsins eru þessi: Kerfisbundin miðlun upplýsinga um ástand og horfur á sviði verka- lýðsmála, stjórnmála, efnahagsmála og þjóðfélagsmála á Norðurlöndum og á alþjóðavettvangi. Þannig skal skipzt á upplýsingum um: atvinnu- ástand, kjaramál, kjarasamninga, efnahagsþróun, umhverfisvanda- mál, verkalýðslöggjöf, verkalýðs- fræðslu, atvinnulýðræði og efna- hagslýðræði. Norræn samvinna og starf- semi Norðurlandaráðs, eins og hún snýr við samtökum launþega, svo sem hinn sameiginlegi norræni vinnumarkaður, samræmd trygg- inga- og félagsmálalöggjöf o.s.frv. Að annast samstarf við norrænu starfsgreinasamböndin. Að beita sér fyrir samræmdri af- stöðu norrænnar verkalýðshreyfing- ar I alþjóðlegu samstarfi t.d. gagn- vart eftirtöldum samtökum og stofn- unum: Alþjóðasambandi frjálsra verkalýðssamtaka. Alþýðusambandi Evrópu, Alþjóðavinnumálastofnun- inni, Efnahagsstofnuninni i París og ráðgjafarnefnd verkalýðshreyfi ngar- innar við þá stofnun. og friöi, þótt einhvern tíma og einhvers staðar komi þau f ljós eins og litadýrð vordags eða afrek hetju og dýrlings. Það verða ekki allir Franz frá Assisi, Guðmundur góði eða Albert Schwitzer. En samt geta margir átt hinn sama leyndar- dóm — sömu gæði, sama kraft, aðeins á öðru sviði. Og'bænirþeirra verða óskir — og óskirnar framkvæmd kannski i órafjarlægð — kannski þar sem þá sjálfa grunaði sízt, kannski þar sem enginn veitti þeim athygli eða sambandinu við upphafið, enda ekki til frægðar unnið. Það er uppspretta lffsins, sem ávöxt- inn gefur. Það er Guðs að skapa — þitt að sjá og starfa. Ég þekkti öldung, sem alltaf var ánægður, alltaf glaður, góður og þakklátur. Lff hans virtist samfelldur sólskins- dagur. Samt hafði hann misst alla sfna, systkini, konu, börn. Fjöl- skyldan fórst i slysi f fjarlægu landi. Jarðfall eða skriða greip vagninn, sem þau voru í og flutti allt út í sjó — það var í styrjöld. En samt átti hann alltaf eitt- hvað dýrmætt til að lifa fyrir, fylgdist alls staðar með, fyrst í starfi sem kaupmaður sfðar f einverunni með lestri, sjón- varpi, útvarpi, síma, heimsókn vina. Hann virtist alltaf hafa nóg að hlakka til, nóg að gleðjast yfir. Jafnvel búðarferð varð honum ævintýri. Hann þekkti AlþjóSa- og fjölþjóðafyrirtæki og — hringar. Umhverfisvandamál, Ráðstefnur um einstaka þætti verkalýðsmála. Fastanefndir Á vegum sambandsins starfa nú fimm fastanefndir, sem halda einn til tvo fundi á ári. Þessar nefndir eru: Nefnd til könnunar á starfsemi fjölþjóðafyrirtækja á Norðurlöndum. Nefnd um umhverfisvandamál vinnustaða. Upplýsinga- og fræðslunefnd. Nefnd til stefnumótunar um fjöl- skyldumál Nefnd til stefnumótunar I vinnu- markaðsmálum, einkum með tilliti til hins samnorræna vinnumarkaðar. Upplýsingarit — Facklig Bulletin. Hinar nefndirnar senda frá sér upp- lýsingar og ályktanir hver á sinu sviði eftir því sem tilefni gefast til. Ráðstefnur. Á sl. ári voru haldnar tvær verka- lýðsráðstefnur. Sú fyrri haldin 5. og 6. febrúar I Kaupmannahöfn fjallaði um þau vandamál, sem efst voru á baugi I hverju aðildarsamtakanna, og undirbúning að stofnþingi Evrópu um fyrirtækjalýðræði, mismunandi viðhorf verkalýðssamtakanna til alla eða flesta í nágrenninu, konan í mjólkurbúðinni, vagn- stjórinn í strætisvagninum, af- greiðslufólkið í bókasafninu brosti að spaugsyrðum hans. Það birti upp hvar sem þessi hvíthærði öldungur með gáfu- lega ennið leit inn. Og hver hlutur í fallegu stofunni hans átti sfna sögu — sína aðild, sinn rétt f tilveru þessa góða, þakk- láta manns. Af öllu sem hann var og sagði lýsti ljós leyndar- dómsins mikla: „Ég trúi á sigur hins góða og sfðast fæ ég að sofna brott í höndum hans.“ Það fékk hann. Ég fór langa leið í vor til að sjá leiðið hans f kirkjugarði æskustöðva hans, þar sem hann hafði ákveðið sér legstað við hlið móður sinnar og systur. A leiðinu blöktu nokkrar fjólur f blænum, þær höfðu borizt þangað af ósýnilegri hönd. Ljómandi tákn leyndar- dómsins mikla — trúar á sigur hins góða — sigur Iífsins, sem gerir allt að ævintýri — jafnvel ævikvöld einfarans. þess og hvernig sá mismunur endurspeglaðist I mismunandi lög- gjöf og samningsákvæðum I hverju landi fyrir sig. Þann 7.—8. mai sl. var haldin ráðstefna um atvinnuöryggi i Gautaborg. Næsta ráðstefna verður haldin í Finnlandi í nóvember n.k. um skattamál fyrirtækja á Norður- löndum. Stuðningur vegna gossins f Heimaey. NFS veitti I fyrra styrk að upphæð sænskar kr. 50.000,- eða rúmlega eina milljón isl. króna vegna náttúruhamfaranna I Heimaey og I kjölfar gáfu hin einstöku landssam- bönd álika upphæðir eða meiri, alls rúmar níu milljónir króna er AS( afhenti Viðlagasjóði. Dagskrá stjórnarfundarins. Á dagskrá stjórnarfundarins hér var m.a 1 a) Ársfjórðungsskýrsla um starf- semi samtakanna 1/3—31 / 7. b) Skýrsla af fundi með Norður- landaráði c) Skýrsla um för sendinefndar til Sovétrlkjanna. d) Skýrsla frá nefnd um mál Suður-Afríku. e) Skýrsla frá nefnd um mál Chile. 2 Tillaga um verkáætlun nefndar NFS um vinnumarkaðsmál. 3 Tillaga um dagskrá fyrir ráðstefnu FNS um fjölþjóðafyrirtæki. 4. Tillaga um norræna ráðstefnu um faglega samvinnu starfsfólks flug- félaganna á Norðurlöndum. 5. Norræn samvinna um undirbún- ing Evrópuráðstefnu verkalýðssam- banda. 6. Umræður um samúðaraðgerðir með landbúnaðarverkamönnum I Bandarikjunum. 7 Umræður um fjárhagslegan stuðning við ORIT — svæðissam- band Alþjóðasambands frjálsra verkalýðsfélaga i S-Ameríku. Þátttakendur i stjórnarfundinum komu flestir föstudaginn 9. og notuðu tlmann til að skoða sig um, enda var þetta I fyrsta sinn, með i ferðina og taldi hópurinn alls 32 manns. Hópurinn fór í kynnisferð um Reykjavik og nágrehni, til Gull- foss, Geysis og Þingvalla, en hátind ferðarinnar töldu menn þó ferðina til Vestmannaeyja, þar sem verkalýðs- félögin á staðnum stóðu fyrir höfðinglegum móttökum. AÐ kvöldi þriðjudagsins sat allur hópurinn lokahóf i boði forsætisráð- herra, Ólafs Jóhannessonar, I Ráð- herrabústaðnum. Frá stjórnarfundi Alþýðusambands Norðurlanda. Alþýðusamband Norður- landa hélt stjórnarfund hér

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.