Morgunblaðið - 06.09.1974, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1974
31
Arangurinn
mikilsverðastur
SJALFSAGT hafa margir orð
ið undrandi er stjórn Knatt
spyrnusambands tslands til-
kynnti val sitt á fslenzka lands-
liðinu sem mætir Belgfumönn-
um f landsleik á Laugardals-
vellinum n.k. sunnudag. Að
vfsu hefur það ævinlega verið
svo, að skiptar skoðanir hafa
verið á vaii lslandsliðsins, enda
mætti fyrr vera ef fiatneskjan
væri sifk, að ekki kæmu til
greina nema örfáir menn þegar
liðið er valíð.
Lansliðsnefnd KSÍ tók þann
kostinn við val landsliðsins að
þessu sinni að gera mjög litlar
breytingar á þvf frá landsleikn-
um við Finna á dögunum, enda
verður slíkt að teljast eðlilegt,
þar sem landsliðsnefndin virð-
ist vera í sjöunda himni vegna
úrslita þess leiks. Lið þetta, að
mestu óbreytt, sigraði einnig i
landsleik við Færeyinga fyrr f
sumar 3:2, og þótti víst mörgum
sá sigur í minna lagi, ef litið er
til þess að fyrir röskum áratug
vann B-landslið tslands Færey-
inga 10:0, og hefði ugglaust
getað bætt um betur ef mikill
vilji hefði verið fyrir hendi.
Ut af fyrir sig er ef til vill
ástæðulaust á gagnrýna val
landsliðsins mikið að þessu
sinni. Það er skipað ágætum
leikmönnum, sem hafa alla
burði til þess að gera Belgíu'-
mönnunum lífið leitt I lands-
leiknum, og verður að vona að
svo verði. Hins vegar er það
skoðun undirritaðs að unnt
hefði verið að tefla fram sterk-
ara liði að þessu sinni, og eins
er erfitt að sjá af vali landsliðs-
ins hvernig liðsuppstilling þess
er fyrirhuguð. Samkvæmt vali
þess ættu t.d. að vera i því tveir
hægri bakverðir, einn miðvörð-
ur, en a.m.k. f jórir tengiliðir.
Sú ákvörðun landsliðsnefnd-
ar sem vekur örugglega hvað
mesta furðu, er að velja ekki
Karl Þórðarson, Akurnesing í
liðið, og mætti ætla að lands-
liðsnefndarmenn hefðu horft
eitthvað takmarkað á leiki
Akranesliðsins í sumar. Það er
borið á borð að Karl hafi ekki
líkamsstyrk til þess að leika
landsleiki, en hafi landsliðs-
nefndarmenn fylgst með hon-
um, hefðu þeir sjálfsagt sjálfir
séð hversu grátt hann hefur oft
leikið suma okkar beztu varnar-
leikmenn f sumar, m.a. lands-
liðskandidatana í pressuleikn-
um á dögunum, — oft í sam-
vinnu við þann leikmann lA
sem nú fékk náð fyrir augum
nefndarmanna, Björn Lárus-
son. Þá hafa nefndarmenn
sennilega ekki tekið eftir því
hversu Jón Gunnlaugsson hef-
ur komið vel út sem miðvörður
hjá Skagaliðinu í sumar. Ég
hygg, að flestir séu ósammála
nefndarmönnum um að Jón
eigi ekki heima í landsliðinu —
sé ekki einn af fimmtán beztu
knattspyrnumönnum okkar um
þessar mundir. Þannig mætti
reyndar áfram upp telja og
nefna fleiri dæmi um það, að
dómi undirritaðs, að landsliðs-
nefndarmenn hafi sýnt óná-
kvæmni.
En allt um það. Landsliðið
hefur verið valið og í leiknum á
sunnudaginn verða leikmenn
þess fulltrúar allra íslenzkra
knattspyrnumanna. Og að
þessu sinni verða það ekki að-
eins íslenzk augu sem með
þeim fylgjast. Leikurinn er lið-
ur í Evrópubikarkeppni lands-
Iiða, og því fylgst með honum
um alla Evrópu. Það er þvf mik-
ils um vert að landsliðið standi
sig vel í þessum leik, og nái
fram hagstæðari úrslitum, en
hingað til hafa fengist í lands-
leikjum við Belgíumenn.
Stjl.
HÓPFERÐ FRAM
HLSPÁNAR
FRAMARAR hafa nú ákveðið að
efna til hópferðár á leik sinn við
Real Madrid á Spáni, og hefur
ferð þessi þegar verið skipulögð.
Að sögn Hilmars Svavarssonar,
formanns knattspyrnudeildar
Fram, verður farið til Spánar 30.
september n.k. og þá flogið beint
Norðmenn
sigruðu
NOREGUR sigraði Norður-Irland
f landsleik f knattspyrnu sem
fram fór á Ullevaal-leikvanginum
f Osló f fyrrakvöld með tveimur
mörkum gegn engu. Höfðu lrarn-
ir 1—0 forystu f hálfleik, en f
seinni hálfleik skoraði Tom Lund
tvfvegis fyrir Norðmenn, sem
áttu meira f leiknum frá upphafi.
Leikur þessi var liður f Evrópu-
bikarkeppni landsliða.
Komu ósigraðir
ANNAR flokkur Fram er
nýkominn úr keppnisferð til Dan-
merkur. Léku Framarar fjóra
Jeiki við jafnaldra sfna ytra og var
árangur piltanna mjög góður. í
fyrsta leik sfnum léku þeir við
Roskilde og sigruðu 3:0, síðan var
keppt við Karlundaborg og
sigraði Fram f þeim leik 6:0.
Þriðji leikurinn var við Herlev og
þann leik vann Fram 2:0. Síðasti
leikurinn á Danmerkurferðinni
var svo við AB, sem er Dan-
merkurmeistari í þessum aldurs-
flokki. Lauk þeim leik með jafn-
tefli 2:2.
til Madrid og dvalið þar fram til 2.
október. Fer leikur Fram við Real
Madrid fram 1. október og verður
þeim, er þess æskja, útvegaðir
miðar á leikinn. 2. október verður
svo haldið frá Madrid til Torri-
molinos og dvalið þar til 10.
október.
Fram hefur samið við Ferða-
skrifstofuna Sunnu um ferð þessa
og þangað ber þeim, sem áhuga
hafa á ferðinni, að snúa sér. Sagði
Hilmar, að áherzla hefði verið
lögð á að hafa ferðina sem ódýr-
asta, þannig að mönnum gæfist
þarna kostur á góðum sumarauka,
auk leiksins f Madrid.
Langstökk
Sovétríkin hlutu gullverðlaun
í langstökkskeppni Evrópu-
meistaramótsins í gær. Það var
Podluzhni sem bar sigur úr být-
um með 8,12 metra stökki, sem
hann náði snemma í keppninni.
Langstökkskeppnin þótti annars
fremur sviplítil — þar réðust úr-
slitin tiltölulega snemma, og fátt
óvænt gerðist annað en það að
bronsmaðurinn frá sfðustu
Olympíuleikum, VesturÞjóðverj-
inn, Hans Baumgartner, náði ekki
að ógna sigurvegaranum og varð
að lokum að sætta sig við fjórða
sætið. Úrslitin urðu:
V. Podluzhni, Sovétr. 8,12
N. Stekic, Júgósl. 8,05
E. Shubin, Sovétr. 7,98
H. Baumgartner, V-Þýzkal. 7,93
R. Bernhard, Sviss 7,91
W. Lauterbach, A-Þýzkal. 7,87
M. Klauss, A-Þýzkal. 7,73
T. Lepik, Sovétr. 7,73
A. Lerwill, Bretl. 7,68
J. Rousseau, Frakkl. 7,58
R. Blanquer, Spáni 7,38
F. Wartenberg, A-Þýzkal. 7,25
19 metra kast Hreins
var dæmt ógilt
— Stefán Hallgrfmsson virðist
nú vera f mjög góðu formi og
hyggur gott til tugþrautarkeppn-
innar, sem byrjar f dag, sagði
Sigurður Björnsson, fararstjóri
fslenzku frjálsfþróttamannanna á
Evrópumeistaramótinu f Róm, f
viðtali við Morgunblaðið f gær.
Sigurður sagði, að Stefán hefði
verið að búa sig undir þrautina
frá þvf að hann kom til Rómar, og
hefði hann á æfingunum glögg-
lega sýnt það, að hann væri vel
upplagður, t.d. hefði hann kastað
kúlunni margsinnis yfir 14
metra. — Það varð að ráði, að
Stefán hætti við þátttöku f 400
metra grindahlaupinu til þess að
geta einbeitt sér betur að tug-
þrautinni, sagði Sigurður.
Sigurður sagði ennfremur, að
Hreinn Halldórsson hefði verið
óheppinn f kúluvarpinu. f fyrsta
kasti sfnu kastaði hann 18,04
metra. Annað kast hans var mjög
vel heppnað og kúlan flaug röska
19 metra, en lenti hins vegar
nokkrum millimetrum fyrir utan
kastgeirann og strangir dómarar
dæmdu þetta kast ógilt. 1 sfðustu
umferð kastaði Hreinn svo 18,28
metra, og varð hann 16. af þeim
20 keppendum, sem voru í kúlu-
varpinu. Komust 13 f úrsiit og var
það Ólympfumeistarinn Komar
frá Póllandi, sem kastaði lengst,
20,00 metra.
Sigurður sagði, að það mál, sem
efst væri á baugi á vettvangi
Evrópumeistaramótsins nú, væri
sú ákvörðun sóvézka spretthlaup-
arans Borzov að keppa ekki f 200
metra hlaupinu. Hefðu Sovét-
menn tilkynnt þess ákvörðun
hans of seint og væru þvf lfkur á
að hlaupakóngurinn yrði dæmdur
f bann og fengi ekki að keppa f
4x 100 metra boðhlaupinu.
Um kringlukastskeppnina
sagði Sigurður: — Eg er viss um,
VESTUR-Þýzkaland sigraði Sviss
2—1 f leik liðanna í Evrópubikar-
keppni landsliða í knattspyrnu,
sem fram fór í Basel í fyrrakvöld.
Hollendingar unnu yfirburða-
sigur yfir Svíum f Stokkhólmi,
5—1 og voru það stjörnurnar
Gruyff og Nesskens sem voru
að þar var Erlendur fjarri góðu
gamni. Hann hefði átt alla mögu-
leika á að standa sig vel þar, og
sigurvegarinn kastaði t.d. 1 metra
styttra en tslandsmet Erlends er.
Þetta var gffuriega skemmtileg
keppni og úrslitin komu á óvart.
Eftir keppnina lýsti Ólympfu-
meistarinn Danek yfir því, að
þetta yrði hans sfðasta stórmót:
„Að fæturnir væru búnir og
höfuðið farið að láta sig lfka,“
eins og hann orðaði það.
Sígurður sagði, að aðstæður f
Róm væru mjög góðar, og veðrátt-
an hefði einnig verið góð, hiti
hæfilegur eða um 20 stig og logn.
mennirnir á bak við sigurinn, og
færði samvinna þeirra liðinu þrjú
mörk.
Pólverjar, sem hlutu þriðja sæt-
ið i heimsmeistarakeppninni, töp-
uðu hins vegar leik sínum við
A-Þjóðverja 1—3, en sá leikur fór
fram f Varsjá.
EVRÓPUBIKARKEPPNIN
M r JL li. TiHT 1 WTl 1....I..I.