Morgunblaðið - 20.02.1975, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. FEBRUAR 1975
5
Elztu
húsá
ísafirði
friðlýst
Þann 16. janúar slðastliðinn var
samþykkt f bæjarstjórn Isafjarð-
ar að friðlýsa nokkur elztu húsin
hér f kaupstaðnum. Hér er um að
ræða húsaþyrpinguna f Neðsta-
kaupstað og fbúðarhús f Hæsta-
kaupstað. Þessi hús voru á sfnum
tfma aðsetur einokunarkaup-
mannanna á Skutulsfjarðareyri
og er elzta húsið byggt árið 1734
og það yngsta árið 1788. Alls eru
húsin fimm að tölu og þar af
fjögur þeirra f Neðstakaupstað.
Friðlýsing þessi er gerð f sam-
ræmi við lög um þjóðminjar og er
áætlað að varðveita húsin f sinni
upprunalegu mynd og verður
varðandi viðhald og endurbætur
húsanna haft samráð við Sögu-
félag Isfirðinga.
Byggingarframkvæmdir á
tsafirði.
Nú er nýlega lokið lóðaúthlutun
í nýju einbýlis- og raðhúsahverfi
sem áætlað er að rísi inni í
Skutulsfirði á þessu ári. Úthlutað
var lóðum undir 58 fbúðir og verð-
ur væntanlega hafizt handa við
framkvæmdir nú í vor. Þá er haf-
in hér í bænum undirbúningur að
stofnun steypustöðvar og er það
fyrirtækið Vesttak sem stendur
að þeim framkvæmdum. Hafa
þeir þegar fest kaup á tveimur
steypubifreiðum frá Þýzkalandi
og komu þær með skipi til bæjar-
ins síðastliðinn þriðjudag. Er hér
tvímælalaust um stórmál að ræða
fyrir byggðarlögin á norðanverð-
úm Vestfjörðum, því miklar fram-
kvæmdir eru á döfinni hér um
þessar mundir. Er áætlað að stöð-
in taki til starfa nú strax í vor ef
tekst að tryggja nægilegt fjár-
magn til framkvæmda og er for-
ráðamaður fyrirtækisins nú er-
lendis til að kanna kaup á heppi-
legum vélum.
Verzlunarhúsið f Neðstakaupstað hefur nú verið friðlýst ásamt fleiri
gömlum húsum á svipuðum slóðum á ísafirði. 1 þessu húsi bjó lengi
Finnur Jónsson fv. ráðherra og enn er búið í því.
Kvöldskóli á ísafirði
Á Isafirði hefur í vetur verið
starfrækt kvöldfræðsla fyrir full-
orðna og hefur verið mikil og góð
þáttiaka í þeirri starfsemi.
Kennsla hefur farið fram í hús-
næði Menntaskólans á ísafirði og
hafa starfandi kennarar í bænum
að mestu séð um kennsluna. Nú
eru um 130 nemendur í skólanum
og eru kennd enska, danska,
þýzka, bókfærsla og íslenzka fyrir
útlendinga. íslenzkunám stundar
hér hópur stúlkna frá Astralíu og
Nýja-Sjálandi og einn Persi sem
eru við störf i frystihúsinu i
Hnífsdal. Skólastjóri kvöldskól-
ans er frú Bryndís Schram, en
hún gengnir nú einnig embaetti
skólameistara við Menntaskólann
á isafirði i fjarveru Jóns Hanni-
balssonar, sem nú situr á þingi
sem varamaður Karvels Pálma-
sonar.
Iþróttahús
Hér hefur öll innanhús iþrótta-
starfsemi legið niðri um nokkurt
skeið, þar sem kyndibúnaður
iþróttahússins og sundlaugarinn-
ar er ónýtur. Hefur þar af leið-
andi orðið að flytja alla leikfimis-
kennslu upp i skíðabrekkurnar og
kemur sér vél að nægur snjór er
til skíðaiðkana og stutt að fara
upp í skíðabrekkurnar. Hér beint
uppi af bænum er Stóraurð og er
þar skiðalyfta og upplýst brekka
þannig að hægt er að skíða fram á
kvöld. Hér er eins og jafnan að
Framhald á bls. 18
Þeim fjölda vina, sem heiðruðu mig og glöddu
5. febr., erum við hjónin hjartanlega þakklát.
Kveðjurnar, óskirnar, nöfnin minna á margt,
sem gott er að muna og rifjast upp þegar ég les
þessar mörgu og fallegu kveðjur. Ylurinn á að
endast mér fram að „feginsdegi fira", sem
Sólarljóð kalla daginn fyrir handan he/ og heim.
Lifið ö/l heil.
Jón Auöuns
© Notaðir bílar til sölu O
Volkswagen 1 200 árg. '68 — '71
Volkswagen 1300árg. '70—'74.
Volkswagen 1303 árg. '73 — '74.
Volkswagen 1600árg. '67 — '73.
Volkswagen sendiferðabíll árg. '69 — '73.
Volkswagen K—70 árg. '71.
Fiat 1 32 árg. '73
Vauxhall Viva árg. '71
Landrover diesel árg. '70 — '73.
Landrover bensin árg. '64 — '72.
Landrover
Range Rover árg. '72 og '74.
GMC Astro vörubifreið 1 4 tonn árg. '74.
Tökum notaða bíla í umboðssölu. Rúmgóður
sýningarsalur.
HEKLA HF.
Laugavegi -170—172' — Sími 21240
Aðalfundur
Verzlunarmannafélags
Reykjavíkur verður haldinn
að Hótel Sögu, Súlnasal,
fimmtudaginn 27. febrúar
1975 kl. 20.
Dagskrá samkvæmt félags-
lögum.
Verzlunarmannafélag Reykjavikur.
OTRULEGA
ÓDÝRTí
DÝRTÍÐINNI
ÞAÐ ER HÆGT AÐ GERA ÓTRÚLEGA GOÐ KAUP
ÞESSA DAGANA Á ÚTSÖLUMARKAÐNUM OKKAR
MIKIÐ VÖRUÚRVAL
NÚ ER
HVER SÍDASTUR
50-70%
afsláttur
ÖKARNABÆR
Útsölumarkaður Laugaveg 66
VlKUR ELDHÚSSKÁPARNIR er
stöðluð íslenzk framleiðsla,
sem sameinar það tvennt að vera
vandaðir og ódýrir.
Hannaðir fyrir islenzkan smekk, og
henta í allar stærðir eldhúsa. Vegna
þess að þeir eru byggðir í einingum
sem þér getið valið úr og raðað
saman, og par með fengið yðar eigið
eldhús.
Með ótrúiegu litavali í plasti, og
fjölmörgum möguleikum í sam-
setningu getið þér gert eldhúsið
enn persónulegra.
Komið og skoðið sýningareldhúsið
á framleiðslustað.
Ef þér komið með mál á eldhúsi,
eða teikningu,
getum við gefið fast verðtilboð.
Húsgagnaverkstæii ÞÓRSINGÓLFSSONAR
SÚÐAVOGI 44 SÍMI 31360 (gengið inn fra’ Kænuvogi)
r