Morgunblaðið - 13.04.1975, Side 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. APRlL 1975
NOMUS-nefndir Norðurlanda hafa sent frá sér tilkynningu þar sem boðuð er
190.000 danskra króna fjárveiting á yfirstandandi ári til tónskálda á Norðurlöndum,
er sinna vilja beiðni ýmissa aðila um að semja tónverk til flutnings í ákveðnu skyni
og þeirra, sem taka sér fyrir hendur að flytja verkin. Þessi fjárupphæð er
einkanlega ætluð til höfundarlauna fyrir tónverkin en henni má einnig í vissum
tilvikum verja til kynnisferða tónskálds til þess aðila, er að beiðninni stendur og
flytja á verkið. Öllum er heimilt að sækja um styrki hvort heldur eru opinberar
stofnanir, svo sem sinfóníuhljómsveitir, félög, samieiksflokkar eða einstaklingar,
atvinnutónlistarmenn eða áhugamenn um tónlistariðkun, ef þeir aðeins skuldbinda
sig til að frumflytja verkið sem um er beðið á viðeigandi hátt.
Samvinna Norðurlanda á sviði tónlistarmála hefur farið mjög vaxandi á síðustu
árum, að verulegu leyti fyrir tilstuðlan Norðurlandaráðs. Norrænum tón-
listarmótum af ýmsu tagi fer sífjölgandi og samskipti hljómlistarmanna, bæði
tónskálda, hljóðfæraleikara og tónlistaruppalenda á ýmsum sviðum aukast með ári
hverju. Unnið er því að gera ungum tónskáldum kleift að koma verkum sfnum á
framfæri meðal nágrannaþjóðanna og gefa söngvurum og hljóðfæraleikurum færi á
að fara hljómleikaferðir um nágrannalöndin og sýna sjálfum sér og öðrum hvað í
þeim býr.
I þessu starfi gegna NOMUS-nefndirnar mikilvægu hlutverki. Íslendingar gerðust
aðilar að samstarfi þeirra árið 1971 og fékk íslenzka NOMUS-nefndin nafnið
Tónlistarnefnd alþjóðaviðskipta.
Nefndina skipa Árni Kristjánsson píanóleikari, Jón Nordal tónskáld, skólastjóri
Tónlistarskólans í Reykjavík, Haukur Guðlaugsson, söngmálastjóri Þjóðkirkjunnar
(sem tók við af dr. Robert A. Ottóssyni, er hann féll frá) og Kristinn Gestsson
píanóleikari (sem tók við af Ingvari Jónassyni fiðluleikara, er hann fór utan).
Formaður nefndarinnar hefur frá upphafi verið Árni Kristjánsson píanóleikari,
fyrrverandi tónlistarstjóri ríkisútvarpsins, og hefur Morgunblaðið haft samband við
hann og innt hann eftir frekari upplýsingum um hlutverk og starfsemi nefndanna
um þessar mundir.
Norræn samvinna
sterk lyftistöng ís-
lenzku tónlistarlífí
Samtal við
Árna Kristjánsson,
píanóleikara,
um starf
NOMUS-nefnda
Norðurlanda
sem Islendingar taka þátt í. Sveit-
in, sem skipuð verður allt að 90
hljóðfæraleikurum, þar af um 15
Islendingum, kemur hingað að
lokinni æfingadvöl á sumarnám-
skeiði í Elverum i Noregi.
NOMUS-nefndirnar í Noregi og á
íslandi höfðu samvinnu um að
stuðla að þessari ferð og fengu
100.000 d.kr. fjárveitingu til
hennar.
Þá má geta þess, að æskulýðs-
kór frá Gautaborg fékk styrk til
Islandsferðar og sömuleiðis
hópur hljóðfæraleikara, sem
kallar sig MORA Ungdoms-
spelmanslag.
Aðspurður hvort íslenzk tón-
skáld hefðu notið fyrirgreiðslu og
styrkja frá NOMUS í sambandi
við pöntuð verkefni, sagði Árni,
að hann teldi, að flest okkaryngri
tónskálda hefðu fengið pantanir á
verkum frá ýmsum aðilum,
greiddar af norræna menningar-
málasjóðnum. Þessar pantanir
hefðu verið frá ýmsum aðilum,
kammersveitum og öðrum sam-
leiksflokkum, kórum og Sinfóníu-
hljómsveitum. Pantanir þessar
hafa allar verið frá öðru en
heimalandi tónskáldsins og er það
skilyrði sett að svo sé. „Sinföniu-
hljómsveitin islenzka hefur t.d.
pantað verk frá norska tónskáld-
inu Arne Nordheim, sem á að
byggjast á eldgosinu í Heimaey.
Stóð til að leika það á hljómleik-
um i vetur en á því verður ein-
innar, hefði verið til þess ætlazt
að fyrstu fimm árin yrðu eins
konar reynslutimi í þessu efni, en
árangurinn þætti svo góður, að
unnið væri að því að halda þessu
starfi áfram. „A þessum árum,“
sagði Árni, „hefur verið keppt í
söng og einleik á ýmis hljóðfæri.
Píanóleikarar, organleikarar,
strengjahljóðfæraleikarar blást-
urshljóðfæraleikarar og nú
síðast gitarleikarar hafa átzt við
og nú stendur til að stefna saman
flokkum hljóðfæraleikara,
tveggja til fimm manna. Dóm-
nefnd í hverju landi fyrir sig mun
standa fyrir undankeppni fyrir
næsta haust og velja þrjá flokka,
sem samtals mega ekki vera
skipaðir meira en tíu mönnum.
Þeir taka síðan þátt í úrslita-
keppni, sem haldin verður í
Helsinki í janúar 1976. I stað þess
að veita verðlaun þar, var ákveðið
að úthluta 80.000 dönskum krön-
um, sem skiptast skulu milli beztu
flokkanna og styrkja þá þannig til
hljómleikaferðar um Norður-
lönd.“
Við spuróum Árna að lokum,
hvert gildi hann teldi þessa sam-
vinnu Norðurlanda á sviði tónlist-
ar hafa fyrir islenzkt tónlistarlif i
heild og hann sagði:
„Mér virðist liggja í augum
uppi hvilík lyftistöng norræn
samvinna er íslenzkum tónlistar-
Arni Kristjánsson sagði, að
nefndirnar væru að nokkru leyti
fulltrúar menningarmálanefndar
Norðurlandaráðs, jafnframt því
að vera ráðgjafanefndir norrænu
menntamálaráðuneytanna um
tónlistarmál og tónlistarsam-
vinnu. Þær taka til meðferðar
allar umsóknir um tónlistar-
styrki, sem menningarmálanefnd
Norðurlandaráðs berst og fjalla
um þær, fyrst hver i sinu heima-
landi en siðan á sameiginlegum
fundi, þar sem teknar eru endan-
lega ákvarðanir um fjárveitingar
og hvaða verkefni skuli ganga fyr-
ir öðrum.
„1'járveitingin, sem NOMUS
hefur til umráða á þessu ári,“
sagði Árni, „nemur 440.000
dönskum krónum, eða sem svarar
rúmlega 12 milljónum íslenzkra
króna. Þar af fara 190.000 d.kr. til
að greiða fyrir pöntuð tónverk en
250.000 krónur danskar til hljóm-
leikaferða og skipta á tónlistar-
fólki. Norðurlandaráð leggur
þetta fé til, en þar fyrir utan
veitir það tónlistarverðlaun
annað hvert ár fyrir tónsmíðar og
hefur auk þess staðió straum af
samkeppni ungs tónlistarfólks í
hljóðfæraleik og söng, sem fram
hefur farið i ýmsum greinum á
undanförnum árum.
Árni sagði, að ýmis verkefni
væru í framkvæmd á vegum
nefndanna. Mætti til dæmis nefna
verkefnið „Kynningarhljómleika
ungra listamanna á Norðurlönd-
um“, sem skipulagt hefði verió til
fimm ára, 1973—77. Fyrsta ferðin
í þessum flokki var hljómleika-
ferð Halldórs Haraldsssonar
pianóleikara um Noróurlönd, þar
næst kom hljómleikaferð hinna
ungu finnsku listamanna, sem
komu til Islands á síðasta ári,
píanóieikarans Ralfs Gothonis og
söngvarans Jorma Hynninens.
Næstu þrjú árin verða norskir,
sænskir og danskir tónlistarmenn
styrktir til slíkra ferða.
„Af öðrum verkefnum, sem
NOMUS hefur styrkt“ sagði Arni,
„má nefna för Polýfónkórsins til
Norðurlanda fyrir tveimur árum,
hljómleikaferð Gísla Magnús-
sonar pianóleikara og Gunnars
Kvarans cellóleikara og ballett-
sýningu Unnar Guðjónsdóttur I
vetur i Norræna húsinu — tón-
skáldið, sem samdi tónlistina fékk
verkið borgað á vegum NOMUS
og Unnur fékk annan styrk
minni, til að semja kóreó-
grafiuna."
„Meðal þeirra verkefna sem
styrkt Verða á þessu ári,“ hélt
Arni áfram, „eru Nordjazztón-
leikarnir, og Islandsferó sam-
norrænnar æskulýðshljómsveitar,
Mynd þessi var tekin á fyrsta sameiginlega fundi
NOMUS-nefndanna, sem haldinn var í Reykjavík
árið 1972, ári eftir að íslendingar gerðust aðilar að
þessu samstarfi.
hver bið, þvi aó það var ekki
tilbúið i tæka tíð. Nordheim fór
til Vestmannaeyja út af þessu
verkefni og með honum kunnur
sjónvarpsmyndatökumaður, sem
tók kvikmynd af honum þar fyrir
norska sjónvarpið.“
Við spurðum Arna um fram-
hald samnorrænu hljómlistarsam-
keppninnar, sem fram hefur farið
I ýmsum greinum á undanförnum
árum. Hann sagði, að árió 1969,
þegar til þessarar keppni hefði
verið stofnað að frumkvæði
norrænu menningarmálanefndar-
mönnum og islenzku tónlistarlífi i
heild. Dæmin, sem að framan eru
nefnd, sanna þaó. Einangrun Is-
lands er úr sögunni og fá nú is-
lenzkir tónlistarmenn veiga-
meiri verkefni i hendur en
nokkru sinni fyrr, ekki hvað sízt
fyrir tilverknað samnorrænna
samtaka. Þeir eru orðnir hlut-
gengir um öll Norðurlönd og
njóta jafnréttis á við starfsbræð-
ur sína í hvaða landr sem er, en
jafnir leika löngum bezt, eins og
máltækið segir. Samvinna við
Norðurlönd er okkur nauósyn.“