Morgunblaðið - 30.10.1974, Page 25

Morgunblaðið - 30.10.1974, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 1974 25 J Evelyn Anthony: LAUNMORÐINGINN Jóhanna Kristjönsdöttir þýddi f 35 sannarlega erfiðara viðfangs en það sem við ætlum honum þann 17. marz. Þú þarft engar áhyggjur að hafa Huntley. Ég hef náð í rétta manninn. — Viltu viskí? sagði Huntley. — Farðu þá og bjargaðu þér sjálf- ur. — Ég vil ekki viskí, sagði King. — Ekki svona snemma dags. — Jæja, ekki finnst mér það, sagði Huntley. — Gefðu mér einn þrefaldan og óblandaðan. Hvernig náðirðu i þennan peyja? Ég vona hann sé ekki einhversmá glæpon. — Þú þarft ekki að hafa neinar áhyggjur, Huntley, endurtók King og rétti honum viskíglasið. ÞeSsi árátta var eitt af Því sem slúðurdálkahöfundar þreyttust aldrei á að skrifa um. Huntley drakk viskí eins og vatn án nokkurra sýnilegra áhrifa. — Ég á mína traustu vini í Miðaustur- löndum — viðskiptahagsmunir, skilurðu. Og þessi hafði verið í útlendingahersveitinni. Hann var einn af beztu leyniskyttum i Indó- kína. — Ég held að ekki veitti af að senda hann þangað núna, hreytti Huntley út úr sér — þar þyrfti nú aldeilis að hreinsa til meðal þess- ara hershöfðingjafávita, sem þar ráða öllu. En hvað þurfum við að borga honum? — Hann féllst á fimmtíu þúsund dollara, sagði King. — Og hann vildi fá pappíra fyrir sjálfan sig og vegabréf. Ég iét einn af vinum mínum sjá um það. — Og hvernig geturðu verið viss um að hægt sé að treysta þeim? King brosti. — Vegna þess að enginn vissi, hver stóð á bak við þetta. Ég fór mjög varlega, Huntley, þér er óhætt að trúa því. Enda er það einnig minn hagur að vel takist til. — Ég hef engar áhyggjur, sagði Huntley og rétti glasið að honum aftur. — Fylltu það almennilega. Ég er bara að hugsa um að við getum klárað okkur vei af þessu. Ég hef áhyggjur af því að þessi ófreskja lifi nógu lengi til að vinna landinu óbætanlegt tjón. Þegar ég hugsa til þess að maður- inn gæti endað í Hvfta húsinu — ég verð andvaka við tilhugsunina eina saman. King ákvað að fá sér hressingu lfka. Huntley var erfiður, þegar hann var í þessum ham. Hann heilti í glas og drakk það í einum teyg, til að styrkja taugarnar. Cameron var langt frá að vera nokkur bjálfi. Þótt hann talaði eins og erkifffl á stundum, iðu- lega til að blekkja fólk, vissi King betur. Hann vissi að Huntley var kænni en sá vondi sjálfur. Og King hafði verið vitni að því þegar hann ræddi viðskipti. Þar var enginn honum fremri. Nei, það yrði þrautin þyngri að leika á hann. King var ákveðinn í að sýna fyllstu aðgát. — Ég vil ekki að þú haldir að ég sé alveg kaldur fyrir þessu, sagði hann. — Þegar alit kemur til alls, er um lff manns að tefla. En ég trúi því að við höf um okkar skyld- ur og ég trúi því að það sé í þágu þjóðarinnar að Jackson verði ráðinn af dögum. Ef ekki, riða Bandaríkin á barmi borgara- styrjaldar og algerrar ringlu- reiðar á öllum sviðum. Cameron leit til hans. Hann svaraði ekki að bragði, heldur horfði á King. — Þú hlýtur að vera snarvitlaus, sagði han. — Ég gæti sko skotið þennan hundingja sjálfur, ef ég slyppi frá þvf. Hættu að röfla þetta Eddi. Við verðum að afmá hann af yfirborði jarðar. Og við skulum fá eitt á hreint. Þegar þessi maður okkar hefur unnið verk sitt þá fær hann peningana og skilríkin, ekki satt. — Því hefur verið lofað, sagði King. — Eg hef aftur á móti verið að hugsa um eitt, sagði Huntley. — Ef við komum honum ekki úr landi — ef við gerum ráð fyrir að lögreglan næði honum? Engin svipbrigði sáust á andliti Kings. — Það væri vægast sagt afleitt fyrir okkur, sagði hann. — Ég hef einnig leitt hugann að þessu. Ég er ekki viss um okkur gangi vel að koma honum úr landi. — Þá verður þú að fá einhvern til að koma honum fyrir kattarnef sagði Huntley. — Það verður að ganga frá þvf strax og hann hefur skotið Jackson. Láttu einhvern senda honum kúlu. — Ef þér finnst það rétta leiðin, sagði King, — þá verð ég að játa ég yrði mun rólegri. Þú vilt ég sjái um það, vænti ég? — Þú hefur séð um þetta hing- að til, sagði Huntley. — Þú hefur skipujagt þetta fram að þessu og þú lætur mig bara hafa reikning- inn. Nú skulum við koma niður. Mig langar til að hitta Elisabeth. King hikaði andartak. — Ég kem eftir smástund, sagði hann. — Ég verð ekki nokkra stund. Hann fór upp f herbergið sitt. Það var engin sérstök ástæða til þess að hann vildi ekki verða Huntley samferða niður. Honum fannst aðeins að hann þyrfti að vera einn stundarkorn og óska sjálfum sér til hamingju með hversu allt virt- ist ætla að ganga ljúflega fyrir sig. King gekk að stóra veggspeglin- um og hagræddi þykku hárinu. Edward Francis King. Hann hafði aldrei séð hinn rétta King. Mynd- irnar sem höfðu verið teknar af honum, eftir að Gestapo hafði handtekið hann, höfðu sýnt mag- urt og toginleitt andlit, og star- andi augu, eins og einkennandi var hjá þeim föngum sem voru f búðum nasista. Hann mundi eftir þessum starandi augum, fullum af ótta. Edward Francis King hafði dáið, áður en Rússar tóku búðirnar. Af honum var ekkert annað en mappa með mynd af honum og helztu upplýsingum og handfylli af ösku. Þessar upplýs- ingar fóru rakleitt í skjalasafn KGB-rússnesku leynilögreglunn- ar. Sfðar höfðu þeir kosið hann til að taka á sig gervi Ameríkanans, sem hafði dáið úr taugaveiki, skömmu áður en búðirnar féllu f hendur Rússum. Þeir höfðu valið hann vegna þess að hann minnti um sumt á King og vegna þess að hann var einn efnilegasti njósnari f rússnesku öryggisþjónustunni. Það hafði tekið nær því tíu ár að þjálfa hann og búa hann undir að fara til Bandaríkjanna sem Edward King, en þar sem verkið var mikið sem hann átti að vinna var Moskvudeildin þolinmóð. King hafði lært að hugsa, tala, ganga og bregðast við eins og Am- erfkani, ef eitthvað brá út af mátti alltaf skýra það með fanga- búðadvöl hans og að hann hafði búið svo lengi í Frakklandi. Hann hafði búið í þrjú af þessum tíu árum í París og verið þar í hlut- verki Eddi King, og komið sér í samband við ,,Ianda“ sfna þar til að kanna, hversu vel honum gengi f þjálfuninni. Loks hafði hann verið tilbúinn að halda til Bandarfkjanna og KGB var reiðu- búin að fjármagna það mikla verk sem honum var ætlað að vinna. Mánaðarritið hans var ekkert annað en yfirskin og þar gátu Sovétmenn lesið milli lfnanna og fengið mikilvægar upplýsingar um gang mála í innri hringunum í Bandaríkjunum. Hann hafði ver- ið laginn að koma sér f kynni við VELVAKANDI Velvakandi svarar I slma 10-100 kl. 1 0.30 — 11.30, frá mánudeg; til föstudags 0 Áríðandi v erindi Helgi Vigfússon skrifar: Islendingar austan hafs og vest- an standa í þakkarskuld við útgef- endur Lögbers & Heimskringlu, sem langt hafa þann grundvöll að nú i nærri 90 ár, hefir íslenzkt blað verið gefið út i Winnipeg. landi að islenzkt blað komi út i heila öld í Winnipeg. Utgefend- ur Lögbers & Heimskringlu og ritstjórar allt frá fyrstu tíð, hafa unnið afrek, er aflað hefir blað- inu orðstírs í sögu Islendinga austan hafs og vestan sem seint mun fyrnarst yfir. Islendingar! Gætu fyrirtæki og einstaklingar hér heima ekki látið blaðið njóta auglýsinga og áskrifta? Umboðsmenn blaðsins hér eru þeir Haraldur J. Hamar og Heim- ir Hannesson. Helgi Vigfússon.“ % Njarðar- stöðin Magnús Þorgeirsson skrifar: „I viðtali við Velvakanda fyrir skömmu varð mér á að segja Njarðarstöðina uppi f Mjölnis- holti. Það, sem ruglaði mig var, að Njarðar-félagið hafði einhverja aðstöðu f Mjölnisstöðinni áður en Njarðarstöðin var byggð. Hið rétta er, að Njarðarstöðin var þar sem nú er Ahaldahús Reykjavikurborgar, ofan við Höfðavfk. Húsin standa þar enn, og þar er nú athafnasvæði Reykjavikurborgar. Hafa skal það, sem sannara reynist. Með kærri kveðju. Magnús Þorgeirsson." Við þökkum Magnúsi fyrir til- skrifið. Margir hafa orðið til þess að hafa samband við okkur vegna þessara skrifa um Njarðarstöðina, Norðurpólinn og Vatnsþróna. Gömul vinkona okkar kom til okkar með almanak Kassagerðar Reykjavíkur 1974. Þar er þetta málverk, sem hér birtist mynd af, en málarinn er Eggert Guð- mundsson. Hér má sjá bæði Vatnsþróna og Norðurpólinn. Búast mætti við að fleiri áskrif- endur væru að blaðinu hér á Is landi en raun ber vitni. Ekki er víst að öllum almenn- ingi núlifandi kynslóðar sé ljóst hve mikil þakkarskuld okkar Is- lendinga er við blaðið. Til þess nú lítilsháttar að bæta úr hinum þrönga fjárhag blaðsins, en það berst nú i bökkum, sendi ég frá | mér þessar fáu línur, ekki af þvf, að ég telji mig öðrum færari til þess, heldur af því, að þeir sem færastir eru, hafa látið það ógert. Utkoma Lögbergs & Heims- kringlu er að sönnu stórviðburða rík fyrir fslenzka þjóðarbrotið vestan hafs. Það ætti ekki síður að vera metnaðarmál hér á Is- 9 Handföng í lyftur G.K., sem búsett er á Hofteig hringdi. Hana langaði til að koma því á framfæri við húsráðendur þar sem lyftur eru, að sem víðast verði sett handföng eða stengur f lyfturnar. Hún sagðist sjálf vera komin á fullorðinsár, og ætti hún vanda til að fá svima, — ekki sfzt f lyftum, og vissi hún til að svo væri með fleira roskið fólk. Því væri til mikilla bóta þegar hand föng eða stengur til að halda sér f væru í lyftunum, en því miður hefði ekki verið hugsað fyrir þessu nema sums staðar. & sigga v/gga í ‘íiiv mm viú á vm^)o% AWOH GftflLtGA W\Á VElomYl o& wv VÓ mwr Aö VVYK)A VÁ vmww vér m'i Páll V. Daníels- son skrifar frá Hafnarfirði , ; 1 •J'>.■ Á bíllinn að sigra manninn? Við og við er frá þvf skýrt, að fyrirhugað sé að breyta skrásetn- ingarkerfi bifreiða. Og þá hefur jafnan verið uppi sú hugmynd, að biliinn skuli eiga númerið allan sinn aldur en maðurinn þurfti að þoka um set. Hér kemur fram hinn litilsgildi og aumkunarverði hugsunarhátt- ur að aldrei sé hægt að leggjast nógu lágt til að skríða fyrir kerf- inu og jafnvel til þess ætlast, að menn smeygi á sig helsinu sjálfir þegjandi og hljóðalaust. Við heyrum nær daglega frá því skýrt, að slys á fólki, búpeningi og eignum hafi orðið í umferðinni. Við teljum, að úr þessu þurfi að bæta, en stöndum ráðþrota á meðan fjöldi manns hlýtur dauða eða ævilangt örkuml í umferðar- slysum. Ég er ekki í neinum vafa um það, að sú fyrirhugaða breyt- ing, sem áður er minnst á í sam- bandi við skrásetningu bifreiða, á eftir, ef á kemst, að auka mjög á óhöpp í umferðinni. Þetta þykja e.t.v. furðulegar kenningar en lít- um nánar á málið. Það hefur verið talið nauðsyn- legt að vera i góðu skapi, brosa i umferðinni. Þá gangi allt betur. Þetta er rétt. Umferðaróhöppin eru sennilega miklu meira af sál- rænum toga spunnin en fólk gerir sér grein fyrir. Og þarna kemur einmitt að einum megin kjarnan- um í sambandi við númerin. Við erum ekkert gataspjald í tölvu. Við erum menn. Við erum með okkar trú og hjátrú. Víð eig- um okkur tölur og teljum sumar þeirra hafa höpp í för með sér, aðrar óhöpp. Við eigum líka tölur, sem okkur þykir vænt um og vilj- um ekki missa. Og þar eru bif- reiðanúmerin engin undantekn- ing, nema siður sé. Að ræna fólk númerum, sem það hefur haft alla tíð og jafnvel gengið í ættir, getur orðið vafasamt. Þvi ekki mun það algengt, að bifreiðin sé í eigu sama aðila á meðan hún endist. Gaman gæti verið að athuga það, hvort bifreiðar með skrásetn- ingarnúmerum, sem lengi eru búin að vera í eigu sama manns eða fjölskyldu, hafi valdið eins miklum óhöppum f umferðinni og númer, sem alltaf eru að skipta um eigendur. Ég er þeirrar skoð- unar, að bifreið sé alla jafna und- ir ábyrgari stjórn, þegar fjöldi fólks þekkir það, hver á bifreið- ina. Það er lögð rikari áherzla á, þegar ungmenni fá slíka bifreið að láni, að þau sýni ekki ógætni í akstri. Ábyrgðartilfinningin verð- ur rikari. „Þar sem enginn þekkir mann þar er gott að vera,“ er sagt og sama á við i umferðinni, þegar enginn þekkir bifreiðina, þegar enginn á númer hennar, nema hún sjálf, þá er stjórnandi hennar í skjóli þess að vera ekki þekktur og ábyrgðarleysið eykst. Ég held, að skynsamlegra væri, að maður- inn fengi ákveðið skrásetningar- númer á bifreið sína og hann væri I Framhald á bls. 19.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.