Morgunblaðið - 30.10.1974, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 30.10.1974, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÖBER 1974 11 inum fengið að njóta sín. Auð- vitað sagði hann frá því sem hann sá, þá ungur drengur, en hann var bæði barinn og atyrtur fyrir, og fólkið sagði að hann væri hræði- lega ósannsögull. Andrés bjó að þessari meðferð alla ævi. Þú hafðir enga slíka sögu að segja frá þínum æskuár- um. Þú varst svo heppinn að eiga móður sem skildi þetta, og fleiri voru þeir, sem hlustuðu á þig og trúðu þér þótt ekki væru það nærri allir. Spíritisminn var lítið á veg kominn á þínum æskuárum hér á Islandi. Aðeins nokkrir menn sem mynduðu fámennan flokk. Foringjarnir voru afburða- menn þeir Einar Kvaran rit- höfundur og séra Haraldur Níels- son prófessor — einhver færasti prestur sem ísland hefur átt í prestastétt og ræðustóli. Nú var Andrés Böðvarsson lát- inn, en þann tíma sem hann hafði dvalist á heimili okkar hjóna sagði hann okkur marga atburði sem gerst höfðu fyrir mitt minni, en ég kannaðist ekki við. Þeir reyndust þó réttir, er leitað var til mér eldri manna. Nú þurfti ég að leita frétta til framliðinna. Ég var orðin þess vör að þeir fylgdust með öllu sem gerðist á heimili okkar hjóna. Nú þekkti ég engan miðil. En eftir kynni mín við Andrés var leit mln að framlífi hafin. Ég hafði heyrt þitt nafn nefnt af sumum með lítilli virðingu, af öðrum með aðdáun. Ég einsetti mér að halda leit- inni áfram, og árangurinn varð sem fyrr er getið. Fundurinn var haldinn I stofu frú Lilju. Ég var eini fundargest- urinn, og var frú Lilja sitjari. Við vorum því aðeins þrjú þarna. Þó reyndist næg orka vera til staðar. Þú féllst fljótt I dásvefn, og annarlegar raddir töluóu af vör- um þínum — raddir sem ég hafði aldrei heyrt áður — og þó ég kannaðist ekki við þær þá, varð mér ljóst að þeir könnuðust við mig og mitt heimili. Hafði þó mið- illinn aldrei komið til okkar hjóna. Þetta var í fyrsta sinn er fund- um okkar bar saman. Eftir að beðin var bæn, tóku raddir að tala gegnum miðilinn, þær voru ólíkar þeim röddum sem töluðu gegn um Andrés, sem nú var dáinn. — Eg þekkti þó eina röddina, það var rödd sr. Jóns heitins Magnússonar. Hann var vinur okkar hjóna og dvaldi eitt sumar hjá okkur á Mosfelli. Ég fann strax að hann vissi I hvaða erindum ég var. Án þess ég spyrði, svaraði hann spurningum mínum. Það kom svö margt fram á þess- um eina fundi að honum gleymi ég aldrei. Geta skal þess, að allt sem hann sagði mérgekk eftir. Til gamans vil ég geta þess hvað ég var látin greiða fyrir þennan einkafund. Sjö krónur, kvað frú Lilja að gjaldið væri. Ég vildi greiða meira, en það var ekki við það komandi. Nú var kynning okkar hafin. Mér var ljóst á þess- um eina fundi, að þú varst sterk- ur transmiðill. Loks varð kynning okkar það náin, að ég skrifaði um atburði sem höfðu gerst hjá þér; það urðu tvær bækur. Ég varð hissa er mér barst bréf frá vísindastofnun I Ameríku. Það voru lagðar fyrir mig margar spurningar um miðilinn, og svo hvernig ég hefði unnið bækurnar. Vænt þykir mér um, að það var eingöngu vegna þessara bóka að þér hefur verið boðið vestur um haf þrisvar sinnum. Ummæli dr. Erlends Haraldssonar um þig sem miðil voru þessi: „Hann er einhver mesti skyggnilýsingamiðillinn sem ég hefi kynnst." En, það var mest og best tveim mönnum að þakka að þú ert orð- inn mesti miðillinn sem við höf- um átt á Islandi. Sá fyrri var Einar Kvaran, sem æfði þig I transfundum. Eftir lát hans tók útvarpsstjóri Jónas Þorbergsson þig að sér. Það var fyrir hans atbeina að þú fórst að halda skyggnilýsingafundi, þér nauð- ugt, þú ert feiminn að upplagi, og mjög hlédrægur. A fyrsta skyggnilýsingafundi sem þú hélst með Jónasi, varstu ófáanlegur til að snúa þér fram. Þú snerir hnakkanum I fólkið. Sást ekki I andlit þess, þrátt fyrir það tókst fundurinn vel, — og nú lýsa þeir því yfir, hálærðir vísindamenn að þú sért einhver besti skyggni- lýsingamiðill sem þeir hafi hitt. Þetta er mikils virði fyrir land og þjóð. Við megum vera guði þakklát fyrir að gefa okkur þig, — þú hefur svo sannarlega sefað sorgir margra, og veitt mörgum trúna sem efast hafa um framlif. Ég var þá dálitið inni í starfinu er skyggnilýsingar hófust. Jafnvel það mætti andúð sumra, sem voru þó spíritistar eða kölluðu sig það. Einar Kvaran var þá látinn. Hann hefði óefað gert sér grein fyrir hvað hér var að gerast. Þetta var bein kynningarstarfsemi fyrir spíritismann. Uti á landi kom brátt að þvi að húsin rúmuðu ekki fundargesti. Við megum sannarlega vera Kvar- an og Jónasi þakklát fyrir þann mikla stuðning er þeir veittu miðlinum, og þá megum við, ekki hvað síst þakka dr. Erlendi, sem kom þessu öllu á framfæri. Þú ert laus við fátæktina, lítilsvirðing- una og rengingarnar, — þúsundir manna munu minnast þín I dag með þakklátum huga. Atvikin eru stundum undraverð. — Fyrir mörgum árum fer af stað kona á Islandi í leit að framlíf\, Henni dettur i hug, að fróðlegt væri að skrifa atvik sem borið hafa við á transfundum hjá þér, annars gleymist þetta og týnist. Seinna mátti þetta ekki vera svo að vist væri að rétt væri með farið. Ég er ekki viss um, að öllum hafi þótt þetta þörf vinna; aðrir voru þakklátir. Mörgum árum síðar gerist það á visindastofnun í Ameríku að Is- lendingur sem numið hefur dulsálarfræði, og nú er orðinn doktor í þeim fræðum, rekst á þessar tvær bækur sem íslenska konan skrifaði um þig. Hann þýð- ir meira að segja kafla og kafla fyrir félaga sina, sem allir eru hálærðir menn, ýmist doktorar eða prófessorar í dulfræðum. Þetta verður til þess, að þeir fá áhuga á að kynnast þér, og senda dr. Erlend upp til íslands í því skyni. Þú hefur ekki brugðist vonum þeirra. Við hjónin þökkum þér allt sem þú hefur gert fyrir okkur. Okkur varð andlegur ávinning- ur að kynnast þér og starfi þínu. Elfnborg Lárusdóttir. Keflavík — Verzlun Til sölu 140 fm verzlunarhúsnæði við Hafnar- stræti. Allt á jarðhæð. Á efri hæð er vönduð 6 herb. íbúð sem má breyta í verzlunarhúsnæði að hluta og litla íbúð ef óskað er. Gott einbýlis- hús eða sérhæð getut komið sem greiðsla upp í kaupverð. Fasteignasala Vilhjálms og Guðfinns, Vatnsnesvegi 20, Keflavík, símar 1 263 — 2890. Glugga- og dyraþéttingar Þéttum opnanlega glugga. Úti- og svalahurðir, með Slottslisten innfræstum varanlegum þétti- listum. Ólfur Kr. Siguðrsson og Co., Suðurlandsbraut 6, Sfmi 83215 og 38709. Skipin hafa selt fyrir tæpan milljarð króna ÍSLENZKU sildveiðiskipin I Norðursjó seldu alls 38 sinnum í Danmörku í s.l. viku. Alls seldu skipin 2.489 lestir af síld fyrir 82,2 millj. kr. Meðalverðið f vik- unni var kr. 33,06. Frá þvf að veiðarnar hófust f vor hafa skipin selt alls 34.100 lestir af sfld fyrir 975,7 miilj. kr. og meðalverð fyrir hvert kg er kr. 28,61. Hæsta meðalverð vikunnar fékk Dagfari ÞII,kr. 40,40, en skipið seldi 48,1 lest fyrir 1,9 millj. kr. Rauðsey AK var hinsvegar með hæstu heildarsöluna, seldi 112,8 lestir fyrir 3,8 millj. kr. Á sama tfma f fyrra höfðu skipin selt 40.263 lestir fyrir 1 milljarð rúmlega. Þá var meðal- verðið kr. 24,88. Loftur Baldvinsson EA er sem fyrr söluhæsta skipið. Það hefur nú selt 2.191 lest fyrir 60,5 millj. kr. og meðalverð fyrir hvert kg er kr. 27,62. Guðmundur RE er í öðru sæti, hefur selt 1.963 lestir fyrir 55,8 millj. kr. Meðalverð er kr. 28,43. Þá kemur Gísli Árni RE, sem hefur selt 1.422 lestir fyrir 41,6 millj. kr. Meðalverðið er kr. 29,29. I gær seldu 4 skip í Danmörku samtals 104 lestir fyrir 2,3 millj. kr. Nokkur hluti aflans fór til bræðslu, en fyrir þá sild, sem fór til vinnslu, fengust að meðaltali kr. 33 pr. kg. Skipin, sem seldu þá, voru: Loftur Baldvinsson fyrir 600 þús. kr., Þórður Jónas- son EA fyrir 400 þús. kr., Hrafn Sveinbjarnarson GK fyrir 900 þús. kr. og Magnús NK fyrir 300 þús. kr. Rocky lánaði $507.656 Washington, 28. okt. AP. NELSON („Rocky") Rockefeller, sem hefur verið tilnefndur vara- forseti, sagði f dag, að hann hefði lánað vinum sfnum, samstarfs- mönnum f viðskiptaheiminum og ættingjum 507.656 dollara á und- anförnum 17 árum. Rockefeller skýrði frá þessu I bréfum til Howard W. Cannon, formanns nefndar öldungadeild- arinnar, er f jallar um útnefningu hans, og Peter W. Rodino, for- manns dómsmálanefndar full- trúadeildarinnar. Sá einstaklingur, sem hann hefur lánað mest, er Robert Anderson, sem var fjármálaráö- herra i stjórn Eisenhowers og Rockefeller kallar gamlan vin sinn. Samkvæmt listanum fékk Anderson 60.000 dollara lán 2. jan. 1957 og annað 24.000 dollara lán 1. apríl 1957. Bæði lánin voru greidd að fullu 6. júni 1957, tæp- um tveimur mánuðum áður en Anderson varð fjármálaráðherra. Vitni vantar 24. OKT. sl. var ekið á rauða Mazda-bifreið þar sem hún stóð við Mazdaumboðið á Hverfisgötu. Vinstra afturbretti var mikið dældað og rispað. Atburður þessi mun hafa gerzt um klukkan 16,30, og tjónvaldurinn stakk af. Þeir, sem einhverjar upplýsingar geta gefið, eru beðnir að snúa sér til rannsóknarlögreglunnar. INIY SENDING Sokkabuxur Stærdir I, Il# III, IV, V Fyrirliggjandi í mörgum tískulitum Heildsölubirgðir: Davíð S. Jónsson & Co. slmi 24-333 hf. GHeÓile AUGLYSIIMGATEIKNISTOFA MYNDAMÓTA Adalstræti 6 sími 25810 á nýjan og skemmtilegan hátt Gleðjið vini og ættingja með persónulegu jólakorti. Sendið litmyndir eftir yðar eigin filmum af fjölskyldunni, börnun- um eða úr sumarleyfinu í LITMYNDA-JÓLAKORTINU frá Myndiðjunni. Pantanirog nánari upplýsingar: MYNDIÐJAN ÁSTÞÓR HF Suðurlandsbraut 20, sími 82733,Pósthólf 1104, J

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.