Morgunblaðið - 06.06.1975, Page 3

Morgunblaðið - 06.06.1975, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. JUNl 1975 3 Ólafur B. Thors endurkjörinn forseti borgarstjórnar Á fundi borgarstjórnar Reykjavíkur í gær var Ólafur B. Thors endurkjör- inn forseti borgarstjórnar til eins árs. Fyrsti varaforseti var kjörinn Albert Guðmundsson og annar varaforseti Elín Pálmadóttir. Skrifarar borgar- stjórnar voru kjörnir Davíð Oddsson og Þorbjöm Broddason. Á fundinum var ennfremur kjörið í borgarráð og þær nefndir. sem borgarstjórn kýs til eins árs i senn. I borgarráð voru kjörnir: Albert Guðmundsson, Markús Örn Antonsson, Magnús L. Sveinsson, Sigurjón Pétursson og Kristján Benediktsson. Varamenn i borgar- ráð voru kjörnir: Birgir Isleifur Gunnarsson borgarstjóri, Ragnar Júliusson, Elín Pálmadóttir, Adda Bára Sigfúsdóttir og Alfreð Þor- steinsson. í byggingarnefnd voru kjörnir: Hilmar Guðlaugsson, Gunnar Hansson og Magnús Skúlason. Varamenn i byggingarnefnd voru kjörnir: Haraldur Sumarliðason, Konráð Ingi Torfason og Þorvaldur Kristmundsson. [ hafnarstjórn voru kjömir: Ólafur B. Thors, Albert Guðmundsson, Gústaf B. Einars- son, Guðmundur J. Guðmundsson og Guðmundur G. Þórarinsson. Formaður hafnarstjórnar var kjör- inn Ólafur B. Thors. Varamenn i hafnarstjórn voru kjörnir: Birgir fsleifur Gunnarsson borgarstjóri, Guðmundur Hallvarðsson, Magnús L. Sveinsson, Erlingur Viggósson og Kristján Benedikts- son. í stjórn Innkaupastofnunar Reykjavikur voru kjörnir: Valgarð Briem, Albert Guðmundsson, Ólafur Jónsson, Sigurjón Péturs- son og Alfreð Þorsteinsson. For- maður stjórnar Innkaupastofnun- arinnar var kjörinn Valgarð Briem. Varamenn voru kjörnir: Magnús L. Sveinsson, Sveinn Björnsson verkfræðingur, Sveinn Björnsson kaupmaður, Tryggvi Þór Aðal- steinsson og Guðmundur G. Þórarinsson. [ stjórn Lifeyrissjóðs borgastarfs- manna voru kjörnir: Albert Guðmundsson, Markús Örn Antonsson og Kristján Benedikts- son. Varamenn voru kjörnir: Magnús L. Sveinsson, Elin Pálma- dóttir og Alfreð Þorsteinsson. í ferðamálanefnd voru kjömir: Markús Örn Antonsson, Elín Pálmadóttir, Guðni Jónsson, Hilmar Guðlaugsson, Guðrún Ágústsdóttir, Örlygur Hálfdánar- son og Haukur Morthens. Vara- menn i ferðamálaráð voru kjörnir: Sigrlður Ásgeirsdóttir, Bessi Jóhannsdóttir, Haraldur J. Hamar, Ragnar Kjartansson, Guðmunda Helgadóttir, Pétur Sturluson og Pétur Sigurðsson. Endurskoðendur borgarreikninga voru kjörnir: Bjarni Magnússon og Hrafn Magnússon og til vara: Sveinn Jónsson og Hrafnkell Björnsson. Kjöri í útgerðarráð var frestað. Fulltrúi borgarinnar í stjóm Fiskimálasjóðs Kjalarnesþings var kjörinn Gunnar Friðriksson. End- urskoðandi styrktarsjóðs sjó- manna- og verkamannafélaganrfa i Reykjavik var kjörinn Alfreð Guðmundsson. Fulltrúi borgarinn- ar i stjórn Sparisjóðs vélstjóra var kjörinn Gisli Ólafsson. Endurskoð- endur Sparisjóðs vélstjóra voru kjörnir Sigurður Hallgrimsson og Guðmundur Ágústsson. Við kjör forseta borgarstjórnar fékk Ólafur B. Thors 9 atkvbaði. Björgvin Guðmundsson eitt, auðir seðlar voru 5. Björgvin Guðmundsson óskaði eftir, að at- kvæðagreiðslan yrði endurtekin. Forseti úrskurðaði að atkvæða- greiðslan væri skýr og hefði farið fram með lögmætum hætti og yrði því ekki endurtekin. Þorbjörn Broddason gerði tillögu um, að úrskurði forseta yrði hnekkt. Sú tillaga var felld með 8 atkvæðum gegn 5. Við kjör fyrsta varafor- seta, fékk Albert Guðmundsson 9 atkvæði, auðir seðlar voru 6. Við kjör annars varaforseta fékk Elin Pálmadóttir 9 atkvæði, Davíð Oddsson eitt atkvæði, auðir seðlar voru 5. Hádegis fundur SVS og Varðbergs: Vandi Vesturlanda — er umræðuefni Roberts Conquest á morgun A morgun kl. 12.30 efna Samtök um vestræna samvinnu og Varð- berg til hádegisfundar í Átthaga- sal Hótel Sögu. Þar mun brezki rithöfundurinn Robert Conquest flytja erindi, sem hann nefnir: Vandi Vesturlanda. Að erindinu Ioknu mun hann væntanlega svara fyrirspurnum. Robert Conquest er talinn einn fremsti fræðimaður sem nú er uppi um sovézk málefni. Hann hefur samið ljóðabækur, skrifað bókmenntagagnrýni, skáldsögur og stjórnmálaleg fræðirit auk þess, sem hann hefur séð um útgáfu ýmissa rita og skrifað að staðaldri um bók- menntir og Sovétrikin I blöð og timarit. Félagsmenn í Samtökum um vestræna samvinnu og Varð- bergi eru hvattir til að fjölmenna á fundinn. A thafnakonur á Tálknafiröi: Reisa barnaheimili, beita og stunda sjóinn Tálknafirði — 5. júni. KALT hefur verið hér i veðri undanfarið og gróðri lítið farið fram. Hér eru 12 hús í byggingu um þessar mundir, þar á meðal dagheimili fyrir börn, sem Kven- félagið Harpa stendur fyrir að reisa. Hlýtur slík stofnun að telj- ast óvenjuleg ekki I stærra byggð- arlagi en ekki nóg með það held- ur eru einungis 16 konur I kven- félaginu, sem að byggingu dag- heimilisins stendur. Þær kusu sfðan fjórar konur I nefnd sem reynt hefur ýmsar fjáröflunar- leiðir og notið dyggilegs stuðn- ings þorpsbúa. Það er svo sannarlega þörf fyrir dagheimilið, því að í þessu u.þ.b. 250 manna byggðarlagi gæti ég imyndað mér að nær helmingur væri börn innan við fermingu. Hins vegar vinna konur hér yfir- leitt i frystihúsinu til að drýgja tekjur heimilisins og vilja eðli- lega vita af börnum sínum í ör- uggum höndum á meðan. Margir þorpsbúar hafa unnið í sjálfboðaliðsvinnu við barna- heimilið, og er bygging þess nú komin á góðan rekspöl. Vonumst við til að það verði orðið fokhelt um næstu mánaðamót og að það klárist sem fyrst, því að ekki veit- ir af. Annars eru konur hér athafna- samar á fleiri sviðum. Til að mynda eru hér þrir bátar á úti- legu með línu og meðal beitinga- manna er kveqfólk, sem stendur sig ekkert síður en karlmennirnir við þann starfa. Og konur eru kokkar á öllum þremur bátunum. — Ragnheiður. Sjónvarpið að heíja upp- töku á leikriti Laxness — Margt á döfinni hjá stofnuninni í sumar t ÞESSUM mánuði byrjar sjónvarpið upptöku tveggja sjónvarpsleikrita. Eru það leikritin „Veiðitúr í óbyggðum" eftir Halldór Laxness og ,,Sigur“ eftir Þorvarð Helgason. Leikrit Halldórs er samið upp úr smásögu höfundar og hefur hann sjálfur og Hrafn Gunnlaugs- son unnið það verk. Leikrit Þor- varðar er sérstaklega skrifað fyrir íslenzka sjónvarpið. I samtali Mbl. við Pétur Guðfinnsson fram- kvæmdastjóra sjónvarpsins kom fram, að ekki verður unnið að neinum sérstökum verkefnum hjá stofnuninni í júlí. Hins vegar verður unnið að verkefnum í OF MIKIL LOÐNA í BARENTSHAFI NOKKRAR umræður hafa verið að undanförnu I Noregi um vetrarveiði á loðnu. Fyrir skömmu hafði norska blaðið Fiskaren það eftir Odd Nakken, fiskifræðingi, að alltof mikið af loðnu væri í Barentshafi, og hafið gæfi ekki nógu mikið af sér til að nærafiskinn. Nakken segir, að vetrarveiði á smáloðnu næsta vetur ætti því ekkert að gera til, grisja þyrfti stofninn um þessar mundir. Hann tekur það hinsvegar fram, að fylgjast þurfi vel með stofninum, því það sé ekki einhlítt að hann sé það stór, að Barentshafið geti ekki nært hann. STÓRA STLINDIN — I gær voru gefin saman f hjónaband í Dómkirkjunni ung- frú Guórún Ágústa Þórarinsdóttir flug- freyja og Kid Jensen, einn kunnasti út- varpsmaðurinn hjá Radio Luxemhourg, en á þá stöð hafa fslenzk ungmenni löng- um hlustaó á sfdkvöldum og þekkja þvf rödd hans mæta vel. (Ljósm. Br. H.) Dágott gengi humarbáta Höfn, Hornafirði — 5. júní. HUMARBÁTARNIR hafa ver- ið að koma inn í dag með dágóð- an afla eða upp í 12—14 tunnur af stórum og fallegum humri sem fengizt hefur I Hornafjarð- ardýpinu. Er nú yfirleitt unnið hér til miðnættis öll kvöld I frystihúsunum báðum. Um 13 heimabátar stunda humarveiðarnar en auk þess landa hér milli 10 og 12 að- komubátar og er aflanum af mörgum þeirra ekið á nálægar hafnir til vinnslu. Aðeins tveir bátar eru með troll þessa stundina en þeir verða þrír þegar nýi skuttogar- inn kemur eftir nokkra daga. Skinney nefnist togarinn og var hann afhentur í gær úti í Nor- egi. Hann er um 300 tonn. — Fréttaritari. Fundur eins og í gamla daga Siglufirði, fimmtudag. I GÆRKVÖLDI var efnt til borgarafundar hér á vegum bæjarstjórnarinnar. Umræðu- éfnið var hitaveitan fyrir Siglu- fjörð. Voru framsöguræður fluttar í málinu og ræðumenn voru fjórir, en síðan almennar umræður. Borgarafundurinn þótti takast mjög vel og gamall kunningi minn hér i bænum sagði, að fundurinn hefði minnt sig á slíka fundi hér i þá gömlu góðu daga. Stóð fundurinn fram yfir miðnætti. Því skal bætt hér aftan við að lokum að togarinn Sigluvik er að losa 70-80 tonna fiskfarm hér í dag, og hér sem annars- staðar á norðanverðu landinu er kalt og hér gerði dálitinn hríðarbyl í morgun. Sigurður er kominn á Ný- fundnalandsmið NÓTASKIPIÐ Sigurður frá Reykjavík er nú komið á loðnu- miðin við Nýfundnaland, en ekkert hefur enn frétzt af veiði þar. Að sögn Sigurðar Einars- sonar hjá Isfelli h'.f., var haft samband við Kristbjörn Þórarinsson skipstjóra I fyrra- dag, en þá var skipið rétt að koma á miðin, en það fór frá Reykjavík á föstudag I síðustu viku. Norglobal hélt sig þá SV af Nýfundnalandi og á þeim slóðum var þá mikill hiti. Norsku loðnuskipin voru þá ekki komin á miðin, cn nokkur þeirra rétt ókomin. Ekki átti Sigurður Einarsson von á, að neitt fréttist frá Sig- urði á ný fyrr en eftir helgi. A skipinu er 15 manna áhöfn. Í m ágúst og september en ekki er fullráðið hvað þá verður gert. Þá mun sjónvarpið í lok júlí senda þrjá menn undir stjórn Ölafs Ragnarssonar fréttamanns til íslendingabyggðanna i Kanada þar sem þeir munu vinna að öflun efnis i sambandi við 100 ára af- mæli Islendingabyggðanna þar. Mun sjónvarpsflokkurinn verða þrjár vikur i ferðinni. 7 skip seldu - mjög lágt vctÖ SJÖ síldveiðiskip seldu I Dan- mörku I gær, og eins og sfðustu daga var verðið, sem fékkst fyrir aflann, mjög lágt. Þó fengu 3 skip yfir 40 kr. meðalverð, en vorú með mjög litinn afla. Skipin sem seldu eru þessi: Súlan EA seldi 18 iestir fyrir 476 þús. kr., meðalverð kr. 26,25, Jón Finnsson GK seldi 12,3 lestir fyrir 146 þús. kr., meðalverð kr. 11,90 kr, að auki 0,9 lestir af makríl fyrir 37 þús. kr. og meðalverðið þar var kr. 42,17, Asgeir RE seldi 2,9 lestir fyrir 40 þús. kr., meðal- verð kr. 13,98, Þorsteinn RE seldi 37.4 lestir fyrir 709 þús. kr-, meðalverð kr. 18,98, ennfremur seldi hann 3,6 lestir af makríl fyrir 168 þús. kr. og meðalverðið var kr. 46,67, Gisli Arni RE seldi 21.5 lestir fyrir 225 þús. kr., meðalverð kr. 10,47, Hilmir SU seldi 2,8 lestir fyrir 138 þús. kr„ meðalverð kr. 49,58 og Faxaborg GK seldi 29,7 lestir fyrir 354 þús. kr„ meðalverð kr. 11,94.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.