Morgunblaðið - 30.10.1974, Qupperneq 1
28 SIÐUR
Frá mótmælafundi gegn hinu gífurlega atvinnuleysi í Danmörku fyrr í þessum
mánuði. Er nú spáð 10% atvinnuleysi fyrir áramót, eins og fram kemur í frétt
neðar á síðunni.
Deila um
V-Berlín
Fólki af þýzkum
ættum meinað
að hitta Schmidt
Ford á
blaðamannafundi:
Bilið
mjókkaði í
SALT við-
Fangar kröfð-
ust flugkosts
Haag, 29. október AP—Reuter
FANGARNIR fjórir sem haldið
hafa 16 gfslum f kapellu Scheven-
ingen-fangelsisins settu f kvöld
fram þá kröfu, að yfirvöld hefðu
tilbúna fiugvél til þess að fljúga
með þá til ónefnds ákvörðunar-
staðar. Kröfðust fangarnir að
áætlunarbifreið yrði send til að
flytja þá og 13 gfsla þeirra til
flugvallarins sem er á milli Haag
og Amsterdam. 1 staðinn lofuðu
þeir að láta þrjá gfslanna lausa,
— tvær konur og einn hjartveik-
an karlmann. Þegar Morgunblað-
Framhald á bls. 16
Spáð 10% atvinnuleysi í
Danmörku fyrir áramót
Frá fréttaritara
Morgunblaðsins
í Kaupmannahöfn,
Jörgen Harboe.
ÞAÐ brá mörgum f brún f Dan-
mörku, þegar frá þvf var skýrt
fyrír nokkrum dögum, að at-
vinnuleysið f þriðju viku október-
mánaðar hefði verið 9,1%. Nú er
talið, að um 90.000 Danir séu at-
vinnulausir og f jöldi þeirra hefur
stöðugt farið vaxandi frá því f
ágúst sl. Fyrir hálfum mánuði var
það komið yfir 6%, sem er meira
en helmingi meira atvinnuleysi
en á sama tfma f fyrra. Þess ber
að gæta, að vikuna, sem atvinnu-
leysið komst upp f 9,1%, var
hryssingslegt veður er yfirleitt
dregur úr atvinnu. Engu að sfður
eru flestir hagfræðingar á einu
máli um, að fyrir nýár verði það
komið upp f 10%; að meira en
100.000 manns verði þá vinnu-
lausir. Þarf að leita allt til
kreppuáranna f kringum 1930 að
svo alvarlegu ástandi á vinnu-
markaðinum. Óttast nú margir
pólitfska og félagslega ólgu meðall
atvinnulausra og þeirra fjöl-
mörgu, sem fyrirsjáanlega þurfa
að lifa víð skert Iffskjör á næst-
unni.
Þetta eymdarástand í Dan-
mörku á sér ýmsar orsakir. Olíu-
kreppan er ein þeirra, bæði
hækkun olíuverðsins og takmörk-
un á olíumagni í iðnaði. Annars
vegar hefur verðhækkunin haft í
för með sér alvarlega kostnaðar-
hækkun fyrir iðnaðinn og hins
vegar hefur hún valdið rýrnun á
kaupmætti almennings, bæði f
Danmörku og erlendis.
Þetta kom ekki fram strax eftir
oliuhækkunina. Sumarið 1973 var
enn mikil eftirspurn eftir vinnu-
afli í danska iðnaðinum. Þá upp-
lýstu 66% fyrirtækja, að þau
vantaði fóik í vinnu. I september
var þannig ástand í 59% fyrir-
tækja en aðeins í 28% fyrirtækja
í desember, þegar áhrifa oliu-
kreppunnar var farið að gæta að
marki.
Framhald á bls. 16
Moskvu, 29. október—Reuter.
HELMUT Schmidt, kanslari
Vestur-Þýzkalands, og Leonid
Brezhnev, leiðtogi sovézka
kommúnistaflokksins, ræddust
tvisvar við I dag, og mun hafa
náðst samkomulag um mörg
atriði efnahagssamvinnu rfkj-
anna tveggja, en eftir seinni
fundinn f kvöld var talið ljóst, að
erfiðlega gengi hins vegar að
leysa deilumálið varðandi stöðu
Vestur-Berlfnar. Schmidt og
stjórn hans halda fast við að
Vestur-Þýzkaland hafi rétt til að
koma fram fyrir hönd Vestur-
Berlínar á alþjóðavettvangi. Mis-
munandi túlkun Sovétrfkjanna
og V-Þýzkalands á stöðu borgar-
innar hafa sem kunnugt er valdið
truflunum á samgöngum til
Berlínar frá V-Þýzkalandi.
Talsmaður Schmidts sagði i
kvöld að vel kæmi til greina að
kanslarinn frestaði brottför sinni
frá Moskvu, sem ráðgerð var á
morgun.
Það vakti athygli í Moskvu í
dag, að Andrei Sakharov, vísinda-
maðurinn heimskunni, hélt því
fram, að sovézkum borgurum af
þýzkum ættum hefði verið
meinað að koma til Moskvu til
þess að reyna að ná sambandi við
Schmidt kanslara og sendinefnd
hans. Hefði þetta fólk verið haft
undir lögreglueftirliti í héruðum
Estoníu, Lithuaniu og
Tadzhikistan. Haft er eftir heim-
ildum innan þýzka Rauða kross-
ins að af 2 milljónum Sovétmanna
af þýzkum ættum hafi 60.000 sótt
um að fá að flytjast til Vestur-
Þýzkalands.
toga vinstra arms Kristilega
demókrataflokksins, að reyna að
mynda nýja stjórn undir forsæti
hans til þess að binda endi á 26
daga langa pólitfska kreppu f
Moro — tekst honum að miðla
málum?
Arabar auka
vígbúnað sinn
Palestínumálið ekki útkljáð
Rabat, 29. októbér
Reuter— AP.
ARABtSKU leiðtogarnir á topp-
fundinum f Rabat f Marokkó
komu sér f kvöld, — rétt áður en
fundi þeirra átti að ljúka
saman um að því er góðar
heimildir sögðu, að verja 2,350
milljónum dollara á ári f að
hyggja upp vopnabúnað
þeirra Arabarfkja sem standa
f fremstu vfglfnu gagn-
vart Israel. Þetta hafði ver-
ið mikið deilumál á fundinum,
og hafði tillaga Sýrlendinga um
að fjárframlagið ætti að vera
13,350 milljónir dollara sætt and-
spyrnu og þótt of há. A að dreifa
þessu framlagi á Arabarfkin al-
mennt, en þess vænzt að auðug-
ustu olfuframleiðslulöndin muni
bera þyngstu byrðina.
Leiðtogarnir bjuggust til brott-
ferðar i kvöld. Helzta ákvörðun
fundarins var að viðurkenna
Frelsishreyfingu Palestínu undir
forystu Yasser Arafats „eina lög-
lega fulltrúa palestfnsku þjóðar-
innar á öllu því palestínska lands-
svæði sem kann að verða látið af
hendi“. Þetta er talinn mikill
sigur fyrir Arafat, og um leið
„reiðarslag fyrir stefnu Israels og
Bandaríkjanna", eins og tals-
Framhald á bls. 16
landinu og leysa hinn ógnvæn-
lega efnahagsvanda. Er búizt við
að Moro muni reyna að mynda
minnihlutastjórn sfns eigin
flokks, með óopinberum stuðn-
ingi mið- og vinstri flokkanna
Framhald á bls. 16
ræðunum
Washington, 29. október.
AP — Reuter.
GERALD Ford, forseti Banda-
rfkjanna, sagði á blaðamanna-
fundi f Washington f dag, að hann
kynni að fyrirskipa takmörkun á
olfuinnflutningi, ef ekki tæk-
ist með sjálfviljugum sparnaði
eldsneytis að minnka hann um
eina milljón tunna á dag. Hann
sagði nauðsynlegt að gera
strangar efnahagsráðstafanir til
þess að hamla gegn vaxandi verð-
bólgu og mundi næsta fjárlaga-
frumvarp bera þess merki.
Forsetinn lét i ljós ánægju með
viðræður dr. Henrys Kissingers,
utanrikisráðherra og Leonids
Brezhnevs, leiðtoga sovézka
kommúnistaflokksins, í siðustu
viku, sagði, að bilið milli Sovét-
ríkjanna og Bandarikjanna varð-
andi viðræðurnar um takmörkun
kjarnorkuvopna (SALT) hefði
mjókkað og hann vonaðist til að
fundur sinn og Brezhnevs í Vladi-
vostock 23.—24. nóvember nk.
yrði til þess að samkomulag næð-
ist í SALT-viðræðunum áður en
langt um liði.
Ford boðaði óvænt til blaða-
mannafundar í Hvita húsinu áður
en hann lagði upp i ferð til Michi-
gan, heimarikis síns, til þess að
taka þátt i kosningabaráttu repú-
blikana fyrir þingkosningarnar 5.
nóvember nk.
Ekki kvaðst forsetinn sjá neina
ástæðu til að fresta för sinni til
Japans, þrátt fyrir þær fregnir,
sem borizt hefðu af pólitískum
Framhald á bls. 16
Moro reynir myndun
minnihlutastjórnar
Róm 29. okt. AP—Reuter
• GIOVANNI Leone, forseti
ttalfu, bað f kvöld Aldo Moro,
utanrfkisráðherra fráfarandi
stjórnar og óumdeilanlegan leið-