Mosfellsblaðið - 01.01.2000, Blaðsíða 10
Sextíuogsex 1995.
Biggi og Kalli í myndatöku
fyrir plötu nr 2,
Sextíuogsex í sveitinni.
Plata sem aö þeir sögðu
að vœri að vissuleiti
tileinkuð Mosfellssveitinni.
skiptið sem við höfum fengið góðann
stuðning við gerð plötu. Reykjagarður
studdi okkur dyggilega við gerð beg-
gja platnanna.
Arið 1997 kom svo Gildran saman
á ný og vann að gerð plötunnar Gildr-
an í 10 ár það er tvöfalt albúm. A síð-
asta ári gáfum við svo út plötu undir
nafni Gildrumezz sem innihélt rjó-
mann af CCR dagskránni. Það er
fyrsta platan sem við gefum út með
efni eftir aðra.
Hafa farið marga hringi í
kringum landið
Frá því að fyrsta plata Gildrunnar
kom út var það hreint og beint lífs-
spursmál fyrir okkur að spila út um
allt land það var okkar eina leið til að
kynna plötumar. Við gáfum allar okk-
ar plötur út sjálfir og höfðum engin
ráð til að auglýsa þær á annan hátt.
Eitt sumarið fórurn við fjóra hringi í
kringum landið við fengum svima.
Sömu sögu má segja um Sex-
tíuogsex á árunum 1994-1996 spiluð-
um viðtæplega 400 sinnum undir því
nafni út um allt land. Sextíuogsex
varð í raun mikið vinsælli og eftir-
sóknarverðari hljómsveit en við
bjuggumst við. I Sextíuogsex störfuðu
með okkur tveir bassaleikarar þeir
Friðrik Halldórsson og Jón Olafsson
frábærir tónlistarmenn báðir tveir og
skemmtilegir félagar.
Arið 1998 stofnuðum við svo ásamt
Sigurgeiri og Mezzofortebassaleikar-
anum Jóhanni Asmundssyni hljóm-
sveitina Gildrumezz. Undir því nal'ni
höfum við farið út um allt land með
okkar vinsælu CCR dagskrá. CCR
dagskráin var ein vinsælasta tónlistar-
dagskrá ársins 1999 og önnuðum við
vart eftirspum. Eins er hljómsveitin
talsvert bókuð á nýju ári við ýmis
tækifæri árshátíðir og fl.
Af hverju öll þessi nöfn en
nánast alltaf sömu menn?
Einfaldlega vegna þess að Gildran,
Sextíuogsex og Gildmmezz hafa all-
ar fengist við svo ólík verkefni. Okk-
ur hefði fundist ósanngjamt að aug-
lýsa Gildruna og mæta svo tveir á
sviðið með kassagítar, sneriltrommu
og munnhörpu eins og við höfum ver-
ið undir nafni Sextíuogsex.
Það er hætt við að margur hefði
orðið l'yrir vonbryggðum þá. Við
hefðum komist einn hring í kringum
landið en alveg örugglega ekki ann-
an. Vendipunkturinn er þó alltaf sá að
þessar hljómsveitir em allar svo gjör-
ólíkar og hafa allar einhver sterk sér-
einkenni. Allar hafa þær náð að
skapa sér nafn í íslensku tónlistarlífi
Gildran og Uriah Heep 1988.
Myndin er tekin að loknum frábœrum
tónleikum sem að gagnrýnendur jafnt
sem áhorfendur héldu vart vatni yfir.
Gildran var klöppuð tvisvar upp það
gerist ekki oft hjá upphitunarböndum.
Greinilega kátir karlar þarna á ferð. A
milli Kalla og Bigga erMick Box einn
þekktasti rokkgítarleikari heims og við
hlið Þórhalls stendur Lee Kerslake
trommuleikarinn sem að Kalli var með
mynd af á sínu fyrsta trommusetti.
Gildran og Jethro Tull 1992.
Myndin er tekin að loknum
frábœrum tónleikum í
íþróttahöllinni á Akranesi.
Fleiri þúsund manns lögðu
leið sína á þessa tónleika.
Þarna er Sigurgeir
Sigmundsson gítarleikari
kominn til liðs við þá félaga
hann er lengst til hœgri á
myndinni. Við hlið hans
stendur hinn heimsþektki
forsprakki Jetliro Tull lan
Anderson.
3 tlosfcllsbliiitiA