Morgunblaðið - 29.10.1974, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 1974
þeím fjölgar
sem fara i
i skammdeginu
H
11
Margir panta far aftur næsta ár um leið
og þeir koma heim frá Kanaríeyjum.
Vinir og kunningjar heyra um sumar-
blíðu um miðjan vetur, stórar bað-
strendur, fjölbreytt þjóðlíf eða hið
hagstæða verðlag. Við höfum nú til
ráðstöfunar aukið og enn betra gisti-
húsnæði á suðurströnd eyjarinnar,
Playa del Inglés, auk þess höfum við
íbúðir og hótel í Las Palmas fyrir þá
er þess óska.
Okkar þaulreyndu fararstjórar búa á
Playa del Inglés, Broncemar, þar sem
skrifstofa okkar er á götuhæð. Þeir
ipuleggja ferðir um eyjuna, á næstu
eyjar og yfir til Afríku. Einu sinni í viku
verður dagsferð til Las Palmas. Allt
skipulag miðast við reynslu undanfar-
inna ára af óskum islendinga.
í vetur verða farnar 17 ferðir, flestar
tveggja og þriggja vikna á tímabilinu
31. október til 22. maí. Flogið verður
kl. 8 á fimmtudagsmorgnum og komið
til baka á fimmtudagskvöldi að lokinni
dvöl. Okkar hagstæða verð gildir
jafnt fyrir alla.
Fáein atriði um gististaðina. Þeir eru
allir ýmist rétt við ströndina eða inn-
an við 10 mínútna gang frá henni.
PLAYA DEL INGLÉS
Los Porches: Smáhús (bungalows)
með tveimur svefnherbergjum, baði,
eldhúsi og setustofu. Hentug fyrir fjöl-
skyldur, snyrtileg og án íburðar.
San Borondon: Lítil húsasamstæða, 6
hús, rétt við Los Porches. Verönd og
lítill garður með sundlaug.
El Chaparell: Hús með 9 íbúðum, sem
við höfum allar til ráðstöfunar. Sválir
og garður með sundlaug.
Aparthotel Protucasa: Glæsilegar hót-
elíbúðir með hálfu eða fullu fæði. Öll
þægindi, s.s. sundlaugar, tennisvöllur,
sjónvarpsherbergi, verslanir, hár-
greiðsla, sauna.
Broncemar: Nýjar rúmgóðar íbúðir,
teknar í notkun í nóvember 1974.
Morgunverður fylgir.
Teneguia: Nýjar og mjög þægilegar
íbúðir. í byggingunni eru auk veislu-
sala og bara, sundlaug og tennisvöll-
ur. Morgunverður fylgir.
LAS PALMAS
Don Carlos: Skemmtilegar íbúðir með
svölum móti suðri við Las Canteras.
Pujol: Lítið, þægilegt en ódýrt hótel í
höfuðborginni Las Palmas.
Farpantanir hjá skrifstofum flugfélag-
anna og umboðsmönnum þeirra.
LOFTLEIBIR
/SLAJVDS