Morgunblaðið - 15.02.1975, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 15.02.1975, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. FEBRÚAR 1975 Utgefandi hf. Arvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson. Fréttastjóri Björn Jóhannsson. Auglýsingastjóri Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn Aðalstræti 6, sími 10 100. Auglýsingar Aðalstræti 6, sími 22 4 80. Áskriftargjald 600,00 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 35,00 kr. eintakið. ING NORÐURLANDARÁÐS ing Norðurlandaráðs A * hefst í Reykjavík í dag. ’að er íslendingum agnaðarefni að taka á móti oörgum aufúsugestum frá Norðurlöndunum öllum. Hér koma saman fulltrúar ijóóþinga og ríkisstjórna „ sarnt sérfræðingum í því . kyni að þoka áfram þeim margvíslegu málefnum, em Norðurlandaráð hefur iinnið að. Þing Norður- i.andaráðs eru ljósasti votturinn um þá traustu samstöðu, sem um langan aidur hefur einkennt sam- kipti þessara þjóða. Hér hafa smáþjóðir bundizt -'amtökum, sem efla sam- vinnu þeirra á milli og ■ yrkja stöðu þeirra út á ið í samfélagi þjóðanna. Þaö er engin tilviljun, að essar þjóðir skuli hafa imið á föstum ráðgjafar- • mgum með þessum hætti, () rótgróin eru tengsl jóðanna. Sameiginleg ■ íenningararfleifð hefur “ert þjóðirnar saman í arfi að lausn viðfangs- - :na nútíðar. Fyrir því mgi, sem nú er aó hefjast, hggja mörg verkefni. Eitt 31 höfuðviðfangsefnunum verða orkumálin, en um- æður um þau varða vissulega sameiginlega :;agsmuni allra Norður- indaþjóðanna. Þá verður íjallað um hafréttarmál- efni og nýtingu matvæla- ramleiðslu. Hvort tveggja kiptir okkur miklu. Starfsemi Norðurlanda- ráðs hefur að miklu leyti beinzt að sameiginlegum iienningarmálefnum þjóó- anna. Hverjum manni er ljóst, að ráðiö hefur unnið mikið og þarft starf á þessu sviði. Ráögert er að auka enn fjárframlög til menn- ingarmálasjóósins til þess að greiða fyrir ýmiss konar samvinnu um menningar- málefni. Um nokkurt skeið hefur verið rætt um sér- staka þýðingarmiðstöð á vegum Norðurlandaráðs og í framhaldi af þeim um- ræðum hefur verið ákveðið að verja fé til að þýða bók- menntir af einu norrænu máli yfir á annað. Hér er um mjög mikilvæga starf- semi að ræða, sem vert er að gefa gaum og efla eftir því sem föng eru á. Á þessu þingi mun kona í fyrsta sinn gegna störfum forseta Norðurlandaráðs, en það er Ragnhildur Helgadóttir. Þetta þing mun einnig ræða um jafn- réttisaðstöóu kynjanna. Fyrir þinginu liggur m.a. tillaga frá Ragnhildi Helga- dóttur um sérstaka sýn- ingu um sögulega þróun og þjóðfélagsaðstöðu kvenna á Noröurlöndum. Þá mun þingið einnig fjalla um samnorræna löggjöf um jafnrétti karla og kvenna og tillögu um stofnun jafn- stöðunefndar. Kjör þing- forseta úr hópi kvenna er einnig raunhæfur vottur um þá breytingu, sem er að eiga sér stað í þessum efn- um. Norðurlandaráð hefur mikilvægu hlutverki aó gegna og það hefur lagt grundvöll að margs konar samstarfi þjóðanna, sem haft hefur mikið gildi. Kjarvalsstaðir |tih nokkurt skeið ÁJ hafa staðið yfir deilur á milli borgaryfirvalda í Reykjavík og myndlistar- manna vegna notkunar Kjarvalsstaöa. Ágreining- u . inn snýst um það, hversu strangt mat á að leggja á þá myndlist, sem þar á að fá imii. Borgaryfirvöld vildu b.iita þar frjálslegra mati ei fulltrúar listamanna í s/aingarráði hússins. Um h ;tta atriði má að vísu 1 igi þrátta, enda erfitt að uuna mælikvarða á góða og v )nda list. Hitt skiptir vitaskuld • xlu máli, að góð sam- . iða sé á milli borgaryfir- Mlda og listamanna um irfsemi húss eins og K jarvalsstaða. Það er rétt, m fram hefur komið, ' .rgaryfirvöld þurfa að 'a svo,um hnútana, að stjórn hússins og starfs- menn geti aö eigin frum- kvæði staðið að menningar- starfsemi í samræmi við þann tilgang, sem því var upphaflega ætlaður. Á þetta hefur verulega skort fram til þessa, enda enginn starfsmaður verió til þess ráðinn. I samtali við Morgun- blaðið segir Einar Hákonarson, sem var einn af fulltrúum myndlistar- manna í sýningarráðinu, að hann sæi ekki aðra lausn en þá að borgaryfir- völd kæmu til móts við sjónarmió myndlistar- manna. Þeir hefðu áhuga á að leysa þetta leiðindamál og augljóst væri, aó öllum aðilum væri akkur í því. Ástæða er til þess að taka undir þessi ummæli. Odd Vikholt, skipstjóri. Harald Aamodt, verksmiðju- stjóri. Jon Holtan, yfirstýrimaður. ÞAÐ var orðið áliðið kvölds, þeg- ar við nálguðumst Norglobal, þar sem skipið iá uppljómað úti af Hóimanesinu og eimurinn frá loðnuverksmiðjunni stóð beint upp í loftið 1 kvöldkyrrðinni. Við höfðum fengið véibátinn Sæþór frá Eskifirði tii að skutla okkur út f þetta heimsins stærsta verk- smiðjuskip, sem nú bræddi hið nýja silfur hafsins, „loðnuna". Tveir bátar lágu utan á skipinu þegar við komum að þvf og voru að ljúka við iöndun og aðrir tveir biðu fyrir útan, en nú var að koma sér um borð og það var ekki beint hægðarleikur, þvf upp á dekkið var um 15 metra hæð. Að lokum fundum við kaðalstiga, sem lá utan á skipinu og upp hann varð ég að klifra, en annars eru flestir hffðir upp og slakað niður í körfu. Það var tekið vel á móti þegar ég kom upp undir dekk og mér kippt innfyrir. I fyrstu átti ég bágt með að átta mig á öllu um borð, því allt var miklu stærra f sniðum en við eigum að venjast. Eftir að komið var inn f yfirbyggingu skipsins var farið upp eina 4 stiga og þá var skipstjóri skipsins á vegi okk ar, Odd Vikholt. Hann tók strax vel á móti okkur og bauð okkur til káetu sinnar og stuttu seinna lét hann 1. stýrimann vísa blm. í rúmgóðan klefa. Síðan var haldið upp í brú og þar hittum við fyrir þá Jón Björnsson og Þórhall Harðarson, sem verða um borð í Norglobal fyrir hönd leigutaka á meðan skipið verður við fslands- strendur. Eftir kvöldverð, sem var framúrskarandi góður, gátum við króað Vikholt skipstjóra af og ræddum dálitia stund við hann. Veðrið betra en ég átti von á „Ef veðrið verður jafn gott og það er búið að vera síðan við komum hingað, verður það aðeins okkar ánægja að vera hér við Is- landsstrendur. Aður en við kom- um hingað höfðum við fyrst og fremst heyrt um vond veður við Island en ekki veðurbliðu eins og nú er. Fólkið okkar heima í Noregi hefur ekki viljað trúa okk- ur, þegar við höfum sagt því frá veðrinu hér á Austfjörðum," sagði hann. — Hvað voruð þið lengi frá Kristiansand til Reyðarfjarðar? „Nákvæmlega 3 daga. Við fór- um þaðan kl. 18.30 á laugar- degi og vorum komnir hing- að kl. 17.45 á þriðjudegi. Um leið og við vorum búnir að láta akkerin fara, hófum við loðnumóttöku og verksmiðjan komst i fullan gang kl. 8 á mið- vikudagsmorgun. Sem stendur á allt að ganga eins og vera ber, en samningurinn gerir ráð fyrir að við bræðum 1500 lestir á sólar- hring, en við getum hinsvegar brætt nokkuð á þriðja þúsund lestir á sólarhring ef á þarf að halda.“ — Islenzkar bræðslur þurfa yfirleitt að geyma hráefnið í eina 4 daga, áður en þær geta hafið bræðslu, en þið hófuð hinsvegar bræðslu um leið og bátarnir byrj- uðu að losa. Hver er ástæðan fyrir því, að þið gátuð það? „Hún er fyrst og fremst sú, að hráefnið var orðið um tveggja sólarhringa gamalt í bátunum, þegar þeir byrjuðu að losa um borð í Norglobal, ef svo hefði ekki verið hefðum við mátt bíða með bræðslu i einhvern tíma. Það má taka það fram, að losun úr bátun- um hefur gengið einstaklega vel, eftir smábyrjunarörðugleika, og segja má af fullri hreinskilni, að íslendingar eru óþolinmóðari en Norðmenn er þeir bíða eftir lönd- un.“ — Hvað eru margir f áhöfn skipsins? „Yfirleitt eru 58 manns um borð og þar af vinna 25 i verk- smiðjunni. Núna erum við hins vegar ekki nema 53, því þegar við erum á fjarlægum miðum með norskum skipum, eru 5 nótavið- gerðarmenn um borð en hér höfum við stórt viðgerðarverk- stæói.“ 20 ár á sjónum — Hvað ert þú búinn að vera lengi skipstjóri á Norglobal, Vikholt?“ „Frá 1. desember s.l. en ég var áóur búinn að vera skipstjóri á skipinu um tima. Ég er fæddur árið 1940 og hef verið á sjó frá því 1955, er ég var 15 ára gamall." — Hver er eigandi skipsins? „Það er útgerðarfyrirtækið Sig- urd Herlufson í Osló, en skipið er gert út frá Tromsö. Áhöfnin er að mestu frá N-Noregi, en einnig eru hér um borð gamlir hvalfangarar frá A-Noregi og Spánverjar." , ,v , •< * 4 s ' ^ , ', „iier eru en — segja s 180lestira Séð aftur eftir dekki Norglobal. Ljósm.: Þórleifur Olafsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.