Morgunblaðið - 06.09.1974, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1974
Islenzku keppenaurnir æfa sig
fyrir norðuriandamótið. Ljósm.
Mbl. Sv. Þorm.
Heimsmeistarinn
hefur aldrei veitt
fisk á stöng
UM NÆSTU helgi verður háð hér
f Reykjavfk norðurlandamót f
köstum á stöng. Þátttakcndur eru
um 40 talsins, frá öllum Norður-
löndunum, þar af 6 frá Islandi.
Margir þeirra sem kastfþróttina
stunda koma ekkert nálægt stang-
veiðum, og eru dæmi til þess að
jafnvel heimsmeistarar f grein-
inni hafi aldrei veitt fisk á stöng.
Kastíþróttin er ekki mikið
þekkt hér á landi enda stunduð af
mjög takmörkuðum hóp, en nýtur
aukinna vinsælda f Evrópu. Er nú
nýverið afstaðið heimsmeistara-
mót er haldið var i Austur-Þýzka
landi, en þar fengu Norðurlanda-
þjóðirnar 3 meistara og mæta þeir
allir nú til keppni og mun það
ekki hafa skeð fyrr, að þrír heims-
meistarar keppi hér á landi í
sama móti.
Keppt er alls í 11 greinum:
hittiköstum og lengdarköstum svo
og í tveim flokkum, þ.e. yngri og
eldri flokk.
Mótið verður sett á Laugardals-
vellinum kl. 8 á laugardags-
morgni, en hefst á túninu milli
Miklubrautar og Suðurlands-
brautar kl. 9 stundvíslega. Keppt
verður þá í hittiköstum og lengd-
arköstum með flugu og lóðum. Á
sunnudag hefst keppni á sama
stað kl. 9 og þá í lengdarköstum,
en eftir hádegi fer keppnin fram
á athafnasvæði KR við Kapla-
skjólsveg og þá einungis keppt 1
hittiköstum.
Það skal fram tekið að Kast-
klúbbur Reykjavíkur, er meðlim-
ur 1 Í.S.I. og er mót þetta haldið á
þess vegum. Kastklúbburinn hef-
ur um árabil tekið þátt í heims-
meistaramótum og Norðurlanda-
mótum og hafa þátttakendur stað-
ið sig með ágætum. Má t.d. nefna
að Astvaldur Jónsson var annar
besti Norðurlandabúinn í tveggja
handa fluguköstum á heimsmeist
aramóti Áugsburg 1972.
483 fórust
í bílslysum
New York, 3. september. AP.
483 BIÐU bana í umferðarslysum
á þjóðvegum í Bandaríkjunum
um helgina og 1 gær sem var
frídagur verkamanna (Labor
Day).
Því var spáð fyrir helgina að
450—550 mundu týna lífi, en
kuldar og rigningar hafa ef tíl vill
dregið úr slysum.
Eins fáum umferðarslysum um
þessa helgi hefur ekki verið spáð
og var ástæðan sögð nýr hámarks-
hraði sem er 55 mílur.
1 fyrra biðu 559 bana í slysum
um þessa helgi. Mest hafa dauða-
slysin orðið 688 um þessa helgi
árið 1968.