Morgunblaðið - 13.04.1975, Side 3
3
DAS-húsið að Furulundi 9, Garðahreppi.
2 DAS-hús dregin út
á happdrættisárinu
SÝNING hins nýja DAS-húss
að Furulundi 9, sem dregið
verður út að ári hófst i gær og
verður húsið sýnt helga daga og
laugardaga frá klukkan 14 til
22, en virka daga frá klukkan
18 til 22. A blaðamannafundi i
húsinu í fyrradag, kom fram
hjá framkvæmdastjóra happ-
drættisins, Baldvin Jónssyni,
að liklegt söluverðmæti hússins
að ári væri um 20 milljónir
króna og er því húsið stærsti
happdrættisvinningur á einn
miða hérlendis.
A blaðamannafundinum
svöruðu forráðamenn happ-
drættisins að nokkru þeirri
gagnrýni, sem vart hefur orðið,
vegna þess að siðasta DAS-
húsið kom upp á óseldan miða.
1 reglugerð um stóru happ-
drættin er gert ráð fyrir að
happdrættin spili i sjálfu sér á
óselda miða og geti því fengið
vinninga, sem viðskiptavinir
þess. Forráðamenn happdrætt-
isins sögðu að DAS væri eina
happdrættið, sem gæfi við-
skiptavinum aftur kost á vinn-
ingum, sem komið hefðu upp á
óseldan miða — og þrátt fyrir
það væri það eina happdrættið
sem sætti gagnrýni fyrir það.
Við það að DAS-húsið að Tún-
götu 12, Alftanesi, verður nú
dregið út i desember og þvi gert
að eins konar jólaglaðningi fyr-
ir viðskiptavini DAS, hækkar
vinningshlutfall happdrættis-
ins um 5% og verður 65% í stað
60% af útgefnum miðum.
Nokkrar knýjandi breytingar
hafa verið gerðar. Miðaverð
hefur verið hækkað i 350 krón-
ur á mánuði, enda sögðu for-
ráðamenn happdrættisins að
miðaverð hefði dregizt aftur úr
verðlagsþróun undanfarið.
Ibúðavinningar verða 5 millj-
ónir og 2 milljónir hver og bíla-
vinningar verða hálf milljón og
ein milljón hver. Þrír valdir
bílar verða á vinningaskrá,
Mercury Monarch í mai að verð-
mæti 2,3 milljónir króna, Audi
100 L í ágúst að verðmæti 1,7
milljónir og Cherokee I október
að verðmæti 1,8 milljónir. Þá
verður tekin upp sú nýjung að
meðal vinninga verða 150 utan-
landsferðir á 100 og 250 þúsund
krónur hver. Aðrir vinningar
eru svo húsbúnaðarvinningar á
50, 25 og 10 þúsund krónur
hver, en sá siðastnefndi er jafn-
framt lægsti vinningur happ-
drættisins. Baldvin Jónsson
sagði, er hann sýndi blaða-
mönnum DAS-húsið nýja í
fyrradag, en það er hið vandað-
asta og einkar skemmtilegt:
„Okkur er sérstakt ánægjuefni,
hversu málefni aldraðra eru
orðin meira og meira I sviðsljós-
inu. Væntum við að það muni
styrkja Happdrætti DAS mál-
efnislega og efla framlag þess
til meiri og meiri úrbóta í mál-
efnum aldraðra og þannig flýta
sem mest uppbyggingu hinnar
nýju Hrafnistu."
I DAS-húsinu sýna hinir
ýmsu aðilar að venju húsbúnað
og heimilistæki. Þá sýnir Atli
Már að venju málverk, sem eru
til sölu.
Pétur Sigurðsson, formaður
stjórnar Dvalarheimilis aldr-
aðra sjómanna, kynnti að Furu-
lundi 9 væntanlega bygg-
ingu hinnar nýju Hrafnistu í
Hafnarfirði, en fyrsta fram-
kvæmdin verður boðin út í
næstu viku og er það fram-
kvæmd að upphæð hundruð
milljóna króna. Þessi fyrsti
áfangi hinnar nýju Hrafnistu
verður fjögurra hæða hús og
verða á neðstu hæðinni ýmsar
þjónustustofnanir fyrir gamla
fólkið, en á efri hæðunum ibúð-
ir bæði fyrir tvo vistmenn eða
einn. Vonir standa til, að unnt
verði að opna tilboð i bygging-
una á lokadaginn 11. mai, samn-
ingar hafi tekizt við aðila á sjó-
mannadaginn 1. júni og að
þessi áfangi verði fullbúinn eft-
ir 2 ár, en þá verða 40 ár frá
stofnun sjómannadagsins.
Stjórn DAS i nýja DAS-húsinu.
Ný og góð rækju-
mið í Axarfirði
Húsavík, 10. april —
RANNSÖKNASKIPIÐ Arni Frið
riksson fann fyrir páska í leið-
angri sinum ný rækjumið á
innanverðum Axarfirði. 1 fram-
haldi af þvi hefur hafnrannsókna-
báturinn Dröfn, sem nú er í leið-
angri fyrir Norðurlandi rannsak-
að þetta nánar. 1 gær fann hann
rækju á áður óþekktum miðum í
Axarfirðinum og virðist um tölu-
vert magn að ræða og á allstóru
svæði. Nánar átti að athuga þetta
í dag, en veður hefur hamlað
frekari rannsóknum. Leiðangurs
stjóri er Sólmundur Einarsson.
Frá áramótum hefur þorskafli
verið mjög lítill á miðum Húsa-
vikurbáta og afli frá áramótum
mun minni en síðastliðið ár. Veð-
ur hafa verið óhagstæð, svo að
sjóferðir eru mun færri en i
fyrra.
Þeir, sem stunda grásleppuveið-
ar, hafa nú lagt net sín og hefur
veiði verið sæmileg, en veður
óhagstæð.
— Fréttaritari.
Merkjasala ljós-
mæðra í dag
Arlegur merkjasöludagur Ljós-
mæðrafélags Reykjavfkur er f
dag. Eins og verið hefur rennur
ágóðinn til Ifknarmála, — að
þessu sinni til fjölfat laöra barna.
Merkin verða afhent f Alfta-
mýrarskóla, Arbæjarskóla, Breið-
holtsskóla, Breiðagerðisskóla,
Fellaskóla, Melaskóla og Lang-
holtsskóla frá kl. 10 f.h.
Leikfélag M.A. sýnir Atómstöðina
Akureyri 8. april.
Leikfélag M.A. frumsýndi sjón-
leikinn Atómstöðina (Noróan-
stúlkuna) eftir Halldór Laxness í
Samkomuhúsi bæjarins sl.
fimmtudagskvöld kl. 20.30. Leik-
stjóri er Kristín Ölafsdóttir, og
með helztu hlutverk fara María
Árnadóttir, Tryggvi G. Hansen,
Guðmundur Rúnar Heiðarsson
og Jóhann V. Ólason.
Síðasta verkefni Leikfélags
Menntaskólans á, Akureyri var
Minkarnir eftir Erling E.
Halldórsson, en það verk var sýnt
fyrir tveimur árum. — Ætlunin
er að sýna Atómstöðina á
Akureyri í kvöld, sunnudags-
kvöld, en einnig eru ráðgerðar
sýningar á Húsavík og Siglufirði.
Formaður Leikfélags M.A. er
Gisli Ingvarsson.
Gull og
# silfur
kaupstefna i Kaupmanna-
höfn. Hópferð 26. apríi
2. mai
Flugferð og gisting með
morgunverði
VerSfrá kr. 36.500.-
VVS-MÁSSAN
Hópferð á Hitavatns- og
hreinlætistækja kaup-
stefnu i Gautaborg 8.-
1 5. maí.
Flugferðir og gisting m/-
morgunverði.
Verð frá kr. 37.640,-
Hópferð á
húsgagnasýningu
yí Kaupmannahöfn/
Brottför 6. mai.
Brottför:
April: 19,26.,
Maí: 10., 24.
Júni: 1., 8., 15.,
22 og 29.
Júlí: 6., 13., 20. og 26
Verð með vikugistingu
og morgunverði frá
kr. 32.500.-.
Dvöl á góðum hótelurrf
eða íbúðum á skemmtileg-
asta sumarleyfisstað
Spánar
— LLORET DE MAR —
Ödýrar ferðir við hæfi
unga fólksins.
Fyrsta brottför: 2. júní.
Verð frá kr. 34.500 -
TORREMOLINOS
BENALMADENA
FUENGIROLA
Fyrsta brottför: 18. maí.
Verð með 1 flokks
gistingu í 2 vikur
frá kr. 38.500.-.
Allir mæla með Útsýnarferðum
Kaup-
mannahöfn
Ódýrar vikuferðir:
Brottför: 1 8. apríl.
7. maí. Uppselt
30. maí. Uppselt
Verð með
vikugistingu og
morgunverði frá
kr. 33.700. .
Gullna
ströndin
Lignano
Bezta baðströnd Italíu
Fyrsta flokks aðbúnaður
og fagurt, friðsælt um-
hverfi Einróma álit far-
þeganna frá i fyrra
„PARADÍS Á JÖRÐ"
Fyrsta brottför: 1 7 mai
Verð með fyrsta flokks
gistingu frá
kr. 39.500.-.
Ítalía
Gardavatnið
FERÐASKRIFSTOFAN ÚTSÝN AUSTURSTRÆTI 17 SÍMAR 26611 OG 20100