Morgunblaðið - 13.04.1975, Page 11

Morgunblaðið - 13.04.1975, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. APRlL 1975 11 Sextugur: Séra Bjartmar Krist- jánsson Laugalandi Séra Bjartmar Kristjánsson, dóknarprestur á Laugalandi I Eyjafirði, er sextugur á morgun, 14. apríl. — Fæddur er hann að Ytri-Tjörnum í Öngulstaðahreppi 14. apríl 1915, sonur hjónanna Kristjáns Helga Benjaminssonar bónda á Ytri-Tjörnum og Fanneyjar Friðriksdóttur. Séra Bjartmar varð stærðfræði- stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri 17. júní 1941. Hann fór í guðfræðideild Háskóla Islands og lauk þaðan kandidatsprófi 29. maí 1946. Þá leið hans út i prests- starfið. Hann varð prestur að Mælifelli í Skagafirði og vígður 14. júlí 1947. Fyrir hartnær sjö árum kom séra Bjartmar til starfa í heima- byggð sinni. Bróðir hans, séra Benjamín Kristjánsson prestur og prófastur á Laugalandi, fékk lausn frá störfum að eigin ósk, eftir langa og dygga þjónustu i tæp 35 ár. Flutti hann til Reykja- víkur. Þá kom séra Bjartmar. Hann var skipaður prestur í Laugalandsprestakalli 1. júní 1968, og siðan hefir hann verið sóknarprestur i Eyjafirði fram. Séra Bjartmar hefir víðan og — Eiginkonur Framhald af bls. 10 langar farið sér heldur hægar. Þar sem Titó er nú kominn á 83. árið, verður hann að fara að hlífa sér. Jovanka fylgist nú með mataræði hans og sér um, að hann fái nægan svefn. Eftir því sem þeir segja, er gerzt þykjast vita, tekur hann einnig reglubundið inn hormónalyf, sem rússneski læknirinn dr. Anna Aslan ráðleggur honum. Eina langferðin, sem Tito ráðgerir 1975 er ferð til Peking. En það er ekki aðeins undir heilsufari hans komið, hvort af þeirri ferð veður, heldur fer það einnig eftir ástandinu í Júgóslavíu. Margt bendir til þess, að landið eigi við ískyggi- lega erfiðleika að etja. Króatar, Slóvenar og Svartfellingar hafa æ meira á hornum sér vegna þess, sem þeir kalla yfirgang Serba. Þá dreymir um að losna úr viðjum að fyrirmynd Pakist ans og Bangladesh. 1 Belgrad er þessum upr 'eisnarmönnum gefið að sök i sömu andránni og fasistum og Miskvukommúnist- um, að þeir ætli sér að ná yfir- ráðum i landinu eftir að Titó er farinn frá völdum. Með nliðsjón. af þessu vill Jovanka umfram allt koma í veg fyrir, að hinn aldurhnigni eiginmaður hennar hljóti svip- uð örlög og Negus, Abyssiniu- keisari, sem háaldraður verður að horfa á hrun æviverks síns. Þess vegna lítur hún beinlínis á það sem skyldu sína við föður- landið að hlúa að honum eftir beztu getu, unz hann hefur náð að skipa fyrir um rikiserfðir. 1 viðleitni sinni til að tryggja ein- ingu og sjálfstæði Júgóslavíu, styðst Titó fyrst og fremst við herinn, og Jovanka lítur á sig sem hermann nákvæmlega eins og í upphafi. Þar með verður hin fimmt- uga frú Titó sú kvengerð, sem æ sjaldgæfari er á timum „frelsisbaráttu kvenna". Hún hefur bundið allt sitt lif örlög- um þess manns, sem hún elsk- ar. Þegar hann hverfur, mun hún ejnnig ganga af leiksviði heimsins. Hið bezta, sem hún getur vænzt, er, að arftak- ar hans virði hana eins og „rauða Begum“ (heiðurstitill indverskra furstafrúa. Þýð.). Það þarf mikið hugrekki til þess að leika slíkt hlutverk til enda, en hvað sem Jovanka Broz-Titó kann að eiga eftir að missa, þá verður það áreiðan- lega ekki hugrekkið. Úr „Welt am Sonntag" eftir G.W. Herald. — svá — þýddi. mikinn verkahring. Laugalands- prestakall er eina prestakallið norðan fjalla með sex kirkjur. Ein þeirra kirkna, Möðruvallakirkja i Saurbæjarhreppi er að visu ekki í notkun eins og sakir standa, þar sem hún fauk af grunni sinum í ofviðri og skemmdist mikið. Almennur áhugi er fyrir því, að Saurbæjarhreppur sameinist um smiði nýrrar kirkju. Ef af þvf verður, mun sú kirkja varðveita einn mesta helgigrip, sem til er á Islandi og tilheyrir Möðruvalla- kirkju, en það er altaristafla úr alabasti frá 15. öld. Þegar hugsað er um það, að séra Bjartmar Kristjánsson er orðinn sextugur að aldri, er ekki annað hægt að segja en hann beri aldurinn vel, ef aldur skyldi kalla. Hann nýtur góðrar heilsu. Svo er hitt, sem ekki siður mikils virði, að vera síungur i anda, vak- andi af áhuga og frjór I hugsun. „Bros og giatt geð lengir lifið og eykur velliðan,“ segir spakmælið, og postulinn skrifar: „Verið glað- ir vegna samfélagsins við Drott- in“. Það eru sannindi, sem liggja til grundvallar lífsstefnu og skoð- un séra Bjartmars, og dylst það ekki á samverustundum með þessum kæra starfsbróður. Hann sameinar hvorttveggja svo vel, að geta verið hrókur alls fagnaðar i vinahópi og alvörumaður. Séra Bjartmar Kristjánsson er drengur hinn bezti. Af löngum og góðum kynnum hefi ég lært að þekkkja hann. Hann er traust- vekjandi og trygglyndur. Hann er prúðmenni mikið og vinnur störf sín I kyrrþey, svo sem kostur er, því að hann er hógvær og hlé- drægur. I prestsstarfi sinu vandar hann hvert verk og er fundvís á efni til uppbyggingar i prédikun- arstarfi, sem hverjum presti er nauðsynlegt. Ræður hans eru rök- fastar, gerhugsaðar og á fögru máli. Grunntónn þeirra er trú, von og kærleikur, þar sem kær- leikurinn er mestur. Vinátta og hlýhugur er mikils virði af öllu starfi og samvinnu. Þakkir flyt ég séra Bjartmari fyr- ir ánægjulegt samstarf i félags- samtökum og ánægjuleg kynni frá þvi að við vorum báðir i skóla og siðan í preststarfi. Ég vil fyrir hönd okkar hjónanna óska honum innilega til hamingju með afmælið, hans ágætu konu, frú Hrefnu Magnúsdóttur og börnum þeirra á þessum merku timamótum. Ég bið þess, að Guð blessi honum og allri fjölskyldu hans ófarinn æviveg, og að sókn- arbörnin fái sem lengst og bezt að njóta þjónustu hans og starfs- krafta. Pétur Sigurgeirsson P.S. Það skal fram tekið, að sr. Bjartmar verður eigi heima á af- mæli sínu. Rnnir þú til feróalöngunar, þá er það vitneskian um voríð erlendis sem veldur 25% lækkun á fargjöldum til Evrópu á tímabilinu 1. apríl til 15. maí. loftleidir /SLAJVDS Felóg sem sjá um föst tengsí við umheiminn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.