Morgunblaðið - 06.06.1975, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. JUNl 1975
íslenzkar samtíma-
bókmenntir í band-
arísku og þýzku bók-
menntasöguverki
FVRIR nokkru kom út f Banda-
rfkjunum og Vestur-
Þýzkalandi bókmenntasaga
Evrópu og Amerfku
1945—1970, og er í báðum út-
gáfunum kafli um íslenzkar
bókmenntir þessa tfmabils rit-
aður af Erlendi Jónssyni. Mun
þetta vera eina bókmennta-
sögurit evrópsks og amerísks
samtfmaskáldskapar, og hefur
það hlotið mikla útbreiðslu, er
m.a. notað við háskóla bæði
austan hafs og vestan.
□ Rit þetta er sameiginfegt
fyrirtæki vestur-þýzka útgáfu-
fyrirtækisins Alfred Kröner
Verlag í Stuttgart og banda-
rfska forlagsins Frederick Ung-
er Pubiishing Co. f New York.
Nefnist þýzka útgáfan Moderne
Welt Literatur, — Die Gegen-
wartsliteraturen Europas und
Amerikas, og sú bandaríska
World Literature since 1945.
Báðar þessar bækur eru um 800
bls. að stærð, og skiptast í 28
kafla, en sumir höfunda rita
fleiri en einn.
Ritstjórar bókmenntasögunn-
ar eru kunnur bandarfskur
prófessor við háskólann i Nor-
man, Oklahoma, Ivar Ivask, en
hann er einnig ritstjóri bók-
menntatímaritsins Books
Abroad, og vestur-þýzki bók-
menntafræðingurinn Gero von
Wilpert.
Ritið hefst á inngangi, en sið-
an koma 28 kaflar um bók-
menntir einstakra þjóða. Skipt-
ingin fer þó ekki strangt tekið
eftir þjóðum í öllum tilvikum,
heldur fremur þjóðtungum, t.d.
eru bókmenntir Latnesku-
Ameríku i einum kafla,
úkraínskar bókmenntir eiga
sérkafla o.s.frv.
Erlendur Jónsson.
Kafli Erlends Jónssonar um
íslenzkar samtimabókmenntir
er 5 bls. i ritinu, og hefst á
stuttu yfirliti um íslenzkar bók-
menntir almennt, en siðan erú
sérstakir kaflar um ljóðagerð,
leikritun og skáldsagnaritun.
Að lokum eru svo teknar saman
niðurstöður í stuttu máli. Alls
er 24 íslenzkra höfunda getið í
kaflanum, helztu verk þeirra
nefnd og einkenni þeirra.
Aðeins ósamið
við flugmenn
FUNDUR hefur verið boðaður f
dag með fulltrúum Flugleiða ann-
ars vegar og Félags fslenzkra at-
vinnuflugmanna hins vegar. Að-
eins á nú eftir að semja við flug-
menn af flugliðastéttunum, þar
eð gengið hefur verið frá
samningum við flugfreyjur sem
kunnugt er og einnig tókust
samningar milli flugfélaganna og
flugvirkja ekki fyrir löngu sfðan.
Að sögn Sveins Sæmundssonar,
blaðafulltrúa Flugleiða, eru bún-
ar að vera tíðar viðræður milli
þessara aðila allt frá þvi að flug-
menn frestuðu verkfalli en
Sveinn vildi ekki tjá sig um
samningahorfur þessa stundina.
Hins vegar er fyrirsjáanlegt, að
allt flug mun stöðvast vegna verk-
falls Alþýðusambandsins í næstu
viku. Sagði hann, að innanlands-
flugið frá Reykjavikurflugvelli
stöðvaðist um leið og verkalýðs-
félögin á höfuðborgarsvæðinu
hæfu verkfall en hins vegar gerði
Sveinn sér vonir um að hægt yrði
að fljúga i millilandafluginu hinn
Guðmundur Har-
aldsson gefur
út tvær bækur
sonar, skálds og rithöfundar. I
bókum þessum er að finna vísur,
ferðaminningar og margs konar
hugleiðingar hans um menn og
málefni. „Nútíma mannlíf og
kvæðin“ er 100 síður að stærð, en
„Ferðapistlarnir", sem nú kemur
út í þriðja sinn, aukin og endur-
bætt, er 40 síður.
Bækurnar eru gefnar út á
kostnað höfundar.
Nýlega eru útkomnar tvær bæk-
ur frá hendi Guðmundar Haralds-
Nafn drengsins
sem lézt
Svo sem Morgunblaðið skýrði
frá f gær varð banaslys í Sand-
gerði í fyrradag, en 16 ára piltur á
vélhjóli ók á vörubifreið með
þeim afleiðingum að hann beið
bana. Pilturinn hét Úlfar Guðni
Ólafsson, til heimilis að Holtsgötu
1 i Sandgerði.
Mykjunesi í Holtum, miðvikudag.
I GÆRMORGUN er fólk á bæjum
hér í ofanverðum Holtum vaknaði
og leit út um gluggana blasti við
þeim sú sjón, sem mun ekki hafa
sézt hér í hálfa öld á þessum árs-
tima. Tún voru alhvit af snjó sem
fallið hafði um nóttina. Þessa nótt
mun þó ekki hafa verið frost, en
annars hafa verið hér samfelld
nætufrost og þar sem vatn hefur
staðið uppi hefur það verið lagt
eftir nóttina. Hér mun enginn
vera nú sem man slík næturfrost
um mánaðamót mai—júní, þori ég
að fullyrða. Svo miklir þurrkar
hafa verið i þessari kuldatíð, að
12. júní þar eð verkalýðsfélögin á
Suðurnesjum hafa ekki boðað
verkfall fyrr en 13. júní.
Bókanir ferðamanna til lands-
ins eru mjög svipaðar og í fyrra-
sumar en þó ber á nokkurri
aukningu ferðamanna frá Bret-
landi, en þeim fækkaði töluvert
meðan á þorskastriðinu stóð. Hins
vegar verða starfsmenn Flugleiða
mjög varir við að urgur er i
Framhald á bls. 20
Jónas Guðmunds-
son sýnir í Glæsi-
bæjarhreppi
Jörð var alhvít í of-
anverðum Holtum
sauðfé bænda hefur ekki i sig i
úthögur\um og verður þvi að hafa
það á túnunum. Þetta alvarlega
ástand bætist ofaná áburðarvand-
ræðin, sem allir þekkja.
Þvi meiri viðbrigði eru þetta og
reyndar vonbrigði líka, þvi menn
minnast gjarnan hins góða vors
og einmuna tíðar á síðastliðnu
sumri.
A veðurfræðingunum er ekki
að heyra, að bati sé á næsta leiti.
— Magnús.
Jónas Guðmundsson.
JÓNAS Guðmundsson stýrimaður
opnar sýningu á vatnslitamynd-
umíHliðarbæ (Kuðungi) iGlæsi-
bæjarhreppi í Eyjafirði í dag,
föstudag, kl. 20.30. A sýningunni
eru 40 vatnslitamyndir, sem flest-
ar eru málaðar i vetur. Sýning
Jón&sar verður opin á morgun,
laugardag, og sunnudag frá kl.
14.00 til 20.00.
★ STAKAR TERYLENE & ULLARBUXUR f
LJÓSUM LITUM
★ FALLEG SNIÐ, HERRA OG DÖMU
ÍT KVENSKÓR
ir KÁPUR
ir KJÓLAR
ir DENIM VESTI
★ DENIM SKYRTUR
★ DENIM STUTTJAKKAR
ÍT GALLABUXUR — UFO
★ BOLIR í OFSALEGU ÚRVALI Á BÆÐI
KYNIN
Aág^ TÍZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS
ÍLn) KARNABÆR
P AUSTURSTRÆTI 22 LAUGAVEG 66 LAUGAVEG 20a
HREINT
ÚT SAGT
æðisgengið úrval
af stórglæsilegum
sumarvörum
tekið upp í dag:
LÆKJARGÖTU 2
ir SKYRTUR
ir MUSSUR OG BLÚSSUR
★ LÉTTIR KAKHI SUMARJAKKAR, DÖMU
ir LÉTTIR KAKHI SUMARJAKKAR, HERRA
★ POPPLÍNKÁPUR
ÍT POPPLINFRAKKAR
ÍT LJÓS SUMARFÖT M/VESTI
★ STAKIR „BLAZER" JAKKAR
ir DÖMU DRAKTIR
★ SJÖL OG TREFLAR