Morgunblaðið - 30.10.1974, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 1974
Freysteinn Þor-
bergsson —Kveðja
Freysteinn Þorbergsson er fall-
inn frá, langt fyrir aldur fram.
Þekktastur var Freysteinn sem
skákmaður, en hann var um ára-
bil einn sterkasti skákmaður ís-
lendinga. Hann varð Islands-
meistari í skák árið 1960, en hæst
bar hann í íþróttínni,- er hann
varð Norðurlandameistari í .Osló
1965. Þá var árangur hans í
alþjóðlega Reykjavíkurmótinu
1968 frábær, en þar gerði hann
jafntefli við 5 stórmeistara. Frey-
steinn keppti oft á erlendri grund
fyrir Islands hönd, m.a. í
Olympíumótum og sat þá gjarnan
þing FIDE fyrir hönd Skáksam-
bands Islands.
Ritstörf voru Freysteini Þor-
bergssyni mjög hugleikin og
skrifaði hann margar greinar í
blöð og tímarit um hin ólíkustu
efni. Allar bera þær vitni um rit-
leikni Freysteins og hreinskilni
og þar fór hann ekki alltaf troðn-
ar slóðir, en hirti mest um að bera
þvi vitni, sem hann áleit sannast
og réttast.
Freysteinn mun oft hafa þráð
að geta helgað sig ritstörfum og er
hann lézt átti hann í smfðum
stærsta verkefni sitt á því sviði,
bók um heimsmeistaraeinvígið á
Elskuleg fósturmóðir mín,
SIGNÝ ÓLAFSDÓTTIR,
Njarðargötu 9,
lést að morgni 29. október í Borgarspítalanum.
Fyrir hönd aðstandenda,
Kristín Pétursdóttir.
Sonur minn, faðir, fósturfaðir og tengdafaðir,
HÖRÐUR HJÁLMARSSON,
Dunhaga 18,
lézt að heimili sínu 28.10. '74.
Hjálmar Þorsteinsson,
Inga Harðardóttir, Sigfús Þorgrfmsson,
Annabella Harðardóttir, Guðbrandur Hannesson,
Sveinbjörn Björnsson,
Anna Hjálmdís Gfsladóttir.
t
Móðir okkar,
GUÐRÚN ÓLAFSDÓTTIR,
Bergþórugötu 1 5 A,
lézt að heimili sinu mánudaginn 28. október
Þórey Guðmundsdóttir,
Sigurjóna Guðmundsdóttir.
Guðrún Guðmundsdóttir.
t
Eiginmaður minn og faðir okkar
FREYSTEINN ÞORBERGSSON
Óldutúni 18, Hafnarfirði
verður jarðsunginn frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði miðvikudaginn 30.
október kl. 2 síðdegis.
Edda Þráinsdóttir
og dætur.
t
Einlaegar þakkir fyrir samúð og vináttu við andlát og útför
REGÍNAR ÞÓRÐARDÓTTUR,
og virðingu sýnda minningu hennar
Bjarni Bjarnason,
Edda Bjarnadóttir, Hörður Ólafsson,
Kolbrún Bjarnadóttir, Sigurður Jónsson
og barnaböm.
t
Faðir okkar,
MAGNÚS SIGURÐSSON,
fyrrverandi skólastjóri,
sem andaðist þriðjudaginn 22 þ m. verður jarðsunginn frá Háteigs-
kirkju, fimmtudaginn 31. október kl. 1 3.30.
Jarðsett verður sama dag að Lágafelli.
Blóm vinsamlega afþökkuð, en þeim, sem vildu minnast hins látna er
bent á Hjálparsjóð æskufólks
Fyrir hönd vandamanna,
Bömin.
Islandi. Hann hafði m.a. lokið
kaflanum um Fischer, en hann
dáði Freysteinn mest allra snill-
inga. I Fischer fann Freysteinn
baráttumann — hugsjónamann-
inn, sem setti markið hátt og lagði
allt í sölurnar fyrir.
Freysteinn lenti oft í erfiðum
stöðum á skákborði lífsins, en
hann missti aldrei sjónar á því
lokamarki skákmannsins að eiga
sjálfur mátleikinn.
Skákmenn þakka Freysteini
góðar minningar frá fjölmörgum
skákmótum og senda sérstaklega
konu hans ,og börnum, sem um
sárast eiga að binda, dýpstu sam-
úðarkveðjur. Minningin um góð-
an dreng léttir þeim söknuðinn.
Stjórn Skáksambands tslands.
Guðrún Steindórs-
dóttir - Minningarorð
F. 25. júlí 1914
D. 22. október 1974
Foreldrar hennar voru Guðrún
Sigurðardóttir og Steindór A.
Ólafsson, trésmíðameistari, sem
bjuggu lengi að Freyjugötu 5 1
Reykjavík.
Guðrún var fimmta barn í átta
systkina hópi. Hún dvaldist í for-
eldrahúsum lengst af á meðan
þau lifðu, og var hún stoð, og
stytta foreldra sinna í ellinni.
Eftir lát þeirra dreifðist heimilið.
Síðar á ævinni kynntist hún
eftirlifandi manni sínum, Leifi
Ólafssyni prentmyndasmið, og
Kveðiuorð:
Séra Albert E.
Kristjánsson
Avallt er áhættusamt að skrifa
um afburðamenn, svo söguhetjan
verði ekki í augum lesandans
minni en hún stóð þeim er skrifar
fyrir hugskotssjónum. Mér þætti
vitanlega miður farið ef hér yrði
sú raunin á. Getan reynist oft
minni en góður vilji til að vanda
sitt verk, en samt vil ég ekki láta
undir höfuð leggjast, að senda
þessar línur frá mér.
Látinn er í Blaine, Washington-
fylki, Bandaríkjunum 97 ára að
aldri séra Albert Kristjánsson. Á
sinni löngu prestsskapartíð, vígð-
ist 1910, hefir hann krýnt nafn
sitt þeim heiðri, að það mun seint
ef nokkru sinni Vestur-lslending-
um úr minni liða. Því miður er
mér mjög litið kunnugt um upp-
vaxtarár Alberts Kristjánssonar.
Hann er Þingeyingur að ætt og
uppruna, fæddur þar að Ytri-
Tungu á Tjörnesi 17. apr. 1877. Á
tólfta ári flytur hann með foreldr-
um sínum til Nýja-lslands, átti
þar heimili í átján ár. Lauk
embættisprófi í guðfræði árið
1910. Þjónandi Grunnavatnssöfn-
uði 1910 — 1928, auk Gimli um
tveggja ára skeið, en fluttist
vestur að Kyrrahafsströnd og
settist að í Blaine. Utan sins
verkahrings I kirkjunni gaf hann
sig að barnakennslu. Hafði brenn-
andi áhuga á stjórnmálum og sat
á þingi fyrir Manitobafylki eitt
kjörtímabil.
Þjóðræknismálum sinnti hann
af alhug og var meðal stofnenda
Þjóðræknisfélags Islendinga í
Vesturheimi og forseti þess um
tímabil.
Orð fór af séra Albert sem
skylduræknum embættismanni
og sérstaklega skörulegum kenni-
manni, yfirlætislausum.
Kona hans var Anna P. Jakobs-
dóttir frá Dæli i Sæmundarhlíð í
Skagafirði, en hún andaðist 1971.
Dætrum hans og tengdasonum,
barnabörnum og öðru skylduliði
sendi ég alúðarsamúðarkveðjur.
Helgi Vigfússon.
áttu þau mjög smekklegt heimili
að Njarðargötu 33. Var ánægju-
legt að sækja þau heim.
Guðrúnu var mjög annt um
systkini sín og börn þeirra og
barnabörn, og fórnaði hún sér
mjög fyrir þau, mundi ætíð eftir
afmælisdögum og öðrum merkis-
dögum á heimilum þeirra. Sér-
stöku ástfóstri tók hún við
bróðurson sinn, Gunnar
Björgvinsson; hún annaðist hann
sem væri hann hennar eigið barn
og studdi hann að nokkru til náms
í Ameríku. Eftir að Gunnar giftist
og stofnaði sitt eigið heimili i
Luxembourg, voru það sólskins-
blettir í lífi hennar að fara
þangað á vængjum loftsins og
fylgjast með heimili þeirra og
börnum, og jafnan hugsað til
næstu samfunda á því heimili, en
nú hefur hún svifið til æðri
heima.
Móðir hennar var mjög trúuð
kona, og komu þessir eiginleikar
einnig fram hjá Guðrúnu, þótt
hún léti lítið á því bera.
Eru henni færðar þakkir fjöl-
skyldunnar og barnanna mörgu,
sem hún unni. Eiginmanni og
systkinum votta ég innilega
samúð.
Ól. J. Sveinsson.
t
Hjartfólgin móðir mín, tengdamóðir og amma,
INGIBJORG ERLINGSDÓTTIR,
EskihKð 14.
lézt í Landakotsspítala þriðjudaginn 2 9. okt. 1 974.
Erlingur Sigurðsson, Marta Magnúsdóttir,
Sigurður Erlingsson.
t Bálför
FINNS B. KRISTJÁNSSONAR,
rafverktaka.
fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 3 1. október kl. 1 3.30.
Marta Finnsdóttir, Pétur Lárusson.
Kristján Finnsson, Hildur Axelsdóttir,
Guðfinna Finnsdóttir, Gunnar S. Óskarsson,
Kristfn Finnsdóttir, Hilmar Einarsson,
ÞorleifurTh. Finnsson, Hrafnhildur Jósefsdóttir.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við fráfall,
LOVÍSU RANNVEIGAR KRISTJÁNSDÓTTUR,
frá Súgandafirði.
Sérstakar þakkir færum við læknum, hjúkrunar og starfsfólki á Sjúkra-
húsi fsafjarðar fyrir frábæra umönnun í veikindum hennar.
Börn, tengdabörn,
barnabörn og barnabarnabörn hinnar látnu.
t
Hjartans þakklæti fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför
SIGURBJÖRNS EYJÓLFSSONAR,
frá Keflavlk,
Guðlaug Jónsdóttir,
Steinunn Sigurbjörnsdóttir, Ólafur Sigurbjörnsson,
Jóhanna Sigurbjörnsdðttir, Eyjólfur Sigurbjörnsson.
Friðrik Sigurbjörnsson, Lilja Friðriksdóttir,
og aðrir aðstandendur.
Guðrún Steindórsdóttir, mág-
kona mín, var vart af barnsaldri í
foreldrahúsum, þegar ég kynntist
henni fyrst. Hún átti sinn sér-
staka persónuleika, fríðleik og
yndisþokka, sem entust henni þá
sex áratugi, sem dvöl hennar stóð
þessa heims.
Gauja, eins og hún var jafnan
kölluð, var ósérhlífin. Hún vann
verk sitt af alúð og dugnaði og lét
gott af sér leiða, hvar sem hún
kom nærri. Ég tel það mér og
mínu heimili til happs að hafa
fengið að njóta starfskrafta henn-
ar í atvinnulífinu I rúman áratug,
og nú síðast jafnvel lengur en
kraftar hennar leyfðu.
Þakkir mínar og þeirra, sem
hana þekktu, fylgja henni nú á
nýrri vegferð sinni.
Blessuð sé minning hennar.
Njáll Þórarinsson.
t
Kærar þakkir fyrir sýnda samúð
og hlýhug vegna fráfalls
GÍSLA
SÆMUNDSSONAR.
Fjölskyldurnar Birtingaholti.
t
Okkar hjartans þakkir fyrir þá
samúð sem við höfum orðið að-
njótandi f veikindum og við frá-
fall fósturmóður minnar, tengda-
dóttur og ömmu okkar,
ÞÓRUNNAR
ARNÓRU
STURLU DÓTTUR,
frá Bolungarvfk,
Jónfna Elfasdóttir,
Kristján Friðgeir Kristjánsson
og barnabörn.