Morgunblaðið - 29.10.1974, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. OKT0BER 1974
7
Olían í
íshafinu
TILKYNNINGIN um fyrirhugaða
útfærslu fiskveiðilögsögunnar við
Norður-Noreg úr 12 I 50 mllur
hefur beint athyglinni að fyrirætl-
unum Norðmanna varðandi önnur
hafsvæði ut af Noregsströndum.
og þá sérstaklega að nýtingu land-
grunnsins.
Út af suður- og vesturströnd
Noregs eru stór svæði á botni
Norðursjávar þar sem Norðmenn
eru nú að vinna olíu, auk þess sem
þeir hafa þar mikilla fiskveiðihags-
muna að gæta. En Noregur er
langt land, teygir sig langt norður
I íshafið, og landgrunn þess nær
langleiðina til Norðurpólsins.
Búast má við að næst verði
hafin oliuleit á vlðáttumiklu land-
grunninu milli Finnmerkur, nyrsta
héraðs Noregs, og Svalbarðaeyj-
anna, sem eru á svipaðri breiddar-
gráðu og Norður-Grænland. Allt
bendir til að þar sé um verulegt
magn oliu að ræða, þótt norsk
yfirvöld hafi enn ekki heimilað
boranir.
Vestræn oliufélög hafa stundað
boranir t smáum stil á Svalbarða
um tíu ára skeið, en árangur hefur
verið lítill. Fyrirhugað er að Sovét-
rikin hefji þar oliuleit i vetur. Þótt
Iftið hafi enn fundizt af olfu. hafa
eyjar Svaibarða reynzt gjöful
orkulind — bæði Noregur og Sov-
étrfkin reka þar kolanámur, og eru
kolin þaðan talin mikil að gæðum.
Báðar þjóðirnar hafa þar fast
starfsfólk allt árið (um 2.000
Rússar og um 1.000 Norðmenn)
fara sér hægt f nýtinu Norðursjáv-
arolfunnar, virðast litlarlikur fyrir
þvi að anað verði út i framkvæmd-
ir á landgrunninu. Þó sagði Trygve
Bratteli forsætisráðherra i ræðu,
sem hann flutti á þingi fulltrúa
norðurhéraða Noregs. Sviþjóðar
og Finnlands i Kiruna f ágúst:
„Væntanlegur oliufundur og
vinnsla á þessu svæði (landgrunn-
inu milli Noregs og Svalbarða) á
eftir að breyta ástandinu í orku-
málum og efnahag Norður-Skandi-
navfu. Olian getur valdið miklum
vexti hjá þeim iðnaði, sem fyrir er,
og skjótri uppbyggingu nýs iðnað-
ar i löndunum þrem."
Þessi bjartsýni Brattelis á fram-
tið norðurhjara Evrópu á við rök
að styðjast. f sumum héruðum
Norður-Noregs hefur þegar verið
endi bundinn á fólksfækkunina.
og fyrirhuguð útfærsla fiskveiði-
lögsögunnar og efnahagslögsög-
unnar mun enn treysta efnahag
þessara sveita. En ef mikil olia
fyndist út af ströndinni, auðveld-
aði það vinnslu annarra náttúru-
. ~r^F!-----
*SSá& THE OBSERVER
eftir C0LIN
NARB0R0UGH
Atlantshafsbandalagið, er Ijóst að
vinnsla úr nýjum olíulindum norð-
ur af Noregi getur orðið mjög við-
kvæmt deilumál. Sovézki flotinn
stundar æfingar sínar á svæðinu
milli Norður-Noregs og Svalbarða
(sem er um 560 kilómetra breitt),
og Sovétrikin telja sig hafa sér-
réttindi á Svalbarðasvæðinu.
Verði þessum sérréttindum ógnað
á einhvern hátt, til dæmis með
starfsemi vestrænna olíufélaga
annarra en norskra eða auknum
afskiptum Atlantshafsbandalags-
ins, gæti það valdið aukinni
spennu. Frá sjónarhóli NATO hef-
ur þessi heimshluti vaxandi þýð-
ingu, og Norður-Noregur og Sval-
barði hljóta að eiga miklu hlut-
verki að gegna í áætlunum sam-
takanna um hvemig unnt sé að
snúast gegn kafbátaflota Sovét-
rikjanna.
Ef til vill er það engin tilviljun
að verið er að Ijúka við gerð flug-
vallar, sem nota má allt árið við
Longyearbyen, stærstu byggð
Norðmanna á Svalbarða. Sovázka
nýlendan þarna — aðallega á
Edgeeyju, 80 km fyrir austan
Longyearbyen — treystir enn ein-
göngu á aðflutninga með skipum
að sumarlagi. Allt bendir þó til
þess að haldin séu þau fyrirmæli
alþjóðasamninga að eyjarnar skuli
vera vopnlaust svæði, og norsk
yfirvöld telja að heimild þeirra til
að hafa eftirlit með sovézku ný-
lendunni sé næg trygging fyrir þvi
að þar verði hvorki komið fyrir
Finnland,
Svíþjóð, Helsinki Leningrad
Áflanfshafið,^^Fær
eyjar
Noregíir, i Stokkhólmur, Sovétrfkin,
ystrasalt,
500 km.
þrátt fyrir algjöra einangrun og
grimmdar heimskautaveðurfar.
Norðmenn vinna um 500 þús-
und tonn af kolum á eyjunum
árlega, og fara fjórir fimmtu þess
magns til málmiðjuvera á norska
meginlandinu. Dvöl norsku kola-
námumannanna felur einnig I sér
réttlætingu á norskum yfirráðum
þar, sem Þjóðabandalagið fól Nor-
egi árið 1920. Yfirráð Noregs yfir
Svalbarða eru á vissan hátt nokk-
uð ótrygg, og fast aðsetur fjölda
Rússa á eyjunum gæti leitt til
kröfu um hlutdeild að arði Noregs
þegar að því kemur að auðæfi
verða unnin úr landgrunninu.
Samkvæmt alþjóðasamningum
ber Noregi að tryggja umhverfis-
vernd á Svalbarða. Háværar kröf-
ur hafa verið bornar fram f Osló,
bæði af innlendum og erlendum
aðilum, um að eyjarnar verði gerð-
ar að þjóðgarði, og að komið verði
f veg fyrir þá eyðileggingu á um-
hverfinu, sem fylgir f kjölfar vfð-
tækrar kola- og olfuvinnslu. Vegna
þeirrar stefnu norskra yfirvalda að
auðæfa. Á þessu svæði er mikið
málmgrýti f jörðu, meðal annars
kopar, og orkulindir á næstu grös-
um gætu lyft mjög undir námu-
vinnslu. Einnig hefur verið um það
rætt að Svfar, sem áttu kolanámur
á Svalbarða fyrir sfðari heims-
styrjöldina, hefji þar á ný kola-
vinnslu til að tryggja norðurhéruð-
unum næga orku hvernig sem fer
með olíuvinnsluna.
Áætlanir sænskra iðnfyrirtækja
varðandi framkvæmdir þarna
norðurfrá eru þó smávægilegar
samanborið við hagsmuni Sovét-
rfkjanna. Mjög hefur verið unnið
að uppbyggingu f norðvesturhér-
uðum Sovétrfkjanna, og áætlað er
að árið 1980 verði íbúafjöldi Mur-
mansk, helztu hafnar- og fiskveiði-
borgarinnar á þessum slóðum
kominn upp f 400 þúsund.
Einnig hafa Sovétrfkin eflt mjög
herstyrk sinn og flota á Kola-
skaga, og Murmansk er nú mið-
stöð sovézka kafbátaflotans.
Þar sem norska olfan er vissu-
lega hernaðarlega mikilvæg fyrir
eldflaugastöðvum né aðstöðu fyrir
herflugvélar.
Full aðild Noregs að NATO
breytir engu um samstöðu Noregs
með hinum Norðurlöndunum og
hlutleysiskennd þjóðarinnar. Fá-
mennið f norðurhéruðum Noregs,
Svfþjóðar og Finnlands, og það að
þar er vart um nein landamæri að
ræða, hefur einnig leitt til þess að
fbúarnir eiga mjög svipaðra hags-
muna að gæta, en margir þeirra
eru Lappar, og alls ekki norrænir.
Þótt ýmsir fbúanna aðhyllist sjálf-
stjórn þessara svæða — stofnun
Lapparíkis — eða sovézku tillög-
una um að þar verði bannað að
koma fyrir kjarnavopnum, eru all-
ar ákvarðanir um hernaðar- og
efnahagsmál enn teknar f hverri
höfuðborg fyrir sig, langt í suðri.
Algjört skilyrði fyrir þvf að Norð-
menn geti notfært sér auðlindirn-
ar f norðri, er að öryggi landsins sé
tryggt, og þá tryggingu er hvergi
betri að fá en hjá NATO. og tengsl
Noregs við samtökin ættu þvf að
eflast með blómstrandi efnahag.
Stúlka alvön afgreiðslu og símavörslu óskar eftir vinnu hálfan daginn. Vaktavinna kæmi til greina. Uppl. i sima 14178 i dag og næstu daga. Keflavík Til sölu mjög vel með farin 3ja herb. íbúð við Lyngholt. Fasteignasalan, Hafnargötu 27, Keflavik. Simi 1420.
Bronco eigendur Vil kaupa Bronco '71 — '73, 8 cyl. Útb. 500 þús. Simi 41766 eftir kl. 7 á kvöldin. Brotamálmar Kaupi allan brotamálm langhæsta verði. Staðgreiðsla. NÓATÚN 27. Simi 25891.
Nýstandsett rishæð við Grettisgötu til sölu. íbúðin er 80 fm i timburhúsi. Stendur á eignarlóð. Verð 2,9 millj. Útb. 1600 þús. íbúðin er laus nú þegar. Uppl. i s. 25405 alla virka daga eftir kl. 5. Hálfir grísaskrokkar Nýslátraðir grisaskrokkar, skorið, hakkað og merkt eftir óskum kaup- anda. 488 kr. kg. Kjötmiðstöðin Laugalæk, simi 35020
mnRCFDLDdR mÖCULEIKR VÐRR Hálfir nautaskrokkar úrvals nautakjöt i hálfum skrokk- um tilbúið i frystikistuna. 397 kr. kg. . Kjötmiðstöðin, sími 35020.
■N
Tann
ENSKIR
PENINGASKÁPAR
eldtraustir — þjófheldir
heimsþekkt
framleiðsla.
E. TH. MATHIESEN H.F.
STRANDGÖTU 4. HAFNARFIRÐI — SÍMI 51 91 9.
Mercury Comet
Til afgreiðslu strax.
Verð til atvinnubifreiðastjóra
frá 861 þúsund.
Ford umboðið,
Sveinn Egilsson h.f.
Ford húsinu,
Skeifan 1 7.
rekstur
Sænsk athugun staðfestir að séu allir kostnaðar-
liðir við bílrekstur athugaðir (kaupverð, endur-
söluverð, viðhald, bensíneyðsla o. s. frv.) reynist
hver ekinn km ódýrastur á
Toyota eftir 100.000 km
akstur, S kr. 0.22/km.
TOYOTA
TOYOTA AÐALUMBOÐ HÖFÐATÚNI 2 REYKJAVlK SlMAR
25111 & 22716. UMBOÐIÐ Á AKUREYRI BLÁFELL SIMI 21090
I
.rtjLí 'ii; ju;i;
. ( 11 > j J 11) j i< ; j w