Morgunblaðið - 01.09.1974, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. SEPTEMBER 1974
7
Þa8 er ekki langt síðan Miniinn
varð vinsæll hér á landi, og er þaS
ekki vonum fyrr, þvl að ekki hefur
útlitiS breytzt mikið fremur en hjá
Volkswagen 1300. Á hverju ári
hafa smávægilegar betrumbætur
aukið gildi hans og haldið honum I
tízku. Miniinn er raunar fyrirmynd
allra afturbyggðu smábllanna,
sem litiS hafa dagsins Ijós sfðustu
ár. Þar má nefna Fiat 127,
Renault 5 o.fl. Mini er lltill og
lipur, svo lltill, að sumir eru hálf
smeykir við að setjast inn I hann.
En þegar menn hafa vanizt að sitja
svo lágt, eru fáir bllar, sem jafnast
á við hann I borgarumferðinni.
Hingað hefur aðallega verið flutt-
ur Mini 1000, en nu eru nokkrir
súper Mini komnir á göturnar, og
er það Mini 1275 GT, sem tók við
af hinum frægu Mini Cooper S,
sem raunar voru mikið hraðskreið-
ari.
Vélin er að framan, fjögurra
strokka, liggur þvert og drlfur
framhjólin. Hún er vatnskæld, 60
bhp hestöfl og þjöppunarhlutfallið
er 8,8:1. Hámarkshraðinn er um
140 km/klst og ágætt viðbragð
0—80 km/klst. 9,6 sekúndur.
Bensineyðslan er um 9—10
1/100 km.
Fjöðrunin er sjálfstæð á hverju
hjóli. Demparar eru stifir og er
blllinn nokkuð hastur, en þetta er
Itka sportlegur bill og virkar ekki
eins stífur, þegar hann er á sæmi-
legri ferð eða fleiri eru i honum.
Mini tekur þrjá farþega auk öku-
manns. Þokkalega rúmgott er
framm i fyrir stóra menn, en hnén
verða að vera i meira lagi bogin,
og ekki má vera i of stórum skóm,
ef maður ætlar ekki að stiga á alla
pedalana I einu. Aftur I er einnig
þokkalega rúmgott fyrir tvo, en
fremur lágt til lofts, sem er ekkert
Hinn
mikli
Mini
skrýtið I bíl, sem er aðeins 1,36 m
hárað utanmáli og 3,17 m langur.
Þessi gerð af Mini er 12 cm lengri
en Mini 1000. Þyngdin er 675 kg.
Beggja vegna aftursætisins eru
geymsluhólf fyrir smádót.
Farangursgeymslan er litil og
hefur minnkað nokkuð, þar sem
bensingeymirinn var stækkaður
inn i hólfið. Öryggisbeltin halda
manni þrælföstum við framsætin
og eru einföld i meðförum eins og
flest slik belti nú. Billinn er
smekklegur að innan og vel frá
genginn. Mælabúnaður er góður,
þ. á m. er snúningshraðamælir.
Mini 1275 GT er á 12 tommu
stálfelgum i stað 10 áður, og
hækkar það bilinn nokkuð. Á
bilnum, sem hér var reyndur, er
styrktarpanna undir vélinni að
framan. Panna þessi er aukahlutur
og i þykkasta lagi, en væntanlega
verða fáanlegar þynnri pönnur
innan tiðar. Mini er léttur og mjög
skemmtilegur í akstri og með
þessari stóru vél eru fáir, sem
standast honum snúning i borgar-
umferð. Hann vinnur ágætlega og
liggur frábærlega, sérstaklega I
beygjum, vegna framhjóladrifsins.
Diskabremsur eru að framan, en
skálar að aftan. Girkassinn er góð-
ur og skiptingar liprar, þótt á bíl
þeim, er undirritaður reyndi, væri
fremur stirt að setja i fyrsta gir.
Miniinn er nokkuð hávaðasamur,
ef hratt er ekið.
British Leyland verksmiðjumar
hafa undanfarið lagt mikið i alls
konar rannsóknir tH aukins örygg-
is i bilum sinum i framtiðinni. Mini
er þar á meðal og hér fylgir mynd
af Mini (SRV 4).
Mini 1275 GT er sem sagt litill
og auðveldur i akstri, hraðskreið-
ur, liggur mjög vel, en er nokkuð
hastur.
Verðið er óvisst vegna gjald-
eyrisástandsins að undanförnu.
Umboðið hefur P. Stefánsson hf,
Hverfisgötu 103.
Br. H.
Til leigu á Flötunum gott raðhús með bil- geymslu. Þeir sem áhuga hafa. sendi Mbl. tilboð merkt: „7260'' fyrir 4. sept. Stúlka óskast til heimilisstarfa á islenzkt heimili i Osló í byrjun október. Upplýsingar i sima 13204.
Til sölu Mercedes Benz 37 sæta fólksflutn- ingabifreið. Vél 352. Góður bill i vinnuflokkakeyrslu. Uppl. hjá Mosfellsleið h.f., simi 22300 og 33791. Til sölu Citroen DS 20 árgerð 1969. Rauður og svartur að lit. Upplýsingar i sima 34839.
Vinna Bókabúð óskar eftir duglegri stúlku til afgreiðslustarfa. Tilboð með upplýsingum merkt: „Bækur og ritföng 9508", sendist afgr. Mbl. fyrir 6/9 n.k.. Seldar verða lítið gallaðar vörur af kven- og barnafatnaði, mánudag og þriðju- dag n.k. frá kl. 1 — 5. Skinfaxi h.f., Siðumúla 27.
Rösk stúlka óskast i litla verzlun i miðbænum. Tilboð sendist Morgunblaðinu fyrir 4.9. '74 merkt: „Rösk 155 — 9507". Til sölu Toyota Celica ST árg. '72. Verð 640.000- Simi 86281.
Ungt par óskar eftir 2ja — 3ja herb. ibúð strax i Keflavik eða Njarðvik. Uppl. í sima 91-35346. Vill ekki einhver góð kona helzt í Hvassa- leiti eða nágrenni gæta 1 Vi árs drengs frá 9 — 6. Sími 32863.
Góð sérhæð ásamt stóru risi i tvibýlishúsi i Ytri-Njarðvik er til sölu. Bilskúr. Laus strax. Litið áhvilandi. Garðar Garðarsson, lögmaður, simi 1 733, Keflavik. Keflavík 3ja herb. íbúð til leigu. Upplýsingar í síma 1 586.
Hjólhýsi Tilsölu nýtt hjólhýsi. Vönduð gerð. Sérlega hagstætt verð og góðir greiðsluskilmálar. Tilvalin fjár- festing. Upplýsingar næstu kvöld i sima 41737. Óskum eftir herbergi fyrir pilt utan að landi, sem fer i Vélskólann. Fæði á sama stað. Upplýsingar i sima 41 142.
Til sölu Volvo F.B. 86 árg. 1971 3ja öxla. Foco sturtur. Billinn er í mjög góðu ástandi. Upplýsingasimi 21959 á kvöldin. Hafnarfjörður Ungan mann vantar vel launaða vinnu um óákveðinn tíma, helzt ákvæðisvinna. Er vanur bygginga- vinnu. Uppl. i síma 53703.
Pianókennsla Byrja að kenna 1. september. Age Lorange, Laugarnesvegi 37, simi 3301 6. Af sérstökum ástæðum er til sölu JCB 3D traktorsgrafa. Vélin er árs gömul. Upplýsingar i sima 81 700.
Felgur á Cortinu '73—'74 fyrirliggjandi. Svissnesk gæða- vara. Storð h.f., Ármúla 24, sími 81430. Túnþökur — Tækifæri Get útvegað ódýrar, góðar túnþök- ur næstu daga. Simi: 20856. Bifvélavirki með
Brotamálmur Kaupi allan brotamálm langhæsta verði. Staðgreiðsla. NÓATÚN 27, sími 25891. meirapróf og ökukennararéttindi, vanur boddýviðgerðum óskar eftir starfi úti á landi. Húsnæði skilyrði. Öll vinna kæmi til greina. Tilboð merkt Fjölskyldumaður 8505 sendist Mbl. sem fyrst.
Bella
auglýsir
Skólafötin á börnin.
Peysur fal/egar, ódýrar.
Buxur, jakkar, úlpur frá 2ja — 6 ára.
Regnfatnaður á börnin.
Fallegar sængurgjafir.
Al/ur ungbarnafatnaður.
Prjónagarn.
Póstsendum
Bella,
Laugaveg 99 sími 26015