Morgunblaðið - 20.02.1975, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 20.02.1975, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. FEBRUAR 1975 annaö eftir JÓHANNES HELGA listin eru frá fornu fari burðar- ásinn ílífi Vinarbúa, sameign þeirra, hárra sem lágra. List, hverju nafni sem hún nefnist, og þeir sem hana fremja, er svo gitdur þáttur í borgarlífinu að einsdæmi er í veröldinni. Fátækt og slitið fólk sem kannski aldrei i lifinu hefur haft tækifæri eða ráð á að fara svo mikið sem einu sinni i Rik- isóperuna eða Hið keisaralega borgarleikhús, það fylgist samt ekki lítils virði að manni skuli borin öll þessi vatnsglös. Vatnið er háfjallavatn og rómað fyrir ferskleika, og vatnsburðurinn sannfærir mann um að jafnvel þótt maður sitji lengi er ekki til þess ætlast að maður panti meira af neinu tagi. Yfir kaff- inu og vatninu les maður bréf, svarar þeim, eða les í bók, — tefl ir skákeðamanndreymir eða maður masar við náungann. Margir listamenn hafa kastað DAGARÍVÍN m Enn eitt mjög algengt orð i Austurriki er „Trafik“, sem víða má sjá málað stórum stöf- um fyrir ofan dyr tóbaksbúð- anna. Það er franskt að upp- runa: Le trafique, sem í gamalli merkingu þýðir verslun — í Austurriki tóbaksbúð. Tóbaksbúð í Austurríki heitir aldrei annað en „Trafik“. Hún er litill heimur út af fyrir sig. Þar hittast hverfisbúar á morgnana, um miðjan dag og ákvöldin og doka við góða slund og skeggræða nýjustu tíðindi úr hverfinu. „Trafikin" hefur sina fastagesti, sem kunnugir eru högum hver annars fyrir til- stilli búðarinnar. Eigandi henn- ar, hvort heidur hann er karl eða kona, leggur sig í fram- króka að muna óskir hinna ýmsu viðskiptavina: „Gulen Morgen Herr Professor, Ihre amerikanische und Die Presse!" (Chesterfield og óháða framfarasinnaða dag- blaðið). „Meini Verehrung, Herr Hofral, hier sind Ihre Viginias und der Amtliche!" (löngu mjóu smávindlarnir með munnstykki — hinir sömu og Frans Jósef reykti á öldinni semleið og Raab kanslari á þessar — og íhaldsama borgar- blaðið) Verkamaðurinn fær ásamt með kveðjunni „Gruss Gott!“ (Heilir og sælir) ódýru austurrísku Dónár- sígaretturnar sínar og verka- mannablaðið „Arbeiter- Zeitung". Menn rabba stundarkorn við eigandann um daginn og veg- inn og blaðafréttir dagsins. Austurrisku blöðin eru raunar ekki á háum söðli, þau eru rýr í tvöfaldi merkingu og ekki nógu fjörleg blaðamennska. En eitt virðingarvert einkenni er áber- andi, það er áherslan sem lögð er á menningarmálin og þá fyrst og fremst tónlistar- og leikhússlífið. En því miður hafa blöðin í Vín í dag ekki á að skipa neinum meiriháltar greinarhöfundum eins og á tím- um Stefáns Zweig og Felix Salt- ens. En í Vin er þó ekki talað fram og aftur um veðrið eins og í London. Það er rætt um Öper- una, stóru konsertana, Borgar- leikhúsió, gagnrýnina og nýj- asta nýtt i lífi þess fólks sem Vínarbúar hafa hafið í guða- tölu, það eru söngvararnir, hljómsveitarstjórarnir og leik- ararnir. Þegar Vínarbúinn opn- ar blaðið sitt rennir hann aug- unum lauslega yfir heimsfrétt- irnar og þjóðmálin, en les gaumgæfilega fréttir úr listalíf- inu. Óperan, tónlistin og leik- af lífi og sál með öllu sem þar gerist. Það geri sér ljóst að þessi gömlu austurrísku listmusteri eru hluti af þvi sjálfu, hverju mannsbarni; myndbirtingu Vínar sálarinn- ar. Kaffihús Vinar eiga hvergi sinn lika í heiminum, og þau eru svo mörg að maður gengur ekki svo í fimm mínútur um borgina að maður rekist ekki á eitt eða fleiri, og það er fleira gert þar en að drekka kaffi. Sannleikurinn er sá að Vinar- búinn eyóir oft stærri hluta vökulífs síns i kaffihúsi heldur en heima hjá sér. í þessum kaffihúsum sem mörg eru mjög gömul — með marmaraborðum og plusssófum og skreytt pálmum — getur maður setið óáreittur timunum saman yfir einum bolla af sterku og ódýru kaffi og lesið blöð frá ýmsum heimshornum. „Herr Ober“ (yfirþjóninn) fær- ir manni blöðin ásamt nýju og nýju glasi af Vinarvatni. Það er tima sínum og hæfileikum á glæ í þessum húsum, þrásetur þeirra orðið að vana og lestri. Hér hittast gamlir vinir, önnum kafið kaupsýslufólk og hefur stutta viðdvöl, og elskendur sem ekki vita hvað tími er. Kaffihúsin eru annað heimili Vinarbúans. Þar má sjá margar einmana eldri konur á morgn- ana, um miðjan dag og á kvöld- in — með myndskreytt blöð sín, bréf, bækur — eða bara með hugsanir sínar. I kaffihúsinu er enginn einsamall. Ég hef hvergi séð svo marga slæpingja sem í þessari borg lífslistarinn- ar. Gildir engu hvaða tima dagsum ver að ræða, maður labbar sig inn í kaffihús og þar er fyrir fjöldi manns, önnum kafinn við að gera ekki neitt. Og kurteisinn er einstök. Einni gráðu er jafnan bætt við nafn- bót manns: Herra yfir- byggingameistari; Herra hirð- ráð; Herra yfir- umsjónarmaður. Og maður seg- ir við strætisvagnastjórann: Herra strætisvagnastjóri, hvar fer ég úr? Og þegar talað er um þriðju persónu: Herra bréfber- inn var hér. Það er algengt að skóburstarinn, þjóninn, rakar- inn eða blaðburðarmaðurinn sæmi mann aðalstign: Herra greifi eða Herra barón. Vínarbúar hafa ætíð lítið á kaffihúsin sem helgan griða- stað, þar sem þeir leita styrks hver hjá öðrum og lausna á vandamálum sinum. Og hugg- unar. + + + Á sumrinu reiðir næstum hvert einasta svo kallað „Gasthaus" (matsölustaður fastagesta) fram veitingar undir berum himni í garðinum, sem nær undantekningarlaust er að baki gömlu húsanna í Vin. „Bag- gárd“ heitir það á dönsku, en það er alltof fátæklegt orð yfir þessa fallegu ævafornu garða með blómaskrúði og aldagömi- um laufþungum trjám. I gamla borgarhlutanum borgar sig ætíð að fara undir steinhvelfingarnar og inn í garðana, andblæ gömlu Vínar. Hvelfingarnar eru oft skreyttar Framhald á bls. 29 í viStali við hinn fræga banda- ríska mannfræðing, Margaretu Mead. sem birtist I flokki viStala viS frægustu vísindamenn heims og áhugamenn um framtlð mann- kyns, segir hún i tilefni bókarinnar „Takmörk vaxtar" að hún geti ekki fallist á aS orðiS vöxtur sé notað um þjóSir og efnahagsleg viðfangsefni þeirra. Hún rökstySur þaS: — Ég get alls ekki kallað aukn- ingu þjóðarframleiðslunnar vöxt. ÞaS er ekki líffræðileg starfsemi og ég tala ekki um að þjóð sé ung og siðan fullorSin, rétt eins og um lifveru sé að ræða. Þjóð stækkar, en hún vex ekki á sama hátt og lifandi tré eða manneskja. Þegar sagt er við Bandarikjamann að við verSum að takmarka vöxtinn, þá er þaS ranglega orðað, því Banda- ríkjamenn telja allan vöxt af hinu góða. Öllum finnst gott að eitt- hvað vaxi. Annað er andstætt hugsun þeirra. Ekki veit ég um neina þjóð i veröldinni, sem ekki álítur það gott að barn fæðist og vaxi upp eða að tré sé gróðursett og vaxi. Fremur ætti að tala um „Takmörk úrþenslu" eða tak- mörkun á bruðli. Það er til nóg af orðatiltækjum, sem nota má um efnahagslegar takmarkanir. Og Margaret Mead vitnar i út- skýringum sinum í landa sina, Bandarikjamenn. En þær útskýr- íngar geta allt eins átt við okkur. Hún segir: — Maður verður raunar að orða útskýringar á ýmsan hátt, svo að mismunandi þjóðir leggi sömu merkingu i þær. Við Bandarikja- menn getum t.d. sagt: Forfeður ykkar voru fátækt fólk, i leit að svolitilli hlýju og dálitlu frelsi. Þeir leituðu meira fretsis i trúmálum og stjórnmálum og að dálitlum skammti af lífsins gæðum til handa börnum sínum. Forfeðurnir komu til Ameríku, þeir unnu hörð- um höndum og þeir tóku að finna til öryggiskenndar. sem fram að þvi hafði aðeins átt heima á himn- um i þeirra augum. Þeir fóru þvi að jafna efnalegum gæðum við andlega velferð og leggja að jöfnu gott baðherbergi og einhvers konar andlega velliðan. Svo þró- uðust með þjóðinni óhemjulegar efnahagslegar lúxuskröfur. Okkur fannst þetta ekkert óhóf, töldum það bara til nauðsynja. Þegar bill- inn kom fram, var hann settur i flokk með gæðum, sem fært gætu hversdagsmanninum frelsi. Nú gæti sá fátæki keypt Ford-bil. Það veitti hverjum og einum meira frelsi en hann hafði nokkurn tima haft. Eða það héldum við. Nú höf- um við áttað okkur á þvi, að bila- menningin, sem við byggðum upp, er fangelsi, sem ekki aðeins eyði- leggur andrúmsloftið yfir öllu landinu og skapar mönnum og borgum hættu, heldur setur hún fólkið beinlinis í fjötra, þar sem það getur ekkert hreyft sig nema hafa bil. Við erum að byrja að átta okkur á þvi að við höfum skapað okkur efnahag af þvi tagi, sem fjötrar okkur, notar óhemjulegt magn af orku og af óbætanlegum auðæfum heimsins, leggur byrðar á aðra íbúa jarðarinnar — þar sem við nýtum aðrar þjóðir — og gerir jafnvel okkar eigin þjóð fátæka, vannærða og óánægða. Kerfið, sem við erum komin með. verkar ekki lengur, og því verður að breyta. Sú kenning eftirstriðsár- anna, að allt mætti leysa með hagvexti, eins og predikað var, og hin kenningin, að mismuninn milli rikra þjóða og fátækra mætti jafna með tækniaðstoð, báðar hafa reynst rangar. Við verðum að breyta þeim og við verðum að endurskipuleggja allan okkar lífs- stíl. Ég tel ekki rétt að segja að við séum að leita að jafnræði i þjóð- félaginu Satt er það, að við þurf- um að koma á betra jafnvægi milli þjóða, tekjulinda og tækni, og tryggja það, að jörðinni okkar sé ekki hætt i kjarnorkustriði eða öðrum hávisindalegum striðs- rekstri, að við ekki leggjum andrúmsloftið og höfum á jörðinni i hættu, notum ekki upp óbætan- leg efni og leggjum ekki mesta áherzlu á lifnaðarhætti. sem valda öllu þessu. Fyrstu þrjú atriðin miða að þvi einu að lifa af. En ekkert þýðir að tala um góð lifs- kjör, ef mannkynið verður alls ekki til staðar til að njóta þeirra. Þess vegna verðum við fyrst að snúa okkur að þvi að tryggja það að við lifum af, með þvi að hindra banvænar og óafturkallanlegar breytingar og siðan að taka til við að skapa okkur mannlegt lif. Margaretu Mead finrtst við, þrátt fyrir allt, komin svolitið á veg. Þar vitnar hún i 250 borgrik- in i Attiku. sem verzluðu og börðust hvert við annað. Ekki virt- ist ætla að verða mögulegt að koma nokkurri skipan á málin, svo þessi 250 borgriki stæðu ekki i stöðugum styrjöldum. En nú hefur okkur nú tekizt að byggja upp 200 milljón manna og 400 milljón manna þjóðir, þar sem ein borgin er ekki i stríði við þá næstu, með mannsmorðum. Þegar Margaret Mead er spurð að þvi, hvort hún vilji þá láta leggja hömlur á framvindu vis- indanna, neitar hún þvi. — Ég held að við þurfum meira af góð- um visindum og þá sérstaklega meira af góðum félagsvisindum. Við þurfum raunverulegan skiln- ing á mannlegri hegðun, sem ekki er bara byggður á tilraunum með marsvin og rottur. — Við getum ekki flutt okkur yfir á aðrar stjömur eins og er, svarar hún þegar talið berst að geimferðum Bandarikjamanna og Rússa. — Nei. við verðum kyrr hér á þessari jörð. Það þýðir ekki að vera að tala um flutning á aðrar stjörnur, þegar hættan liggur á næstu 25 árum. Við verðum að breyta okkur, ráðast gegn þessari sívaxandi fólksfjölgun. sem alltaf eykst með meiri hraða. Og við verðum að stöðva þessa ofneyzlu og stýra tækniþróuninni. Þegar maður talar um jafnvægi, hættir fólki alltaf til að lita á það sem stöðvun, eða eitthvað sem hjakkar fram og aftur í sama farinu. En það kemur aldrei til með að hrífa mannkynið með, ef því er sagt að stöðvast bara þar sem það er komið. — Ég er ekki að gefa hér neina nýja lifssýn. En ef við segjum nú bara við sjálf okkur að við ætlum að losa okkur við þessa hræðilegu byrði. sem sóknin eftir efnalegum verðmætum er, að við getum farið að byggja borgir, þar sem fólk getur lifað eins og manneskjur, að við getum hætt að skilja fólk að í litla kassa. sem allir eru byggðir fyrir fjölskyldur með litil börn — þar sem gamalt fólk á engan stað, unglingar ekkert rúm. ógift fólk ekki heima og enginn staður er fyrir fátæka — og fara að búa okkur heimili aftur, þar sem fólk getur haft ánægju hvert af öðru. Allt þetta er ódýrt, það mengar ekki og leggur ekki of miklar byrð- ir á manninn. Og eyðileggur ekki andrúmsloft okkar. — Þriðji heimurinn? Við gætum losað hann undan áþján hungurs á þessari stundu. Við ráðum, eins og er, við það að fæða alla, eins og þið vítið. Hungrið er misdreifing, sem er að lagast. Samningurinn milli Rússa og Bandarlkjamanna sýnir það — Rússar þurftu korn og fá það keypt I Bandarlkjunum. Og þegar atvinnuleysi og hungur varð I Seattle, þá voru það Japanir, sem sendu fyrstir skip til bjargar, sem er stórkostlegt. Það er ekki neitt hrós um Bandarlkin, en það sýnir fram á nauðsyn sam- stöðu I veröldinni. — Hvernig við gerum þetta á 25 árum? Við verðum að vinna að þvl! Við erum orðin svo vön þeirri hugsun, að ef okkur vantar nýjan bíl, þá sé bara hópað saman sér- fræðingum og þeim sagt að finna upp nýjan bíl. Vanti okkur atóm- sprengju, þá er bara hópur af mönnum látinn loka sig inni og finna hana upp. En breytingar á samfélaginu verða bara ekki þannig. Maður sest ekki einfald- lega niður með gáfuðu fólki og finnur upp breytingarnar. Allir verða að taka þátt I þeim, ef þjóðfélagsbreytingar eiga að verða. Þá verður að minnsta kosti meiri hluti þjóðarinnar að hrífast með. Við vitum ekki enn hvernig við getum nýtt sjónvarpið til þess. Jafnvel ekki sjónvarp með gervi- hnöttum. Þvl til hróss er það hve Rússarnir eru hræddir við gervi- hnattasjónvarp. Við höfum tækni- lega möguleika núna til að ná til allra. Úr gervihnöttum getum við tekið myndir, sem sýna okkur hvað gerist I öllum heiminum. Við getum fengið fegurstu myndir af því hvernig andrúmsloftið er að mengast. Við getum sýnt myndir af jörðinni, eins og hún sést frá tunglinu og sýnt hve lítil hún er og ein, og hversu mjög hún þarfnast umhyggju og aðgátar. Ég tel að það eitt að sjá jörðina á mynd frá tunglinu, hafi verið virði hverrar krónu, sem látin var I tunglferð- irnar, þvl hún sýndi okkur þetta allt I réttum hlutföllum. Það snerti okkur öll kynlega mikið og verð neisti þess, sem nú er að gerast, þeirrar hreyfingar sem stefnir að þvl að vernda umhverfið. Við höf- um tæknilega möguleika, ef þið, sem hafið yfir fjölmiðlunum að ráða, notið þá, sagði Margaret Mead I fyrrnefndu viðtali. — E. Pá.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.