Morgunblaðið - 15.02.1975, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. FEBRÚAR 1975
JT
jaldeyrisviðskipt-
n aftur í gang
Jakob Hafstein við málverk af
Lómagnúpi.
• ALDEYRISDEILDIR bank-
* ina opnuðu á hádegi í gær eftir
ngisfellinguna á miðvikudag. I
f jr voru þö aðeins afgreiddar
•?r beiðnir sem hlotið höfðu
s mþykki áður en til gengisfell-
garinnar kom. Að sögn Ingólfs
' nólfssonar hjá gjaldeyrisdeiid
• -nkanna mun vera farið fremur
;gt I sakirnar til að byrja með.
i laldeyrisdeildin sjálf afgreiðir
b sjálfkrafa aliar beiðnir undir
? * þúsund krónum en allar um-
knir um hærri yfirfærslur
v rða að fara fyrir gjaldeyris-
i fndina til umfjöllunar nú fyrst
'i n sinn. Gjaldeyrir fyrir ferða-
menn er eftir sem áður miðaður
við pund og hækkar þannig f
íslenzkum krónum.
Nýja gjaldeyrisskráningin er
birt í dagbók blaðsins f dag, en
sem dæmi um hækkunina má
nefna að einn Bandarfkjadollar
(sala) hækkar úr 119.70 kr.
(miðað við skráningu frá þvi á
fimmtudag f síðustu viku) f
149.60 kr., eitt sterfingspund
hækkar úr 283,30 kr. í 357,80 kr.
ein dönsk króna hækkar úr 21.16
kr. í 27 kr., v-þýzkt mark hækkar
úr 50,30 kr. f 64.46 kr. og 100
pesetar hækka úr 211,85 kr. f
266.50 kr.
Verður norrænt
dafróf samræmt
Sýning
Jakobs
Hafsteins
opnuð
JAKOB Hafstein opnar mál-
verkasýningu sfna f vestursal
Kjarvalsstaða í dag. A sýning-
unni eru 150 myndir, flestar
málaðar á tímabilinu
1971—1974, en elzta mynd á
sýningunni er frá 1943. Um
helmingur myndanna eru
vatnslitamyndir, einnig eru
olíu-, pastel- og krftarmyndir á
sýningunni.
Þetta er tíunda sjálfstæða
sýning Jakobs Hafstein. Áður
hefur hann tvívegis sýnt verk
sín hér f Reykjavfk, en einnig
sýnt víða um land.
Allmargar þeirra mynda,
sem eru á sýningunni á Kjar-
valsstöðum, eru f einkaeign, en
tæplega hundrað eru til sölu.
Langflestar myndanna eru
landslagsmyndir málaðar hér á
tslandi og á Spáni.
Sýningin verður opin alla
daga vikunnar nema mánudaga
kl. 4—10. Henni lýkur 23.
febrúar.
í
kemur ekki
1ANNU Salama, finnski rit-
•öfundurinn, sem hiaut Bók-
nenntaverðlaun Norðurlanda-
áðs í ár og átti að veita þeim
iðtöku f Háskólabfó á sunnu-
daginn, kemur ekki til tslands,
að því er finnski sendiherrann
á Islandi tjáði blaðam. Mbl. á
Keflavíkurflugvelli f gær.
Mbl. reyndi svo í gærkvöldi að
.iá sambandi við Salama tii að
á hann til að tjá sig um málið,
•n það tókst ekki. Mbl. hafði
amband við Kai Latinen, bók-
menntafræðing f Helsinki, og
>agði hann að það væri ófrá-
/íkjanleg regla Salamais að
veita ekki viðurkenningu eða
verðlaunum viðtöku opinber-
lega. Hann hefði tilkynnt að
nann ætlaði að þiggja verð-
aunin og gerði það með þakk-
æti.
1 gærkvöldi var ekki vitað
,iver tæki við verðlaununum
fyrir hönd Salamas.
%ím
Jón E. Halldórs-
son látinn
JÚN E. Halldórsson, varðstjóri f
rannsóknarlögreglunni f Reykja-
vfk, lézt s.I. fimmtudag, 55 ára að
aldri.
Jón fæddist á Isafirði 23.
febrúar 1919, sonur hjónanna
Halldórs Samúelssonar formanns
þar og Mariu Jónsdóttur. Jón
lærði rafvirkjun, en hélt til náms-
dvalar í Bandaríkjunum árið
1940. Þar stundaði hann nám til
ársins 1942 er hann gekk í banda-
ríska herinn og í bandarísku her-
lögreglunni starfaði hann árin
1942 til 1948. A stríðsárunum
starfaði hann m.a. í Afrfku og á
Italíu. 1948 kom Jón heim og hóf
störf í rannsóknarlögreglunni í
Reykjavík, og starfaði þar til ævi-
loka, varðstjóri frá árinu 1962.
Vann hann sér mjög gott orð sem
fær lögreglumaður. Eftirlifandi
kona Jóns er Sigrún Einarsdóttir.
Þeim varð þriggja barna auðið.
Newsweek
segir frá
dekkjum
Einars
1 NYUTKOMNU hefti bandaríska
vikublaðsins Newsweek er sagt
frá dekkjum þeim, sem hugvits-
maðurinn Einar Einarsson hefur
fundið upp, og hægt er að nota
sem venjuleg dekk eða nagla-
dekk, aðeins með þvf að hleypa
svo litlu lofti úr hjólunum eða
bæta í, eftir þvf hvort við á. Gefur
blaðið það f skyn að hér sé komið
ráð til að vegir skemmist ekki
óeðlilega mikið þegar snjó tekur
upp.
Morgunblaðið hafði í gærkvöldi
Framhald á bls. 20
'ÆLAGA um samræmt norrænt
afróf og svipaðan fjölda bók-
ifa verður á dagskrá 23. þings
’ irðurlandaráðs í Reykjavík.
utningsmenn tillögunnar eru
I tka-Christian Björklund, Elsi
L /temaki og Folke Woivalin,
Menningarmálanefnd Norður-
landaráðs mun fjaila um tillöguna
í Reykjavík og væntanlega leggja
fram álit sitt fyrir ráðið.
Stolið úr
Naustinu
ÞJÓFAR voru á ferð í veitinga-
húsinu Nausti aðfararnótt s.l.
fimmtudags. Fóru þeir inn um
glugga og þaðan beint í vín-
geymslurnar og höfðu á brott með
sér 12 flöskur af áfengi. Málið er
óupplýst.
MJÖG mikil loðnuveiði hélt
áfram s.l. sólarhring á svæðinu f
kringum Hrollaugseyjar. Enn-
fremur virðist enn vera nóg af
toðnu úti fyrir Austfjörðum því
Sæberg frá Eskifirði fyllti sig út
af Norðfjarðarhorni f gær. Mest-
an afla í gær fékk Sigurður RE,
1050 lestir, sem skipið kemur
með til Reykjavfkur um hádegi f
dag. Frá því kl. 21 í fyrrakvöld til
kl. 21 í gærkvöldi tilkynnti 21
skip um afla til loðnunefndar,
samtals 13370 tonn. Eftirtalin
skip tilkynntu um afla:
Vörður 240 tonn, Hamar 220,
Oddgeir 120, Hafsteinn 120,
Bjarnarey 150, Reykjanes 240, Al-
bert 330, Jóhannes Gunnar 100,
Steinunn 100, Isleifur 4. 190,
Hrafn Sveinbjarnarson 270, Is-
leifur 260, Rauðsey 450, Bergá
160, Ólafur Tryggvason 100, Höfr-
ungur 3. 270, Snæfugl 130, Jón
Garðar 330, Helga Guðmundsdótt-
ir 460, Dagfari 270, Pétur Jónsson
350, Ásberg 220, Gissur 140, Þorri
170, Faxi 240, Hamravik 150, Víð-
ir 250, Ólafur Sigurðsson 240,
Framhald á bls. 20
Stjórn Rithöfunda-
sambandsins styður
myndlistarmenn
— hefur ekki heimild til að
Frönsk kvikmynda-
vika í Háskólabíó
I NÆSTU viku verður efnt til
franskrar kvikmyndaviku í Há-
skólabíó á vegum franska sendi-
ráðsins. Kvikmyndavikan hefst á
þriðjudag og á næstu sjö dögum
verða þar sýndar sjö franskar
myndir, allar nýlegar og enginn
hefur komið hér á tjaldið fyrr.
Kvikmyndavika þessi er I lík-
ingu við kvikmyndaviku franska
sendiráðsins I fyrra sem gaf mjög
góða raun og mæltist vel fyrir hjá
íslenzkum kvikmyndaunnendum.
Á þriðjudaginn verður sýnd
myndin L’Horloger de St. Paul
eða Ursmiðurinn frá St. Paul eftir
Bertrand Tavernier og er sú elzt
þessara mynda eða frá síðasta ári.
Þar eru Philippe Noiret og Jean
Rocheford í aðalhlutverkum. Hin-
ar myndirnar eru: Sult L’Artister
eða Leikarinn eftir Yves Robert,
hinn sama og gerði myndina um
manninn á svörtu skónum sem
var hvað vinsælust hér I fyrra, og
þar eru Marcello Mastroianni og
Francoise Fabian I aðalhlutverk-
um, Borsalino og co, framhald
fyrri myndarinnar með Delon eft-
ir sem áður í aðalhlutverki og
Jacques Deray stjórnar; La
Chaise Vide eða Autt sæti eftir
Pierre Jallaud, La Gifle eða
Kinnhestur eftir Pinoteau, með
Lino Ventura í aðalhiutverki og
loks L’Ironie du Sort eftir Molin-
aro með Claude Rich, Jean Dess-
ailly og Pierre Clémenti í aðal-
hlutverkum. Allar þessar myndir
eru með enskum texta en þær eru
nánar kynntar á kvikmyndasfðu
Morgunblaðsins á morgun, sunnu-
dag.
að fjalla um listastefnur
MORGUNBLAÐINU barst í gær
fréttatilkynning frá stjórn Rithöf-
undasambandi Islands, þar sem
segir að á stjórnarfundi föstudag-
inn 14. febrúar hafi verið ein-
róma samþykkt að iýsa yfir full-
um stuðningi við Félag islenzkra
myndlistarmanna I deilunni um
Kjarvalsstaði og styðja þau
sjónarmið sem fram hafa komið i
yfirlýsingum Bandalags Isl. lista-
manna varðandi Kjarvalsstaói.
Væntir stjórnin þess að íslenzkir
Framhald á bls. 20
FRÖNSK KVIKMYNDAVIKA — Þetta atriði er úr Borsalino og co,
einni hinna sjö nýju kvikmynda sem sýndar verða í Háskólabió i næstu
viku.
Salama
Finnlandi, Tönnes Madsson
Andenæs, Per Borten og Gunnar
Barbo, Noregi, Gylfi Þ. Gíslason,
Islandi, Grethe Lundblad,
Ingemar Mundebo og Per Olof
Sundman, Sviþjóð.
í’lutningsmenn tillögunnar
benda á, að mismunandi stafa-
gerð í stafrófum Norðurlandamál-
anna auki mjög á þá erfiðleika
sem íbúar landanna eigi við að
etja við lestur á öðru tungumáli
en sínu eigin.
I greinargeró með tillögunni
benda flutningsmenn sérstaklega
á ö/0 og a/æ og notkun ck og ch í
sænsku þegar nokað sé k og kk í
öðrum norrænum málum. Einnig
er bókstafafjöldi og samsetning
stafrófs mismunandi. Sænska
stafrófið endi t.d. á á, a, ö en hið
norska og danska endi á æ, 0, á.
52 bátar með 13 þús. lestir;
Mikil loðna út af
Austfjörðum og
við Hrollaugseyjar