Morgunblaðið - 20.02.1975, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. FEBRUAR 1975
LOFTLEIÐIR
BILALEIGA
CAR RENTAL
T2 21190 21188
LOFTLEIÐIi
Q
BÍLALEIGAN
51EYSIR
CAR RENTAL
24460
28810
PIOfMCEXEJT
Útvarp og stereo kasettutæki
tel 14444 * 25555
BlLALEIGA CAR RENTAL
Hópferðabílar
Til leigu í lengri og skemmri
ferðir 8 — 50 farþega bílar.
KJARTAN
INGIMARSSON
Sími 86155 og 32716.
Úrval varahluta í margar
gerðir bila.
Bremsuborðar
Rúðusköfur
Vatnskassaþéttir
Hosur
Viftureimar
Demparar
Blokkþéttir
Stýrisáklæði
Bensínlok
Höfuðpúðar
Þurrkublöð
Vatnsdælur
og fleira
Kristinn
Guðnason hf.
Suðurlandsbraut 20
sími 86633
Sauðagæran
1 ræðu, sem Ragnar Arnalds,
formaður Alþýðubandalagsins,
hélt á landsfundi flokksins 21.
nóvember sl., segir hann m.a.:
„Engum dylst þó, að Alþýðu-
flokkurinn er að deyja og heyr-
ir senn fortíðinni til, en Al-
þýðubandalagið stefnir óhikað
að því að fylla það rúm, sem
Alþýðuflokkurinn skilur eftir
sig...“
„Það er einmitt þetta sem
þarf að gerast að Alþýðubanda-
lagið dragi til sín verulegt
fylgi frá Alþýðuflokknum og
öðrum flokkum hægra megin
við það ...“
„Hins vegar eru alþjóðleg
viðhorf Alþýðubandalagsins og
samskipti við erlenda flokka
með nokkrum öðrum hætti en
var í tíð Sócfalistaflokksins í
fullu samræmi við breyttar að-
stæður. Við höfum algerlega
hafnað því að eiga flokksleg
samskipti við Kommúnista-
flokk Sovétríkjanna og sama
gildir um flokka í þeim sócial-
isku ríkjum Evrópu, sem ekki
fylgja sjálfstæðri utanríkis-
stefnu ...“
„Hitt er svo annað mál, að við
megum að sjálfsögðu ekki falla
f þá gryf ju að taka upp andsov-
éskan eða andkommúniskan
móðursýkisáróður...“
„Jafnframt er æskilegt að
einstaklingar í flokknum hvort
heldur í forystu eða meðal
flokksmanna almennt, noti þau
tækifæri sem bjóðast til skoð-
anaskipta við erlenda sócialista
Nóvember-desember
Þessi sauðargæruræða flokks
formannsins var flutt f nóv-
ember. Mánuði síðar er hald
inn í Búdapest undirbún-
ingsfundur fyrir ráðstefnu
kommúnistaflokka Evrópu.
Fund þennan sátu fulltrúar 29
kommúnistaflokka. 1 yfirlýs-
ingu, sem send var út eftir
þennan fund, eru taldir upp
þeir kommúnistaflokkar sem
þátt tóku í ráðstefnunni. Þar
segir og m.a.: „Alþýðubanda-
lagið á tslandi sendi fundinum
bróðurlegar kveðjur." Ekki er
úr vegi að gera því skóna, að
það hafi verið þessi sami
flokksformaður, sem svo fagur-
lega afneitaði öllum samskipt-
um við kommúnistaflokka í Ev-
rópu, sem sent hafi þessar
„bróðurlegu kveðjur" til sam-
herjanna í Búdapest.
Eitt er að gæla við vinstra
fylgi hér heima, sem ekki á
samleið með kommúnistum,
annað að standa við orð sfn f
reynd út á við.
„Engum dylst þó, að
Alþýðuflokkurinn er
að deyja”
Kommúnistar hafa þrisvar
sinnum klofið Alþýðuflokkinn.
Fyrst þegar þeir stofnuðu
Kommúnistaflokk lslands,
næst þegar nafni hans var
breytt f „Sameiningarflokk al-
þýðu Sócíalistaflokkinn‘% síð-
ast þegar enn var skipt um nafn
og „Alþýðubandalagið" varð
til. Og enn eru þeir við sama
heygarðshornið: „Alþýðu-
bandalagið stefnir óhikað að
því að fylla það rúm, sem Al-
þýðuflokkurinn skilur eftir
sig“ og „það er einmitt þetta,
sem þarf að gerast að Alþýðu-
bandalagið dragi til sfn veru-
legt fylgi frá Alþýðuflokknum
og öðrum flokkum hægra meg-
in við það ...“. Og allt þetta á
að gerast með „bróðurlegum
kveðjum" til samherjanna, sem
bældu niður uppreisnina í Ung-
verjalandi og stóðu fyrir inn-
rásinni í Tékkóslóvakíu. Sauð-
argæran skal borin á öxlum, er
rætt er við sauðsvartan almúg-
ann á Islandi, en úlfseyrunum
bróðurlega veifað til „gulag-
eyjaklasans".
Þeir, sem lesið hafa Aiþýðu-
blaðið undanfarið, sjá þess þó
fá merki, að það standi í ístað-
inu gegn því, „sem einmitt þarf
að gerast“ að dómi Ragnars
Arnalds. „Alþýðuflokkurinn er
að deyja og heyrir senn fortíð-
inni til“, segir hann. „Alþýðu-
bandalagið stefnir óhikað að
því að fylla það rúm, sem Al-
þýðuflokkurinn skilur eftir
sig.“ Viðbrögð hinnar nýju for-
ystu í Alþýðuflokknum gegn
þessari óskhyggju og markmiði
Alþýðubandalagsins virðast ris-
lág. En e.t.v. er tómahljóðið í
Alþýðublaðinu logn á undan
stormi. E.t.v. reynir það, þrátt
fyrir allt að sporna gegn því að
sagan endurtaki sig.
Lionsmenn gáfu
augnprófunartæki
Laugardaginn 1. febr. s.l. af-
hentu Lionsmenn Heilsu-
verndarstöðinni á Isafirði
augnprófunartæki að gjöf.
Nokkur tími er að visu liðinn
síðan tækin komu til bæjarins
þótt formleg afhending hafi
ekki farið fram fyrr.
Formenn í INSI and-
vígir gengisfellingu
Laugardaginn 15. febrúar var
haldinn í Keflavík fundur for-
manna aðildarfélaga I.N.S.I. Á
fundinum var meðal annars
fjallað um kjaramál og gerð
svofelld samþykkt:
„Formannafundur aðildar-
félaga I.N.S.Í., haldinn 15.
febrúar 1975, lýsir andstöðu
sinni við gengisfellingu þá, sem
ríkisstjórnin hefur nýverið lát-
ið dynja á þjóðinni og telur
vandamál, sem stjórnmála-
menn hafa atvinnu sína af að
leysa.
Sérstaklega mótmælir fund-
urinn þeim verðhækkunum
sem án efa fylgja í kjölfar
gengisfellingarinnar og koma
einstaklega illa við pyngju iðn-
nema sem eru lægst launaðir
meðal illa launaðrar alþýðu
þessa lands.
(Frá INSÍ).
Viðstaddir voru nokkrir
forystumenn í Lionsklúbbi Isa-
fjarðar, bæjarráðsmenn, stjórn
Heilsuverndarstöðvarinnar,
læknar og hjúkrunarkonur.
Myndin er frá afhendingunni.
Form. Lionsklúbbs Isafjarð-
ar, Garðar S. Einarsson verzlm.
afhenti gjöfina, en Guðmundur
H. Ingólfsson, fors. bæjar-
stjórnar, þakkaði af hálfu við-
takanda. Einnig töluðu Reynir
Geirsson læknir og Eiríkur
Bjarnason augnlæknir, sem
jafnframt gerði grein fyrir
tækjunum og mikilvægi þess,
að hafa þau hér til staðar.
Tæki þau, sem hér um ræðir
eru fyrst og fremst svonefnd
gleraugnakista, þrýstiprófunar-
tæki, augnspeglar, tæki til að
mæla sjónvídd o.fl., sem of
langt yrði upp að telja og of
flókið til frekari útskýringa.
Þá skal þess getið að í byrjun
yfirstandandi starfsárs ákvað
Lionsklúbbur Isafjarðar að
gefa kr. 100.000.— til Rauða-
krossdeildar á Isafriði og skal
því fé varið til kaupa á sjúkra-
bifreið. Þá gaf klúbburinn kr.
50.000.— til sjóslysasöfnunar-
innar til minningar um Jón Ben
Asmundsson umdæmisstjóra. I
Af sama tilefni voru einnig1
gefnar kr. 50.000.— af Lions-
klúbbnum Sigurði Lúter, Foss-
hóli, Þingeyjarsýslu. Að slðustu
skal þess getið, að eins og
undanfarin ár gaf klúbburinn
peningagjöf til Stellusjóðs og
bókagjöf til Elliheimilisins
fyrir jólin.
Frá Bridgedeild
Breiðfirðingafélagsins
I kvöld verður næst síðasta
umferðin spiluð I sveitakeppn-
inni og er staða efstu sveitanna
þessi:
H" ' V\,MUNDU PAÐ 'snuÐRARÍ "!'1/
jpn-uy mundu p
T° **V. “
StGt-AúND /«<■-? i
Sveit: stig:
HansNielsens 216
Jóns Magnússonar 183
Jóns Stefánssonar 182
Ingibjargar Halldórsd., 182
Þórarins Alexanderss., 165
Guðbjörns Helgasonar 162
(Einum leik ólokið)
Sigurlaugs Guðjónssonar 144
Bergsveins Breiðfjörð 128
Næsta keppni er
tvímenningskeppni með
barometerfyrirkomulagi sem
hefst 6. marz n.k. Væntanlegir
þátttakendur eru beðnir að láta
skrá sig sem fyrst.
X X X X
Ungir
Bridgespilarar
Fimmtudaginn 27. febrúar
gengst Bridgesamband Islands
fyrir riðli (eða riðlum) í alþjóð-
legri tvímenningskeppni ungs
fólks, sem skipulögð er af
bridgefélagi Oxfordháskóla.
Sömu spil eru spiluð í keppn-
inni allsstaðar þar sem hún er
haldin.
Þátttaka er heimil öllum há-
skólastúdentum og öðrum ung-
um bridgemönnum undir
þrftugu. Spilað verður í Félags-
heimili stúdenta við Hring-
braut og hefst keppnin kl. 20.00
stundvlslega.
Þátttaka tilkynnist til Jakobs
R. Möller, sími 19253, fyrir
sunnudagskvöld 23. febrúar.
Bridgesamband Islands.
xxxx
Frá Bridgefélagi
Suðurnesja
Nýlega er lokið meistara-
keppni Suðurnesja I tvímenn-
ingi og urðu hlutskarpastir
Alfreð Alfreðsson og Guðmund-
ur Ingólfsson. 22 pör tóku þátt I
keppninni og varð röð efstu
para þessi:
Alfreð Alfreðsson —
Guðmundur Ingólfsson 254
Einar Jónsson —
Helgi Jóhannsson 159
Valur Slmonarson —
Lárus Karlsson 158
Einar Júllusson —
Sigurður Brynjólfsson 125
Skúli Thorarensen —
Hreinn Magnússon 124
Sigurður Jónsson —
Sigurbjörn Jónsson 109
Gunnar Guðbjörnsson —
Birgir Scheving 103
1 ' kvöld hefst aðal-
sveitakeppnin. Spilað er I
Junior Chamber húsinu Kirkju-
vegi 39 og hefst spilamennskan
kl. 20.00.
Væntanlegir þátttakendur
láti skrá sig hjá Helga
Jóhannessyni, slmi 2306.
A.G.R.