Morgunblaðið - 15.02.1975, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 15.02.1975, Blaðsíða 27
En þótt Guðriður væri áhuga- söm f félagsmálum, þá voru hús- freyjustörfin hennar aðal starfs- vettvangur. Lengst af þurfti hún að annast umsvifamikið heimili. Oft var þar gestkvæmt, og bar þrennt til. Starf manns hennar, gisti- og greiðasala var ekki næg á Höfn, og því oft leitað til kaup- félagsstjórans, og ekki má gleyma þeim þætti gestkomunnar, sem stafaði af trausti því og vinsæld- um, sem þau hjón áunnu sér, hvar sem þau voru. Fjögur börn ólu þau hjón upp, og tengdamóðir sína og móður annaðist Guðrfður á heimili sínu, siðustu ár þeirra, en þær létust báðar háaldraðar. Þau hjón voru einstaklega sam- hent og samtaka, enda bæði slíkar geðprýðismanneskjur að af bar. Svo hefur sagt mér fólk, sem þekkti þau frá fyrstu tíð, að aldrei á þeirra löngu hjúskapartið hafi orði heyrst halla á milli þeirra. Ég kynntist þeim fyrir 37 árum, varð svo gæfusamur að verða tengdasonur þeirra. Ég hef haft náið samband við þau og heimili þeirra öll þessi ár og aldrei séð skapbreytingu hjá hvorugu þeirra, en ávallt þennan einstaka hlýleika hvort til annars og gagn- vart öðrum. Sunnudaginn 2. febrúar kvaddi Guðríður heimili sitt á Víðimel 42, þann dag var hún flutt á sjúkrahús. Það var fögur kveðja og táknræn um samstill- ingu og sambúð þeirra hjóna. Guðrfður var mikið þjáð þennan dag og sat í stól, þar er hún hafð- ist betur við þannig heldur en að liggja. Maður hennar var sívakandi yfir að um hana færi sem best, og þá er hann laut að henni til að hlúa að eða hagræða henni, brosti hún til hans, þrátt fyrir þrautirnar, hlýju þakklætis- brosi og strauk honum um vanga. Það var fagurt og lærdómsrikt að horfa á síðustu samverustundir þeirra hjóna á heimili þeirra. Fyrir hálfu þriðja ári lamaðist Guðriður svo á fæti, að hún gekk ekki óstudd eftir það. Maður hennar leiddi hana títt um, og gætti þess að hana vanhagaði ekki um neitt. Þótt Jón nefndi það aldrei, þá mun hann hafa haft nokkrar áhyggjur af þvf, að ef hann yrði kallaður fyrst, gæti hann ekki lengur verið konu sinni stoð. Eftir lát hennar sagði Jón mér, að hann væri þakklátur fyrir, að hún hefði farið á undan. En — varð ekki Guðriði einnig að ósk sinni? Guðríður var mikil hús- móðir, sem bjó manni sínum gott heimili, matur var alltaf tilreidd- ur á réttum tfma og aðrir heimilis- hættir eftir þvi. Mun ekki Guð- ríður enn lík sjálfri sér, að hún kynni því betur, að hafa fram- tíðarheimilið undirbúið. Og sem ávallt áður að standa tilbúin til að taka á móti bónda sfnum, þá er hann kemur heim. Við leiðarlok kveðjum við öll Guðriði, eiginmaður, börn og barnabörn, með innilegu þakk- læti fyrir góðvild hennar og um- hyggju. Magnús Jónsson. MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. FEBRÚAR 1975 27 Ragnheiður Kristín Jónsdóttir Fædd 6. nóvember 1897. Dáin 6. febrúar 1975 1 dag er til hinstu hvíldar lögð Ragnheiður Kristín Jónsdóttir. Hún var fædd 6. nóvember 1897 að Kóngsbakka í Helgafellssveit. Árið 1923 giftist hún eftirlifandi manni sínum Valdimari Jóhanns- syni og eignuðust þau þrjú börn: Róbert, Elínu Dagmar og Huldu. Lengst af búskap sínum bjuggu þau á Kljá í Helgafellssveit, en fluttu siðan árið 1955 til Grundar- fjarðar þar sem Ragnheiður bjó til hinstu stundar. Okkur barnabörnin setti hljóð þá er við fengum fregnina um að amma væri dáin, hin minni sögð- ust vilja fá ömmu aftur enginn mætti taka hana frá þeim. Sár söknuður lagðist á okkur, að hugsa sér amma dáin. Okkur sem fannst hún alltaf svo ung og hress. En samt sem áður verðum við, eins og allir sem missa, að sætta okkur við að maðurinn með ljáinn höggvi skarð i okkar ást- vinahóp, þótt sárt sé. Amma var trúuð kona og trúði að til væri annað lif og hugsunin um að nú sé hún komin til betri staðar gerir okkur kleift að horfast hugrakk- ari í augu við dauðann. Hversu margt eigum vió ekki elsku ömmu okkar að þakka. Hún bar okkur öll barnabörnin tólf á höndum sér. Alltaf gátum við komið til hennar ef eitthvað bját- aði á, hún skildi okkur svo vel. Hjá henni gátum við leikið okkur og þar leið okkur ætið vel. Hún lagði grundvöllinn að menntun okkar, kenndi okkur svo margt, Guðríður dóttir — Fædd 24. júlí 1883 Dáin 6. febrúar 1975. Þegar vetrarmyrkrið óðum dvín og dagarnir taka að lengjast, þá hverfur amma burtu inn í Ijósið eilífa. Okkur þykir sárt að fá ekki framar að koma til hennar, því að alltaf tók hún okkur vel, og við fundum, að við vorum velkomin. Við hændumst að „Guddu ömmu“ eins og hún var jafnan kölluð af okkur langömmubörnunum hennar. Öllum krökkum þótti gaman aó spjalla við hana, því að hún gaf sér tíma til þess að sinna þeim og var létt í máli. Hún bar umhyggju fyrir svo mörgum, skyldum og óskyldum. Menn fundu, aó þeir voru einhvers virði i návist hennar. Hún talaði lika við blóm- in í gluggunum sínum, enda þrif- ust þau vei. Börn og blóm — hvort tveggja þarf sína umhirðu til þess að vaxa og dafna. Við vitum, að hún kveið ekki svefninum langa, hlakkaði frekar til hans, þráði að hitta horfna ástvini. sem við eigum eftir að búa að alla ævi, hjá henni lærðum við að þekkja muninn á réttu og röngu. Þótt sár sé okkar söknuóur, þá er lika og ekki síður söknuðurinn mikill hjá elsku afa og foreldrum okkar. Afi sem sér á bak góðri og göfugri konu, sem hann elskaði og virti, og foreldrar okkar sem sjá á bak móður sem þau elskuðu og virtu. Einmanaleikinn er mik- ill hjá afa en við barnabörnin og ekki síst foreldrar okkar munum gera hans ævidaga sem bezta. I hinsta sinn viljum við af öllu hjarta þakka elsku góóu ömmu allt sem hún gerði fyrir okkur. Vió þökkum guði fyrir að hafa orðið þess aðnjótandi að eiga svo góða og göfuga ömmu. Hinsta kveðja frá barna börnum. Isaks- Kveðja Við þökkum hinni innilega allt sem hún var okkur. Hún veitti okkur gott veganesti, sem við eig- um áreiðanlega eftir að meta betur er árin líða. Alltaf var iær- dómsríkt að sitja við fótskör hennar. Guð blessi hana og leiði inn í ljóssins ríki. Langömmubörnin. SVAR MITT EFTIR BILLY GRAHAM c- Teljið þér, að ástand heimsins sé f samræmi við vilja Guðs? Nei, eg tel ekki, að ástand heimsins, sem við lifum í, sé eins og Guð vill, að það sé. Maðurinn á sök á þeim glundroða, sem ríkir í heiminum, því að „Guð er ekki Guð truflunarinnar, heldur friðarins“ (1. Korintubréf 14,33). Þér kunnið að spyrja: „Hvers vegna lætur Guð heiminn ekki vera eins og hann vill að hann sé, ef hann er almáttugur?“ Sá dagur kemur að hann gerir það. En það er eitt, sem aftrar því, að þetta verði þegar í stað: Vilji mannsins. Sjáið þér til: Guð er alls megnugur. En það er andstætt eðli hans að beita þessu valdi, af því að hann hefur gefiö mannkyninu rétt til þess að velja af frjálsum vilja. Við viljum fara okkar veg eða Guðs veg. Við viljum verða góð eða slæm. Við getum iðrazt þrjózku okkar, en við getum líka haldið áfram að standa í gegn Guði. Guð er sameiningarafl alheimsins. Ef við höldum honum utan við líf okkar, uppskerum við óhjá- kvæmilega sundrung, flokkadrætti og ósamræmi. Við getum verið stolt og haft Guð að engu og haldið áfram að byggja Babelsturna sundrungarinnar. En við getum líka beygt okkur undir hann og átt frið. Ákvörðunin er á okkar valdi, einstaklinga og heildar. Valgerður Ingibjörg Ás- geirsdóttir — Kveðjuorð Laugardaginn 1. febrúar s.l. var til moldar borin í Reykjavík vin- kona mfn, Valgerður Asgeirsdótt- ir, sem lést á góðum aldri. Þar sem ég gat ekki fylgt henni síðasta spölinn, langar mig til að senda henni kveðjur og þakkir héðan frá Akureyri. Kynni okkar Valgerðar hófust fyrir meiraen tugára. Þábjó hún í næsta húsi við mig i Glerárhverfi og hét það Þyrnar: Það er tákn- rænt, þvi að líf Valgerðar var ekki án þyrna. Síðar fluttást hún ásamt manni sínum Páli Gísla- syni, og börnum þeirra tveimur, Rannveigu og Sigurði, I annað lít- ið hús í nágrenninu, sem hét Garðshorn, og átti ég og dætur mfnar margar ánægjulegar stund- ir hjá þeim í litla húsinu. Þótt þröngt væri inni og lágt.til lofts, var hjartarýmið nóg, og allt svo hreint og fágað. Valgerður vin- kona mín var afburða þrifin og hugsaði um þetta litla heimili þeirra af kostgæfni og alúð. Valgerður var myndarleg kona, há og grönn, með fallegt hátt enni og mjög falleg augu. Hún var vel greind og rökræddum við oft um gátur lffsins, einnig um guð, þvi að Valgerður var mjög trúuð. Eg veit, að nú er hún búin að hitta Guð sinn, sem var henni svo oft líkn í þraut. Þegar Valgerður fluttist frá Akureyri skirfuðumst við alltaf á, þótt misjafnlega langt væri á milli bréfa hennar. Bréfum henn- ar lauk alltaf á sama veg: Þetta fer nú að lagast Sigurlaug mín. En hin sfðari ár var hún oft veik og þurfti á sjúkrahúsvist að halda. Nú er þínu brauðstriti lokið, enginn sársauki til, og þú munt vera komin i ríki Guðs, þar sem enga þjáningu er að finna. Sigga, vini mium, og Rann- veigu, svo og öðrum ástvinum Valgerðar, sendi ég innilegar samúðarkveðjur. Hvíl þú f friði, kæra vinkona, friður Guðs þig blessi og hafðu þökk fyrir allt og allt. Sigurlaug. — Norglobal Framhald af bls. 19 — Hvar voru þið aðallega að veiðum? „Mest I suðurhöfum og það get ég sagt þér, að hvalveiðin er spennandi og ólfk þeirri veiði, sem sjómenn eiga almennt að venjast. Það var hreint stórkost- legt að elta þessar stóru skepnur. Ég á mér þá ósk heitasta að kom- ast að þessu Sinni f námunda við Reykjavík, því þar þekki ég fólk, sem ég hef áhuga á að heim- sækja.“ Loðnuverksmiðjan í Norglobal er á fjórum hæðum f skipinu, efst uppi á aðalþilfari standa þrir þurrkarar, þar fyrir neðan eru sjóðarar og mallarar, þá koma pressur og þar fyrir neðan alls- konar vélar og tæki. Verksmiðjan er þannig byggð að um er að ræða þrjár sjálfstæðar vinnslueiningar, og þótt ein eða tvær b.i stöðvast verksmiðjan aldrei. Hver vinnslu- eining á að geta brætt 800 lestir á sólarhring. Að vísu er allt nokkuð þröngt í verksmiðjunni, en þrifnaðurinn er mjög mikill og allt haft úr rústfriu stáli, sem hægt er. — „Þvf miður getum við ekki gufuþurrkað mjölið, því ekki var nægjanlegt rými til að koma fyrir kælikerfi, sem er nauðsyn- legt þar sem gufuþurrkun er,“ sagði Harald Aamodt, verk- smiðjustjóri, þegar við ræddum við hann. 6 tíma vaktir Hann sagði, að gengnar væru tvískiptar vaktir og væri unnið 6 tíma og síðan kæmi 6 tfma fri. Menn þyrftu þvf ekki mikið að hugsa um frístundavandamál. Á hvorri vakt væru 11 manns að rafvirkja meðtöldum. Og væri verksmiðjan öll mjög sjálfvirk en i henni eru þrjú stjórnborð. — Hver er ástæða fyrir þvi, að þið framleiðið mjölið ósekkjað? „Fyrst og fremst sú, að með þessu móti getum við losað okkur við mjölið á þægilegan hátt, en við blásum þvi yfir í flutninga- skip við skipshlið. Til þess að koma f veg fyrir sjálfsíkveikju i mjölinu, þá búum við sfvalninga, sem sfðan hrökkva f sundur (svipað og hænsnakögglar eru nú). Með þessu móti myndast nokkurt loftrúm í mjölinu og þar af leiðandi sáralitill hiti. Við höf- um hér sérstaka vél til að gera þessa hluti.“ — Hvernig hefur bræðslan gengið þessa tvo sólarhringa, sem þið hafið brætt? „Agætlega, en reyndar er no^kuð erfitt að bræða á meðan mikil fita er i loðnunni, en meðan tækin eru svona ný gengur okkur sæmilega að bræða nokkuð nýtt hráefni." — Hvernig gengur að vinna hráefnið í slæmu veðri? Aldrei þurft að stöðva framleiðsluna vegna veðurs „Það getur þá verið nokkuð erfitt að vinna í verksmiðjunni, en við höfum aldrei þurft að stöðva framleiðsluna vegna veð- urs, en oft er bræla við Ný- fundnaland. Nú ef eitthvað kem- ur fyrir, þá eru þrír viðgerðar- menn um borð, og við höfum yfir- leitt gnægð varahluta. Ef vara- hlut vantar þá reynum við að smiða hann sjálfir.“ — Hefur aldrei komið fyrir, að kviknað hafi I þurrkara? „Jú, það hefur nokkrum sinn- um komið fyrir, en við höfum fullkomin slökkvitæki, þannig að við erum fljótir að slökkva eldinn, en til þess notum við vatn og guf u.“ „Eru til fleiri verksmiðjuskip, svipuð Norglobal? „Rússar eiga tvö ný bræðslu- skip, sem byggð voru i Noregi og afkasta þau 1000 lestum á sólar- hring. Eftir þvf sem ég bezt veit þá er Norglobal heimsins stærsta bræðsluskip, og 10 stórir bátar fiska venjulega i það.“ 180 lestir af vatni á sólarhring — Nú þurfið þið mikið vatn til notkunar I bræðslunni, hvernig er náð í það? „Vatnið er framleitt um borð, en hér eru eimingartæki, sem framleiða 180 lestir á sólarhring, af þessu magni notar áhöfnin 25 tonn.“ — Að lokum spurðum við Aamodt hvort hann teldi gufu- þurrkað mjöl betra en eld- þurrkað. „Það er það vafalaust og margar verksmiðjur í Noregi framleiða nú gufuþurrkað mjöl. I nýjum verksmiðjum er glapræði að eldþurrka mjölið, það er gömul aðferð og að verða úrelt að vissu leyti." —Þ. O.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.