Morgunblaðið - 30.10.1974, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 1974
7
Brezhnev
Eftir
Victor Zorza
Jakinn bráðnar
— sovézk hláka
SAMKOMULAG Bandaríkja-
manna og Rússa um að
sleppa 60.000 rússneskum
Gyðingum á ári er aðeins sá
hluti ísjakans sem er sýni-
legur. Með því að fallast á
skilyrði samningsins hafa
valdhafarnir í Kreml gengið
að skilmálum, sem ýmsir
talsmenn þeirra hafa for-
dæmt hvað eftir annað á
þeirri forsendu, að þeir jafn-
gildi óviðunandi afskiptum af
sovézkum innanlandsmálum.
Annaðhvort hafa mótbárur
þeirra einungis verið samn-
ingaaðferð eða þeir hafa
verið kveðnir í kútinn. Af
hálfu eins hluta sovézka
skriffinnskukerfisins voru
mótbárurnar vissulega ekki
samningaaðferð. KGB hefur
með öllu sínu geysivíðtæka
kerfi, sem seilist inn á öll svið
sovézka ríkisins, og sökum
þeirra hagsmuna sinna að
viðhalda stalínistisku eftirliti
með lífi fólks í Sovétríkjunum
beitt öllum tiltækum ráðum
til þess að torvelda frjálsa
fólksflutninga úrlandi. Leyni-
lögreglan KGB hefur vissu-
lega verið kveðin í kútinn —
en ekki KGB eingöngu.
Listamennirnir í Moskvu
sem héldu stíft fram rétti sín-
um til þess að halda sýningu
á nútíma listaverkum og voru
barðir niður með grimmd af
óþokkum lögreglunnar, sem
notaði jarðýtur til þess að
ryðja málverkunum í burtu,
eru fulltrúar hins „frjáls-
lynda" arms sovézka sam-
félagsins. Þeir sem gáfu
lögreglunni skipun um að
láta til skarar skríða voru full-
trúar hins íhaldssama arms
flokkskerfisins í líki B.N.
Chaplins, flokksritarans í
Cheremushki-hverfi í
Moskvu.
Hægt er að halda því fram,
þótt það sé ósennilegt, að
Chaplin hafi gefið þessar
skipanir án þess að ráðfæra
sig við æðstu embættismenn
flokksins, sem bera ábyrgð á
hugsjónafræðilegum hrein-
leika í sovézku samfélagi.
Hitt er víst að ákvörðunina
um að víkja Chaplin úr emb
ætti sínu þegar listamönn-
unum hafði verið veitt opin-
bert leyfi til þess að halda
sýningu sína á nútíma lista-
verkum var aðeins hægt að
taka á æðstu stöðum í flokkn-
um.
Þetta þýðir að flokksritar-
inn, Leonid Brezhnev, hlýtur
sjálfur að hafa látið til skarar
skríða gegn Chaplin. Þó
hafði þessi sami Chaplin skír-
skotað til valds Brezhnevs að-
eins örfáum mánuðum áður
til þess að fordæma í Komm-
unist, helzta riti flokksins, þá
sem eru nógu afvegaleiddir
til þess að vilja breytingar í
átt til „frjálsræðis" og „lýð-
ræðis". Chaplin var enginn
smákarl. í hverfinusem hann
réð í Moskvu, er safnað
saman á einn stað meiri
vtsindaþekkingu en á nokkr-
um öðrum stað í Sovétríkjun-
um — 60 af helztu vísinda-
stofnunum landsins með alls
60.000 manns á launaskrá
hafa þar aðsetur.
Eins og grein hans sýndi
Ijóslega vildi hann að vísinda-
mennirnir sem hann hafði
pólitíska umsjón með yrðu
settir undir strangara hug-
sjónafræðilegt eftirlit. Hann
tilheyrði augljóslega þeim
valdahópi í Kreml er óttast að
ef vísindamönnum og lista-
mönnum verði veitt það
frelsi, sem þeir krefjast, verði
grafið undan valdaeinokun
flokksins.
Síðan Stalín lézt fyrir rúm-
um tuttugu árum hafa slíkir
straumar öðru hverju gert
vart við sig en síðan smám
saman horfið þegar íhalds-
menn innanlands eða erfið-
leikar erlendis hafa fengið
Kremlherrana til þess að
setja nýjar hömlur á frelsi
innanlands. Þessari óreglu-
lega þróun hafa alltaf fylgt
tilraunir til þess að endur-
meta hlutverk Stalíns sjálfs.
Hann var táknið sem Nikita
Krúsjeff reyndi að rífa niður
til þess að leyfa frjálsræðinu
að þróast.
Nú er orustan aftur hafin á
þessum vígstöðvum líka. í
grein í Komsomolskaya
Pravda, æskulýðsblaðinu,
kemur fram gagnrýni á
skáldsögu úr stríðinu þar
sem herforingjahæfileikar
Stalíns eru hafnir til skýj-
anna. Þannig hafa allar
helztu umræðurnar um
pólitískt hlutverk Stalíns og
pólitískan arf hans hafizt.
Birting greinarinnar getur
aðeins táknað að þeir sem
vilja endurvekja umræðurnar
— og áhrifin sem þær geta
haft á þróun í átt til frjáls-
ræðis og lýðræðis — telja að
tíminn sé hentugur.
Þetta eru aðeins nokkur
þeirra sólarmerkja sem hníga
í sömu átt og nýja samkomu-
lagið um að leyfa Gyðingum
að flytjast úr landi og gefa til
kynna að samningur Kremlar
og Hvíta hússins sé ekki ein-
angrað fyrirbæri. Sambandið
á milli Gyðingamálsins og
viðskipta- og lánaívilnana
þeirra sem Rússum verða
veitt liggur í augum uppi og í
þessu felst að samband er
einnig á milli þess og
Moskvuferðar dr. Kissingers.
Þegar dr. Kissinger fór til
Moskvu í marz hélt hann því
fram að hann mundi ná stór-
kostlegum árangri. En veru-
leiki stjórnmálaástandsins í
Kreml eins og álykta mátti af
könnun á sovézkum blöðum
olli því að höfundur þessarar
greinar hélt því fram að hann
ætti að búa sig undir fyrsta
ósigur sinn á vettvangi
alþjóðastjórnmála. Hinn stór-
kostlegi árangur varð ekki að
veruleika.
Sams konar athugun nú
gefur til kynna að hið póli-
tíska andrúmsloft í Kreml
hafi breytzt nógu mikið til
þess að núverandi ferð hans
geti borið árangur að því leyti
að áfram þoki í samkomu-
lagsátt f SALT-viðræðunum
og ef til vill í átt til samkomu-
lags um smá-toppfund eftir
heimsókn Fords forseta til
Japans í næsta mánuði.
Kannski er það ekki tilviljun
að Brezhnev hefur gert ráð-
stafanir til þess að heim-
sækja Ytri-Mongólíu skömmu
eftir að Ford heimsækir
Japan. Þeir gætu kannski
rekizt hvor á annan einhvers
staðar í Austurlöndum fjær.
Unglingspiltur óskast i sveit 14—15 ára. Upp- lýsingar i sima 42133. Til sölu er á sama stað Sérvis þvottavél. Eldri gerð. Verð 4500.—. Kona óskast Kona óskast á prjónastofu hálfan eða allan daginn. Uppl. i sima 10536.
Til sölu Bronco árg. '73 8 cyl. með vökva- stýri. Skipti möguleg á ódýrari bil. Upplýsingar i síma 37831 eftir kl. 1 9.30 á kvöldin. R afstöð 15 kw til sölu. Upplýsingar i simum 99- 1399 og 99-1215.
Jólaföndur fyrir 4ra—6 ára frá 1. nóv. — 1 5. des. Elín Jónasdóttir, Miklu- braut 86, simi 10314. Sambyggð trésmiðavél. hjólsög, hefilbekkur og fleira til sölu. Upplýsingar i síma 99-1 399 og 99-1 21 5.
Óskum eftir afgreiðslu- stúlku á aldrinum 25—35 ára. Þarf að hafa áhuga fyrir listmunum. Tilboð sendist Mbl. merkt: „4453". Hafnarfjörður Til leigu 2ja herb. ibúð i fjölbýlis- húsi við Álfaskeið. Tilboð sendist i pósthólf 234 Hafnarfirði.
Brúðarkjólar Tveir mjög glæsilegir brúðarkjólar til sölu. Einnig tveir stuttir síð- degiskjólar. nr. 36—40. Upplýs- ingar á saumastofu Gróu Guðna- dóttir sími 101 16. Stúlka með barn óskar eftir ráðskonustöðu á fá- mennu heimili í Reykjavik. Uppl. í síma 52291 milli kl. 8 —10 á kvöldin.
Oldsmobile — Toranado Til sölu er Oldsmobil árg. '68 i toppstandi með framhjóladrifi, út- varpi og sérbyggðu 8 rása stereo- tæki. Selst gegn 3ja til 5 ára skuldabréfi. Uppl. í síma 84244 —- 8501 5. Innréttingasmíði Smiðum eldhúsinnréttingar, klæðaskápa ofl. Tilboð eða tíma- vinna. Fljót og góð afgreiðsla. Uppl. i smiðastofunni Hringbraut 41 á daginn og i síma 16517 á kvöldin.
Til sölu ný, glæsileg 4ra herb. ibúð í fjöl- býlishúsi. Sérherb. i kjallara fylgir. Fasteignasala Vilhjálms og Guð- finns, Vatnsnesvegi 20, simar 1263 og 2890. Til sölu Bolinder Munter bátavél 65 hesta. upp. i sima 81 64 Stykkishólmi.
Frimerkjasafnarar Sel islenzk frimerki og FCD-útgáfur á lágu verði. Einnig ertend frimerki og heil söfn. Jón H. Magnússon, pósthólf 337, Reykjavik. Hálfir grisaskrokkar Nýslátraðir grísaskrokkar, skorið, hakkað og merkt eftir óskum kaup- anda. 488 kr. kg. Kjötmiðstöðin Laugalæk, simi 35020.
Ný grind í rússajeppa Gas 69 til sölu. Upp- lýsingar í síma 6727, Hellissandi, á kvöldin. Hálfir nautaskrokkar úrvals nautakjöt i hálfum skrokk- um tilbúið i frystikistuna. 397 kr. k9- . Kjötmiðstöðin, simi 35020.
Mussur, dömuskyrtu- blússur, herraskyrtur seldar beint af lager til verzlana. Þekktur framl. Tilb. merkt: „3577", sendist Herming Annonce, Reklame Bureau, Brek- gadi 1 5, DK 7400 Hern g, Dan- mark, Keflavík til sölu fokheldar 3ja herb. ibúðir, múrhúðaðar að utan. Hagstæðir greiðsluskilmálar. Fasteignasala Vilhjálms og Guð- finns, Vatnsnesvegi 20, simar 1263 — 2890.
Tvinninn
sem má treysta.
Hentar fyrir allar gerðir efna.
Sterkur — lipur.
Óvenju mikið litaúrval.
DRIMA — fyrir öll efni
Heildsölubirgðir:
Davíð S. Jónsson
&Coh.f.