Morgunblaðið - 29.10.1974, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÖBER 1974
15
Turishcheva
heimsmeistari
Sovézka stúlkan Ludmilla Turi-
shcheva varði heimsmeistaratitil
sinn f fimleikum kvenna, en
keppni lauk f Sofiu í Búlgarfu f
Japani varð
heimsmeistari
Japaninn Shigeru Kasamatsu
varð heimsmeistari karla f fim-
leikum, en keppninni lauk f
Varna f Búlgarfu á sunnudaginn.
Hlaut Shigeru Kasamatsu samtals
115,500 stig. Sovétmaðurinn
Nikolai Andrianov hlaut silfur-
verðlaun keppninnar og Japan-
inn Eizo Kenmotsu hlaut brons-
verðlaunin.
Keppnin stóð mestalla sfðustu
viku og mótaðist öðru fremur af
gífurlegu taugastríði þeirra
beztu. Kasamatsu náði snemma
o,575 stiga forystu í keppninni og
hélt henni sfðan til loka. Andri-
anov var einnig snemma mjög
framarlega, en féll niður f þriðja
Framhald á bls. 35
gærkvöldi. Mjög hörð keppni var
milli Turishchevu og Olgu Kor-
but, sem einnig er frá Sovétrfkj-
unum, keppnina út. Turishcheva
tók snemma forystu og hélt henni
til loka, en Korbut fylgdi henni
sem skuggi keppnina út.
Þessar tvær stúlkur hafa marga
hildi háð á fimleikamótum undan-
farin ár. Olga Korbut öðlaðist
heimsfkægð á Olympíuleikunum f
Mlinchen 197', en hefur sfðan átt
við stöðug meiðsli að stríða og
varð að hætta keppni í heims-
meistarakeppninni 1973.
Angelika Hellmann frá Austur-
Þýzkalandi hlaut bronsverðlaun-
in í heimsmeistarakeppninni að
þessu sinni, E. Saadi frá Sovét-
ríkjunum varð fjórða, R. Sihar-
ulidze frá Sovétríkjunum fimmta
og Annelore Zink frá AÞýzka-
landi varð sjötta. Sovézku stúlk-
urnar unnu svo yfirburðasigur í
4-manna sveitakeppninni.
Hæstu einkun í einstakri
keppnisgrein hlaut a-þýzka
stúlkan Zinke sem fékk 9,95 i
einkunn fyrir frammistöðu sína í
æfingum á slá.
Armann Reykjavíkurmeistari
Sigraði KR 78:77 í hörkuleik
ÁRMANN varð Reykjavfkur-
meistari f körfuknattleik 1974,
þegar liðið vann KR f sfðasta leik
mótsins f fyrrakvöld með 78 stig-
um gegn 77. Lokakafli leiksins
var æsispennandi, liðin skiptust
þá um að hafa forustu og spurn-
ingin var einungis sú hvort liðið
hefði betur þegar leiktfminn
rynni út. Sigur Ármanns gat ekki
naumari verið, þvf KR-ingar voru
að hefja sókn þegar lúðurinn gall
f leikslok.
Talsverð kaflaskipti voru f
leiknum, Armann komst t.d. í 11:5
í byrjun, KR hafði náð 26:20
forustu um miðjan hálfleikinn,
aftur komst Ármann yfir, en KR
hafði yfir í hálfleik 40:36. Ár-
mann jafnaði strax á 1. mín. s.h.
40:40, en KR svaraði með bezta
kafla leiksins og náði 11 stiga
forustu 61:50. Virtist Iiðið stefna f
öruggan sigur, ekki hvað sízt með
tilliti til þess að Jón Sigurðsson,
stjarna Ármanns, var með 4 villur
og gat lítið beitt sér í vörninni. En
þegar hér var komið meiddist
Kristinn Stefánsson miðherji KR,
og við það að missa hann snerist
leikurinn Ármanni í hag. Loka-
kaflinn var eins og áður sagði
æsispennandi, 72:72 — 74:74, og 3
mín. eftir. KR komst i 77:74 en
Jón Sigurðsson skoraði 76:77 þeg-
ar rúm mín. var eftir, og Símon
ólafsson kom Armanni yfir með
tveim vítaskotum þegar 35 sek.
voru eftir af leiknum. KR glopr-
aði boltanum fyrir klaufaskap
í næstu sókn og Armenningar
héldu boltanum það sem eftir var.
Gleði Ármenninga var mikil f
leikslok, Ingvar Sigurbjörnsson
þjálfari var tolleraður, svo og
mennirnir bak við sigur Ar-
manns, þeir Símon Ólafsson og
Jón Sigurðsson, en báðir áttu þeir
stjörnuleik að þessu sinni. Jón
var stighæstur með 24 stig Kol-
beinn Pálsson með 18 stig fyrir
KR. 1 heild var leikurinn mjög
góður, áhorfendur skemmtu sér
mjög vel og sköpuðu góða úrslita-
stemmningu á áhorfendapöllun-
um.
Ármenningar, Reykjavfkurmeistarar f körfuknattleik 1974. Frá vinstri f fremri röð: Björn Christens-
sen, Guðmundur Sigurðsson, Sfmon Ólafsson, Birgir örn Birgis, Björn Magnússon. Aftari röð: Ingvar
Sigurbjörnsson, Atli Arason. Haraldur Hauksson, Jón Björgvinsson, Jón Sigurðsson, Hallgrfmur
Gunnarsson, Clarence Glad og Helgi Helgason.
drætti KKÍ
Körfuknattleikssamband tslands hleypir
af stad innan skamms hinu árlega landshapp-
drætti sfnu. Vinningar f happdrættinu nú
veröa ferðir til sólarstranda Spánar. Fyrsti
vinningur verður ferð með uppihaldi fyrir
tvo, og auk þess verða fjórir vinningar aðrir,
allt sólarstrandaferðir.
Aðildarfélög KKt munu fá miða til sölu.
Miðaverð hefur verið ákveðið kr. 200, og af
hverjum seldum miða verða greidd sölulaun
kr. 100 fyrir hvem miða. Þannig ætti þetta að
geta orðið félögunum gott tækifæri til fjár-
öflunar.
r
Atta með tíu
I elleftu leikviku getrauna
komu fram átta seðlar með 10
réttum lausnum og fá handhafar
kr. 47.500,00 í hlut. 63 voru svo
með 9 rétta og fá kr. 2.600,00 í
vinning.
Luxem
borg-
arar
koma
ekki
STJÓRN Körfuknattleikssam-
bands lslands boðaði til blaða-
mannafundar í gærdag, þar sem
kynnt var ýmislegt sem á döfinni
er hjá KKl. Aðaltilefni fundarins
var hinsvegar það, að um helgina
barst KKl bréf frá Luxemborg, og
f þvf tilkynnir körfuknattleiks-
sambandið þar að landslið þeirra
sé hætt við að koma hingað um
næstu helgi og leika landsleiki
hér. Þetta kom eins og þruma úr
heiðskýru lofti, þvf að samningar
höfðu verið gerðir og að öllu leyti
gengið að óskum Luxemborgara.
T.d. var búið að tryggja þeim 50%
afslátt af hópfarmiðaverði hjá
Loftleiðum og auk þess ætlaði
stjórn KKl að borga 80 þús. kr. af
ferðakostnaði liðsins hingað.
Astæðan fyrir þessari breytingu
er hins vegar sú að FIBA
breytti leikdögum meistaraliðs
þeirra f Evrópukeppninni og
verður annar leikur liðsins
næsta sunnudag. KKt bauð
þeim þá að flytja landsleik-
ina til, en við því var ekki
litið. Þeir buðu fsl. liðinu hins-
vegar að koma til Luxemborgar f
vor og leika þar, en var tjáð að
vegna framkomu þeirra hefðum
við ekki áhuga á að eiga nein
samskipti við þá. KKl mun skrifa
til FIBA og fara fram á vftur á
Körfuknattleikssambandið f
Luxemborg vegna þessa máls og
auk þess krefjast bóta þvf KKt
skaðast fjárhagslega vegna þess-
ara samningsbrota.
s
Hollendingar höfðu lýst þvf yf-
ir að þeir væru tilbúnir að koma
hingað ef af leikjunum við
Luxemborg yrði ekki, en vegna
þess hversu stuttur frestur
Luxemborgara er, verður ekki
unnt að fá þá hingað strax. Þeim
hefur þó verið skrifað og er stefnt
að þvf að fá þá hingað á þessu ári.
Mjög góður leikur, sögðu þjálfaramir
Við ræddum IftiIIega við þjálf-
ara KR og Ármanns að loknum
leik liðanna og báðum þá um álit
þeirra.
Ingvar Sigurbjörnsson:
— Þetta var afar skemmtilegur
leikur og „maður á mann vörnin“
sem bæði liðin beittu er skemmti-
leg fyrir áhorfendur, það er alltaf
eitthvað að gerast, Iftið um dauða
punkta. Ég tel þennan árangur
okkar gefa góðar vonir um betri
frammistöðu f vetur, enda höfum
við Iftið sem ekkert getað æft
vegna húsnæðisleysis. Þetta er f
annað skipti sem Ármann vinnur
Reykjavfkurmót, en Islandsmótið
höfum við aldrei unnið, en ætlum
okkur að gera það f vetur. —
Einar Bollason:
— Mér finnst það hrein móðg-
un við lið sem eru að leika til
úrslita f Reykjavfkurmðti, að
annar dómari leiksins skuli vera
að koma úr baði eftir að hafa
verið að spila leik, og geti svo alls
ekki hreift sig með leiknum. Það
var okkar stóra ólán að missa
Kristinn útaf, annars hefðum við
unnið með 15 stiga mun. En
leikurinn var f heildina mjög
góður og ég er að mörgu leyti
mjög ánægður með mfna menn.