Morgunblaðið - 06.09.1974, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1974
3
Stærsta haustsýning FIM
á Kjarvalsstöðum
• HAUSTSVNING Félags
fslenzkra myndlistarmanna f ár
verður opnuð á laugardag á
Kjarvalsstöðum og stendur f
hálfan mánuð. Þetta er stærsta
haustsýning FtM, sem haldin
hefur verið, og er nú f fyrsta
sinn sýnt f báðum sölum
Kjarvalsstaða, svo og á göng-
um. A blaðamannafundi hjá
sýningarnefnd kom m.a. fram,
að henni bárust 366 verk, en
valin voru 197 verk til sýn-
ingar, eftir 60 listamenn, — 39
félagsmenn og 21 utanfélags-
mann. Af þeim sýna 11 mynd-
listarmenn nú f fyrsta skipti á
haustsýningu. A sýningunni
eru málverk, höggmyndir,
teikningar, graffk, myndvefn-
aður, og f fyrsta sinn eru nú
sýnd verk fslenzkra leikmynda-
teiknara. Meirihluti verkanna
er til sölu.
0 Þá hefur sýningarnefnd
tekið upp þann hátt á ný að
bjðða gesti þátttöku f haustsýn-
ingunni. Er það að þessu sinni
Louisa Matthfasdðttir, sem
Iengi hefur verið búsett f
Bandarfkjunum og er þar vel-
þekkt. Einar Þorláksson, for-
maður sýningarnefndar, sagði,
að það væri ekki vansalaust hve
lengi hefði dregizt að gera
verkum Louisu verðug skil hér
heima, svo mðtuð sem hún væri
af uppruna sfnum. A haust-
sýningunni er 17 myndir eftir
Louisu Matthfasdðttur.
Af öðrum listamönnum, sem
verk eiga á sýningunni, má
nefna Jóhannes Jóhannesson,
Kjartan Guðjónsson, Sigurjón
Ölafsson, Eirík Smith, Hring
Jóhannesson, Hörð Ágústsson,
Einar Þorláksson, Jóhann Ey-
fells, Valtý Pétursson og Ragn-
heiði Jónsdóttur Ream. Þessir
taka f fyrsta sinn þátt i haust-
sýningu FlM: Eyjólfur Einars-
son, Kristjana Arndal, Ása
Olafsdóttir, Sigrún Sverrisdótt-
ir, Bjarni Ragnar Haraldsson,
Frá haustsýningunni á Kjarvalsstöðum. (Ljósm. Mbl.: Sv. Þorm).
Eitt af verkum gestsins Louisa Matthfasdðttir á haustsýningunni.
Hún er fædd f Reykjavfk árið 1917, en stundaði nám f Kaupmanna-
höfn, Parfs og Bandarfkjunum þar sem hún hefur lengst af dvalizt.
Hún hefur tekið þátt f fjölmörgum sam- og einkasýningum f
Bandarfkjunum, og á þar vfða verk á söfnum. Hún sýnir t.d.
reglulega f Robert Schoelkopf Galiery á Madison Avenue f New
York.
Sigurður Thoroddsen, Björn G.
Björnsson, Birgir Engilberts,
Jón Þórisson, Lárus Ingólfsson
og Sigfús Halldórsson.
Leikmyndasýningin, sem nu
er í fyrsta sinn á haustsýningu
FÍM, er svo til óbreytt frá
þeirri sýningu, sem islenzkir
leikmyndateiknarar voru með á
norrænni leikmyndasýningu í
Álaborg í maí og júní sl. og eru
þar bæði líkön af leikmyndum
og ljósmyndir af þeim. Þátttak-
endur eru Lárus Ingólfsson,
Sigfús Halldórsson, Magnús
Pálsson, Steinþór Sigurðsson,
Gunnar Bjarnason, Björn G.
Björnsson, Snorri Sveinn
Friðriksson, Jón Þórisson, Birg-
ir Engilberts og Sigurjón
Jóhannsson.
I sýningarnefnd FlM eiga
sæti Einar Þorláksson, for-
maður, Guðmundur Benedikts-
son, Hallsteinn Sigurðsson,
Hringur Jóhannesson, Leifur
Breiðfjörð, Ragnheiður Jóns-
dóttir Ream, Sigurjón Ólafsson
og Svavar Guðnason. Vara-
menn voru Hrólfur Sigurðsson
og Steinþór Sigurðsson. Björg-
vin Sigurgeir Haraldsson sá um
sýningarskrá. Sýningin á
Kjarvalsstöðum verður opin
7.—21. september frá 4—10
virka daga, en 2—10 um helgar.
Á mánudögum er hins vegar
lokað.
Sumarauki
í sálina
Fjáröflun
til lamaðra
Kvennadeild Styrktarfélags
lamaðra og fatlaðra starfar ðtrauð
að þvf að styrkja æfingastöð fé-
lagsins á Háaleitisbraut 16 og
starfsemina f Reykjadal og hefur
uppi ýmiskonar fjáröflunarstarf-
semi f þvf skyni. Nú er t.d. aflað
fjár til styrkja fyrir sjúkraþjálf-
ara, sem alltaf er skortur á vegna
endurhæfingar fatlaðra og eru
tveir sjúkraþjálfarar og iðju-
þjáifari f námi með styrk frá
kvennadeildinni.
A sunnudaginn verður efnt til
fjáröflunar í þessu skyni með
kaffisölu í Sigtúni við Suður-
landsbraut kl. 2 og þá jafnframt
miðað við, að þeim, sem koma af
kappleik á Laugardalsvelli, gefist
kostur á að hlýja sér á kaffisopa.
Jafnframt kaffisölunni verður
ýmislegt gert til skemmtunar,
hljómsveit Hauks Morthens spil-
ar, tízkusýning verður með sýn-
ingarstúlkum frá Pálfnu Jón-
mundsdóttur, Ómar Ragnarsson
skemmtir og Magnús Ingimarsson
leikur, þjóðdansafélagið dansar
og spilað verður bingó. Verðlaun
eru ferð með Utsýn til Costa del
Sol.
Jóninna Þorfinnsdóttir, for-
maður kvennadeildarinnar,
kvaðst vilja hvetja fólk til að
sækja þessa skemmtun og fá sér
um leið sumarauka i sálina, bæði
með því að styrkja gott málefni og
ef heppnin er með, þá siðar á
Spáni.
Fatlaðir þurfa endurhæfingu.
Guðmundur Axelsson eigandi Klausturhóla og Sigríður Guðmundsdóttir afgreiðslustúlka við eina af
myndunum á sýningunni. Ljósm. Mbl. Sv. Þorm.
Nýr sýningarsalur á fjöl-
f arnasta götuhorni landsins
OPNAÐUR hefur verið nýr sýn-
ingarsalur á fjölfarnasta götu-
horni landsins, horni Austur-
strætis og Lækjargötu. Það er
verzlunin Klausturhólar, Lækjar-
götu 2, sem hefur látið innrétta
50 fermetra sal á annarri hæð
hússins. Verður salurinn f fram-
tfðinni leigður fyrir sýningar.
Verzlunin Klausturhólar verzl-
ar með listmuni, mynt og
gamlar bækur. Knútur Bruun
stofnaði verzlunina, en núverandi
eigandi er Guðmundur Axelsson.
Hann sýndi blaðamanni Mbl. hinn
nýja sal i gær, sem er mjög vist-
legur. Nú hanga þar uppi verk
eftir ýmsa listmálara, og eru þau
öll til sölu. Verða verkin uppi til
næstu mánaðamóta, en þá mun
franskur listmálari sýna verk sín
þarna, Robert Clerc, og seinni
hluta október sýnir íslenzkur
listamaður, Elí Gunnarsson. Á
þessum stað var áður lítill sýn-
ingarsalur, en þetta nýja húsnæði
er mun stærra og vandaðra.
Þeir, sem ætla í sýningarsalinn,
ganga í gegnum verzlunina, sem
er á götuhæð. Þar er einnig að
finna margt góðra muna. Má
nefna Þorláksbibliu prentaða á
Hólum 1644, og kostar hún 350
þúsund krónur. Einnig gat Guð-
mundur þess, að hann hefði kaup-
anda að góðri Guðbrandsbibliu
fyrir 500 þúsund krónur.
Leikrit Agnars sýnt
á Norðurlöndunum
I VETUR munu sjónvarpsstöðvar
á Norðurlöndum taka til sýningar
leikrit Agnars Þórðarsonar, 65.
grein lögreglusamþykktarinnar.
Leikritið tók fslenzka sjónvarpið
upp á s.I. vetri og hefur það verið
sýnt hér.
Ákvörðun um þelta var tekin á
sameiginlegum fundi norrænu
sjónvarpsstöðvanna um leiklistar-
mál í siðustu viku, en fund þenn-
an sat Jón Þórarinsson dagskrár-
stjóri fyrir hönd íslenska sjón-
varpsins. Jón tryggði sjónvarpinu
mörg mjög góð verk frá hinum
Norðurlöndunum, sem væntan-
lega verða tekin til sýninga í vet-
ur. Má m.a. nefna 3V5 klukku-
stundar leikrit frá norska sjón-
varpinu um norska málarínn
Edvard Munk, en þvi stjórnaði
hinn þekkti brezki leikstjóri
Peter Watkins. Leikritið verður
sýnt i tvennu lagi.