Morgunblaðið - 13.04.1975, Side 47

Morgunblaðið - 13.04.1975, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. APRIL 1975 47 Sæluvika um Mælifelli — 12. april. GAGNSTÆTT venju eru nú ýms- ar samkomur i héraðinu um Sælu- viku Skagfirðinga. Karlakórinn Heimir hefur haldið söng- skemmtanir i Miðgarði og Argarði og i kvöld stendur kórinn að kabarett i Varmahlíð með Hörpu á Hofsósi og fleiri aðilum. Leik- sýning var í Höfðaborg og e.t.v. víðar var eitthvað um að vera. Mælist þetta vel fyrir i sveitunum og virðist eðlileg þróun, þar sem stór og vistleg félagsheimili eru risin. Óneitanlega er það þó um- deilt á Sauðárkróki, eins og von er, þar sem hér eru mörkuð þátta- skil en þau eru góðs viti fyrir þær sveitir, sem fjær eru kaupstaðn- — Dagný Framhald af bls. 48 halda áfram aðgerðum, ef ekkert verður gert.“ Þá sneri Morgunblaðið sér til Jónasar Haraldssonar hjá L.I.U. og spurði hann hvort margar sölur væru áformaðar i Bretlandi á næstunni. Hann sagði, að marg- ir útgerðarmenn hefðu ætlað sér að láta sin skip sigla á England I sumar, en siglingatiminn hæfist venjulega ekki fyrr en um mánaðamótin maí—júní. Ef ekki yrði búið að leysa löndunarmálið i Bretlandi þá væri illt i efni. Eins og málin stæðu nú væri Ostende í Belgíu eini staðurinn, sem opinn væri íslenzkum fiskiskipum, en markaðurinn þar þyldi ekki ótakmarkað álag. — Skaðleg áhrif Framhald af bls. 48 séu viðkvæm fyrir mengunar- áhrifum vegna norðlægrar legu landsins og einangrunar. Engin skaðleg áhrif í Noregi Varðandi fyrirhugaða kisiljárn- verksmiðju í Hvalfirði er það mat Náttúruverndarráðs að hættan á skaðleguin áhrifum á lifriki vegna mengunar af hennar völd- uin sé ekki veruleg ef allar til- teknar varúðarráðstafanir eru gerðar, og tninni en af öðrum inálinblendiiðnaði, svo sein af framleiðslu mangan- og króm- járnblendis. Veldur þvi fyrst og fremst annað hráefni svo og ann- ar tæknibúnaður til inengunar- varna. Þrátt fyrir áratugareýnslu af inikilli og hviinleiðri rykineng- un frá kísiljárnbræðsluin I Noregi hafa að sögn umhverfisyfirvalda þar (Statens Forurensningstil- syn, iniljödepartementet) ekki komið fram neinar upplýsingar sem benda til þess að slík mengun hafi haft skaðleg áhrif á góður eða dýralif. A hinn bóginn var það einnig upplýst að það hafði ekki verið sérstaklega rannsakað, og að sjálfsögðu höfum við ekki reynslu af slíkri starfsemi hér á landi. Með þeiin tæknibúnaði til rykhreinsunar, sein þróaður hef- ur verið á allra síðustu árum, hafa skapast inöguleikar á stórfelldum úrbótum frá þvi sein áður var til varnar rykmengun út frá kísil- járnverksmiðjum og jafnfraint verið unnt að bæta verulega innri starfsskilyrði i slikum verksmiðj- um. Þó er aftöppun af bræðsluofn- uin enn ófullkomin og fylgir henni nokkur inengun i vinnslu- söluin, sein áherslu þarf að leggja á að dregið verði úr. Með pokasium hefur tekist að taka fyrir sýnilegan rykútblástur frá bræðsluofnunu, en þá keinur upp sá vandi að losna á viðunandi hátt við rykið sem þannig safnast fyrir. Ráðið hefur utn það upplýs- ingar tæknimanna í Noregi, að endurnýting sé iniklum vand- kvæðuin háð og hafi afköst ofn- Nafn misritaðist Nafn fermingardrengs i Lang- holtskirkju I dag hefur misritazt i blaðinu i gær. Fermingardreng- urinn heitir Astþór Már Astþórs- son Efstasundi 17. Er hann beð- inn afsökunar á mistökunum. breiða byggð um. Annars er litið lát á hvers konar skemmtunum, fundum og námskeiðum. Má þar sérstaklega nefna, að Leikfélagið Iðunn i Hrafnagilshreppi sýndi fyrir skemmstu hér vestra Melkorku eftir Kristínu Sigfúsdóttur og var það eftirminnilegt og vel gert. — sr. Agúst. anna, og par meó orkunýting, lækkað uin 8—10% þegar það hafi verið reynt og jafnframt safn ist fyrir úrgansefni í þvi ryki, sein fer i endurnýtingarhringrás. Virðist raunar auðséð, að full- koinin endurnýting sé tæknilega og fræðilega óhugsandi og spurn- ingin aðallega hversu mikið sé hægt að endurnýta og hversu inik- ið verði að losna við á annan hátt og þá hvernig. Uin þetta atriði sýnist Náttúruverndarráði ekki hafa borist nægilega skýrar upp- lýsingar að því er fyrirhugaða verksmiðju i Hvalfirði varðar. it Mengun vegna snefilefna ekki fyrirliggjandi Mengun af völduin snefilefna, svo sein máltnsambanda í út- blæstri, virðist af fyrirliggjandi gögnuin ekki likleg til að valda tjóni, en gæti þó sainkvæmt ofan- sögðu skapað vandainál vegna samstöfnunar við endurvinnslu ryksins I inálinbræðslunni og þvi nauðsynlegt að fylgjast vel með þeim þætti svo og efnainnihaldi allra hráefna, sein notuð eru. önnur föst úrgangsefni, svo sem gjall og steinefni úr deiglum, eru ekki i þeim inæli að valda burfi erfiðleikum, sé frá beiin gengið með eðlilegum hætti og jafnframt fylgst með efnasam setningu þeirra og áhrifum frá þeiin við geyinslusvæði. Nokkur loftmengun ineð brennisteinsdioxiði, SÓ2, viróist óuinflýjanleg með núverandi vinnslutækni en eðlilegt er að gera kröfur uin, að henni sé hald- ið í iágmarki með kröfuin til hra'- efnis. Náttúruverndarráð telur miklu varða að fyrirtækið verði frá byrj- un búið fullkotnnustu mengunar- vörnuin sem völ er á, og strangt eftirlit verði haft með viðhaldi og stýringu þess búnaðar með tilliti til umhverfisáhrif frá rekstrin- um, sein kosti slikt eftirlit og allar nauðsynlegar úrbætur vegna tjóna, sein rekja iná til fyrirtækis- ins. + Líffræðistofnun Hl framkvæmir rannsókn Náttúruverndarráð telur mik- ilsvert að vistfræðileg rannsókn á uinhverfi verksmiðjunnar ásamt nauðsynlegum efnarannsóknum hef jist sein fyrst, þannig að áreið- anlegar niðurstöður varðandi um- hverfisaðstæður liggi fyrir áður en rekstur hefst. Einnig leggur ráðió áherslu á að slíkri alhliða könnun verði fram haldið skipu- lega eftir aó rekstur hæfist, i sain- ræmi við áætlun er Náttúru- verndarráð lætur í té.“ 1 framhaldi af siðastnefnda atrið inu gat iðnaðarráðherra þess að hann hefði þegar sent Liffræði- stofnun Háskóla íslands beiðni uin að frainkvæma slíka rann- sókn. Bréf ráðherra er svohljóð- andi: „Iðnaðarráðuneytið óskar hér ineð eftir þvi að Liffræðistofnun Háskóla íslands taki að sér að frainkvæina líffræðilega athugun á umhverfi fyrirhugaðrar járn- blendiverksiniðju i Hvalfirði, þannig að fygljast inegi ineð áhrifum hennar á llfrikið. Ráðu- neytið óskar þess að stofnunin hefji rannsóknirnar svo fljótt sein verða iná.“ — Happdrætti Framhald af bls. 48 vinningurinn, húsið, væri I sjálfu sér óeðlilega hár miðað við aðra vinninga. Hæsti vinningurinn er um 57% af heildarvinningsfjár- hæðinni i flokknum, en hjá Háskólahappdrættinu er hæsti vinningurinn, 18 milljónir, rétt rúmlega 4% af vinningum flokks- ins. Ólafur Jóhannesson, fram- kvæmdastjóri Vöruhappdrættis SlBS, sagði að nærri léti að óseld- ir miðar í happdrættinu væru um 10% og vinningar væru 60% af veltu happdrættisins eða um 151.200.000,- krónur. Samkvæmt því lætur nærri að happdrættið geti átt von á því að vinna um 15 milljónir króna á þessu ári. Baldvin Jónsson, framkvæmda- stjóri Happdrættis DAS, sagði að ekki væri ljóst, hvert hlutfall seldra miða yrði nú á nýju happ- drættisári, en þær upphæðir, sem DAS ynni I sjálfu happdrættinu væru mjög breytilegar, einkum þegar einn vinningurinn væri þess eðlis að hann væri svo miklu stærri en aðrir. Benti hann á að hlutfall vinninga af veltunni hefði verið 60,5% en þegar Alfta- neshúsið hefði komið aftur inn, hefði hlutfallið hækkað f 65% af veltu. I árslok eru óseldir miðar í happdrættinu um 16 til 17% en í ársbyrjun um 10%. Um 3 til 4% afföll verða á hverju happdrættis- ári. Baldvin sagðist muna eftir tveimur árum, sem gerð hefðu verið upp. Voru vinningar DAS þá 11%, en hlutfall óseldra miða 17%. Hitt árið voru óseldir miðar 20% og vinningshlutfall sjálfs happdrættisins sama talan. Éf gengið er út frá þessum tölum gæti Happdrætti DAS á komandi happdrættisári búizt við að vinna frá 16 til 28 milljónum króna. — Víðtæk leit Framhald af bls. 48 þegar Morgunblaðið hafði sam- band við hann, að Richard Björgvinsson, lögregluþjónn, stjórnaði leitinni. Flokkur manna úr deild Slysavarnarfélagsins á Seyðisfirði hefði farið í leitina og menn úr deild S.V.F.Í. úr Borgar- firði eystri hefðu ætlað sér að koma á móti Seyðfirðingunum. Til Loðmundarfjarðar fóru Seyðfirðingarnir á vélbáti og höfðu með sér vélsleða. Þá stóð til að þyrla Andra Heiðbergs yrði með I förinni. Erlendur sagði að leita ætti á öllu svæðinu í kringum Loð- mundarfjörð og yrði farið i öll eyðibýli eins og t.d. i Húsavík, sem er .á milli Loðmundarfjarðar og Borgarfjarðar. — Dulbúin hótun Framhald af bls. 48 hugsunarháttur kalda striðsins sé enn hlutgengur, þ.e. að reisa hindranir og óyfirstiganlegar tálmanir. Þetta er ekki aðeins í mótsögn við það lögmál, að friður- inn er ódeilanlegur. Þeir, sem eru bandingjar slíks hugsunarháttar liðins tíma eiga það á hættu að glata tækifærinu til gagnkvæmr- ar hagstæðrar samvinnu við Sovétrikin, einkum á efnahags- sviðinu, sem hefur sérstaka þýð- ingu vegna vaxandi óstöðugleika í efnahagslifi vestrænna ríkja.“ Það virðist alveg augljóst, að í feitletruðu setningunni hér að ofan felist litt dulbúin hótun til Islendinga um, að þeir muni hafa verra af á viðskiptasviðinu, ef þeir verði ekki við þeim kröfum, sem að framan greinir á stjórn- málasviðinu. — Járniðnaðar- menn Framhald af bls. 2 kjör og starfsbræður þeirra i Sví- þjóð. Guðjón sagði ennfremur, að mjög vaxandi kröfur væru nú gerðar til rafsuðu og þyrfti mikla þjálfun til að verða góður raf- suðumaður. Ef einhverjir gallar fyndust, gætu mennirnir lent í erfiðleikum og því hefði Félag járniðnaðarmanna ráðið menn frá að ráða sig til þessa fyrirtækis. Þá ætlaði Mbl. að hafa samband við Örn Clausen hrl. en í hann náðist ekki. — Rvíkurbréf Framhald af bls. 25 hjá okkur á Islandi, sem verið er aó fjalla um þetta, enda þótt þörf- in sé kannski meiri hér, vegna þess, hve rekstrargrundvöllurinn er háður miklum stökkbreyt- ingum. Ég vil leggja áherzlu á, hvað rekstrargrundvöllur fyrir- tækja er óviss hér á landi, og þá er ennþá meiri þörf á því að fá áhættufé frá almenningi. Ég held það gæti haft áhrif, gæti kannski hjálpað til þess að halda veróbólg- unni niðri, ef almenningur legði í auknum mæli áhættufé í fyrir- tæki. Þá kem ég loksins að þessum hugmyndum um nýjar leiðir i fjármagnsuppbyggingu hjá okkur hér heima. Enda þótt leggja beri áherzlu á þýðingu þess, að félögin eigi aðgang að lánsfjármagni, og i þvi sambandi vil ég minna á út- gáfu skuldabréfa, eins og Svíar hafa gert. Ég tel það komi mjög vel til greina að fara út i slikt, t.d. hjá Sambandinu i dag — þá er orðið mjög timabært að mínu áliti að leita að ótroðnum slóðum. Það er ekkert launungamál, að ég er sannfærður um nauðsyn þess, að opnuð verði ný leið i þessum efnum, er geri félagsfólki samvinnufélaganna og almenn- ingi mögulegt að ávaxta fé sitt í samvinnufélögunum. Það er skoð- un min, að þessu verði bezt hrint i framkvæmd með þvi að gera fólki kleift að kaupa hluti i kaupfélög- um og öórum samvinnufélögum. Ég vil leyfa mér aó vísa til þess, sem ég sagði áðan, að þessi leið i fjármagnsuppbyggingu hefur lengi verið notuð i Bretlandi, þar sem vagga samvinnuhreyfing- arinnar stóð og þar sem upprunn- ar eru þær meginreglur, sem orðið hafa undirstaða samvinnu- starfs hvarvetna um heim, og þá á ég við Rochdale-regIurnar.“ Sameiginlegt átak Erlendur Einarsson ræðir siðan nánar um þessar nýju leiðir i fjár- magnsuppbyggingu og telur eðli- legt, að samvinnufélögin gefi út svokölluð stofnbréf, sem beri arð með svipuðum hætti og hlutabréf, en stofnbréfaeign fylgi þó aðeins eitt atkvæði hvers einstaklings i samvinnufélögunum. Ef inn á þessa braut yrði farið, mundu slík samvinnufélög vera mjög svípuð almenningshlutafélögum, og auð- vitaó skiptir ekki máli hvað slik • félög væru nefnd. Meginatriðið er hins vegar, að unnt á að vera að sameina til átaks flesta þá, sem að atvinnurekstri standa og ábyrgð bera á honum. Én til að ná þessu markmiði, þarf auðvitað ýmsar lagabreytingar, og þá fyrst og fremst endurskoðun félagalagaog allviðtækar skattalagabreylingar. Þetta tekur auðvitað nokkurn tíma, kannski 2—3 ár, þótt vel væri að staðið, en meginatriði er, að hafizt verði handa. Islendingar eru andvigir þvi, að mikið vald, hvort heldur er stjórnmálalegt eða fjármálalegt, safnist á hendur örfárra manna. Vió keppum að sem mestum jöfn- uði i þjóðfélaginu, og almennings- þátttaka i atvinnurekstri er vis- asti vegurinn til að feta þá braut til farsældar. t. Jnor0uubln!>ií> fVmnRGFHLDnR I mRRKRfl VDHR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.