Morgunblaðið - 20.02.1975, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 1975
7
Rússar
óttast nýjan
Hitler
WASHINGTON — Nokkrir ráða
menn í Kreml eru farnir að hræða
samstarfsmenn sína með því að
núverandi „kreppa kapitalism-
ans" geti haft það í för með sér
að nýr og voðalegur Hitler komi
fram á sjónarsviðið. Einum
bandarískum stjórnmálamanni
eru eignuð nokkur einkenni Hitl-
ers. Sá maður er Henry Jackson
öldungadeildarmaður og sovézkir
fréttaskýrendur, sem lengi gerðu
litið úr möguleikum hans á því að
bera sigur úr býtum í forseta-
kosningunum 1976, gera það
ekki lengur.
„Við verðum að vona," segir
eitt sovézku blaðanna, að banda-
riskir kjósendur muni greiða at-
kvæði gegn stjórnmálamönnum
eins og Jackson, sem eru að kalla
„hörmungar" yfir þjóðina — en
vonir Moskvumannanna virðast
litlar. Þetta kom fram i skrifum
blaðsins um viðskipta- og ferða-
frelsis-samkomulagið, sem er eitt
dæmið um áhrif Jacksons, þótt
þau áhrif séu aðeins til þess fallin
að gera Kremlverjum grikk.
Upphafsmaður Hitlers-
grýlunnar var Boris Ponomarev
stjórnmálaráðsfulltrúi, sem er al-
mennt talinn harðlínumaður.
Hann sagði t ræðu fyrir herfor-
ingjum að öflin, sem nú berðust
gegn fasisma, væru miklu sterk-
ari en á dögum Hitlers. Hins veg-
ar hélt hann þvi fram að ef fasist-
ar brytust til valda nú, á kjarn-
orkuöld. hefði það „jafnvel meiri
hættu í för með sér fyrir mann-
kynið" en á dögum Hitlers.
Jackson er sá maður, sem i
Moskvu er sagður hvatamaður
þeirrar stefnu að beita Sovétrikin
þrýstingi og „fjárkúgun" og ýta
þeim fram á yztu nöf. Kissingerer
alger andstæða hans að dómi
Rússa og maður friðar. Hann hef-
ur kunnað að færa sér i nyt ótta
Moskvumannanna og fengið frá
þeim nokkrar tilslakanir. sem
gætu stuðlað að þvi að Jackson
komist ekki i Hvita húsið. Hvern-
ig tókst Kissinger að fá fram það
sem hann kallar „verulegar til-
slakanir" i kjarnorkumálum í
Vladivostok þegar þeir höfðu
neitað Nixon um þær á toppfund-
inum í fyrrasumar?
Kissinger hefur greint frá þvi
að jafnvel þótt „Watergate sé
látið liggja milli hluta" hafi Nixon
verið máttvana forseti, en á hinn
bóginn hafi Ford lýst yfir þvi að
hann gefi kost á sér til endurkjörs
1976. Þetta telur Kissinger að
geti hafa haft áhrif á Kremlverja í
þá átt að fallast á tilslakanir i
Vladivostok „þvi það tryggði
lengra stjórnmálajafnvægi" —
með öðrum orðum: þeir gátu gert
sér vonir um að Ford gæti útilok-
að möguleika Jacksons. Þar sem
Kissinger sagði þetta blaðamönn-
um i Vladivostok er ekki fjarri
lagi að ætla að þetta hafi verið
kjarninn i röksemdum hans i við-
ræðunum við Rússa. beint eða
óbeint.
En jafnskjótt og Jackson jók
þrýstinginn gróf hann undan
hvers konar samkomulagi á
þessa lund, jafnvel þótt það hafi
aðeins verið þegjandi samkomu-
lag. Stjórnin reyndist þess ekki
megnug að verja Kremlverja gegn
Jackson-öflunum i viðskipta- og
ferðafrelsismálinu og það treysti
stöðu harðlinumannanna i
Moskvu, sem voru alltaf mót-
fallnir tilslökunum Brezhnevs.
Mestallar opinberar umræður
einskorðuðust við þetta efni og
meðan á þeim stóð fór samkomu-
lagið um að bægja Jackson frá
Hvita húsinu jafnframt að renna
út i sandinn.
EFTIR
VICTOR
ZORZA
Henry Jackson.
Bezta aðferðin til að sigra
Jackson í kjarnorkumálinu hefði
verið sú að sýna fram á að Hvita
húsið og Kreml gætu fengið
miklu meira áorkað i þvi skyni að
fækka kjarnorkuvopnum með
gagnkvæmu samkomulagi en
Jackson gæti með þvi að beita
Moskvumennina þrýstingi. i
Valdivostok-samningnum var til-
tekinn óvenjulega hár hámarks-
fjöldi kjarnorkuvopna — 2.400
eldflaugar, þar af 1.320 búnar
mörgum kjarnaoddum — sem
skyldi vera leyfilegur til ársins
1 985. Eða var það ekki svo?
Almenn reiði gegn þessum
mikla hámarksf jölda og þeirri
ákvörðun að fresta frekari samn-
ingaviðræðum um fækkun kjarn-
orkuvopna þar til „eigi siðar en
1980—81" varð til þess að
verulega mikilvæg breyting var
gerð á Vladivostok-samningnum
og það reyndist furðulega auð-
velt. Nú hefur verið ákveðið að
viðræðurnar um niðurskurð
kjarnorkuvopna skuli hefjast jafn-
skjótt og siðasta höndin hefur
verið lögð á Vladivostok-
samninginn á fyrirhuguðum fundi
æðstu manna Sovétríkjanna og
Bandarikjanna i sumar. Auk þess
er Kissinger farinn að leggja á
það áherzlu að þegar þessi samn-
ingur hafi verið undirritaður eigi
að vera auðvelt að lækka há-
marksfjöldann mjög fljótt og all-
verulega.
Hann hefur greint frá þvi að
það „valdi engri úrslitabreytingu
hvort hámarksfjöldinn sé 2.400
eða 2.200 eða 2.000 ef út i það
er farið." Hann heldur þvi nú
fram að þegar Vladivostok-
samningurinn taki gildi verði erf-
itt að sanna „að nokkrar aukaeld-
flaugar breyti miklu" — og auð-
vitað hefur hann rétt fyrir sér. En
af hverju sagði hann þetta ekki
strax? Af hverju gaf hann í skyn
eftir fundinn i Vladivostok að nið-
urskurðurinn kæmi ekki til fram-
kvæmda fyrr en eftir tiu ár?
Hvers vegna reyndi hann ekki i
Vladivostok, eins og hann játar
nú, „að athuga hvort nokkur
hundruð færri (eldflaugar) gætu
gengið"?
Þær staðreyndir, sem nú liggja
fyrir, bera með sér að samkomu-
lagið sem tókst i Vladivostok um
mikinn hámarksfjölda kjarnorku-
vopna átti ekki að vara lengur en
til 1985, gagnstætt þvi sem var
reynt að gefa i skyn i hinni opin-
beru tilkynningu um fundinn.
Báðir aðiljar vissu þá, eins og
Kissinger bendir nú fyrst á, að
samningaviðræður um verulega
fækkun kjarnorkuvopna gætu
hafizt þegar að loknum fundi
æðstu manna landanna á þessu
ári. ekki um eða eftir 1980 eins
og látið var i veðri vaka i Vladivo-
stok-yfirlýsingunni.
Toppfundurinn i sumar verður
haldinn rúmu ári fyrir forseta-
kosningarnar og ef tilkynnt hefði
verið að honum loknum að samn-
ingaviðræðum um fækkun kjarn-
orkuvopna hefði verið flýtt um
fimm ár hefði þeirri hugmynd ver-
ið komið inn hjá mönnum að
skjót breyting hefði orðið og mik-
ið miðað i samkomulagsátt þar
með hefði gagnrýni Jacksons fall-
ið um sjálfa sig. Og á toppfundin-
um á næsta ári, rétt fyrir kosn-
ingabaráttuna. hefði verið hægt
að tilkynna það fækkun kjarn-
orkuvopna, sem Kissinger telur
nú vel hugsanlega, með þvi bram-
bolti. sem heimurinn er farinn að
venjast þegar Kissinger á i hlut.
Þá hefði Ford getað komið
fram i hlutverki mannsins, sem
gat fengið Rússa til að fækka
kjarnorkuvopnum sinum, og beitt
Jackson brögðum til að ráðast á
samning, sem væri litlu verra að
gagnrýna en móðurhlutverkið.
Starfi stjórnmálamanna og diplo-
mata er þannig háttað að slikt
samkomulag hefði ekki verið
ósæmilegt eða siðlaust — það
eitt er rangt i stjórnmálum sem
tekst ekki.
Hafi slíkt samkomulag verið til,
beint eða óbeint, fór það út.um
þúfur vegna þess að Jackson og
öldungadeildarmenn, sem eru
andvigir miklum herútgjöldum,
menn eins og Edward Kennedy,
tóku saman höndum um að knýja
á um endurskoðun á Vladivostok-
samningnum. Nú ráðgerir Jack-
son yfirheyrslur i öldungadeild-
inni með miklu brambolti i þvi
augnamiði að knýja á um meiri
niðurskurð kjarnorkuvopna. Ef
honum verður komið til leiðar
fyrir næstu kosningar sem telja
má vist, eignar Jackson sér heið-
urinn af þvi — og fær atkvæði út
á það. Þannig mátar hann Kiss-
inger.
Kremlverjar munu sem fyrr
telja hann hættulegan, þvi sá nið-
urskurður, sem Jackson reynir að
fá framgengt, krefst meiri tilslak
anna af hálfu Rússá en Kissinger
telur mögulegar. Stefna Jack-
sons i öðrum málum, eins og i
viðskiptum og málum Gyðinga,
verður til þess að Kreml svarar
með stöðugt meiri harðlinustefnu
i öllum þeim málum, sem varða
samskipti Bandarikjanna og Sov-
étrikjanna, svo að spár hans
munu rætast af sjálfu sér.
Upphaflega tókst samstarf milli
Kremlar og Hvita hússins um að
stöðva Jackson og áður en lýkur
getur það samstarf haft það í för
með sér að hann kemst í nám-
unda við Hvita húsið — einkum
ef útlitið i efnahagsmálum verður
áfram eins skuggalegt og það er
nú.
21 árs stúlka með .stúdentspróf og bílpróf óskar eftir starfi. Upplýsingar i sima 38706. Til sölu á gamla verðinu 2 Westinghouse þurrhreinsivélar og áhöld. Uppl. í síma 4051 2 eftir kl. 5.
Kettlingur Fallegur stálpaður kettlingur fæst gefins á gott heimili. Uppl. i síma 1 4963 eftir kl. 18. Til sölu Scania Super 50 árg. '71. Til greina koma skipti á búkkabil. Uppl. i sima 94—7371, Bolung- arvík.
2ja til 3ja herb. íbúð óskast til leigu. Þrennt i heimlli. Smávegis húshjálp kæmi til greina. Uppl. í síma 85508. Rennilásar og hnappar í miklu úrvali. Haraldur Árnason Heildverzlun Sími 1 5583.
Ég er tvitug stúlka og mig vantar vinnu. Er vön skrif- stofustörfum, en margt annað kemur til greina. Hef góða vélrit- unarkunnáttu. Uppl. í sima 53257. Þýzk hjón (30 ára) óska eftir að komast i bréfasam- band við islenzk hjón. Ætla að heimsækja Norð-Austurland i sumar og vera þar i nokkrar vikur. Tilboð sendist Mbl. sem fyrst merkt: „þýzk hjón — 7136".
Sá sem varð sjónarvottur að þvi að bakkað var á hvitan Mazda bil framan við Skóla- vörðust. 12 þann 17. okt. s.l. Vinsamlegast hafi samband við Höskuld Egilsson i sima 24739 eða 12723. JRorgunbtebtb í^mnRCFniDnR T mnRKRÐ VDRR
Vopnfirðingar
Aðalfundurinn er í kvöld (fimmtud.) í Lindarbæ.
Gleymið ekki að koma, en mætið vel og stund-
víslega.
Stjórnin.
Lyftaradekk
23x5 650x10
25x6 750x10
27x6 825x10
18x7 27x10-12
29x7 700x12
500x18 600x15
21x8-9 700x15
600x9 750x15
700x9 825x15
AUSTURBAKKI fSÍMl: 38944
Arshátíóir Veislur
ÞINGHOLT
Bergstaðastræti