Morgunblaðið - 06.09.1974, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1974
1 i * Ný sending
af þessum vinsælu skóm tekin upp í dag. Stærðir 35 - 41.
GEísiPI
Frúarleikfimi
Innritun stendur yfir þessa viku.
Júdódeild Ármanns,
Ármúla 32,
sími 83295.
SERVIS
Höfum tekið að okkur
söluumboð fyrir SERVIS
þvottavélar og þurrkara
frá Englandi.
Opið til kl. 10.
Yörumarkaðurinniif.
ÁRMÚLA 1A, SÍMI 86112, REYKJAVÍK.
Til sölu
Land Rover benzín árgerð 1 970.
Bílaleigan Ekill, Brautarholti 4, símar 28340,
37199.
Frá Listdansskóla
Þjóðleikhússins
Nokkrir nýir nemendur verða teknir í skólann í
vetur. Inntökupróf verður laugard. 7. sept. kl.
5.00 í æfingarsal leikhússins, gengið inn frá
austurhlið.
Æskilegt er að umsækjendur séu ekki yngri en
9 ára og hafi með sér æfingarföt og stundar-
töflu.
Eldri nemendur komi til skársetningar sem hér
segir: Yngri flokkar kl. 4.00
Eldri flokkar kl. 4.30
Kennsla hefst mánudaginn 30. sept.
Reykjavík — Grindavík
Hverju
geturðu tapað?
Gerum ráð fyrir þvi, að þú sért að hugsa um að taka þátt í DALE
CARNEGIE NÁMSKEIÐINU. —
Hverju geturðu tapað?
IMokkrum
sjónvarpskvöldum, spilakvöldum eða saumaklúbbum.
Kvíða
við það, að standa upp og segja nokkur orð.
Efa
um hæfileika þína til að taka virkan þátt í lífsgæðakapphlaupi
nútímans.
Þú gætir einnig tapað
Vantrú
þinni, að ná því markmiði, sem þú hefur sett þér.
Vana
þinum, að biða með ákvarðanir,
Ahyggjum og kvíða
Þú vilt áreiðanlega tapa
Möguleikanum
að vera „múraður" inni i núverandi launaflokki.
Tækrfærinu
að vera viss um að hreyfast ekki í starfi um aldur og ævi.
OKKAR ráðlegging er því: Taktu þátt í DALE CARNEGIE NÁMSKEIÐ-
INU.
Fjárfesting í menntun gefur þér
arð ævilangt
Innritun og upplýsingar
í síma 82411
í Njarðvík — Arndís Tómasdóttir í síma 1 745
f Grindavik — Tómas Tómasson í sima 8389
Verð til viðtals föstudaginn 6. sept. kl. 6—8 í Félagsheimilinu Festi.
Stjórnunarskólinn
Konráð Adolphsson.
m^ammammJ
Pólýfón-
kórinn
flytur
Messías
NÆSTA stórverkefni Pólýfón-
kórsins verður óratorfan Messfas
eftir Hándel, sem verður flutt um
næstu pðska. Munu æfingar
hefjast f næsta mánuði, en verkið
verður flutt f upprunalegum
búningi ð ensku.
Messfas Hándels er eitt af
fegurstu tónverkum sinnar teg-
undar, eins og segir f frétt frá
stjórn Pólýfónkórsins, og
tvfmælaiaust það vinsælasta.
Verkið hefur þrisvar sinnum áð-
ur verið flutt hér á landi, sfðast f
fyrra undir stjórn dr. Róberts
Abrahams Ottóssonar.
Erlendis hefur ekkert stórverk
fyrir kór og hljómsveit verið flutt
jafn oft, einkum þó f Bretlandi,
þar sem sérstök hefð ríkir um
flutning verksins, enda er talið,
að óratorían hafi haft meiri áhrif
á tónlistarsmekk og þróun tón-
listarlífs þar í landi en nokkur
önnur tónlist.
Sumir einsöngvaranna veröa úr
hópi kunnustu söngvara Breta.
Um 100—150 manns verða í
kórnum þegar Messfas veröur
fluttur, en Pólýfónkórinn hefur á
undanförnum árum helgað sig
stórverkum Jóhanns Sebastians
Bach og flutti Jólaóratoríuna
mörgum sinnum. Þá frumflutti
kórinn Mattheusarpassfuna og H-
moll messuna og Jóhannesarpass-
iuna f heild sl. vor.
Uppistaða hljómsveitarinnar
verður hin nýstofnaóa Kammer-
sveit Reykjavíkur en hún er að
mestu skipuð sömu hljóðfæraleik-
urum og tóku þátt f flutningi
kórsins á áðurnefndum verkum
Bachs.
Raddþjálfarar Pólýfónkórsins
eru auk söngstjórnas, Ingólfs
Guðbrandssonar, þau Elísabet
Erlingsdóttir, Ruth L. Magnússon
og Friðbjörn G. Jónsson.
Hljðmplata og körskóli
Pólýfónkórinn hefur farið
margar söngferðir til útlanda við
góðan orðstír og m.a. sungið inn á
stóra hljómplötu RCA fyrir
alþjóöamarkað. Síðast kom
kórinn fram á þjóðhátíð í Reykja-
vík og flutti íslenzk þjóðlög, sem í
ráði er aö hljóðrita til útgáfu á
næstunni.
Auk kórstarfseminnar rekur
Pólýfónkórinn fjölmennan söng-
skóla, þar sem fólki gefst kostur á
að læra undirstöðuatriði tónlistar,
nótnalestur, rétta öndun og beit-
ingu raddarinnar. Hefur sú starf-
semi bætt úr brýnni þörf og notið
mikilla vinsælda, enda árangur
ágætur, því að margir nemendur
kórskólans eru nú starfandi félag-
ar f Pólýfónkórnum og öðrum kór-
um borgarinnar. Kórskólinn tek-
ur til starfa í lok september, og er
innritun þegar hafin f síma 26611.
Hassí
tanknum
Genúa, 3. september. Reuter.
STARFSMENN ftölsku eitur-
lyfjalögreglunnar hafa fundið 50
kfló af hassi f bensfngeymi
Mercedes-bifreiðar sem var stolið
fyrir rúmu ári í Frankfurt f Vest-
ur-Þýzkalandi.
Lögreglan telur að fyrir hassið
hefðu fengizt 35 milljón lfrur á
svörtum markaði.
Bfllinn kom til Genúa fyrir
rúmum mánuði með sovézku
skipi og lögreglan beið eftir þvf
að einhver kæmi að sækja hann.
Hassið fannst f sérstöku hólfi f
bensfngeyminum og var vafið inn
f gömul afghönsk dagblöð.