Morgunblaðið - 13.04.1975, Síða 24

Morgunblaðið - 13.04.1975, Síða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. APRlL 1975 Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson. Fréttastjóri Björn Jóhannsson. Auglýsingastjóri Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn og afgreiðsla Aðaistræti 6, sími 10 100. Auglýsingar Aðalstræti 6, sími 22 4 80. Áskriftargjald 700,00 kr. á mánuði innanlands í lausasölu 40,00 kr. eintakið taka vísitöluna úr sam- bandi vorið 1974, en nú- verandi ríkisstjórn setti síðan lög um svonefndar launajöfnunarbætur í stað verðlagsuppbótar. Það er ekki einvörðungu, að vísi- tölukerfið hafi á margan hátt verið verðbólguhvetj- andi, heldur hefur það mjög bundið hendur stjórnvalda við val á efna- hagsaðgerðum. Endurskoðun vísitölukerfis rátt fyrir óvenju erf- iðar aóstæóur og óhjá- kvæmilega kjararýrnun hefur að mestu leyti tekizt aö tryggja vinnufriö fram til þessa. Þetta er umtals- verður árangur, en jafn- framt verða menn að gera sér ljóst, að þeir kjara- samningar, sem nýlega voru undirritaðir, gilda aó- eins til bráðabirgða. Fyrir dyrum standa því áfram- haldandi viðræður milli aðila vinnumarkaðarins. Þessar viðræður munu fyrst og fremst snúast um nýskipan vísitölukerfisins. Geir Hallgrimsson, for- sætisráðherra, gerði þetta atriði aö umtalsefni á aðal- fundi Vinnuveitendasam- bandsins, sem haldinn var í síðustu viku. Forsætisráð- herra sagði m.a., að al- mennt væri viðurkennt, að verðtrygging launa í einu eða öðru formi gæti verið æskileg bæði til að stuðla að auknu launajafnrétti og meiri kyrrð á vinnu- markaðnum en ella. Á hinn bóginn sagði ráðherra, að vísitölukerfið hefði þurft endurskoðunar við og því bindi ríkisstjórnin miklar vonir við niðurstöðu þeirr- ar endurskoðunar, sem fram ætti að fara í komandi viðræðum launþega og vinnuveitenda. Ljóst er, að hér er um mjög viðkvæmt mál að ræða, en flestir gera sér nú grein fyrir naifðsyn þess að endurskoða þetta kerfi, enda hefur það ekki þjónað hagsmunum launþega, þegar á hefur reynt. Síðast varð vinstri stjórnin að I ræðu sinni, sem áður er nefnd, benti forsætisráð- herra á, aö ljóst væri, að engin reikningsformúla gæti til lengdar verótryggt laun. Kaupmátturinn hlyti jafnan að ráðast af afkomu þjóðarbúsins og öllum atriöum þeirra samninga, sem gerðir eru hverju sinni. Þessa staðreynd er nauðsynlegt að hafa í huga, ef menn í alvöru vilja stefna aö raunhæfum kjarabótum og draga úr verðbólgu. Þá vék forsætisráðherra aö því, að ríkisstjórnin hefði hug á að kanna nánar vísitölubindingu lánsfjár. Hér væri fyrst og fremst um það að ræða, að sjá fjárfestingarlánasjóðum fyrir nægilegu fjármagni og jafnframt að tryggja verðgildi fjármagns líf- eyrissjóðanna. Forsætis- ráðherra sagði, að það væri því sennilegt, að vísitölu- binding fjárskuldbindinga í einu eða öðru formi yrði aukin á næstu árum. Orð í tíma töluð Fátt er lítilli þjóð, sem okkur Islending- um, mikilvægara en að halda reisn okkar í sam- skiptum við f jölmennari og voldugri þjóðir. Slík reisn felst m.a. í þvi að láta við- skiptalega hagsmuni ekki leiða til stjórnmálalegrar þjónkunar. Þess vegna er það alvörumál, þegar einn af ritstjórum Tímans gagn- rýnir Morgunblaðið vegna skrifa um samskipti ís- lands og Sovétríkjanna á þeirri forsendu, að þannig megi ekki tala, þegar utan- ríkisráðherra hafi nýlega „náð hagstæðari samning- um en áður“ um olíukaup og „íslenzkir timburkaup- menn í Moskvu leita hóf- anna um afslátt á timbur- verði“. Ef afstaöa af þessu tagi — sem væntanlega er einungis sérskoðun þess ritstjóra Tímans, sem um pennann hélt — réði ferð- inni i utanrikismálum Is- lendinga, væri ekki einungis reisn okkar held- ur líka sjálfstæði úr sög- unni. Raunar er það ókurteisi af hálfu ritstjóra Tímans aó nefna nöfn utanríkisráðherra og við- skiptaráðherra í sömu andrá og hann flytur þenn- an boðskap. Báðir eru þeir hátt hafnir yfir slíkan mál- flutning. Hitt er eftirtektarvert að á sömu síðu Tímans og þessi forystugrein birtist er „fréttaskýring“ eftir starfsmann Novosti, sovézku njósna- og áróðursstofnunarinnar, um samskipti Islands og Sovétríkjanna. I þessari frétta„skýringu“ er gefið í skyn, aó sameiginleg yfir- lýsing utanríkisráðherra landanna gefi Sovétríkjun- um rétt til að krefjast stuðnings af íslendingum við aukna þátttöku Sovét- manna í samstarfi Norður- Evrópuríkja (þ.e. Norður- landa) og jafnframt er höfð uppi lítt dulbúin hót- un þess efnis, að íslending- ar muni missa viðskipti við Sovétríkin, ef þeir fari ekki að kröfum þeirra í stjórn- málalegum efnum. Þessi „fréttaskýring“ og forystu- grein Jóns Helgasonar sýna, að leiðari Morgun- blaðsins í fyrradag voru orð í tíma töluð. Rey kj aví kurbréf ^Laugardagur 12. apríl Brynjólfur Jóhannesson Viö andlát Brynjólfs Jóhannes- sonar leikara kveður íslenzka þjóðin einn eftirminnilegasta fulltrúa stéttar sinnar fyrr og síðar, mann sem gekk svo upp í list sinni, að hann unni sér aldrei hvíldar, enda þótt hann stundaði lengst af önnur borgaraleg störf, eins og hver annar þjóðfélags- þegn. Brynjólfur Jóhannesson var i bankastörfum sinum sam- vizkusamur og skyldurækinn maður, eins og i öllum öórum störfum, sem hann gekk að og var kjörinn heiðursfélagi starfs- mannafélags Utvegsbankans, enda var hann í fyrstu stjórn þess félags. En nafn Brynjólfs Jóhannes- sonar mun fyrst og siðast ávallt vera tengt íslenzkri leiklistar- sögu, svo mikinn skerf, sem hann hefur lagt fram til leiklistar i landinu. Valur Gislason segir m.a. í afmælisgrein um Brynjólf sjötugan: „Foreldrar hans voru þau góðu hjón Pálína Brynjólfs- dóttir og Jóhannes Jensson skó- smíðameistari. Hjá þeim ólst hann svo upp, fyrst í Reykjavík og síðan á ísafirði. Til Reykjavíkur fluttist hann svo aftur sem full- þroska maður og hefur átt þar heima síðan. Það má með sanni segja, að för Brynjólfs til ísa- fjarðar hafi verið mikil heillaför, bæði fyrir hann persónulega og fyrir leiklistina í landinu. Þó aó dvöl hans þar hafi verið tiltölu- lega stutt miðað við alla ævi hans, til þessa, þá varð hún þeim mun örlagaríkari. Þar kynntist hann sinni ágætu eiginkonu og lífsföru- naut, Gúðnýju Helgadóttur Sveinssonar bankastjóra, og þar sté hann í fyrsta sinn upp á leik- sviðió, sem hann svo að segja ekki hefur yfirgefið síðan, nú um 50 ára skeió.1' Þetta var rítað í ágústmánuði 1966, en eins og alþjóð er kunnugt átti Brynjólfur enn eftir að leggja eftirminnilegan skerf til íslenzkr- ar leiklistar eftir það. Hann var öllum stundum með hugann við þessa hugsjón sína, og leiklistin átti hjarta hans. Fáir, ef nokkur íslenzkra leikara, hafa gefið jafn mörgum leikpersónum'jafn eftir- minnilegt líf og Brynjólfur Jóhannesson. Það verður ekki rakið hér, þess verður síðar minnzt i Morgunblaðinu. En Brynjólfur Jóhannesson var ekki einungis íslenzkur leikari heldur voru gáfur hans svo fjöl- þættar, að hann var löngu orðinn landskunnur sem upplesari og gamanvisnasöngvari og vann, ásamt öðrum islenzkum leikur- um, sigra á erlendum vettvangi þegar farið var með Gullna hliðið til Norðurlanda við góðan orðstír, en þá lék hann Jón bónda eins og allir vita. Einnig fór hann til Vest- urheims og hélt sjálfstæð skemmtikvöld í flestum byggðum íslendinga þar og var Vestur- Islendingum ekki síður ógleym- anlegur en þeim, sem heima sitja. Brynjólfi Jóhannessyni voru snemma falin ýmis trúnaðarstörf fyrir listamenn og nægir að geta þess, að hann var forseti Banda- lags íslenzkra listamanna í tvö ár. í fyrrnefndri grein Vals Gísla- sonar segir hann m.a. um Brynj ólf: „Hann er mikill vinur vina sinna og beztur þegar mest á reynir, það hafa margir reynt. Brynjólfur er maður ör í lund og getur verið skapmikill þegar því er að skipta og hann er mjög hreinskiptinn, en þó er hlýjan, fjörið og kátlnan yfirgnæfandi lyndiseinkunn hans.“ Valur bætir þvi við, að Brynjólfi Jóhannes- syni hafi fylgt hressandi og örvandi andblær og kom það sér ekki sízt vel í baráttu Leikfélags- manna fyrir byggingu Borgarleik- húss. Karlar eins og ég, bókin sem átti að verða ævisaga Brynjólfs Jóhannessonar, eftir Ölaf Jóns- son, snerist upp í að verða eins konar frásagnir af starfi hans og reynslu hjá Leikfélagi Reykja- vikur, svo mjög unni hann þessu félagi, sem átti hug hans alla tíð. Betri ósk gat hann ekki fengið undir lokin en þá ákvörðun, að Borgarleikhús verði reist. Nú hafa teikningar af húsinu verið samþykktar. Betra veganesti fer Brynjólfur Jóhannesson ekki með, þangað sem hans bíða ný verkefni i gervi nýrrar veraldar. Brynjólfur Jóhannesson er einn hinna siðustu miklu áhugamanna íslenzkrar leiklistar; fólksins, sem vann fullt starf, en heillaðist svo af hugsjón sinni og list, að það vann öllum stundum við borgara- leg skyldustörf, en fór síóan í leikhúsið til æfinga án endur- gjalds. Þetta fólk hefur skilað Is- lendingum þeirri leiklist, sem við erum i senn stolt af og þakklát fyrir. Megi ávöxtur þeirra starfa, sem snillingar eins og Brynjólfur Jóhannesson hafa látið eftir sig, ávallt verða íslenzkum leikhús- mönnum hvatning og viðmiðun. Þá þurfum við ekki að kvíða framtíð íslenzkrar leiklistar, framtið íslenzkrar menningar. Kerfið Grein sú, sem Sigrún Arnbjarn- ardóttir ritaði hér í blaðið s.l. þriðjudag og nefndi Opið bréf til þjóðfélagsins, hefur að vonum vakið mikla athygli. Hún fjallar um viðureign sína við kerfið, einn þátt þess, og varnarleysi einstakl- ingsins gagnvart því. Góður maður hefur lýst kerfinu svo, að það væri orðið eins og ófreskja, sem enginn réði við, og ef hún hristi sig, hrykkju allir af henni. Reynsla Sigrúnar virðist staðfesta þessa skoðun, en viðureign hennar við kerfið lauk á þann veg, að hæstiréttur sýknaði kerfið i heild og lýsti því yfir, að enginn bæri ábyrgð á erfiðleikum þessa einstaklings. Þetta er hörmungarsaga úr vel- ferðarþjóðfélagi. Öll velferðin, öll tæknin, öll menntunin, allt stofn- anahrúgaldið og öll spekin nær ekki Iengra, þegar til kastanna kemur. Og því miður er þetta ekki eina dæmið um varnarleysi ein- staklingsins í viðureigninni við kerfið. Þau eru mörg, bæði hér og annars staðar, enda fara kröfur um valddreifingu og skerðingu hins opinbera valds nú vaxandi, og margvíslegra leiða er leitað til að efla réttindi einstaklinga og gera þeim lifið bærilegra í vél- væddu velferðarþjóðfélagi. Atvinnulýðræði Um langt skeið hafa fræði- menn, iðjuhöldar og verkalýðs- leiðtogar rætt og ritað um leiðir til að efla áhrif starfsmanna á atvinnulifið og þátttöku sem flestra í stjórn atvinnufyrirtækja. Nýlega hefur ungur maður, Ing- ólfur Hjartarson, birt sem handrit ritgerð um atvinnulýðræði. Þar rekur hann m.a. rannsóknir, sem gerðar hafa verið á því, hvaða áhrif það hafi á vinnuafköst og vinnugleði, ef starfsfólk er haft með í ráðum um atvinnurekstur- inn, og skulu hér nefnd tvö dæmi, sem hann tilfærir. „Samanburður var gerður á tveim hópum saumastúlkna. Annar hópurinn fékk, eftir að umræður höfðu farið fram um rekstrarvandamál hópsins, algjör- lega frjálsar hendur við að setja sér sitt eigið framleiðslutakmark. í hinum hópnum var aðeins rætt almennt um rekstrarvandamálin, en hópurinn hafði ekki heimild til að taka neinar ákvarðanir eða setja sér ákveðið framleiðslutak- mark. Fyrirmæli varðandi það komu frá yfirmönnum. Bavelas komst að þeirri niðurstöðu, að fyrri hópurinn, sem bæði ræddi vandamálin og hafði vald til að taka ákvarðanir, vár með mun meiri afköst." Annað dæmi er á þennan veg: „Svipuð tilraun var gerð í ann- arri fataverksmiðju, þar sem úr

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.